Vilhjálmur Þór og Elín Edda
Hlaupalíf Hlaðvarp
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir! 06.04.2020 1:03:31
#21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta t...
# 20 Stóra hlaupinu aflýst/frestað - HVAÐ SVO? 20.03.2020 47:13
Í nýjasta þætti fórum við í Hlaupalíf aðeins yfir stöðuna hjá okkur hlaupurum í þessu blessaða ástandi sem er í gangi. Búið að fresta eða aflýsa flestum hlaupakeppnum næstu vikurnar, margir í sóttkví eða eingangrun og enn fleiri að velta fyrir sér hvað hægt er að gera keppnislega og æfingalega séð næstu misserin til að halda sér í toppformi og hamra inn góðu bætingahlaupi síðar á árinu!
#19 Birna Varðar um átraskanir, næringu og önnur tengd málefni 26.02.2020 1:19:07
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengið við í hús frumkvöðulinn, næringaspekúlantinn og hlauparann Birnu Varðar. Birna er með BS gráðu í næringafræði og MS í þjálffræðivísindum (hversu töff gráða?) og sagði okkur frá mikilvægi næringar fyrir heilsu og árangur í íþróttum og sérstaklega í hlaupum, en Birna hefur sjálf lent í alvarlegum fylgikvillum fyrir nokkrum árum tengt þessu sem við föru...
#18 Hlynur Andrésson: Afrekshlaupari og margfaldur Íslandsmethafi 21.01.2020 59:51
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við viðtal við hinn margfalda Íslandsmethafa og afrekshlaupara Hlyn Andrésson. Hlynur spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, afreksmannalífið, öll þessu frábæru Íslandsmet sem Hlynur hefur verið að setja undanfarin misseri en hann setti meðal annars Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í mars 2019 er hann hljóp á 29:49 mín og bætti þar með 36 ára gamalt h...
# 17 Áramótaannáll Hlaupalíf Hlaðvarp 2019! 30.12.2019 39:36
Í áramótaannál hjá okkur í Hlaupalíf Hlaðvarp förum við yfir hlaupaárið 2019, hvað stóð upp úr innanlands og erlendis. Förum yfir ýmsa flokka eins og Laugaveg ársins, dugnað og skandal ársins sem og óvæntasta innlenda og erlenda atvik ársins OG MARGT MARGT FLEIRA. Þökkum ykkur kæru hlustendur svo KÆRLEGA fyrir árið sem er að líða og hlökkum til nýs hlaupaárs!
# 16 Hlaupabókarýni hjá Hlaupalíf Hlaðvarp með Arnari Péturssyni 19.12.2019 1:01:39
Í glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hva...
# 15 Sævar Skaptason: Á sjötugsaldri og hlaupandi um allar trissur.....! 01.12.2019 1:12:08
Sævar Skaptason 61 árs gamall framkvæmdastjóri ferðaþjónustu Bænda og útivistargarpur er viðmælandi þáttarins! Í þættinum segir hann okkur ýmsar skemmtilegar sögur en hann hefur greinilega upplifað ýmislegt á hlaupaferðum sínum í gegnum árin. Einnig segir hann leyndardóminn við því að halda sér í topp formi á sjötugsaldri. Fróðlegt viðtal sem bætir enn einu púsluspilinu við hlaupasögu okkar...
# 14 Maraþon - svo mikið meira en bara að hlaupa 05.11.2019 56:30
# 14 Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp verður þáttastjórnandinn Elín Edda að viðmælanda í stórmerkilegu viðtali eftir heimkomuna frá Frankfurt maraþoninu þar sem Elín hljóp sitt annað maraþon á 2:44;48 klst og bætti þar með tímann sinn um rúmar 4 mín. Í sínum maraþon undirbúningi hefur Elín Edda verið með fjölmargar undirbúningspælingar sem hún miðlar frá sér í viðtalinu sem vi...
# 13 Rannveig Oddsdóttir: Um OCC í Ölpunum og önnur AFREK 18.10.2019 1:11:53
Í #13 þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp birtum við STÓRskemmtilegt viðtal við reynsluboltann Rannveigu Oddsdóttur sem hefur afrekað fjölmargt á sínum hlaupaferli, bæði á götunni og í utanvegahlaupum og er hún til að mynda nýkomin heim frá frönsku Ölpunum með 3 sætið í farteskinu frá OCC hlaupinu sem er eitt þekktasta utanvegahlaupið í dag. Við í Hlaupalíf höfum einmitt prófað að hlaupa á þessu svæði og...
#12 Mun hið ómögulega gerast? Sub2 maraþon framundan - Vignir Már Lýðsson 03.10.2019 1:02:22
Eins og margir vita þá ætlar maraþon- og ofurhlauparinn Eliud Kipchoge að reyna hið ómögulega; hlaupa heilt maraþon á undir 2 klst í Austurríki í okt. (ca 21 km/klst á brettinu!). Hreint út sagt sturlað, ekki satt? Til þess að fara yfir þessa tilraun og heyra aðeins sögu Kipchoge sem hægt er að læra mikið af, fengum við til okkar í settið Vigni Má Lýðsson sem er allra manna fróðastur u...
# 11 Kári Steinn um maraþonhlaup 22.09.2019 1:21:08
Ólympíufarinn og Íslandsmethafinn í heilu og hálfu maraþon Kári Steinn Karlsson kíkti til okkar í settið þar sem við fórum yfir hlaup hlaupanna: MARAÞON! Í síðari hluta viðtalsins fórum við svo yfir hlaupaferilinn hjá Kára sem er auðvitað afar áhugaverður og er virkilega gaman að heyra þennan ofurhlaupara segja frá sínum hlaupa afrekum sem eru magnaðir.
