heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Education EN ↓ 90 episodes

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Mult...

Author

heilsuhladvarp

Category

Education

Podcast website

heilsuhladvarp.podbean.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Soffíu S SIgurgeirsdóttir fjallagöngukona um háfjallamennsku, andlegar áskoranir, úthald, fjallgönguna í Nepal með Lukku og margt fleira Video 12.08.2025

Ævintýri, áskoranir og heilsa í háfjöllum Nepals Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðir Lukka við Soffíu S. Sigurgeirsdóttur, eina af helstu fjallageitum Íslands, um ógleymanlegt ævintýri í Nepal. Þær fóru saman í krefjandi fjallgöngu þar sem önnur náði toppnum – hin ekki – og segja frá öllum hliðum fjallamennskunnar: andlegri næringu, líkamlegum áskorunum, sigrum og lærdómi. Soffía og Lukka ræða...

Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og formaður Slow Food á Íslandi um slow food hugmyndafræðina, íslensku matarkistuna, skyrið, fallegustu kýr í heimi, hrámjólk, matarsóun og margt fleira. 29.07.2025

🎙 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Slow Food og íslenskur matarauður með Dóru Svavarsdóttur 🌿🇮🇸 Í þessum þætti fáum við til okkar Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara og formann stjórnar Slow Food á Íslandi. Við förum í dýptina á hugmyndafræði Slow Food, ræddum hvernig við getum borðað meðvitundarfullt, nærandi og umhverfisvænt, og veltum fyrir okkur hvað íslenskur matararfur hefur upp á að bjóð...

Vilmundur Möller Sigurðsson um eiturefnauppgufun úr rúmdýnum og möguleg skaðleg áhrif þessarar loftmengunar sem við verðum fyrir í svefni á heilsuna 26.07.2025

🎙 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms 📌 Viðtal við Vilmund Möller Sigurðsson 🛏️ Er rúmið að drepa þig? – Loftmengun í svefni Í þessum þætti fáum við til okkar Vilmund Möller Sigurðsson, stofnanda og umsjónarmann vinsæla Facebook-hópsins „Er rúmið að drepa þig?“, sem telur nú yfir 13.000 meðlimi. Vilmundur deilir eigin reynslu af alvarlegum veikindum sem hann rekur til eiturgufa úr rúmdýnu ú...

Anna Gunndís Guðmundsdóttir um glútenóþol - selíak sjúkdóminn og gríðarlega skaðleg áhrif hans á heilsu ef ekki greindur 22.07.2025

"Glúten er alls staðar – en hvað ef líkami þinn þolir það ekki?" Í þessum þætti ræðum við við Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur, formann Selíak samtakanna á Íslandi, um Selíak sjúkdóminn – alvarlegan sjálfsofnæmissjúkdóm sem veldur mikilli heilsufarslegri áhættu ef hann er ekki greindur tímanlega. 🧠 Vissir þú að allt að 3.000 Íslendingar eru líklega með ógreindan Selíak sjúkdóm? Við förum yfir: Hvað e...

Stefanía Hjaltested um járnskort og hvernig viðbótar járn breytti lífi hennar til hins betra. 30.06.2025

Í þessum þætti fáum við til okkar Stefaníu Hjaltested, sem heldur úti öflugum Facebook-hópi þar sem fólk deilir reynslu sinni af járnskorti. Hún segir frá sinni eigin vegferð – viðvarandi járnskorti sem ekki var greindur í mörg ár og leiddi til þess að hún var sett á þunglyndis- og kvíðalyf. En á bak við einkennin leyndist einfaldur skortur sem hafði áhrif á alla líðan. Við ræðum m.a.: 🔹 Hvernig...

Áslaug Kristín Zoega um anorexíu, bata í gegnum hugvíkkandi meðferð, geðheilbrigðiskerfið, ást, náttúru, gleði og von. 23.06.2025

Áslaug Kristín Zoega er ungur háskólanemi og pilates þjálfari sem gekk í gegnum erfið ár þegar hún glímdi við alvarlegan átröskunarsjúkdóm, anorexiu. Hún hefur reynslu af hefðbundinni meðferð í bæði Ástralíu og á Íslandi og kemur í þættinum með góðar ábendingar um hvað mætti betur fara í meðhöndlun alvarlegra geðsjúkdóma. Hún fékk loks góðan bata í gegnum krefjandi meðferð með hugvíkkandi efninu p...

Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsu- og næringarþerapisti um hvað hefur áhrif á öldrunarferli líkamans, um áhrif sykurs á líkamann, um lífsstil sem dregur úr öldrun, telómera, hvatbera og margt fleira 17.06.2025

Þorbjörg Hafsteinsdóttir – Lífsstíll sem lengir lífið og eflir heilsuna Í þessum þætti ræðum við við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur frumkvöðul, heilsu- og næringarþerapista, lífsstílsþjálfa, jógakennara og rithöfund. 💬 Við ræðum meðal annars: 🔹 Hvað flýtir og hægir á öldrunarferlinu 🔹 Áhrif lífsstíls á telómera og hvatbera – og hvers vegna það skiptir máli 🔹 Hvernig sykur hefur áhrif á blóð og vefi...

Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala um af hverju viðhald vöðvamassa er grundvallaratriði til að viðhalda heilsu og að virkum og heilbrigðum æviárum 09.06.2025

Mikilvægi þess að viðhalda vöðvamassa – leiðin að virku og heilbrigðu lífi  Við ræðum við Önnu Björgu Jónsdóttur, yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalanum, um hversu mikilvægt það er að viðhalda vöðvamassa – alla ævi - og í raun er það algjört grundvallaratriði til að viðhalda heilsu. Vöðvarýrnun er alvarlegt heilsuvandamál meðal aldraðra, sem getur leitt til fötlunar, aukinnar hættu á byltum,...

Tryggvi Stefánsson, lífefnafræðingur og aðstoðarforstjóri Algalíf ræðir um Astaxanthin - einn öflugasta andoxara náttúrunnar og heilsufarsleg áhrif hans á líkamann. 02.06.2025

Í þessum þætti ræðum við um eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar – astaxanthin – efni sem er unnið úr örþörungum og hefur vakið mikla athygli fyrir möguleg jákvæð áhrif á heilsu. Astaxanthin er talið geta styrkt ónæmiskerfið, bætt úthald og endurheimt, verndað húð og augu, haft verndandi áhrif á æðakerfið, bætt heilaheilsu og margt fleira m.a. vegna bólguminnkandi virkni efnisins á líkamann. V...

Líkamsstaða barna og unglina vegna mikillar síma- og skjánotkunar - stundum kallað tech neck, rottu- eða fuglastaðan. Gunnlaugur Jónasson, sjúkraþjálfari fer yfir stöðuna og gefur okkur góð ráð. 26.05.2025

Börn og unglingar eyða nú meira af sínum tíma fyrir framan síma, spjaldtölvur og tölvur en nokkru sinni fyrr. Þó tæknin bjóði upp á ótal tækifæri til lærdóms og samskipta, þá hefur hún líka óumdeilanleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu – eitt er áhrif á þroska beinagrindar og stoðkerfið. Við sjáum sífellt fleiri börn með ójafnvægi í líkamsstöðu, stífni í hálsi og herðum, og jafnvel beinrýrnun e...

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi Gyna Medica kvenheilsumiðstöðvar um hormón, kvenheilsu, kynlíf, lífsgæði, beinheilsu og áhættu vs ávinning af hormónauppbót.. 22.05.2025

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi Gyna Medica kvenheilsumiðstöðvar um hormón, kvenheilsu, kynlíf, lífsgæði, beinheilsu og áhættu vs ávinning af hormónauppbót. Heilsuherinn styður útgáfu Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms og eftirfarandi fyrirtæki eru meðlimir heilsuhersins - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en h...

Sigurður Örn Ragnarsson um Greenfit, heilsumælingar, hámarkssúrefnisupptöku, árangur í íþróttum, langlífi, rauðljósameðferð, súrefnismeðferð og margt fleira. 12.05.2025

SIgurður Örn Ragnarsson er verkfræðingur, ólympíuþjálfari og margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut. Hann nýtir verkfræðilega þekkingu og aðferðir í að kortleggja heilsu viðskiptavina Greenfit og hjálpa þeim að ná markmiðum sínum hvort sem markmiðin snúa að því að efla heilsu og fjölga heilbrigðum æviárum eða ná betri árangri í íþróttum.  Sigurður Örn er margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut og ein...

