heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Education EN ↓ 90 episodes

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Mult...

Author

heilsuhladvarp

Category

Education

Podcast website

heilsuhladvarp.podbean.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sölvi Tryggvason um stóru myndina, heilbrigði, lífsgæði, tog samfélagsins í átt að óhollustu, áföll, úrvinnslu og persónulegan vöxt 20.01.2026

Í þessum þætti er rætt við Sölva Tryggvason um stóru myndina þegar kemur að heilsu og ábyrgð. Hvernig samfélagið ýtir stöðugt að okkur óhollustu og hvernig við erum orðin samdauna óhollum lifnaðarháttum sem ógna heilsu okkar og lífsgæðum.  Við veltum fyrir okkur hvort lausnin felist í sjálfsábyrgð og þá jafnframt í frelsi einstaklinga til ákvarðanatöku um eigin heilsu.  ✨💚 Heilsuherinn okkar – f...

Heiti potturinn með Aroni Skúlasyni verkfræðingi og Magnúsi Stefánssyni flugstjóra 16.01.2026

Í Heita pottinum setjumst við í pottinn með Aroni Skúlasyni, verkfræðingi sem heldur úti Instagram-reikningnum Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Með okkur er líka Magnús Stefánsson, flugstjóri með meiru, sem hefur – með eiginkonu sinni Lukku – prófað ýmislegt í lífsstíl og næringu í gegnum síðustu 30 ár. Við ræðum: Nýjar næringarleiðbeiningar í Bandaríkjunum og hvað eink...

Elín Jónsdóttir, verkefnastjóri heilsu og vellíðunar hjá Nettó um sína heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, Costa Rica og hið stóra verkefni að gera heilsudeild Nettó að bestu heilsudeild landsins. 12.01.2026

Í þessum þætti setjumst við niður með Elínu Jónsdóttur, verkefnastjóra heilsu og vellíðunar hjá Nettó, og förum bæði í persónulega sögu hennar og stóra myndina: hvernig er að leiða heilsu- og vellíðunarverkefni innan eins stærsta smásölufyrirtækis landsins? Elín segir frá sinni eigin heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, dvölinni í Costa Rica í litlu sjálfbærniþorpi sem varð mjög mótandi tími í lífi...

Heiti potturinn með Sigurði Erni Ragnarssyni og Sigurjóni Erni Sturlusyni - Nýjar næringarráðleggingar í Bandaríkjunum ræddar í pottinum. 08.01.2026

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eft...

Gígja Sunneva Bjarnadóttir um markmið, hvernig við breytum hegðun og byggjum upp nýjar venjur, virkni heilans, hlutverk dópamíns, mikilvægi vanaskráningar og sjálfþekkingar. 05.01.2026

Í þessum fróðlega og hagnýta þætti fáum við til okkar Gígju Sunnevu Bjarnadóttur, með meistaragráðu í heilsusálfræði, og kafað er djúpt í eitt það sem flest okkar glímum við: 👉 Hvernig breytum við hegðun og vana – í alvöru? 👉 Hvernig festum við venjur og viðhöldum þeim til lengri tíma? Við ræðum: 🧠 Hvernig heilinn virkar þegar kemur að hegðunarbreytingum ❌ Af hverju við gefumst svona oft upp,...

Guðrún Bergmann um heilsu, hreint mataræði, stjörnuspeki, himintungl og geimverur 💫 30.12.2025

Í sérstökum áramótaþætti fáum við til okkar Guðrúnu Bergmann – konu sem hefur í rúmlega fjóra áratugi miðlað þekkingu um heilsu, lífsstíl, sjálfsvinnu og andlega þróun. Guðrún er 75 ára, enn á fullu og knúin áfram af óbilandi ástríðu og forvitni – sannkallaður frumkvöðull sem hefur oft verið á undan sinni samtíð og ekki hikað við að fara á móti straumnum þegar sannfæring hennar hefur kallað á það....

Tryggvi Hjaltason um föstur, áhrif þeirra á líkamann, heilsu, trú, mátt bænarinnar og kærleik. 23.12.2025

Gestur þáttarins er Tryggvi Hjaltason greinandi, gagnasérfræðingur og áhrifamikil rödd í umræðu um menntakerfið okkar, föstur, lífstíl, heilsu og andlega iðkun. Tryggvi hefur vakið mikla athygli fyrir opna og persónulega umræðu um föstur, áhrif þeirra á líkama og heilsu, og tengsl föstu við trú, bæn og andlega dýpt. Hann hefur sjálfur gengið í gegnum langar föstur og deilt reynslu sinni af bæði lí...