# 10 Pétur í Boss; í BESTA formi lífs síns - Pétur Ívarsson 31.08.2019 1:13:01
Við erum búin að vera ótrúlega spennt að birta næsta þátt en hinn margreyndi maraþonhlaupari og verslunarstjóri Pétur Ívarsson settist niður með okkur í vikunni. Við fórum meðal annars yfir hlaupaferilinn, reynsluna hans frá Reykjavíkurmaraþoninu en þar náði Pétur flottri bætingu. Förum einnig yfir frægu jakkafatamaraþonin, ennþá frægari hlaupahúðflúrin og hvað hlauparar þurfa að gera til að...
#9 Hlaup og andleg áföll - Gréta Rut Bjarnadóttir 16.08.2019 45:21
Í 9. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við í settið Grétu Rut Bjarnadóttir ung-langhlaupara og tannlæknanema sem sagði okkur frá reynslu sinni sem hún og maki hennar lentu í síðastliðið haust og hvernig hún tók á því með hlaupunum. Virkilega áhugaverður og hreinskilinn viðmælandi sem hefur sögu að segja sem snertir okkur öll, enda lendum við öll í skakkaföllum í lífinu sem við tökum á með m...
#8 Í fantaformi á besta aldri - Trausti Jarl Valdimarsson 28.07.2019 1:00:40
Trausti Jarl Járnkarl Valdimarsson læknir, langhlaupari og þríþrautarkeppandi, nýkominn heim frá Spáni þar sem hann keppti í Járnkarlinum, sem er ekki frásögu færandi nema að hann er rétt rúmlega sextugur og eflaust í besta formi lífs síns. Trausti sem byrjaði að æfa langhlaup um þrítugt er í dag margreyndur langhlaupari, hefur m.a hlaupið undir 3 klst í maraþoni, sigrað Tíbetmaraþonið 2008,...
#7 VEL nærðir hlauparar - Elísabet Margeirsdóttir 11.07.2019 1:12:31
Í 7. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við næringafræðinginn og ofurlanghlauparann Elísabetu Margeirsdóttur í sófann þar sem við fórum yfir mál málanna: NÆRINGU. Umræðuefnið sem allir hafa áhuga á og allir vilja skilja (grimmt rím) en eiga kannski erfitt með að ná utan um. Við vonum að hlustendur verði a.m.k einhverju nær um næringu eftir þennan þátt!
#6 Hleypur með landsliði og bjargar mannslífum - Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir 29.06.2019 1:03:18
#6 SplunkuNÝR þáttur kominn í loftið, en viðmælandi þáttarins var fyrirmyndin, ofurhlauparinn og hjartalæknarinn Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sem er nýkomin frá HM í utanvegahlaupum í Portúgal. Við ræddum um landsliðsferilinn, lækna- og fjölskyldulífið, næstu markmið hjá Þórdísi og margt margt fleira.
#5 Í hverju á ég að keppa í sumar? 14.06.2019 58:08
Veistu ekki í hvaða hlaupi þú átt að KEPPA í? Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp ,, Í hverju á ég að keppa í sumar ’’ förum við yfir hlaupasumarið í götu-, utanvegahlaupum o.fl. Við förum yfir hvaða hlaup hafa verið vinsælust, hvaða hlaup eru líkleg til bætinga og margt margt margt fleira. Einnig birtum við nokkur viðtöl sem við tókum við nokkra hlaupara eftir Hvítasunnuhlaup Hauka. ENJOY!
#4 Er ég meiddur eða er ég aumingi? Arnar Pétursson 29.05.2019 1:36:12
Í fjórða þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við langhlauparann, þjálfarann og rithöfundinn Arnar Pétursson í settið og fórum yfir það umræðuefni sem allir hlauparar (og aðrir íþróttamenn) hræðast hvað mest: Meiðsli og hvernig við komum í veg fyrir þau og hvaða viðvörunarbjöllur þurfum við að vera meðvituð um til að koma í veg fyrir meiðsli. Virkilega áhugavert umræðuefni sem allir íþróttamen...
#3 Hugarheimur atvinnuhlaupara frá USA - Sage Canaday 16.05.2019 1:05:17
Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við Sage Canaday bandarískan atvinnuhlaupari sem er hvað þekktastur fyrir að halda úti vinsælli hlaupasíðu á youtube sem margir Íslendingar þekkja til, (sjá link að neðan). Sage er þó einnig gríðarlega öflugur hlaupari sem hefur sigrað fjölmörg alþjóðleg utanvegahlaup og hefur keppt í maraþoni á bandaríska úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana. Ef...
#2 Bætingar á fimmtugsaldri - Þórólfur Ingi 02.05.2019 1:18:59
Í fyrsta þættinum af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við hlaupasnillinginn Þórólf Inga Þórsson sem hefur verið að brillera á öllum hlaupavígstöðvunum hérna heima undanfarin misseri. Ótrúlega áhugaverður viðmælandi, meðal annars farið yfir markmiðasetningar, andlegar pælingar, bætingar á aldursflokkametum og heilbrigðan lífsstíl. Njótið!
#1 Kynningarþáttur: Af litlum neista verður mikill eldur 02.05.2019 10:15
Nú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir. Glænýr Hlaðvarpsþáttur, "Hlaupalíf Hlaðvarp", hefur litið dagsins ljós! Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór. Við erum bæði langhlauparar og höfum mikla ástríðu fyrir hlaupum. Þessi fyrsti þáttur er almenn kynning á okkur og við hverju þið megið búast af þáttunum okkar. Við munum gefa út þætti tvisvar mánaðarlega og tölum um allt milli himins...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.