Helgi Jean Claessen
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í leit að ást, samþykki og viðurkenningu.
Author
Helgi Jean Claessen
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hera Björk: "Ég sussa á alla á meðan Júróvísjón er í gangi" - #181 27.05.2021 1:18:47
Til okkar mætti stórsöngkonan og fasteignasalinn Hera Björk. Við ræddum um Júróvísjón, árin í Chile - og allt sem viðkemur því að kaupa og selja hús. Takk fyrir að hlusta og munið að subscribe´a! IG: helgijean & hjalmarorn110
"Líf þitt er eitt stórt pabba gill" - #180 24.05.2021 52:26
Logi, sonur Hjálmars, átti afmæli og Helga var boðið - en húsið var tómt þegar hann mætti. Það átti sér þó sínar skýringar - eins og annað í heimi Hjálmars. Svo eru það buxurnar hans Helga sem eru með tveimur buxnaklaufum. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! Allur þátturinn er í mynd á hihi.is!
Diljá Mist: "Ef það er drasl heima - þá set ég mynd af því" - #179 21.05.2021 1:09:38
Diljá Mist braust fram á sjónarsviðið nýlega - og ætlar að breyta þjóðfélaginu til hins betra. Dýrmætasta lexían er að maður fær ekki alltaf einn dag í viðbót. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe´a.
"Ég er rosalegur mömmustrákur" - #178 17.05.2021 1:15:26
Er hægt að vera unglingur að nálgast fimmtugt? Hvenær á mamma manns að hætta að velja föt á mann? Hver má ráða hvað er fallegt að velja á heimilinu? Að minnsta kosti er reynt að svara þessum spurningum í nýjasta Hæ hæ! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Endurkoma Evu Ruza: "Þú þarft að hlusta á allt!" - #177 13.05.2021 1:04:52
Eva Ruza mætti til okkar í miklum galsa - svo við heyrðum rakleitt í Sigga manninum hennar - sem kom með slysasögu úr upphafi sambandsins. Þátturinn fór svo um víðan völl - en samt fór hann eiginlega aldrei neitt - enda viðurkennir Eva að hún sé kvenkyns útgáfan af Hjálmari - og Helgi átti ekki breik í að stoppa athyglisbrestinn sem var í loftinu. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta...
"Ég var mjög mjór krakki" - #176 10.05.2021 46:54
Hjálmar fór og var bólusettur með Astra Senegal og lýsir ævintýri í Laugardalshöllinni. Hæ hæ gengið fór svo út að borða - og var besti brandari kvöldsins valinn í þættinum. Pétur á Útvarpi sögu fékk svo óskiljanlegt símtal frá Hauki á Reyðarfirði. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! IG: helgijean & hjalmarorn110
Pétur Þór: "Fulla ferð" - #175 06.05.2021 1:02:05
Til okkar mætti Pétur Þór forstjóri S4S. Hann byrjaði með tvær ferðatöskur með skóm sem hann seldi í búðir. Hann vann sig upp og er nú eigandi meðal annars Ellingsen Air, Ecco, Kaupfélagið, Skechers og Steinar Waage. Hvernig býr maður til viðskiptaveldi? Hvernig eyðir maður peningum (Hjálmar var upptekinn af því). Og hvar liggur hamingjan í lífinu? IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlust...
"Ég lenti í viðreynslu" - #174 02.05.2021 57:37
Helgi lenti í viðreynslu - þótt að Hjálmar hafi reyndar efast um það. Stakk sá síðarnefndi upp á fingramerki sem nota ætti í viðreynslu. Fóru síðan fram umræður um fyllerí og drauma. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! Allur þátturinn er í mynd í áskrift á hihi.is.
Sigga Kling: "Ef ég þyrfti þá myndi ég bara vera í Onlyfans" - #173 29.04.2021 1:17:52
Lífskúnstner Íslands, Sigga Kling, mætti til okkar og hún hjálpaði okkur öllum að koma út úr skápnum með sjálf okkur. Með sína 200 hatta gefur hún öllum leyfisbréf að vera nákvæmlega eins og þeir eru! Hvílík drottning! IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a!
