Vilhjálmur Þór og Elín Edda
Hlaupalíf Hlaðvarp
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#71 Road 2 Berlín! 🫡 01.07.2026 43:57
Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!
#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏 28.02.2026 47:54
Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tæk...
#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏 09.01.2026 1:08:26
2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðr...
#68 Aðventuþáttur 🎄🧑🎄 07.12.2025 57:15
Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt. Umræðupunktar: * Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum. * Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!) * Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026. * Valencia maraþonið. * Ástandsskoðun @Sj...
#67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼♀️➡️ 11.11.2025 1:26:49
Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. Ef það e...
#66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣 22.10.2025 1:07:37
Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma? Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu. Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s: Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinni S...
#65 Hildur hlaupahvíslari 06.10.2025 1:43:02
Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þ...
#64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃♀️ 27.09.2025 39:59
Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður. Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bæt...
#63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️ 25.08.2025 54:32
Umræður um hitt og þetta: Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”. Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ. RM pælingar og umfjöllun eftir keppni. Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM vikunni. Afmælisvikan hjá Hlaupalíf family Og margt margt fleira Þátturinn er í boði: Heilsa, Sportvörur og Optical Studio 🙏
#62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝 05.08.2025 1:31:04
Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum framförum á stuttum tíma m.a með nýlegum Íslandsmeistaratitli í 10 km og stórum bætingum í öðrum keppnisgreinum á breiðum grunnni - allt frá 800m upp í ultra hlaup eins og Laugavegshlaupið. Stefán P...
#61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra 26.07.2025 1:20:55
Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi? Mjög. Arnar fór yfir undirbúninginn fyrir keppnina, gæðaæfingarnar, framkvæmd hlaupsins, hvata, markmið og margt margt fleira. Ræddum einnig stöðuna í Ármannshlaupinu, Laugaveginn, hlaupalífið og Valenci...
#60 Post-Laugavegur 🙏 12.07.2025 29:18
Húsadalur. Hlaupalíf Hlaðvarp náði í skottið á Elínu Eddu á milli mingla. Fórum inn í tjald með einn Leffe og gerðum upp hlaup hlaupanna: Laugaveginn 2025. *Hvernig var upplifunin af fyrsta hlaupinu? *Sátt með niðurstöðuna? *Hrikalega sterkt hlaup *Flottar aðstæður - mikill hiti. *Ótrúlega góð stemning í Þórsmörk.
#59 Jón Kristófer Sturluson: fimm MÞ bætingar í fimm hlaupum! 11.07.2025 1:06:51
Við fengum í settið ofurhlauparann Jón Kristófer Sturluson sem hefur vakið töluverða athygli í hlaupaheiminum m.a með nýlegum bætingum í 5 og 10 km. JKS státar sömuleiðis af mögnuðum maraþonferli sem felur í sér fimm bætingar í jafnmörgum hlaupum, frá 2:58-2:37! Ath fyrsta hlaupið fór fram vorið 2022. Hversu peppandi? Mjög. Við kíkjum undir húddið hjá JKS og könnum hvernig hlaupaferðalagið hefur v...
#58 Laugavegsvikan er hafin! 04.07.2025 46:40
#58 Laugavegsvikan er hafin! Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk. Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H. Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til þessa, af hverju ákvað Elín Edda að prófa LV, hvaða tímamarkmið er hún með, hvernig metur hún samkeppnina, næringarplan, hlaupabúnaður og plan síðustu dagana fyrir hlaup og hlaupadaginn. Þett...
# 57 Hitaþjálfun frá A-Ö með Sigga TRI 25.06.2025 1:24:43
Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN. Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig fer maður af stað? Passíf vs. actíf hitaþjálfun? Er þetta fyrir alla? hverjir eru að stunda þetta? Hvernig getur þetta gagnast mér? Strangheiðarlegt spjall við einn öflugasta íþróttamann ok...
#56 H-in tvö: hlaup og húðin 14.06.2025 1:33:37
Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring. Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI. En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina. Þetta eru allt umfjöllunaref...
#55 Hlaupalíf á persónulegu nótunum 31.05.2025 51:31
.....en einnig á þeim léttu enda við í Hlaupalíf stemningsfólk en fyrst og fremst stemningshlauparar. Sturlaðar hlaupastaðreyndir á sínum stað og almennt gott spjall um hlaupalífið þessa dagana.
#54 Sigurbjörg Eðvarðsdóttir - margfaldur Íslandsmethafi 14.05.2025 1:15:02
Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR. Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst. 66 ára gömul. Og sló þar með Íslandsmetið í sínum...
#53 Sonja Sif og hlaupalífið 01.05.2025 1:47:08
Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástrí...
#52 Að loknu EM í götuhlaupum 16.04.2025 40:09
Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í maraþoni sem við förum rækilega yfir í þættinum sem og allt mulighed tengt mótinu en betri helmingur Hlaupalíf Hlaðvarp tók upptökugræjurnar með sér og átti gott spjall við nokkra keppendur íslen...
#51 Laugavegurinn og Elísabet Margeirs 10.04.2025 1:05:17
Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk. Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar, dæmi um góðar ,,Laugavegs-æfingar'', umræður um næringu, endurheimt og andlega þáttinn eru allt umfjöllunarefni sem við fórum yfir og meira til með Elísabetu. Það þarf vart að kynna viðmæla...
#50 Hlaupasumarið, hlaupalífið og hlaupasamfélagið! 03.04.2025 52:54
Hlaupavorið og hlaupasumarið handan við hornið og þá hlöðum við fallbyssurnar og skjótum nýjum og brakandi ferskum þætti í loftið. Margt á döfinni; Evrópumeistaramótið í maraþoni hjá Elínu Eddu, nýr dagskrárliður; Hlaupalíf-þjálfunarhornið, hvernig var hlaupaveturinn og síðast en ekki síst; ofurpepp fyrir hlaupasumrinu. Sem verður frábært hlaupasumar.
#49 Sérnámslæknarnir Hilda Hrönn og Arndís Rós um heilsueflandi vinnustaði 20.10.2024 1:13:35
Hvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni.
#48 Arnar Péturs um hlaupalífið og Berlínarmaraþonið 03.10.2024 2:07:40
Arnar Péturs og Berlínarmaraþonið takk. 3 mín bæting, negatíft splitt og fullkomið hlaup hjá Arnari og fáum því auðvitað ítarlega hlaupasögu í þættinum. Eins og Arnari er vant miðlar hann sömuleiðis úr hlaupa-viskubrunni sínum enda fróðleiksfús með öllu þegar kemur að hlaupum. Þú mátt því ekki missa af þessum þætti. Þátturinn er í boði vaxtalækkunarákvörðun Seðlabanka Íslands.
#47 Bitches I'm back 25.08.2024 1:09:33
Skelltum í einn glóðvolgan þátt í tilefni af okkar uppáhalds degi sem Reykjavíkurmaraþonið er! Gerðum upp hlaupasumarið okkar og fórum yfir epískt CRASH hjá Vilhjálmi eftir Fimmvörðuhálsinn, fjölskyldulífið, geggjaða, eldheita endurkomu Elínar Eddu í hlaupasenunni að ógleymdu STÓRA APRÍKÓSUMÁLINU eftir expoið fyrir Rvk maraþonið!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.