heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Education EN ↓ 90 episodes

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Mult...

Author

heilsuhladvarp

Category

Education

Podcast website

heilsuhladvarp.podbean.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Anna María Björnsdóttir um lífræna ræktun, skólamat, eiturefni í umhverfinu og heimildarmyndina Gróu. 17.02.2025

Anna María Björnsdóttir, heimildarmyndaframleiðandi, tónlistarkona og síðast en ekki síst ástríðull talskona lífrænnar ræktunar er gestur okkar í þættinum.  Hún segir okkur frá því hvað lífræn ræktun er, af hverju hún varð hugfangin af þeirri hugmyndafræði. Við ræðum líka við hana um illgresiseitrið glýfosat og skordýraeitrið chlorphyrifos sem hefur nú verið bannað innan ESB. Aukaefnin í matvælum...

Sara María forynja um hugvíkkandi meðferðir og framfarir í geðheilbrigðismálum 12.02.2025

Sara María forynja er frumkvöðull og brautryðjandi. Hún er lærður Transpersonal Psycotherapist og talskona fyrir hugvíkkandi meðferðir á Íslandi. Sara segir okkur frá ráðstefnu um hugvíkkandi meðferðir á Íslandi, stöðu mála hvað varðar lögleiðingu og rannsóknir og fer yfir hvaða áhrif notkun hugvíkkandi meðferða getur heft á líf okkar og líðan sér í lagi fyrir þá sem glíma við áfallastreituröskun...

Sólveig Kristín Björgólfsdóttir um skólamatinn, aukaefnin í matnum, innihaldslýsingar og gjörunnin matvæli 03.02.2025

Hvað eru börnin okkar að fá að borða í skólanum? Í þættinum ræðum við við Sólveigu Kristínu Björgólfsdóttur um skólamat og mikilvægi þess að börn fái holla og góða fæðu í skólum landsins. Eftir að hafa glímt við eigin heilsufarsvanda lagði Sólveig sig fram um að rannsaka innihald skólamatarins og komst að því að fjöldi aukaefna og unnar matvörur einkenndu fæðuna sem börnum er boðið upp á. Innihald...

Tommy Ragnar Wood læknir, lífeðlisfræðingur og sérfræðingur í heilaheilsu og taugalækningum um áhrif lífsstíls á heilaheilsu. 27.01.2025

💡  Hvernig lífsstíll hefur áhrif á heilann með Dr. Tommy Wood - getum við fyrirbyggt heilabilun? Dr. Thomas Ragnar Wood, sérfræðingur í taugavísindum ræðir við okkur hvernig daglegar venjur geta mótað heilsu heilans og jafnvel minnkað líkur á heilabilun um allt að 50%. Dr. Wood kynnir þrjár lykilstoðir heilbrigðrar heilastarfsemi: ✅ Hugræn örvun – Ögraðu heilanum eins og vöðva með því að læra ný...

Andri Iceland um öndun og áhrif hennar á lífsgæði okkar ásamt kulda - og samspil öndunar og kuldaþjálfunar. 20.01.2025

  Vilhjálmur Andra Einarsson, betur þekktur sem Andri Iceland,  umbreytti lífi sínu með öndunartækni og kuldaþjálfun. Hann deilir því hvernig rétt öndun og kæling getur haft gríðarleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu – og hvers vegna einfaldar venjur geta gjörbreytt vellíðan okkar. Andri hefur um árabil dýpkað þekkingu sína á því hvernig öndun getur haft stórkostleg áhrif á lífsgæði okkar og lí...

Jakob Frímann Þorsteinsson um útimenntun, heilbrigði, samspil skólastarfs og frístundastarfs, vináttu og kaos. 13.01.2025
Lára Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsu um D vítamín, sólarljós, sólarvörn, sífellda þekkingarleit og áhugavert nám í rótarlækningum og taugalækningum. 07.01.2025
Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir um góð skref í átt að bættri heilsu, nám í grasalækningum, heilsu, streitu, rafmagn ofl ofl. 02.01.2025

Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir til 30 ára deilir með okkur reynslu sinni og þekkingu og hvað hún telur skipta mestu máli í heilsu - og hvernig best er að byrja nýtt ár. Hún hefur hjálpað tugum þúsunda Íslendinga til að ná betri heilsu með jurtum og mataræði. Hún er í sífelldri þekkingaleit og það er ótrúlega gaman að heyra hvað er efst á baugi hjá henni þessi misserin. Við þökkum heilsuhernum ok...

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir um náttúruleysi, mikilvægi birtunnar, seiglu, streitu, heilbrigðiskerfið og margt fleira. 23.12.2024

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir er gestur þáttarins sem hefur alla tíð haft heildræna sýn á heilsu og sem læknir sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Við förum yfir sviðið með henni vítt og breytt, hún er hafsjór af fróðleik og hefur óslökkvandi forvitni, fróðleiksþorsta og þörf til að skilja sem hefur gert það að verkum að hún hefur sökkt sér í rannsóknir á mjög breiðu sviði h...

Þorgrímur Þráinsson um lýðheilsu, eldhuga og heilbrigðustu þjóð í heimi. 16.12.2024

Í þættinum fáum við til okkar Þorgrím Þráinsson, sem hefur verið óþreytandi í baráttunni fyrir bættri lýðheilsu og forvörnum á Íslandi. Þorgrímur var framkvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar á árunum 1996–2004 og formaður nefndar um bætt heilbrigði þjóðarinnar, skipaður af forsætisráðherra árið 2005. Hann leiddi vinnu við skýrsluna Léttara líf árið 2007, þar sem settar voru fram 67 tillögur til úrbóta...

Einar Carl Axelsson um mikilvægi rassvöðva í hreyfingum, heilsuna og langlífi, tengingu hreyfingar og taugakerfis, öndun, seiglu og kvíðafaraldur þjóðarinnar. 09.12.2024

Í þættinum fjöllum við um lítið rætt en afar mikilvægt efni – hlutverk rassvöðvanna í heilsu okkar og hvernig vanvirkir rassvöðvar geta haft víðtæk áhrif á stoðkerfið og hreyfigetu. Viðmælandi þáttarins er Einar Carl Axelsson, sérfræðingur í hreyfingu og líkamsbeitingu, sem eftir alvarlegt slys og afleiðingar þess sökkti sér öll fræði um hreyfiferla líkamans til að ná bata sjálfur. Á þessari vegfe...

Birna Ásbjörnsdóttir, doktor í lýðheilsu og gestarannsakandi við Harvard Medical School um meltingarveginn, þarmaflóru og heilsu. 02.12.2024

Birna er einn okkar helsti sérfræðingur um áhrif þarmaflórunnar á heilsuna. Við ræðum hvernig matarræði og lífsstíllinn almennt hefur áhrif á bakteríuflóruna sem síðan hefur áhrif á öll líffærakerfin okkar, hverja einustu frumu og orkuverin inn í frumunum okkar, hvatberana - sem Birna og fjöldi annarra vísindamanna telja í dag að séu grundvallarþáttur í heilsu okkar og orkustigi.   Við erum stolta...

Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir um kólesteról, statin lyf, mettaða fitu, forvarnir og lífsstíl sem áhrifaþætti hjarta- og æðaheilsu. 25.11.2024

Sem ungur sérfræðingur í hjartalækningum hafði Axel F. SIgurðsson mestan áhuga á bráðalækningum. Það var spennandi að bjarga fólki og bæta líf þeirra á örfáum mínútum með þræðingum og akút aðgerðum. Þegar Axel fór sjálfur að þyngjast og blóðþrýstingurinn að hækka sökkti hann sér í það að skoða hvaða áhrif næring og lífsstíl gæti haft til að fyrirbyggja það að hann sjálfur myndi lenda á þræðingarbo...

Kristján Þór Gunnarsson, rótarlæknir um lýðheilsu og heilbrigði. 18.11.2024

Í þessum fyrsta þætti af Heilsuhlaðvarpinu tökum við á móti lækninum Kristjáni Þór Gunnarsyni. Við förum yfir sviðið þegar kemur að faraldri krónískra langvinnra veikinda en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt. Þetta eru sjúkdómar eins og hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki, offita, nýrnabilun, elliglöp, geðsjúkdómar, taugasjúkdómar og krabbamein. Undirliggjandi þáttur í öllum þessum sjúkdómum e...

Kynning 14.11.2024

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki e...

Listen to the Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.