"Ertu að segja mér að þú hafir upplifað þetta?" - #172 26.04.2021 52:30
Bingó í áskrift hihi.is fimmtudaginn 29. apríl kl. 21:00! Hvað er kjurrt þegar þú gengur framhjá því - en skelfur þegar þú kemur við það? Jú þessari gátu - og fleiri óskiljanlegum var svarað í þætti dagsins. Eins bendir Hjálmar líka á hættur sætishitara - eða hitissætara eins og hann vill kalla það. Og ekki má svo gleyma deitsögum Ágústu - og góðu símaati. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir...
"Þetta var ein epísk heimsókn" - #171 23.04.2021 32:15
Það var frí á Sumardaginn fyrsta - en við ákváðum að henda í léttan þátt í dag og leyfa hlustendum að heyra viðtal við hinn goðsagnakennda Blæsa - en viðtalið í heild sinni má heyra í áskrift inni á hihi.is!
"Ég hef mestan áhuga á að heyra hvað kom út úr raxxgatinu á þér" - #170 19.04.2021 56:12
Helgi fór í ristilskolun - og Hjálmar skildi ekki neitt. Er vorið að kveikja í kynorkunni? Ágústa deildi svo sögu af manni í skóstærð 49. Bingóið mikla verður inni á hihi.is þann 29. apríl kl. 21:00! IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd inni á hihi.is!
Anna Svava: "Á ég að segja ykkur frá bónorðinu?" - #169 15.04.2021 1:32:40
Líklega einn fyndnasti gestaþáttur HÆ hæ varð til þegar Anna Svava kom ásamt athyglisbrestinum - og mætti sjálfri sér í játningum frá vinkonum sínum. Bugunin að eignast börnin - eiginmaðurinn sem hún hélt hún myndi aldrei hitta - óvænta brúðkaupið sem hún skipulagði fyrir vinkona sína - og handrukkararnir sem gæsuðu hana. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is! Takk fyri...
"Þú átt að vita hvað fólk baktalar þig um" - #168 12.04.2021 1:06:19
*Bingó með stórum vinningum fyrir fólk í áskrift á hihi.is - fimmtudaginn 29. apríl.* Veistu hver er að baktala þig - og út af hverju? Hjálmar grillar Helga. Hvað er svo fjölskylda? Velur maður hana sjálfur? Og svo mætti Ágústa með smá umræðu um kynlíf. Ásamt leikþættinum þar sem var hringt inn á Símatorg í konu með bakverk. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd inni á hihi.is!
Edda Falak: "Það er ekkert að því að vilja athygli" - #167 08.04.2021 1:27:35
Crossfit drottningin Edda Falak birtist sem stormsveipur í íslenskum fjölmiðlum - og ratar IG saga hennar reglulega í fréttir. Hún er með sterkar skoðanir - hún fór úr sambandi er komin í nýtt - og lætur sér fátt um finnast um skoðanir annarra. Þessi þáttur er ein stór negla! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Allur þátturinn er í mynd á hihi.is!
"Bara takast á við hlutina" - #166 05.04.2021 1:02:32
Hvað er langt í að þríeykið hendi okkur í bleyjurnar? Er Hjálmar tilbúinn í ristilskoðun? Og hvað eru margir mánuðir eftir af ævinni? Er eftir einhverju að bíða? IG: hjalmarorn110 & helgijean Allur þátturinn er í mynd á hihi.is Takk fyrir að hlusta- Munið að subscribe'a!
Ævar Østerby: "Ef ég get ekki hjálpað syni mínum - þá get ég hjálpað sonum annarra" - #165 01.04.2021 1:41:01
Ævar Østerby mætti til okkar með sögu af andlega ferðalaginu: niðurbrotinu - litlu skrefunum og andlegu retreatunum sem leiddu til stóru uppljómuninnar. Ævar lýsir líka hvernig hann hjálpar sonum annarra - því hann var vanmáttugur til að hjálpa sínum eigin. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is! Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a!
"Manni finnst maður sjálfur svo mikill krakki enn þá" - #164 29.03.2021 1:26:16
Hvenær kemst maður yfir skilnað foreldra sinna? Hvað er að koma fyrir skipið sem stíflaði alla umferð í heiminum. Og svo hvernig kemur maður í hugmyndum í framkvæmd? Danival frá Sætum Snúðum mætti og ræddi um að vera frumkvöðull! Allur þátturinn er í mynd á hihi.is IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a!
Sóli Hólm: "Að skemmta fólki. Það er það sem ég er bestur í."- #163 25.03.2021 1:52:07
Hvernig hljómar það þegar Sigmundur Davíð og Pétur á Útvarpi Sögu hringja og panta pizzu? Það kom í ljós í þessum þætti með hjálp Sóla Hólm - sem kom og skemmti okkur í nærri tvo tíma. Og kom með stóra tilkynningu. Hvílíkur maður! Allur þátturinn er í mynd á hihi.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe´a!
"Hver er soðna ýsan í samtölum í samböndum?" - #162 22.03.2021 48:27
Það er engin fyrir soðna ýsu í matinn - en hver er soðna ýsan í samræðum í samböndum? Hvað er hægt að gera til að krydda samtölin? Sambandsráðgjafi þáttarins Sigga Rakel mætti og fór ofan í saumana á afbrýðissemi og mörkum. Allur þátturinn er í mynd á hihi.is IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta og munið að subscribe'a!
"Traumað þitt í æsku eru samlokurnar sem þú borðar í dag" - #161 19.03.2021 51:18
Þátturinn hefst rakleitt á símaati í Útvarp Sögu - fer síðan yfir í hvaða sögur Hjálmar raunverulega á af lífi sínu - og endar á að tala um viðkvæmni fyrstu fimm ára í lífi fólksins - og hvernig gamla traumað - eru samlokurnar sem eru borðaðar í dag. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is!
"Þú varst hlaupandi á nærbuxunum fyrir framan húsið þitt" - #160 15.03.2021 1:11:09
Helgi mætti í barnaafmæli til Hjálmars og fékk einkunn fyrir innkomuna. Hann byrjaði líka að elda - og deildi reynslu af matarboðum. Fötin hans Hjálmars voru svo til umræðu - en Helgi fékk fast skotið á sig tilbaka. Svo kom Haukur frá Reyðarfirði með vandamál að grímuskyldan væri ekki heita pottinum í sundlauginni á Útvarpi Sögu. IG: helgijean & hjalmarorn110
Logi Bergmann: "Ég væri alveg til í að vera borgarstjóri" - #159 11.03.2021 1:17:36
Logi Bergmann kom til okkar og við ræddum meðal annars um pungsig - og að Logi væri alveg til í að verða borgarstjóri en aðeins ef allir kjósa rétt. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd á hihi.is
"Eruð þið kviðmágar?" - #158 08.03.2021 53:28
Er Hjálmar í megrun eða lífstílsbreytingu? Hver er munurinn? Það er spurning dagsins - ásamt því hver og hvað er hægt að gera með kviðmágum. Og jú svo var það gönguferð Helga og Sölva á Fimmvörðuhálsinn. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd inni á hihi.is!
Endurkoma Kristínar Péturs: Þetta eru stórar fréttir! - #157 04.03.2021 1:21:45
Einn okkar vinsælasti gestur Kristín Péturs mætti til okkar aftur - og tókum við púlsinn á lífi leikkonu. Við saumuðum strax að henni og hvern hún væri að deita. Alvöru fréttaskýringaþáttur. IG: helgijean & hjalmarorn110 Allur þátturinn er í mynd inni á hihi.is!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.