Kristjana Steingrímsdóttir - Jana heilsukokkur um jafnvægið á jólunum, frábærar hugmyndir að jólagúmmelaði með heilsuívafi og ljúffenga hollustubita 15.12.2025

🎄 Gestur þáttarins: Kristjana Steingrímsdóttir – Jana heilsukokkur Í þessum þætti spjöllum við við Kristjönu Steingrímsdóttur – Jönu, heilsukokk, heilsuráðgjafa og skapandi matgæðing sem hefur farið einstaka vegferð í eldamennsku og hollustu. Jana var um árabil kokkur á Happ veitingastaðnum í Lúxembúrg, sem enn í dag er talinn einn sá besti og þekktasti á sínu sviði.  Árið 2022 flutti Jana heim t...

Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari um 6 grunnþætti sem hafa áhrif á afreksfólk af öllum toga. Frá taugalífeðlisfræði yfir í öndun, rassvöðva og næringu. 08.12.2025

Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari og stofnandi Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur. Hann hefur meira en fjörutíu ára reynslu af því að vinna með fólki á öllum aldri – frá handboltakrökkum til eldri kylfinga – og hefur skapað sér sérstöðu með beinskeyttri, heildrænni og gagnreyndri nálgun á lýðheilsu og forvarnir. Gauti hefur jafnframt stýrt þjálfunarhópnum AGGF – Afrekshópi Gauta Grétarssonar fimleikastj...

Björn Skúlason eiginmaður forseta og heilsukokkur um lýðheilsu, mataræði, karlmennsku, hugleiðslu og tilgang lífsins 01.12.2025

„Að fylgja innri áttavitanum“ - Samtal við Björn Skúlason eiginmann forseta Íslands, heilsukokk og frumkvöðul Í þessum þætti fáum við að kynnast Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta Íslands, á persónulegan og opinskáan hátt. Hann ræðir heilbrigði, lífsstíl, karlmennsku og tilgang – og hvernig hans eigin vegferð hefur mótað þá ákvörðun að nota nýja stöðu sína til að gera gagn í samfélaginu. Björn se...

1 árs 🥳🎈🎉 afmælisþáttur Heilsuhlaðvarpsins - Lukka og Jóhanna fara yfir veginn og rifja upp góð atriði úr þáttunum sl ár og horfa fram á veginn. 24.11.2025

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu...

Auður Bjarna jógakennari um jóga, vitund, tengingu, orkustöðvar, öndun, líkamsstöðu, leiðina að hamingjunni og margt fleira 17.11.2025

✨ Í þessum þætti fáum við til okkar Auði Bjarnadóttur, sem hefur kennt jóga í 25 ár og á að baki langan feril sem ballettdansari.  Við ræðum hvað jóga er í grunninn, hvað það stendur fyrir og hvernig það tengir saman líkama, huga og anda. Við skoðum líka mikilvægi þess að tengjast hinu andlega, hvernig jóga getur orðið leið til meiri innri friðar, skýrleika og innri styrks. Auður segir frá því hv...

Elísabet Reynis næringarfræðingur um magasýruna, magasýrulyf, meltinguna, samsetningu máltíða, D-vítamín og margt fleira 10.11.2025

Magasýrur, melting og næring – þegar vísindin og reynslan mætast Í þessum þætti spjöllum við við Elísabetu Reynisdóttur, næringarþerapista og næringarfræðing, sem hefur áratuga reynslu á sviði heilsu og næringar. Samræðan spannar víðan völl — frá magasýrum og meltingu yfir í samsetningu máltíða, vítamín, og dýpri spurningar um hvernig við getum hlustað á líkamann. Við ræðum meðal annars: 🔬 Magasý...

Þórdís Skúladóttir um leiðina að heilbrigði án verkja og lyfja, ketó mataræði, háa D-vítamínskammta, mátt curcumins og margt fleira. 03.11.2025

🌿 Í þessum þætti hittum við Þórdísi Skúladóttur, sem eftir áralanga þrautargöngu með mikla verki, meltingarvandamál, Hashimoto-sjúkdóm, Sjögrens, vefjagigt og mikla lyfjanotkun ákvað að taka heilsuna í eigin hendur. Þórdís tók mataræðið í gegn – prófaði alls konar en endaði á ketó mataræði, byrjaði að taka háa skammta af D-vítamíni og Curcumin olíu, og segir að það hafi bókstaflega gjörbreytt líf...

