Gunnar Georgsson
Hugarburðarbolti
22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins. Við förum yfir hverja umferð. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og sigurvegari fær verðlaun.
Autor
Gunnar Georgsson
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
28. Mai 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Hugarburðarbolti Uppgjörið 28.05.2026 1:06:22
Villi Neto og Tanja Sif komu til okkar og við gerðum upp tímabilið. Lið tímabilsins valið og besti leikmaðurinn auðvitað. Við þökkum ykkur fyrir tímabilið kæru hlustendur.
Hugarburðarbolti GW 38 25.05.2026 1:04:06
Lokaumferðin og Englandsbikarinn fór á loft. Ræddum umferðina og sigurvegarinn var krýndur!
Hugarburðarbolti GW37 20.05.2026 1:14:49
Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið. Bournemouth og Man. City gerðu 1-1 jafntefli á Suðurströndinni. Þetta og allt hitt í þætti kvöldsins með frábærum gestum í setti.
Hugarburðarbolti GW 36 12.05.2026 1:18:07
Arsenal í dauðafæri á fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár eftir leiki helgarinnar. Fórum vel yfir stóru málin og GW36. Sigurvegarinn kemur inn á FB síðu Hugarburðarbolta.
Hugarburðarbolti GW 34 28.04.2026 1:16:49
Þvílík spenna
Hugarburðarbolti GW 33 21.04.2026 1:10:37
Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.
Hugarburðarbolti GW 32 14.04.2026 1:21:13
Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.
Hugarburðarbolti Extra 02.04.2026 57:05
Jón Pétur Rúnarsson kom í þennan aukaþátt og við fórum yfir sviðið þegar 7.umferðir eru eftir af tímabilinu með fantasy augunum og bara almenn yfirferð. Lofuðum og löstuðum. Hverjir hafa skarað framúr? Mestu vonbrigðin? Hverjir hafa komið mest á óvart? Bestur það sem af er tímabils? Og auðvitað lið tímabilsins hingað til? Drógum að sjálfssögðu út sigurvegara í þættinum.
Hugarburðarbolti GW 31,1 23.03.2026 1:03:39
Beto og Danny Welbeck voru á eldi um helgina. Liverpool, Chelsea og Newcastle töpuðu öll sínum leikjum um helgina. Blóðug fallbarátta framundan þar sem Notthingham Forest skelltu Tottenham í London 0-3. Aston Villa vöknuðu af Þyrnirósarsvefninum og Bournemouth og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli á suðurströndinni.
Hugarburðarbolti GW 31 16.03.2026 1:03:37
Styrktaraðilar okkar eru TA Sport Travel , Bílaréttingar Sævars , Bílakompaní , Potturinn og Pannan og Dúos. Arsenal eru komnir með 9 stiga forystu eftir leiki helgarinnar. Förum yfir umferðina og allt það helsta. Top 3 og rauða spjaldið á sínum stað.
Hugarburðarbolti GW 29 06.03.2026 1:35:05
Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
Hugarburðarbolti 02.03.2026 1:18:49
Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.
Hugarburðarbolti GW 27 24.02.2026 1:11:09
Arsenal eru með montréttinn í Norður London eftir helgina. Liverpool fóru eins og Hrói Höttur um Nottingham borg og stálu 0-1 sigri gegn Forest. Man City sigraði Newcastle 2-1. Man Utd gerðu góða ferð til Liverpool borgar og unnu Everton 0-1. Fulham og Brighton með flotta útisigra um helgina og James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn 654. leik.
Hugarburðarbolti GW 26 13.02.2026 1:15:10
Man City saxar á forskot Arsenal. Var þetta stærsta klúður tímabilsins? Liverpool fyrstir til að sigra Sunderland á Leikvangi Ljóssins. Thomas Frank og Sean Dyche eru orðnir atvinnulausir í bili. Sesko bjargaði Man Utd í London gegn West Ham. Mávarnir í frjálsu falli og Jörgen Strand Larsen byrjar vel í fyrsta heimaleik sínum en ævintýrið endaði ekki vel.
Hugarburðarbolti GW 25 09.02.2026 1:10:38
Man City sigraði Liverpool á Anfield og loksins skoraði Erling Braut Haaland. Arsenal vann Sunderland fagmannlega á Emirates. Man Utd með þægilegan 2-0 sigur á Tottenham á Old Trafford. West Ham náðu í 3 stig á Turf Moor. Brentford gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Newcastle 2-3 í norðrinu. Cole Palmer þakkaði fyrirliða traustið með því að henda í þrennu á 38 mínútum!
Hugarburðarbolti GW 24 02.02.2026 1:05:49
Arsenal eru með 6 stiga forskot eftir leiki helgarinnar. Tottenham og Man City gerðu 2-2 jafntefli í Norður London. Liverpool sigruðu Newcastle 4-1 á Anfield Road. Man Utd með 3-2 sigur á Fulham í spennu trylli. Aston Villa þurftu að lúta í gras á heimavelli gegn góðu Brentford liði 0-1. Þetta og allt hitt í GW24.
Hugarburðarbolti GW 23 27.01.2026 1:17:57
Man Utd skellti toppliði Arsenal á Emirates vellinum 2-3. Chelsea og Man Utd komust upp fyrir Liverpool með tapi þeirra síðast nefndu gegn Bournemouth 3-2 á suðurströndinni. Crystal Palace tapaði 1-3 gegn Chelsea í Lundúna slag. West Ham unnu annan leik sinn í röð. Newcastle tapaði gegn Aston Villa á sínum heimavelli 0-2 um helgina og Everton og Leeds skildu jöfn.
Hugarburðarbolti GW 22 21.01.2026 1:11:09
Man Utd sýndu gamla góða takta í 2-0 sigri á Man City á Old Trafford. Arsenal breikkaði bilið á toppnum í 7 stig þrátt fyrir 0-0 jafntefli gegn Notthingham Forest í Skýriskógi. Liverpool missteig sig gegn nýliðum Burnley 1-1 á Anfield. Það gengur ekkert upp hjá Tottenham í deildinni. Sunderland halda áfram að vera í Evrópubaráttu. Aston Villa tapaði heimaleik eftir svakalega sigurgöngu.
Hugarburðarbolti GW 21 09.01.2026 1:16:12
Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St. James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna key...
Hugarburðarbolti GW 19 02.01.2026 1:09:58
Arsenal á toppnum þegar árið 2026 er gengið í garð. Unnu Aston Villa 4-1 í toppslag umferðarinnar. Enso Maresca er hættur með Chelsea. Var þetta planað hjá honum? Liverpool kraftlitlir á nýársdag heima gegn Leeds í 0-0 jafntefli. Man City náði ekki að vinna á leikvangi ljóssins en munu engu að síður vera í toppbaráttunni.
Hugarburðarbolti GW 17 23.12.2025 1:14:56
Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!
Hugarburðarbolti GW 16 16.12.2025 1:32:25
Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar. Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæsta...
Hugarburðarbolti GW 15 09.12.2025 1:13:33
Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.
Hugarburðarbolti GW 13 01.12.2025 1:41:41
Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.
Hugarburðarbolti GW 12 25.11.2025 1:24:27
Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St. James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet