Sigurjón og Tryggvi

Heimabíó

Tv IS ↓ 137 episodes

Sigurjón og Tryggvi horfa vikulega á kvikmynd sem að annar hvor þeirra hefur ekki séð en það verkefni er einfalt þar sem Tryggvi hefur varla séð eina einustu bíómynd. Þeir leggja af stað í leiðangur til að upplýsa Tryggva betur um heim kvikmynda og horfa á allt frá algjöru rusli yfir í íkoniskar kvikmyndir sem allir hafa séð og elska (nema hann)

Author

Sigurjón og Tryggvi

Category

Tv

Podcast website

heimabio.buzzsprout.com

Latest episode

Mar 7, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

One Flew Over The Cuckoo's Nest - #19 IMDB top 250 30.06.2023

One Flew Over The Cuckoo's Nest kom út 1975 - Leikstýrð af Milos Forman með Jack Nicholson, Lousie Fletcher, Christopher Lloyd, Danny Devito, Will Sampson og fleiri. R.P. McMurphy (Nicholson) leikur fyrrverandi stríðsmann úr koreska stríðinu sem á erfitt með að fylgja reglum samfélagsins. Hann hefur ítrekað komist í vandamál við lögin og þarf nú að dvelja í vinnubúðum vegna ítrekaðra glæpa. Ha...

Við elskum kvikmyndir með Gumma, Betu og Óla Jóels 23.06.2023

Tryggvi er í útlöndum þannig að ég fékk nokkra vel valda gesti til að koma í heimsókn og segja aðeins frá því hvernig kvikmyndir hafa fylgt þeim út lífið, gefið þeim falleg eða erfið augnablik og upplifanir sem þau munu seint gleyma. Þessi þáttur er tileinkaður okkur öllum sem elska kvikmyndir. Í næstu viku tökum við fyrir One Flew Across The Cuckoos Nest

Endurútgáfa : Wicker Man 16.06.2023

Það er sumarfrí og því endurútgefum við einn vinsælasta þáttinn okkar sem datt því miður út þegar að við gerðum breytingu yfir í myndbandsútgáfur. Þessi þáttur er ekki í mynd enda fyrir breytingar en hann er gjörsamlegt kaos frá byrjun til enda, líkt og myndin sjálf, endilega njótið.

The Father - #131 IMDB Top 250 09.06.2023

Í þessari viku tökum við fyrir myndina The Father frá 2020 með Anthony Hopkins og Olivia Colman í aðalhlutverki. Anthony Hopkins fer með hlutverk hins 82 ára gamla Anthony sem er kominn með vitglöp/dementia og neitar allir aðstoð frá dóttir sinni og þeirri hjálp sem hún reynir að ráða inn sér til aðstoðar. Þessi kvikmynd hefur því miður farið framhjá mörgum en er að okkar mati með betri sem við hö...

Chinatown - #157 IMDB Top 250 02.06.2023

Eftir þetta Fast ævintýri er kominn á alvöru hreinsun. Kvikmynd sem hefur staðist tímans tönn og er enn að hafa áhrif á fólk sem sér hana í dag. Hún fagnar fimmtugsafmæli á næsta ári og því tilefni til að kíkja á hana. Jack Nicholson fékk óskars tilnefningu og er, ótrúlegt en satt, ágætlega ungur. Maður sér það nú ekki oft. Næsta mynd er The Father

Fast X - "This is the end, my only friend the end" 26.05.2023

Það er komið að leiðarlokum í Fast And The Furious seríunni í bili, einu ári og tíu myndum síðar kveðjum við. En var myndin betri en við áttum von á? Næsta mynd er Chinatown

Fast 9 : Afhverju erum við að þessu? 19.05.2023

Úff þetta er komið í svo mikla vitleysu. Þessi þáttur er reiðari en Tokyo Drift, við erum búnir að vara ykkur við. Næsta mynd er Fast X sem var að detta í bíó

Fast and Furious 8 (Fate of The Furious) 12.05.2023

Teymið þarf að berjast við einu manneskjuna sem það sjálft veit að það getur ekki unnið, sjálfan Dominic Torretto. Dom mun aldrei turn his back on family en í þessari mynd verður hann að turn his back on family svo að hann fari ekki að turn his back...on....family? Þetta útskýrist allt vonandi í þættinum.

Fast And Furious 7 05.05.2023

FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY FAMILY Næsta mynd er F8 of the furious

Happy Gilmore 28.04.2023

Á milli hasarmynda færum við okkur yfir í eina klassiska. Við fengum beiðni frá hlustanda um að taka golf mynd þar sem Tryggvi er fyrrverandi atvinnu golfari og Happy Gilmore varð fyrir valinu. Við ræðum ferilinn hans Tryggva, förum yfir hvort að myndin sé raunveruleg eða ekki þegar kemur að íþrótinni sjálfri og Tryggvi lætur Sigurjón velja topp 5 leikara Í næstu viku byrjum við aftur í Fast And T...

John Wick 3 og 4 21.04.2023

Yeah.... Það er double trouble þessa vikuna, við förum hratt yfir John Wick 3 þar sem við höfum bara svo gríðarlega mikið að segja um fjórðu myndina. Það eru miklir spoilerar þannig að ef þið hafið ekki séð hana þá mæli ég sterklega með því að þið sleppið því að horfa eða hlusta þangað til að þið hafið séð hana. Við tökum Happy Gillmore í næstu viku og þökkum fyrir meðfylgnina í John Wick þemanu o...

John Wick 2 14.04.2023

Wick ferðalagið heldur áfram og nú er stefnan sett á Róm, eða allavega að hluta til. Við mælum með því að horfa með okkur á myndirnar ef þið hafið ekki séð þær þar sem við förum djúpt í spoilera.

John Wick 07.04.2023

Við hefjum þennan apríl mánuð á John Wick, hasarmynd sem breytti landslaginu. Í apríl mánuði munum við taka allar fjórar John Wick myndirnar fyrir sem verður athyglisverð tilraun þar sem Tryggvi er almennt alls ekki hrifinn af hasarmyndum. Verður hann hrifinn af þessari? Eða næstu þremur? Kemur í ljós

Ægir Líndal kíkir í heimsókn 31.03.2023

Tryggvi er lasinn þessa vikuna þannig að við frestum John Wick til næsta föstudags. Planið hjá mér og Ægi var að taka Escape From New York en hún var bara svo helvíti léleg að við ákváðum að fara spjalla um hitt og þetta. Indiana Jones, áhrif í kvikmyndagerð og hvað okkur finnst um 2023 er meðal umræðuefna. Þetta er það sem fólk í bransanum kallar "filler episode" og það hafa allir gott...

Gummi Sósa og Road House 24.03.2023

Í þessum þætti fengum við Gumma Sósu sem gest í þáttinn. Hans hlutverk var að velja mynd og í valið var ROADHOUSE! Það er óhætt að segja að myndin vakti mimsunandi skoðanir hjá öllum þáttakendum, sumar góðar og sumar slæmar. Að því sögðu þá leikur Patrick Swayze besta dyravörð Bandaríkjanna sem er ráðinn til að hreinsa upp bar í mið bandaríkjunum. Það er plottið.... Næsta mynd er John Wick

Druk (Another Round) 17.03.2023

Við höldum áfram með danska Mads Mikkelsen / Thomas Vinterberg þemað okkar. Eftir gríðarlega þunga Jagten í síðustu viku förum við á aðeins léttari nótur með Druk eða Another Round eins og flestir þekkja hana líklegast sem. Myndin fjallar um 4 menntaskóla kennara sem eru á miðpunkti lífsins og finnast þeir hafa staðnað með árunum, þeir ákveða því að prufukeyra kenningu um að mannslíkaminn sé fæddu...