Hrund Gunnsteinsdóttir um InnSæi, mikilvægi þess, hvernig við eflum það, greind, tilgang og lífið með innsæið að leiðarljósi. 27.10.2025

✨ Í þessum þætti fáum við í heimsókn Hrund Gunnsteinsdóttur rithöfund, lífsspeking, fyrirlesara og ráðgjafa sem gaf nýverið út bókina InnSæi og hefur í dag helgað líf sitt því að hjálpa fólki að tengjast innsæinu sínu og efla það.✨  Hún hefur komið ótrúlega víða við á sínum starfsferli en það var mjög erfið reynsla sem hún gekk í gegnum sem starfsmaður Sameinuðu Þjóðanna í Kosovo eftir stríðið á...

Tekla Hrund Karlsdóttir læknir um efnaskiptaheilsu, hvatbera, lifrina, glútaþíon, yfirhreyfanlega liði og framúrskarandi fólk. 20.10.2025

🌸 Í þessum þætti fáum við til okkar Teklu Hrund Karlsdóttur lækni, sem hefur mikla reynslu og brennandi áhuga á efnaskiptaheilsu, frumustarfsemi og heilbrigðum lífsstíl. Hún vinnur á mörkum hefðbundinnar læknisfræði og nýrra nálgana — með áherslu á að skilja líkamsstarfsemina, orku og hvað við getum gert til að fyrirbyggja sjúkdóma og koma á jafnvægi í líkamsstarfseminni. ✨ Við ræðum m.a.: ⚖️ Hv...

Dr.Erla Björnsdóttir um svefn, svefnlyf, af hverju við sofum, áhrif svefnleysis á heilsu, orkudrykki, andlitsblindu og topp tíu góð ráð til bættrar svefnheilsu. 13.10.2025

🌙 Allt um svefninn með Dr. Erlu Björnsdóttur 💤 Í þessum afar fræðandi og áhugaverða þætti fáum við til okkar Dr. Erlu Björnsdóttur, svefnsérfræðing og doktor í líf- og læknavísindum, sem hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á svefni í samstarfi við vísindamenn í Evrópu og Bandaríkjunum. Við ræðum: 🌙 Af hverju við sofum – og hvað raunveruleg...

Ingibjörg Sigfúsdóttir, frumkvöðull og einn stofnanda Heilsuhringsins miðlar af visku sinni, reynslu og vegferð í 60 ár með MS sjúkdóminn án lyfja, um óhefðbundnar meðferðir, D-vítamín, lektín og mfl. 06.10.2025

🌿Gestur þáttarins er Ingibjörg Sigfúsdóttir – frumkvöðull, ritstjóri og einn stofnanda Heilsuhringsins🌿 Í þessum þætti fáum við að hitta Ingibjörgu Sigfúsdóttur, eina af stofnendum Heilsuhringsins – tímarits sem hefur miðlað heildrænni visku og fræðslu um heilsu í 47 ár. Ingibjörg er 83 ára orkubolti, enn forvitin, lærdómsfús og ástríðufull í að miðla reynslu sinni og fróðleik til annarra. Hún g...

Umfjöllun um paracetamol á meðgöngu og fólínsýruskort í heila - tvö aðskilin mál en snúa að þroska heila- og taugakerfis barna. 29.09.2025

Í þessum þætti fjöllum við um nýlegar ráðleggingar bandarískra heilbrigðisyfirvalda sem hafa verið mikið í umræðunni í Bandaríkjunum og víðar undanfarið. Þær snúa annars vegar að notkun Tylenols (paracetamol - acetaminophen) á meðgöngu og hins vegar að lyfinu leucovorin hjá börnum með einhverfu. Tylenol á meðgöngu Í ágúst 2025 birtist stór rannsókn frá Harvard og Mount Sinai sem skoðaði notkun Tyl...