Aron Skúlason og Hildur Leonardsdóttir um fræolíur. 05.05.2025

Aron Skúlason, hugbúnaðarverkfræðingur og Hildur Leonardsdóttir, heilbrigðisverkfræðingur hafa undanfarin ár kafað djúpt í rannsóknir á mataræði og næringu. Aron fékk áhuga á næringu sem meðferð eftir að hann komst að því að hann gat haldið einkennum psoriasis í skefjum með lífsstíls breytingum og hefur næring þar mikil áhrif. Aron og Hildur hafa vakið athygli fyrir skemmtileg og fræðandi skrif um...

Ágústa Johnson um hreyfingu og Hreyfingu, ábyrgð okkar á eigin heilsu, prótínkaffi og lýðheilsubyltingu. 28.04.2025

Ágústa Johnson er frumkvöðull sem fann sína ástríðu snemma og fór að reka heilsuræktarstöð ung að árum. Hún hefur verið óþreytandi við að miðla sinni þekkingu og hvetja landsmenn til dáða í aukinni hreyfingu og betri heilsu.  Hún er framkvæmdastjóri Hreyfingar og rekur þar eina vinsælustu heilsurækt landsins.  Ágústa gefur okkur hér innsýn í sín hjartans mál og uppskrift að prótínkaffinunu sem er...

Ásdís Ósk Valsdóttir um ábyrgð á eigin lífi og heilsu, ævintýramennsku, útivist, mælingar, árangur og mikilvægi tilhlökkunar. 21.04.2025

Ótrúleg vegferð frá streitu og vanlíðan yfir í lífsgleði, orku og heilbrigði - viðtal við Ásdísi Ósk Valsdóttur, fasteignasala, kerfisfræðing og ævintýrakonu. Ásdís Ósk Valsdóttir, fasteignasali, kerfisfræðingur og ævintýrakona segir okkur frá sinni vegferð og hvernig hún breyttist úr reiðum vinnualka og sófakartöflu í lífsglaða ævintýrakonu sem lifir heilsusamlegu og nærandi lífi.  Hún segir okku...

Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs um geðheilbrigði, geðrækt, geðlyf, lyfseðla, hreyfiseðla og menningarseðla. 14.04.2025

„Geðheilbrigði, valdefling og nýjar leiðir – viðtal við Elínu Ebbu Ásmundsdóttur“ Elín Ebba Ásmundsdóttir, er iðjuþjálfa með yfir 40 ára reynslu í geðheilbrigðisþjónustu. Hún er framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs og hefur barist ötullega fyrir réttindum og valdeflingu notenda geðheilbrigðisþjónustunnar – þar sem rödd þeirra og þátttaka í eigin bata stendur í forgrunni. Elín Ebba, fyrrverandi yfiriðj...

Sigurður Máni Helguson, framkvæmdastjóri Brauð & co og Viðar Brink markaðsstjóri um starfsemina, metnaðinn að nota einungis lífræn gæða hráefni og ekkert drasl, súrinn, handverkið, matarsóun og fl. 10.04.2025

Sigurður Máni framkvæmdastjóri Brauð & co og Viðar Brink markaðsstjóri standa á bak við eitt af ástsælustu handverksbakaríum landsins – Brauð & Co – þar sem metnaður og ástríða fyrir brauðgerð og góðu hráefni mótar allt sem gert er. Í viðtalinu við okkur deildu þeir innsýn í þann kraft og hugsjón sem liggur að baki rekstrinum: að bjóða súrdeigsbrauð og bakkelsi unnið af alúð úr fyrsta flok...

Valdemar Gísli Valdemarsson rafeindavirkjameistari og skólastjóri Raftækniskólans um möguleg áhrif rafmengunar á heilsu, mikilvægi jarðtengingar og ráð til að draga úr rafmengun á heimilum. 07.04.2025

Valdemar Gísli Valdemarsson, rafeindavirkjameistari og skólastjóri Raftækniskólans, hefur í mörg ár rannsakað rafmengun og áhrif hennar. Hann hefur aðstoðað einstaklinga og fyrirtæki við að mæla og greina rafmengun og finna hagnýtar leiðir til að draga úr henni – með það að markmiði að bæta líðan og heilsu í daglegu lífi. Nútímatækni hefur fært okkur ýmis þægindi, en einnig nýjar áskoranir. Með ti...

Margrét Leifsdóttir, arkitekt og heilsumarkþjálfi um heildrænar og náttúrulegar leiðir í baráttu við illvígt exem, bólguminnkandi fæði og hugarfar, Ayurveda, sjósund og margt fleira. 31.03.2025

Margrét Leifsdóttir, arkitekt og heilsumarkþjálfi hefur frá unga aldri leitað náttúrulegra og heildrænna leiða til að takast á við mjög slæmt exem sem hún fékk á unglingsaldri.  Hún hefur prófað ótrúlegustu aðferðir og alls konar mataræði og hún segir okkur frá reynslu sinni og hvað hefur reynst henni best. Við ræðum um mikilvægi fæðunnar en Margrét talar einnig um hve hugarfarið og streituástandi...