Jagten (The Hunt) - #93 IMDB Top 250 10.03.2023

Mynd : Jagten (The Hunt) Leikstjóri : Thomas Vinterberg Handrit : Thomas Vinterberg og Tobias Lindholm Leikarar : Mads Mikkelsen - Thomas Bo Larsen - Annika Wedderkopp Þátturinn er í boði þvælu, vitleysu og kleinuhringja utan um munna. 

Inception- #14 IMDB Top 250 03.03.2023

BWAAAAAAH!!!! BWAAAAAAH!!! heyrðist hljóma í öllum trailerum eftir að Inception kom út. Margir sáu þessa tvisvar í bíó, ef ekki oftar, og hefur verið talin af mörgum sem besta mynd Christopher Nolan. En vitið þið hver sá hana aldrei? Tryggvi. Við löguðum það.

The Godfather Part 2 - #4 IMDB Top 250 24.02.2023

Það er komið að því! Í fyrra tókum við fyrstu myndina og eins og flestir vita eru þetta óaðskiljanlegar kvikmyndir þannig að við er mættur aftur til að klára þessa frábæru tvennu. Fannst Tryggva hún betri eða verri en fyrri myndin? Komumst að því saman Næsta mynd er Inception eftir Christopher Nolan, myndin sem Tryggvi valdi fyrir árið 2023

Elísabet Arna og Back To The Future - #30 IMDB Top 250 17.02.2023

Í þessari viku fáum við gest með okkur, sem er gott til að halda geðheilsunni. Hún Elísabet, eða Beta, tók þátt í umræðu um Back To The Future en hún valdi myndina sjálf. Beta stundar BA nám í lögfræði í Bretlandi með áherslu á Media/Entertainment og skilaði nýlega inn verkefni um myndina sem við ræðum. Næsta mynd er The Godfather 2, það er rétt... We're going there.

Whiplash - #40 IMDB Top 250 11.02.2023

Við fengum ábendingu frá hlustanda að tala um Whiplash þannig að hér erum við. Að mati Sigurjóns er þetta meistaraverk en hvað mun Tryggvi segja? Tengir hann við Fletcher? Fer hann að gráta eins og Andrew? Hvað varð um systir Nonna? Hlustið til að komast að því

Glass Onion - Knives Out 2 03.02.2023

Við getum ekki ítrekað það nógu mikið hvað við gjörsamlega eyðileggjum alla myndina ef þú hefur ekki séð hana. Nei, svona í alvörunni. Við gjörsamlega rústum allri upplifuninni og það mun ekkert koma þér á óvart ef þú horfir á hana eftir þáttinn. Það er vissulega fínt ef að þú hatar að láta koma þér á óvart og vilt vita allt sem gerist, svona eins og fólkið sem les wikipedia um þættina/myndina áðu...

Aliens - #66 IMDB Top 250 27.01.2023

Við ljúkum þessum James Cameron-ish mánuði með Aliens. Annað Cameron framhaldið sem er mögulega betra en fyrri myndin, eða það kemur svosem í ljós.  Næsta mynd er Glass Onion

Alien - #51 IMDB Top 250 20.01.2023

Ódauðlega meistaraverk Ridley Scott sem hefur gefið frá sér framhaldsmyndir, spin-offs, tölvuleiki og svo margt fleira verður í umræðunni þessa vikuna. Við höldum svo áfram í næstu viku með James Cameron þemað og horfum á Aliens Við erum einnig á Youtube

Terminator 2 - #29 IMDB top 250 13.01.2023

Heimabíó now in amazing technicolor! Við erum komnir í myndbandsform hér á Spotify og ætlum að fara yfir Terminator 2. Það þarf vert að kynna myndina, hún er klassík og elskuð og dáð af nánast öllum. Tæknibrellurnar voru langt á undan sínum tíma og líta enn vel út í dag. Þátturinn er einnig aðgengilegur á Youtube rás Heimabíó (Heimabíó Hlaðvarp)

Listen to the Heimabíó podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.