Sara Sigmundsdóttir CrossFit íþróttakona um ferilinn, stofnfrumumeðferð, að keppa án krossbands, sálrænt álag í keppnisíþróttum, seiglu, bjartsýni og lífsgleði. 22.09.2025

✨ Viðtal við Söru Sigmunds CrossFit meistara ✨ Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega sögu Söru Sigmundsdóttur, eins þekktasta crossfit keppanda heims. Sara hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiða meiðslasögu en hefur aldrei látið það stöðva sig – hún heldur áfram með ótrúlegri seiglu og járnvilja. Hún segir okkur frá því hvað dró hana fyrst inn í crossfit, hvernig ferillinn hefur þróast og h...

Björg Þórhallsdóttir metsöluhöfundur og Hildur Blöndal Sveinsdóttir þerapisti um gleðina, leiðina að hamingju úr erfiðri reynslu og hvernig við getum upplifað þessa tilfinningu á hverjum degi. 15.09.2025

✨ Viðtal við vinkonurnar og gleðigjafana Björgu Þórhallsdóttur, listakonu, rithöfund og lífsleikniþjálfara sem nýlega gaf út bókina Gleði Bjargar og Hildi Blöndal Sveinsdóttur þerapista og ráðgjafa.✨ Björg hefur gengið í gegnum miklar raunir, þar á meðal eina þá þyngstu þegar hún var aðeins níu ára. Þrátt fyrir það hefur hún tileinkað líf sitt því að leiða aðra inn í meiri gleði, hamingju og inn...

Þórunn Jónsdóttir oft kölluð grasahjúkkan um hampplöntuna, marjúana, lækningamáttinn, endókanabínóíðakerfið, uppruna orðsins marijúana, pólitíkina og hagsmuni á bak við bann við ræktun plöntunnar 08.09.2025

🌿 Viðtal við Þórunni Thors Jónsdóttur – grasahjúkkuna 🌿 Hampurinn er ein elsta nytjaplanta mannkynsins – og hefur verið notuð til fatagerðar, byggingarefna, veiðarfæra og matar svo fátt eitt sé nefnt. Á sama tíma geymir hún öflug virk efni sem hafa verið nýtt í lækningaskyni um aldir. Þórunn Jónsdóttir er einn stofnanda Hampfélagsins á Íslandi og hefur í yfir tvo áratugi verið ötul baráttukona f...

Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir um vaxandi ofnæmi, óþol og sjálfsofnæmissjúkdóma á Vesturlöndum - ónæmiskerfið, þarmaflóran, eiturefni og náttúruleysi koma við sögu. 01.09.2025

🎧 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms🎧 Í þessum þætti fáum við til okkar Michael Clausen, barna- og ofnæmislækni, sem hefur starfað á Landspítalanum í yfir 25 ár. Hann hefur rannsakað og fylgst með þróun ofnæma og sjálfsofnæmissjúkdóma sem hafa margfaldast í vestrænum heimi síðustu áratugi. Við ræðum meðal annars: hvers vegna ofnæmi og sjálfsofnæmissjúkdómar hafa aukist svo mikið frá 1950...

Ragnar Raul Cardona og Adam Karl Helgason um ljónsmakka (lion's mane), einn vinsælasta lækningasvepp samtímans og lækningarmátt sveppa. 26.08.2025

🌿 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms 🌿 Í þættinum fáum við til okkar tvo unga frumkvöðla, Adam Karl Helgason og Ragnar Raul Cardona, sem hafa hafið ræktun á lion's mane sveppinum hér á Íslandi. Þeir segja okkur frá stórkostlegum eiginleikum sveppaheimsins – með sérstakri áherslu á lion’s mane sveppinn sem hefur t.d. verið kallaður ljónsmakki á íslensku. Lion’s mane (Hericium erinaceus) he...

Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ um lýðheilsu, forvarnir, heilbrigðiskerfið, liðsheild, forystu og hvernig hann hyggst leggja sitt af mörkum til að efla íþróttahreyfinguna á Íslandi. 18.08.2025

Í þessum þætti fáum við Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og nýkjörinn forseta ÍSÍ, í opinskátt og persónulegt viðtal. Hann segir frá leið sinni í stjórnmálum og þeim gildum sem hafa mótað hann í starfi og lífi. Við ræðum um helstu áskoranir og tækifæri innan íslenska heilbrigðiskerfisins, hvernig má byggja upp þjónustu sem nær til allra og hvaða stefnu hann sér sem mikilvæga til...

Listen to the Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.