Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Hlaupalíf Hlaðvarp

Sports IS ↓ 71 episodes

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!

Author

Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Category

Sports

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#46 Enn á hlaupum! 26.04.2024

Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)

#45 Helen Ólafsdóttir 07.04.2023

Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlau...

#44 Búi Steinn Kárason 21.02.2023

Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason.  Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi,...

#43 Lífið er allskonar, en það er alltaf hlaupalíf 11.11.2022

Hlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!

#42 Hlaupafrumkvöðullinn Helga Árnadóttir um hlaupalífið á Höfn! 26.05.2022

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!

#41 Hlaupalífið í dag 08.05.2022

Langþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)

#40 Afsakið hlé 05.12.2021

Afsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun. 

#39 Arnar Pétursson: Uppbygging æfingatímabilsins 24.10.2021

Nú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt?   Allt þetta og auðvitað miklu meira til  (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJ...

#38 Sigmar Guðmundsson: hvernig hlaupin geta hjálpað í batanum við fíknisjúkdóm 15.09.2021

Í 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem...

#37 Andrea Kolbeins um sub-5 í Laugaveginum og hlaupalífið! 04.08.2021

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaup...

#36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór Magnússon 02.07.2021

Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum,...

#35 Ragnheiður um 100 mílurnar 13.06.2021

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekrau...

#34 Hlaupum af okkur sorgina 16.05.2021

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst sorgarinnar. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengda hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa sem tengist atlögu V...

# 33 Guðbjörg Jóna: leiðin að Ólympíudraumnum, frjálsíþróttir á Íslandi og afreksíþróttalífið 19.03.2021

Í þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur f...

#32 Prófessor Erlingur Jóhannsson um ofþjálfun 21.02.2021

Nýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands....

#31 Guðrún Sóley Gestsdóttir: Stemningshlaupari í vegan spjalli! 31.01.2021

Í þætti dagsins sem  tileinkaður er VEGANÚAR  fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega mannesk...

#30 Stefán Bragi Bjarnason: ,,Vonum það BESTA en undirbúum okkur fyrir það VERSTA''! 22.12.2020

Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á.  Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega  fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reyn...

#29 Martha Ernstsdóttir DROTTNINGARVIÐTAL! 15.11.2020

Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkalla...

*28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.IS 26.10.2020

Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir ok...

#27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIR 09.10.2020

Í upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta...

#26 Umfjöllun um langvarandi meiðsli 14.09.2020

Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður...

#25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINN 10.07.2020

Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands h...

#24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar Íslendinga 21.06.2020

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt  viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geisl...

#23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu! 06.06.2020

Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fy...

#22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf! 20.04.2020

Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað  allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að l...

Listen to the Hlaupalíf Hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.