Gunnar Georgsson
Hugarburðarbolti
22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins. Við förum yfir hverja umferð. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og sigurvegari fær verðlaun.
Author
Gunnar Georgsson
Category
Podcast website
Latest episode
May 28, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hugarburðarbolti GW 11 10.11.2025 1:18:29
Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar. Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brigh...
Hugarburðarbolti Þáttur 10 04.11.2025 1:18:51
Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland hel...
Hugarburðarbolti Þáttur 9 27.10.2025 1:16:13
Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.
Hugarburðarbolti GW 8 21.10.2025 1:22:47
Man Utd lagði Liverpool á Anfield 1-2 í hörkuleik. Arsenal lagði Fulham í kotinu 0-1 á lau kvöldið. Aston Villa sigraði Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium 1-2. Sunderland halda áfram að gera góða hluti. Brighton lagði Newcastle á Amex og Erling Haaland er áfram á eldi hjá ljósblá liðum Man City.
Hugarburðarbolti GW 7 07.10.2025 1:20:01
Arsenal komnir á toppinn í deildinni eftir helgina. Semenyo áfram á eldi. Chelsea vann Liverpool á Brúnni. Manchester liðin unnu bæði sína leiki um helgina. Everton með rosalegan endurkomusigur gegn Crystal Palace. Nottingham Forest í brasi eftir enn eitt tapið og núna gegn Newcastle í norðrinu.
Hugarburðarbolti GW 6 30.09.2025 1:17:29
Crystal Palace eina ósigraða liðið í deildinni gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Liverpool 2-1 á Selhurst Park. Arsenal með svakalegan endurkomusigur gegn sterku Newcastle liði á St. James's Park. Brentford vann Man Utd 3-1. Aston Villa vann loks sigur 3-1 gegn Fulham. Sunderland ævintýrið heldur bara áfram. Úlfarnir komust loksins á blað og Brighton skelltu Chelsea á Brúnni 1-3.
Hugarburðarbolti GW 5 22.09.2025 1:14:13
Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.
Hugarburðarbolti Þáttur 4 16.09.2025 1:14:35
Man City sigraði Man Utd í slagnum um Manchester borg. Tottenham og Arsenal sigruðu bæði sína andstæðinga með sömu markatölunni. Bournemouth skelltu Brighton á Suðurströndinni. Nokkrir 0-0 leikir og Brentford og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli á G-Tech vellinum í London.
Hugarburðarbolti EXTRA 08.09.2025 1:09:45
Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.
Hugarburðarbolti GW 3 02.09.2025 1:22:33
Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.
Hugarburðarbolti þáttur 3 GW3 26.08.2025 58:21
Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fóru...
Hugarburðarbolti þáttur 1 GW1 19.08.2025 1:31:13
Fyrsta umferðin fór af stað með látum á föstudagskvöld með Liverpool sigri á Bournemouth. Við Hreimur Örn Heimisson sem var gestur þáttarins fórum yfir þann leik ásamt öllu öðru sem gerðist í þessari fyrstu umferð tímabilsins 2025/26. Top 3 á sínum stað ásamt rauða spjaldinu og svo er það nýr liður sem er fantasy pick umferðarinnar.
Hugarburðarbolti Upphitun 29.07.2025 1:20:03
Hugarburðarbolti fór aftur af stað. Fengum góða gesti en þeir Villi Neto og Hreimur Örn komu til okkar og ræddu við okkur allt sem þú þarft að vita um enska boltann og fantasy leikinn.
Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska! 29.05.2025 1:26:11
Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.
Hugarburðarbolti GW 38 27.05.2025 1:00:33
Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.
Hugarburðarbolti GW 37 20.05.2025 1:10:09
Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn! Nottingham Forest eru ennþá í möguleika á meistaradeildar sæti. Brighton lögðu meistara Liverpool. Aston Villa með lífsnauðsynlegan sigur á Tottenham. Fulham með flottan útisigur á Brentford. Og Jaime Vardy kvaddi King Power með stæl! Declan Rice tryggði Arsenal í meistaradeildina með 1-0 sigri gegn Newcastle.
