Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 398 episodes

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Author

Kop.is

Category

Sports

Podcast website

www.kop.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullkastið – Þrumustuð í Brighton 14.03.2022

Flott ferð til Brigton, tapsigur gegn Inter, Sportwashing í enska boltanum, áhugaverð umferð á toppi og botni og Steini fimmtugur í fyrsta skipti! Viðburðarík vika að baki. Salah og barnið sem fer með hans mál fékk sinn tíma og eins það sem er framundan í næstu viku, fyrst er það risaleikur á Emirates í miðri viku og um helgina er það fyrsti bikarleikurinn gegn Nottingham Forest síðan 1989! Stjórn...

Gullkastið - Fulla ferð á þremur vígstöðvum 07.03.2022

Tveir góðir sigrar í Liverpool borg með Magga á vellinum. Vond vika PR lega fyrir Sportwashing félögin í boltanum og Chelsea til sölu. Alvöru barátta um bæði titlinn og Meistaradeildarsæti. Framundan er svo seinni leikurinn við Inter og ferðalag til Brighton. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn

Gullkastið – Frábær ferð á Wembley 28.02.2022

Einn af fjórum! Maggi og Steini fóru á Wembley og horfðu á okkar menn landa mjög svo sætum sigri á Chelsea liði Roman Abramovich. Gott spjall um þeirra ævintýri í London og hvernig það er að mæta á úrslitaleik. Heimsfréttirnar hafa verið hræðilegar undanfarna daga og gætu haft mikil áhrif á fótboltann líkt og annað og verður t.d. fróðlegt að sjá hvað gerist á næstunni andstæðingum helgarinnar. Lee...

Gullkastið - Game on! 21.02.2022

Það er líf í toppbaráttunni ennþá eftir góða helgi á Englandi og staðan er ljómandi góð í Meistaradeildinni eftir heimsókn á San Siró. Leeds leikurinn á miðvikudaginn er risastór og um helgina er komið að úrslitaleik deildarbikarsins með Gullkastið á staðnum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn

Gullkastið – Rok, rigning og kuldi í Burnley 14.02.2022

Tveir góðir sigrar á Leicester og Burnley í deildinni er gott fóður í risaslaginn gegn ítölsku meisturunum í Inter. Tvær umferðir í deildinni í vikunni og hörkubarátta um að ná ekki síðasta Meistaradeildarsætinu.

Gullkastið - Endurkoma lykilmanna 07.02.2022

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og Sveinn Waage Luis Diaz stimplaði sinn inn í fyrsta skipti, Harvey Elliott mætti aftur og minnti rækilega á sig og Thiago er kominn aftur á ról. Afríkukeppninni lauk með einvígi Salah og Mané og Klopp því kominn með allt að því fullskipað lið fyrir átök næstu vikna. Leicester og Burnley bíða í þessari viku en Meistaradeildin fer svo aftur af stað í...

Gullkastið - Óvænt gluggaendalok 31.01.2022

Í fjarveru Einars fóru Maggi og SSteinn yfir leikmannagluggann í janúar, bæði hjá Liverpool og öðrum liðum í enska boltanum. Kíktu svo aðeins á leikinn við Cardiff í bikarnum um næstu helgi

Gullkastið - Engin janúar bölvun í ár 24.01.2022

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Tveir sigrar í deildinni án Afríkumannanna og sæti í úrslitaleik á Wembley í ofanálag. Janúnar fór betur en margir óttuðust.

Gullkastið - Loksins sannfærandi sigur 17.01.2022

Góður sigur um helgina og hálfleikur í einvíginu gegn Arsenal í deildarbikarnum stóru málin á dagskrá í þessari viku. City tók slaginn við Chelsea, Benitez er farinn frá þeim bláu og Coutinho mætti aftur með látum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið með Guðna Tómassyni 14.01.2022
Gullkastið - Covid jafntefli gegn Chelsea 03.01.2022

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Bikarvika á Anfield, janúarglugginn, Covid vesen, erfið titilbarátta o.fl.

Gullkastið – Bless 2021 30.12.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og MaggiLiverpool kveður árið 2021 á svipuðum nótum og þeir hófu það. Svekkjandi tap gegn Leicester, uppgjör á árinu og upphitun fyrir stórleikinn gegn Chelsea var helst á dagskrá í lokaþætti ársins.

Gullkastið - Mótvindur um jólin 20.12.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Óhjákvæmileg dómaraumræða eftir torsótt stig í London, sigur á ríkasta liði sögunnar í miðri viku og gríðarlega krefjandi jólatörn framundan og allt vaðandi í Covid. Þétt dagskrá í síðasta þætti fyrir jól.

