Sigurjón og Tryggvi

Heimabíó

Tv IS ↓ 137 episodes

Sigurjón og Tryggvi horfa vikulega á kvikmynd sem að annar hvor þeirra hefur ekki séð en það verkefni er einfalt þar sem Tryggvi hefur varla séð eina einustu bíómynd. Þeir leggja af stað í leiðangur til að upplýsa Tryggva betur um heim kvikmynda og horfa á allt frá algjöru rusli yfir í íkoniskar kvikmyndir sem allir hafa séð og elska (nema hann)

Author

Sigurjón og Tryggvi

Category

Tv

Podcast website

heimabio.buzzsprout.com

Latest episode

Mar 7, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Battle Royale 05.01.2024

Byrjum árið á japönsku klassíkinni sem hefur veitt innblástur fyrir Hunger Games, Squid Game, Call of Duty, Fortnite og margt margt margt meira.

Áramótauppgjör (BESTI! þáttur ársins) 28.12.2023

Já það er komið að "besta" þættinum, þessi þar sem við förum yfir allar myndirnar sem við horfðum á þessu ári og gefum ímynduð verðlaun fyrir besta þetta og besta hitt. 2 og hálfur tími sem hægt væri að nota í heimspeki kennslu í háskólanum gott fólk. Það er vín, það er góða skapið og það eru verðlaun.

Síðasti í jólum : Miracle On 34th Street 22.12.2023

Þá er komið að síðasta jólaþætti ársins og í engu öðru en svarthvítu. Í fyrra lauk jólatímabilinu okkar á It's A Wonderful Life og nú tökum við mynd sem kom ári síðar og er nánast engu síðri. Í næstu viku verður áramótaveisla hjá okkur strákanum og gefum við verðlaun fyrir þær myndir sem við höfum séð á árinu

Jólasóla : Gremlins 15.12.2023

Þriðja jólamyndin verður Gremlins, brjáluðu lítlu skrímslin sem gerðu allt vitlaust hérna í denn. Í næstu viku tökum við fyrir Miracle on 34th Street frá 1947.

Elf (on a shelf) 08.12.2023

Jóhann Favrú og Vilhjálmur Ferrio gerðu saman eina ástsælustu jólamynd allra tíma árið 2003 sem ber nafnið Elf. Við ræðum hana og Elf on a shelf, hvað sem það er.

Jólajól - Lethal Weapon 01.12.2023

I'm too old for this shit.... hefur Murtaugh sagt við Riggs oftar en einu sinni. Við hefjum jóla þemað á þessari óvenjulegu jólamynd sem parast mjög vel við Die Hard ef við segjum sjálfir frá.

The Room - Versta mynd allra tíma? 24.11.2023

Á þessu 20 ára afmæli "Greatest Worst Movie Ever Made" tökum við fyrir The Room eftir Tommy Wisaeu. Tryggvi var andlega ekki tilbúinn í þetta en það er allt í lagi af því að það er aldrei neinn andlega tilbúinn í.....The Room. hahahah what a story mark

Predator 17.11.2023

Klassíkerinn með Carl Weathers þar sem hann heimsækir frumskóginn í leit að hinu fullkomnu stew. Now you take this home, throw it an a pot, add some broth, a potato, baby you got a stew going Næsta mynd er The Room

Robocop 10.11.2023

Dead or alive, you're coming with me sagði Robocop árið 1987. Kvikmynd sem spyr öfuga spurningu við Terminator, hvað myndi gerast ef að vélmennið væri góði gæinn? Í næstu viku tökum við Predator

Saw 2 03.11.2023

John Kramer er með krabbamein á lokastigi og undirbýr sig fyrir dauðann með ýmsum hættum. Leitin hans að æðra tilgang mun færa hann í áttir sem hann átti aldrei von á og kynnast fólki sem breytir honum til lengri tíma. Fylgdu okkur í þessari rómantísku dramamynd með Tobin Bell og budget Marky Mark

Evil Dead Rise 27.10.2023

Ári síðar tökum við upp Evil Dead seríuna á ný og nú er stóra spurningin, nær Sigurjón að vinna Tryggva yfir í Evil Dead fan með þessari?

Cabin In The Woods 20.10.2023

Það er komið að hryllingsmyndunum sem Tryggvi elskar en við ætlum að taka aðeins öðruvísi myndir þetta árið, ekkert basic drepa drepa. Þetta er reyndar drepa drepa en...öðruvísi. Næst er Evil Dead : Rise

Guy Ritchie : The Gentlemen 13.10.2023

Við tökum seinni Guy Ritchie myndina í tvennunni okkar, þessi kom út 19 árum síðar og við förum aðeins yfir hvað hefur breyst í kvikmyndagerðinni hjá kallinum öll þessi ár. Bjóðum einnig upp á einstaklega slæma, íslenska, Matthew McConaughey eftirhermu Næst er Cabin in The Woods

Guy Ritchie : Snatch - #127 IMDB Top 250 29.09.2023

Við heimsækjum klassíska glæpagrínið Snatch eftir Guy Ritchie. Önnur myndin sem Ritchie leikstýrir en án efa sú allra vinsælasta og mögulega sú allra besta. Í næstu viku ætlum við að hoppa 19 ár fram í tímann og horfa á The Gentlemen, svipuð mynd en hvað hefur breyst í stílnum hans á þessum 19 árum?