Hugarburðarbolti GW 36 13.05.2025 1:08:01
Liverpool og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli á Anfield í stórleik helgarinnar. Newcastle upp í 3 sætið eftir sterkan sigur gegn Chelsea. Man City misstigu sig á suðurströndinni gegn Southampton. Ollie Watkins með sigurmark á útivelli gegn Bournemouth. Nottingham Forest gerði einungis jafntefli 2-2 gegn föllnum Leicester liðum. Kevin Schade heldur áfram að spila vel og Eze var kóngurinn á Tottenham Hot...
Hugarburðarbolti GW35A 06.05.2025 1:05:26
Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga. Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!
Hugarburðarbolti GW 35 06.05.2025 1:05:33
Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga. Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!
Hugarburðarbolti GW 34 28.04.2025 54:39
Liverpool Englandsmeistari! Pökkuðu Tottenham saman á Anfield. Baráttan um meistaradeildarsætin 3-5 sætið heldur áfram. Newcastle fór upp í 3.sætið með þægilegum sigri á Ipswich. Matheus Chuna er listamaður Úlfanna. Chelsea sigraði Everton á Brúnni. Man City og Crystal Palace sem spiluðu ekki í umferðinni mætast í úrslitum FA bikarsins.
Hugarrburðarbolti GW33 24.04.2025 1:02:33
Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar. Trent með góða kveðjugjöf eða hvað? Aston Villa burstaði Newcastle en tapaði svo gegn Man City. Nottingham Forest með mikilvægan útisigur á Tottenham á annan í páskum. Spennan verður svakaleg um þetta 3-5 sæti sem gefur meistaradeildarsæti. Svo óskum við Leeds og Burnley stuðningsmönnum til hamingju með úrvalsdeildarsætið.
Hugarburðarbolti GW 32 17.04.2025 1:09:05
Liverpool eru með 9 fingur á Englandsbikarnum. Newcastle á fullri ferð inn í meistaradeildina í 3.sætinu. Notthingham Forest og Arsenal töpuðu bæði stigum í umferðinni. Aaron Ramsdale markvörður Southampton gerði sér lítið fyrir og varði 2 vítaspyrnur gegn Aston Villa. Svarthvíta hetjan Harvey Barnes var frábær í þessum tveimur leikjum hjá Newcastle.
Hugarburðarbolti GW 31 08.04.2025 1:07:59
Fulham skellti toppliði Liverpool 3-2 á Craven Cottage. Man Utd og Man City skildu jöfn í borgarslagnum. Arsenal missteig sig í Guttagarði. West Ham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik. Aston Villa skellti sterkum Notthingham Forest piltum á Villa Park og Jacob Murphy svarthvíta hetja Newcastle gegn Leicester.
Hugarburðarbolti GW 30 04.04.2025 1:12:14
Liverpool vann borgarslaginn. Notthingham Forest skelltu Man Utd. Newcastle á góðri siglingu. Ipswich lagði Bournemouth á útivelli. Saka stimplaði sig strax inn eftir meiðsli hjá Arsenal. Aston Villa með gæðasigur á Brighton og Dýrlingarnir náðu í stig gegn Palace.
Hugarburðarbolti þáttur 29 GW 29 17.03.2025 1:04:09
Liðin í öðru og þriðja sætinu í deildinni , Arsenal og Nottingham Forest unnu sína leiki. Man City og Brighton gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Brentford skellti Bournemouth á útivelli og þetta var fimmti útisigur þeirra í röð. Úlfarnir lögðu Southampton á St. Mary's 1-2 og iðnaðar jafntefli 1-1 varð niðurstaðan á Goodison Park á milli Everton og West Ham og Bruno Fernandes kóngurinn á Kin...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.