Gullkastið – Bring on yer Internazionale 13.12.2021

Eftir ævintýralegt klúður hjá UEFA kom Inter Milan upp úr hattinum í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Liverpool er því aftur á leiðinni á San Siro þar sem þeir luku riðlakeppninni með fullu húsi stiga. Steven Gerrard kom svo aftur á Anfield en fékk lítið meira en lófaklappið. Næsta verk er svo ríkasta íþróttalið sögunnar. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið með Jóa Kalla 09.12.2021
Gullkastið - Be Divock! 06.12.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool fór á Goodison og bauð gleðileg jól og tók þá bókstaflega með vinstri. Divock Origi kom inná gegn Wolves með þau fyrirmæli frá Klopp að vera Divock Origi, hann gerði einmitt það. Frábær vika og framundan er ferð til Milan og endurkoma Steven Gerrard. Tvær heilar umferðir á Englandi, nóg að ræða og þrumustuð.

Gullkastið – Nágrannaslagurinn 29.11.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Everton er verkefni vikunnar á Goodison Park og verður vonandi ekki jafn herfilega heimskulega dæmdur og fáránlega grófur og þessi leikur liðanna var á síðustu leiktíð. Sú fjandans viðureign er geymd en ekki gleymd. Úlfarnir bíða svo um helgina einnig á útivelli. Síðustu viku vann Liverpool samanlagt 10-0 og var það nokkuð vel sloppið frá...

Gullkastið - Snorri Dýrðlingur Sigurðarson 26.11.2021
Gullkastið - Af Molde ertu kominn, að Molde skaltu aftur verða 22.11.2021

Liverpool rústaði Arsenal enn eina ferðina á Anfield en það var ekki bara gleði um helgina, Man Utd sagði okkar manni á hjólinu mjög ósanngjarnt upp störfum. Meistaradeild í vikunni og þétta leikjaprógramm næstu vikur. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Breytingar hjá Liverpool 15.11.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Sveinn Waage Michael Edwards er búinn að staðfesta það að hann ætli að hætta sem Sporting Director eftir tímabilið og Julien Ward tekur við af honum. Hvaða áhrif gæti þetta haft á félagið? Steven Gerrard er tekin við Aston Villa og mætir kokhraustur með þá á Anfield í næsta mánuði. Stórleikur gegn Arsenal um helgina en skytturnar hafa ekk...

Gullkastið - Skítur skeður 08.11.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Tap í London en sigur í Meistaradeildarriðlinum. Svekkjandi veikleikar í leik Liverpool og verulega vond töpuð stig. Nóg að gera annarsstaðar í boltanum enda nú þegar búið að skipta um stjóra hjá fimm liðunum í úrvalsdeildinni. Er Gerrard að koma í enska boltann?

Gullkastið – Sjóðandi pirrandi jafntefli 01.11.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool henti hreinlega frá sér tveimur stigum á Anfield um helgina en komst áfram í deildarbikarnum. Tottenham rak stjórann sinn, United gerði það ekki, City tapaði og Arsenal er að nálgast þá í töflunni. Benitez er í basli hjá Everton. Ballið heldur svo áfram í vikunni og tveir stórir leikir framundan.

Gullkastið - GIVE ME FIVE! 25.10.2021

Guðlaugur Þór Utanríkisráðherra var með okkur í þessari viku ásamt fyndnasta vini okkar Sveini Waage til að fara yfir þessa bráðfyndnu veislu á Old Trafford. Stemmingin hefur sjaldan verið betri.  Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Guðlaugur Þór og Sveinn Waage 

Gullkastið – Hin Heilaga Þrenning með sýningu 18.10.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Landsleikir og fjarvera lykilmanna hafði engin áhrif á Liverpool liðið sem var stórkostlegt gegn Watford og sluppu heimamenn nokkuð vel með 0-5 tap. Næsti leikur er úti gegn Atletico Madríd í Meistaradeildinni og á sunnudaginn er stórleikurinn gegn United á Old Trafford. Þétt dagskrá og almenn gleði.

Gullkastið - Klopp í sex ár og nýtt Olíufélag 11.10.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Sádi-Arabía er loksins búið að klára kaup sín á Newcastle og koma til með að breyta því félagi í nýjasta Olíufélagið í boltanum. Jurgen Klopp fagnaði sex ára starfsafmæli með Liverpool og leikjaprógrammið út þennan mánuð er nokkuð krefjandi með útileikjum og fjarveru lykilmanna.

Listen to the Gullkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.