Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 398 episodes

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Author

Kop.is

Category

Sports

Podcast website

www.kop.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullkastið - Ofur Október 28.09.2022

Enski boltinn fer aftur af stað með látum um helgina og Meistaradeildin í næstu viku eftir ótrúlega langa bið. Kvennalið Liverpool hefur fengið sviðið undanfarið meðan karlaliðið hefur nánast verið í pásu en tímabilið var að hefjast hjá þeim með Liverpool á ný deild þeirra bestu. Fókusinn á þetta og fleira í þætti vikunnar og var Daníel Brandur með í þessari viku nýkominn af Anfield þar sem hann s...

Gullkastið – Lognið á undan storminum 20.09.2022

Sannarlega lognið á undan storminum þessa dagana, Liverpool leik helgarinnar var frestað og landsleikjahlé hefur tekið við. Nýttum tækifærið til að rýna betur í leikmannakaup Liverpool undanfarin ár og þeirri vegferð sem félagið er á. Skoðuðum rosalegt leikjaprógramm október mánaðar og byrjun tímabilsins í deildinni. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samsta...

Gullkastið – Elísabet kveður 14.09.2022

Þetta er farið að minna á Covid ruglið, það er frestað deildarleikjum Liverpool tvær helgar í röð verða fráfalls Elísabetar Englandsdrottningar og ástæðurnar fyrir þessu raski eru vægast sagt tæpar. Einu leikir Liverpool undanfarið eru því tveir afar mismunandi Meistaradeildarleikir. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur a...

Gullkastið - Bölvað bras 06.09.2022

Byrjun tímabilsins heldur áfram að vera allt of mikið bras hja okkar mönnum, eins tæpur sigur og mögulegt er á móti Newcastle í miðri viku og 0-0 tap gegn Everton á Woodison var allt of sumt í þessari viku og framundan er þriggja leikja vikur fram að HM í eyðimörkinni. Napoli á útivelli fyrsta verk í þeirri törn. Leikmannaglugganum var einnig lokað í þessari viku m.a.s. Liverpool bætti við sig lei...

Gullkastið: 9-0 29.08.2022

Liverpool vaknaði heldur betur til lífsins um rústaði Bournemouth 9-0 eftir þreytta byrjun á þessu tímabili. Það er því aðeins léttari brúnin fyrir verkefnum vikunnar sem eru Newcastle á miðvikudaginn og Everton í hádeginu á laugardaginn. Smelltum okkur á Sólon Bistro Bar í miðbænum og fengum gallharðan Newcastle mann með okkur til að fara yfir allt það helsta í þessari viku. