Jóhann, Svandís, Ívar og Kristín

Heppni og Hetjudáðir

Leisure IS ↓ 119 episodes

Fjögurra manna hópur sem spilar Dreka & Dýflissur, fimmtu útgáfu. Spilið er hlutverkaspil sem byggir á spuna. Saman búum við til ævintýri með hjálp teninga. Hlaðvarpið er á íslensku, eða við reynum eftir fremsta megni að þýða það sem er á ensku. Aðal markmiðið er að hafa gaman og hlægja saman.

Author

Jóhann, Svandís, Ívar og Kristín

Category

Leisure

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 20, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

18 - Innrás 12.04.2020

Gya, Egor og Nomanuk takast á við spillingu í Bellum, komast að því að ekki er allt sem sýnist. Síðan hittir saurinn viftuna.

17 - Kvörtunarbréf 05.04.2020

Hetjurnar okkar ranka við sér í læstum kjallara.  Þau skoða sig um í Bellum, og reyna að átta sig á hverjum er hægt að treysta, og hverjum ekki...

16 - Risatásveppir 29.03.2020

Nafnlausu hetjurnar okkar skella í sig staupi og kanna hvaða fát er á fólki í Bellum.  Gya leynir frá vinum sínum ýmsu sem hún sá og gleymdi. Nuk gerir tilraun til að tæla gest, og eru þau send í verkefni á vegum Tiana, sem verður til þess að Egor býr til brauð.

15 - Bellum 22.03.2020

Hetjurnar okkar komast loks til Bellum.  Þau hitta kattarlíkan stríðsherra borgarinnar, Nomanuk lendir í einvígi við tannlausan barbara og Gya gerir sitt besta í drykkjukeppni...

14 - Satanískt Flubber 15.03.2020

Hetjurnar okkar kíkja í námuna sem þau fundu.  Þau eru ekki viss hvað þetta endilega þýðir... en lofar ekki góðu fyrir framhaldið...

13 - Að slá köttinn í sekknum 08.03.2020

Hetjurnar okkar ferðast í átt að Bellum.  Það eina sem þau þurfa að muna, er að virkja armbandið sem Delat gaf þeim, svo að Meridia geti ekki sent útsendara sína í átt að þeim...

Við Varðeldinn 1 05.03.2020

Fyrstur í röð stuttra milliþátta, þar sem við sitjum og spjöllum um söguna, sköpunina og þankagang persónanna. Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað drífur persónurnar að þessum tímapunkti sögunnar, sköpun og innblásturinn á bakvið Doctra, ásamt mörgu öðru.

12 - Meridia 01.03.2020

Hetjurnar okkar hitta ráðið í Doctra til að segja þeim allt af létta, hvað um var að vera í Roheline skóginum. Kemur svo í ljós að einn í ráðinu virðist ekki vera sá sem þau héldu...

11 - Egor Drekakló 23.02.2020

Hetjurnar okkar eru ansi hætt komnar í þessum þætti, þegar þau berjast við óvæntan óvin í botni píramídans, og tilfinningar leikmanna taka völdin.

10 - Hjörtur hinn Harðgerði 16.02.2020

Í þessu þætti ferðast hetjurnar okkar í dularfullan píramída í Roheline skóginum.  Þau finna þar illvígan óvin, sem stenst flestar þeirra árasir.  Ráðgátan flækist enn frekar, þegar á móti þeim teku einhverskonar samblanda af dreka og djöfli...

9 - Kannski er það Roheline? 09.02.2020

Hetjurnar okkar láta vita af því sem fannst í skólanum.  Þau leggja svo land undir fót, eignast nýja hest, og hafa það notalegt í skóginum. 

8 - Djöflar í yfirvigt 02.02.2020

Hetjurnar rekja slóð veranna í kuflunum, sem hafa sést um götur Doctra. Þau leggja á ráðin og komast í hann krappann, og berjast við óvini sem fáir hafa séð.  Hvaða tákn eru þetta? Af hverju er þetta að gerast í Doctra?  Music: Songs;Cockroaches, Halloween Theme, Haunted House, The Butcher, Grundar, Borgar, Góða Nótt, Blacksmith, Blood Eagle,  Entertainment, Fólkvangr, Now we Feast, Vetur Frosti,...

7 - Egor móðgar órangútan 26.01.2020

Hetjurnar okkar eru staddar í Doctra. Þær fara á fund ráðsins sem stýrir Doctra, og teknar afsíðis af Delat sem segir þeim frá því að eitthvað óeðlilegt sé á ferðinni, bæði í borginni, sem og í Alandriu allri. Þessu fylgir eftirminnileg ferð á bókasafnið í borginni.

6 - Nemendaverkefni 05.01.2020

Hetjurnar okkar komast loks til Doctra, kynnast nýjum persónum og velta fyrir sér næstu skrefum.

5 - Tímapressa 29.12.2019

Hetjurnar okkar lenda í vandræðum með tíma, djöfla og kynnast nýjum vin. Þau er áfram á leið upp til Doctra að sinna sínu verkefni fyrir Aes. Music: Marked, Borgar, Góða Nótt, Vetur frosti, Cold Journey, Behind the sword & Fólkvangr by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com) Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 License

4 - Tröllið sem stal hjólunum 22.12.2019

Hetjurnar okkar sogast inn í ævintýraheim, þar sem einhver hefur stolið jólunum! Tekst þeim að bjarga jólunum, og öllum stolnu hjólunum? Music: Silent Night, God Rest Ye Merry Gentlemen, Joy to the world, We three celtic kings & We wish you a merry christmas by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com) Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 License

3 - Gettu betur 15.12.2019

Hetjurnar okkar skoða strandað skip, og lenda í óvæntri spurningakeppni. Þau finna vísbendingar um óvenjulegan farm um borð. Kannski berjast þau við uppvakning og fiskiskrímsli eða tvö...

2 - Sjávarháski 08.12.2019

Hetjurnar okkar fá sitt fyrsta verkefni, lenda í ævintýrum á sjó og finna dulafullt skip...

1 - Bjór og kamillute 27.11.2019

Fyrsti dagur í lífi hetjanna okkar! Gya, Nomanuk og Egor eru í rólegheitum á helsta ferðamannastað Alandriu, þegar óvæntir hlutir eiga sér stað. Litlar drekaverur, upprennandi tónlistarmaður, og skuggalegir óvinir koma við sögu, í þessum fyrsta þætti af Heppni og Hetjudáðum! Music: Blood Eagle, Vopna, Blacksmith and Entertainment by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com) Licensed under C...

Listen to the Heppni og Hetjudáðir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.