Barbie 22.09.2023

Can you feel the Kenergy? Við tökum fyrir tekjuhæstu mynd ársins hingað til og reynum að komast að því hvort Barbie dúkkur séu ennþá vinsælar.

Dirty Harry 15.09.2023

Í þessari viku tökum við fyrir eina af stærstu neglunum hans Clint Eastwood en í næstu viku tökum við BARBIE

The World's End (Cornetto Trilogy) 08.09.2023

Þríleikur Edgar Wright og Simon Pegg hófst árið 2004 og lauk 2013 með stór sprengjunni The World's End. Margir telja þessa mynd vera slakari en forverarar sínir en við förum yfir það í þættinum og hvernig endurtekin áhorf mögulega gera hana að sterkustu myndinni í þríleiknum, þegar að sjokkið yfir 180° beygjunni í söguþræðinum kemur manni ekki lengur á óvart. Við ræðum líka aðeins Shaun of The...

Sin City 25.08.2023

Eftir Spy Kids og El Mariachi þríleikana sína ákvað Robert Rodriguez að nýta allt sem hann hafði lært varðandi tæknibrellur og kvikmyndagerð til að gefa Sin City bókunum líf á stóra skjánum. Verkefnið var ekki einfalt, enda mjög stíliseraðar bækur eftir Frank Miller og lítill peningur til fyrir verkefnið. Það fór þó allt á flug eftir að hann gerði litla prufu (sem er fyrsta atriðið í myndinni) og...

Edge Of Tomorrow (Live, Die, Repeat) 18.08.2023

Hver veit hver rétti titillinn á þessari mynd er? Ekki WB, svo er víst. Þó ein af vanmetnustu Cruise myndunum sem hafa komið út síðustu 10 árin, það er alveg garanterað. Groundhoug Day X Aliens X Spaceship Troopers, baby you got a stew going...

Zoolander 11.08.2023

Eftir megahittarana There's Something About Mary, Meet The Parents og leikstjórn á Cable Guy (hey, hún græddi pening...) sneri Ben Stiller aftur á stóra skjáinn sem karakterinn Zoolander. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hann hafði leikið karakterinn og ekki síðasta, því miður, en nokkrum árum áður fæddist Derek Zoolander á VH1 Fashion Awards í formi sketsa sem gerðu grín að bransanum sem va...

Airplane! 04.08.2023

It's a bird! It's a plane! Yes, it's an airplane! Airplane hefur haft áhrif á allan gríngeirann eins og hann leggur sig. Spoof? Það var nánast ekkert til fyrr en Airplane kom, hún er mikilvæg, hún er góð og við mælum með henni

Dumb And Dumber 28.07.2023

Árið 1994 komu þrjár kvikmyndir. Ace Venture Pet Detective, The Mask og Dumb and Dumber. Ég er nokkuð viss um að allir vita nákvæmlega hvað þessar myndir eiga sameiginlegt en það er að sjálfsögðu Jim Carrey, þetta ár gjörsamlega sprengdi allan skalann hjá honum og það voru afskaplega fáar sálir sem vissu ekki hver Jim Carrey væri. Eftir 4 góð ár í Living Color fóru kvikmyndahlutverkin að dælast in...

Team America : World Police 21.07.2023

Team America : World Police eftir Trey Parker og Matt Stone leit dagsins ljós árið 2004 og fagnar því 20 ára afmæli á næsta ári. Flestir ættu að þekkja nöfn Parker og Stone þar sem þeir hófu feril sinn á teiknimyndaþætti sem heitir South Park og er á 3 eða 4 seríu í dag, mögulega meira. Ég hugsa að það muni flestir eftir því þegar að Team America kom út og eru enn í dag að vitna í legendary línur...

No Country For Old Men - #148 IMDB Top250 14.07.2023

Febrúar mánuð árið 2007 komu tvær myndir út sem voru vissulega ólíkar að mörgu leiti en áttu þó ótrúlega mikið sameiginlegt. Báðar kostuðu þær, samkvæmt internetinu, 25 milljón dollara. Þær voru leikstýrðar af leikstjórum sem áttu ótrúlegan feril að baki, þær gerast báðar í Texas, voru teknar upp á sama tíma á sama stað, byggðar á bók og enduðu á því að keppast á óskarnum. Ein fékk bestu mynd, lei...

There Will Be Blood - #139 IMDB Top250 07.07.2023

Ein af tveimur myndum sem bárust villt og grimmt um óskarinn árið 2007. Að lokum fór það svo að Daniel Day-Lewis fékk styttuna fyrir besta leik sem Daniel Plainview í þessari frægu mynd. Daniel Planview er einn af þeim heppnu sem fann olíu í bandaríkjunum um árið 1900 en hann svífst einskis til að öðlast enn meiri pening og vald.

Listen to the Heimabíó podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.