Ævar Austfjörð um carnivore mataræði, auðgandi landbúnað, áhrif mataræðis á heilsu og margt fleira. 24.03.2025

Ævar Austfjörð var einn af þeim fyrstu - ef ekki sá fyrsti sem fór að neyta einungis dýraafurða hér á landi eða að fylgja svokölluðu carnivore mataræði. Síðan eru liðin um átta ár og hann fylgir ennþá þessu mataræði. Hann hefur mikla ástríðu fyrir þessari leið- og mat og heilsu almennt og hefur dempt sér ofan í fræðin. Hann kjötiðnaðarmaður, matráður og hefur starfað sem slíkur í skóla og á sjúkra...

Helgi Rafn Gunnarsson frkvstj Bíóbús um lífrænt, gæði matvara, hjartað sem sem þarf að vera í rekstrinum, Skúbb ís og nýjar vörur væntanlegar frá Bíóbú. 23.03.2025

Helgi Rafn Gunnarsson frkvstj Bíóbús um lífrænt, gæði matvara, hjartað sem sem þarf að vera í rekstrinum, Skúbb ís og nýjar vörur væntanlegar frá Bíóbú. Bíóbú er einn af styrktaraðilum heilsuhlaðvarpsins. Jóhanna og Lukka vanda valið þegar kemur að styrktaraðilum og velja að vinna með fyrirtækjum sem einlæglega vilja stuðla að aukinni lýðheilsu, forvörnum og heilbrigðum viðskiptaháttum.  Heilsuher...

Sigurjón Ernir Sturluson, íþróttafræðingur um næringu og heilsu, næringarleiðbeiningar yfirvalda og árangur í íþróttum og endurheimt. 17.03.2025

Sigurjón Ernir Sturluson, íþróttafræðingur og afreksíþróttamaður fjallar um tengsl næringar og heilsu og villigöturnar sem hann telur okkur vera á varðandi umræðu og ráðleggingar um mataræði. Sigurjón hefur prófað fjöldan allan af mismunandi tegundum mataræðis og á sama tíma fylgst með hjá sér fjölmörgum mælikvörðum á heilsu og síðast en ekki síst hvernig almenn líðan er á hverju mataræði fyrir si...

Hrönn Róbertsdóttir tannlæknir um mikilvægi munnvatnsins, áhrif munnöndunar á tannheilsu, tengsl á milli baktería í munni og Alzheimer’s, varafyllingar, tungustöðu, mewing og margt fleira. 10.03.2025

Hrönn Róbertsdóttir fjallar um hvernig tannskemmdir og tannholdsheilsa geti haft áhrif á heilsu alls líkamans. Hrönn bendir á að meltingin byrji í munni og því sé vert að huga að jafnvægi góðra og slæmra baktería í munni ekki síður en í meltingarvegi. Við tölum um mikilvægi munnvatnsins, áhrif neföndunar vs. munnöndunar á tannheilsu, flúorlaus tannkrem, tengsl á milli baktería í munni og Alzheimer...

Tryggvi Helgason sérfræðingur í barnalækningum og læknir í Heilsuskóla Barnaspítalans um offitu og fylgikvilla hennar og offitu og heilsu barna á Íslandi 03.03.2025

Við fengum Tryggva Helgason barnalækni til að ræða við okkur um heilsufar barna með tilliti til ofþyngdar, offitu og fylgikvilla hennar. Hver er tíðni vandans og þróun undanfarin ár? Hverjar eru helstu meðferðir og leiðir til úrbóta fyrir einstaklinginn? Hvaða leiðir eru vænlegar til árangurs í samfélaginu til að sporna við áframhaldandi aukningu og snúa blaðinu við.   Heilsuherinn styður útgáfu H...

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um. 24.02.2025

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði fjallar um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um. Una leggur sérstaka áherslu á að vernda fóstur á meðgöngu og ung börn því þau eru viðkvæmari fyrir hormóna- og taugaraskandi áhrifum sem ýmis efni í vörum í umhverfi okkar eru talin geta valdið.  Hún ræðir við okkur um samhengi...

Listen to the Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.