Helgi Jean Claessen
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í leit að ást, samþykki og viðurkenningu.
Author
Helgi Jean Claessen
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
"Það stuðar mig alveg rosalega" - #156 01.03.2021 1:23:48
Er í lagi að dæma fólk ef það veit ekki almennar staðreyndir? Hverju munar fyrir Hjálmar að vera 108 kg. eða 112 kg? Þessi og fleiri atriði er hægt að rannsaka í þætti dagsins. Og munum líka: það er betra að vera salt - en saltaður. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is Bóka má skemmtanir á FB síðu HÆ hæ.
Emmsjé Gauti: "Ég á þetta á Go-Pro. Ég var hágrátandi." - #155 25.02.2021 1:24:53
Hann vildi vera rappari og vildi líka eignast fjölskyldu ungur - og gerði bara bæði. Hann þurfti síðan að taka nýja lexíu þegar heimsfaraldurinn skall á. Emmsjé Gauti fór all-in eins og honum einum er lagið! IG: helgijean & hjalmarorn110+ Allur þátturinn er í mynd á hihi.is! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a.
"Ég var bara orðinn grjótharður femínisti" - #154 22.02.2021 1:25:56
Það var kona úti á Tenerife sem reyndi að gera ósiðlega hluti við Helga í nuddi. Myndin Hækkum Rána breytti honum síðan í grjótharðan femínista. Og þá er alveg ósagt að Kyana Sue Powers mætti til okkar. Hún flutti frá Bandaríkjunum til Íslands og sló rækilega í gegn á Tiktok! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Björn Steinbekk: "Ég fór bara niður á geðdeild og bað um hjálp" - #153 18.02.2021 1:13:39
Við fengum til okkar Björn Steinbekk til ræða við okkur um djammið á Tunglinu í gamla daga, drónaskot á Íslandi - og mikilvægast: hvernig er að glíma við þunglyndi og kvíða. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Hér koma strákarnir í Hæ hæ" - #152 15.02.2021 1:14:18
Fyrsta Hæ hæ lagið er orðið að veruleika og var sungið af söngkonunni Mamiko Ragnarsdóttur. Svo mætti til okkar Vítamín drottningin Katrín Amni og ræddi heilsu og sambönd! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Guðlaugur Þór: "Ég var með skófar af Donald Trump á hausnum á mér" - #151 11.02.2021 1:02:46
Donald Trump fannst Katrín Jakobsdóttir alveg æðisleg og vildi fá hana í sjónvarpsþátt. Hann gekk hins vegar beint yfir Guðlaug Þór utanríkisráðherra sem mætti til okkar í hrikalega hressandi spjall. Svona eiga stjórnmálamenn að vera! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a!
"Ertu stundum hissa hvað hann getur orðið lítill?" - #150 09.02.2021 1:14:01
Helgi er snúinn frá Tenerife en var hissa á nýju lyktinni í Kakókastalanum þegar hann kom aftur. Hjálmar sagði frá ævintýrum sínum í Sarpinum á RÚV - og Ágústa var ekki langt undan sögur af iðnaðarmönnum fóru á klósettið hjá henni. Og svo var splæst í símaat samkvæmt fyrirmælum frá Hjálmari í lokin. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean - hjalmarorn110
Eva Ruza: "Hvað slekkur á þér í kynlífinu?" - #149 04.02.2021 1:15:12
Þáttur dagsins er einn mesti galsaþáttur HÆ hæ. Við urðum að leyfa hlustendum Hæ hæ að hlusta á stóra jólasprengjuþátt síðasta desember - þar sem hin kynngimagnaða Eva Ruza mætti - ásamt Svavari Elliða. Áskrifendur hihi.is fengu að horfa á þáttinn í beinni - en myndbandið er inni á hihi.is. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Stundum ertu harður" - #148 01.02.2021 51:37
Í þætti dagsins var farið létt yfir stöðu á grímum í heiminum. Hjálmar tók hlutverk löghlýðna borgarans - og Helgi var í hlutverki uppreisnamannsins. Svo ræddum við um fólk sem tilkynnir að það sé hætt á Facebook - og byrjar svo aftur á Facebook. Útvarp Saga tók svo lauflétta syrpu undir lokin. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Tekur þú ekki síma?" - #147 28.01.2021 1:07:25
Hver er lykillinn að góðum samböndum? Af hverju óttast Helgi skuldbindingu? Við köfum ofan í málin með Sigríði Rakel sérlegum sérfræðingi þáttarins í samböndum og tengdum málefnum. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Topp hlutir sem ég hef verið tilbúinn að gera fyrir ástina" - #146 25.01.2021 54:56
Hvað ertu tilbúin að gera fyrir ástina? VIð fórum yfir stöðuna með Svavari Elliða - og gerði hann svo símaat í Rikka G - og heimtaði að fá borgað. Takk fyrir að hlusta - Munið subscribe-a IG: helgijean & hjalmarorn110
Ásdís Rán: "Það er of mikið troðið á karlmönnum" - #145 21.01.2021 1:16:31
Hvert er íslensk karlmennska að fara? Er deitmenningin búin? Hvernig var að sitja framan á Playboy? Hvað kom fyrir moldríku vinkonu Ásdísar sem hvarf sporlaust? Þetta og meira til í þætti dagsins! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Það er svo fallegt að horfa inn í konu" - #144 18.01.2021 35:56
Hjálmar var kallaður út á samfélagsmiðlum fyrir ónærgætið komment um hár á fótum Ágústu - og svarar hann fyrir það í þættinum. Umræðan snerist svo í heimsókn til Húð og Kyn - ásamt leikþætti þar sem einhver var pullaður í rassinn. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: hjalmarorn110 & helgijean
Gísli Bachmann: "Þú ert næmasti einstaklingur sem ég hef hitt" - #143 14.01.2021 1:15:55
Í upphafi nýs árs er gott að tala við stjörnuspeking og taka stöðuna. Við fengum Gísla Bachmann til að koma og ræða tímana framundan - og lesa í kortin. Takk fyrir að hlusta- Munið að subscribe-a IG - helgijean & hjalmarorn110
"Þú ert svona grínkall" - #142 11.01.2021 40:39
Hvernig mætum við fólki? Setjum við upp grímu? Hjálmar var kallaður "Grínkall" - og varð ekki par sáttur. Hjálmar lærði líka hvað getur gerst þegar hann mætir of snemma til Helga. Og Helgi segir hvernig hann þurfti einu sinni að sætta sig við að vera gæi sem vildi fórna vináttu - fyrir one night stand. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110 Bókið rafræna skemmtu...
"Kúnstin er að sætta sig við að ná ekki áramótaheitinu" - #141 07.01.2021 44:18
Hjálmar er á leiðinni í listaverkaheiminn - og mögulega á leiðinni út úr honum aftur. Á meðan lúrir Helgi úti á Tenerife í sandinum með Sölva Tryggva. Þetta var rætt í innganginum að þættinum sem var síðan uppfullur af skemmtilegustu gestamómentunum frá árinu 2020. Jón Gnarr, Auðunn Blöndal, Eyþór Ingi - og miklu fleiri! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe! Bókið rafræna skemmtun fyrir hópin...
"Algjör flóðbylgja af skemmtilegheitum" - #140 04.01.2021 42:24
Kæru hlustendur! Takk kærlega fyrir að vera með okkur. Við spurðum á FB síðu Hæ hæ - hvað væri ykkar uppáhaldsefni árið 2020 - og hér er það. Þetta er Best-of mánudagsþátturinn 2020. Við hlökkum svo mikið til að gera fleiri þætti árið 2021! Bókið rafræna skemmtun pub-quiz og bingó á FB síðu Hæ hæ! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Þú ert í raun prests-rassgat" - #139 28.12.2020 46:33
Í þætti dagsins er fjallað um viðkvæmni - að hætta að drekka á áramótunum, skrýtnar jólahefðir - og frábæra leið til að muna hluti. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Það verður að vera þagnarbindindi í kringum þetta." - #138 21.12.2020 47:25
Vantar þig frábært sambandsráð til að blekkja makann? Hjálmar lumar á einu slíku í þætti dagsins. Og svo auðvitað umræða um jólin, tilfinningar og laufléttur leikþáttur um manninn sem er graður yfir skaupinu. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: hjalmarorn110 & helgijean
Þórunn Antonía: "Amy Winehouse kallaði mig 'Sexy'" - #137 17.12.2020 1:08:45
Hún fór í tónlistarbransann ung - kynntist Amy Winehouse sem gaf henni gælunafnið 'Sexy' - söng bakraddir með Beck - og býr nú í Hveragerði einhleyp með tvö börn og kött. Þórunn Antonía kom í flæðinu og lét ljós sitt skína. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110 Allt myndbandið af þættinum er í áskrift á hihi.is!
"Ég skil þig ástin mín" - #136 14.12.2020 1:04:38
Er gott yngingarmeðal að setja typpi í deig? Jú - þetta vill sérfræðingurinn Hjálmar Örn Jóhannsson typpahvíslari meina - og kemur með sannfærandi rök. Einnig var púlsinn tekinn á stóra deiti helgarinnar - og möguleg ástarmál. Ekki missa af stóru jólasýningu HÆ hæ þann 17 desember kl. 21:00 - aðeins fyrir áskrifendur hihi.is! IG: helgijean & hjalmarorn110
Jóhann Alfreð. "Ég kann ekki að hjóla" - #135 10.12.2020 1:11:39
Kann Jóhann Alfreð að hjóla? Eru allir skemmtikraftar haldnir kvíða, ofhugsun og meðvirkni? Þessum spurningum og fleiri verður svarað í þessum þætti! Komdu á Stóru Jólasýningu Hæ hæ þann 17. des kl. 21:00 - í boði fyrir áskrifendur Hihi.is IG: helgijean & hjalmarorn110
"Þú getur byrjað að hlusta á makann í júlí" - #134 07.12.2020 1:16:23
Hvenær er maður að gefa og taka í samskiptum? Hvaða bolta ert þú að gefa til fólks? Hvaða bolta færðu til baka? Queen Gerður í Blush mætti til okkar og ræddi um sambönd, jólagjafir og kynlíf. Ekki missa svo af Stóru Jólasýningu HÆ hæ inni á hihi.is - þann 17. desember næstkomandi! IG: helgijean & hjalmarorn110
Sólrún Diego: "Það er munur að vera afbrýðissamur eða skítsama." - #133 03.12.2020 1:16:42
Sólrún Diego mætti og ræddi um hvernig hún náði í eiginmanninn á Þjóðhátíð í Eyjum - sprenginguna sem varð eftir Bónusferðina og bókina sem var skrifuð upp í rúmi. Umræðurnar leiddust svo út í Bachelor - Love Island og afbrýðissemi. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110
"Við vorum að þykjast að Arnar væri ósýnilegur" - #132 30.11.2020 1:02:02
Hjálmar er kominn á krossgötur. Hann gæti þurft að hætta að drekka kakómalt - og hann heldur líka að lúxus sinnepið sem hann borðar hafi valdið miklum hósta undanfarið. Helgi fer svo yfir skammdegið og ráð til að fara úr skammdegisþunglyndi. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: hjalmarorn110 & helgijean
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.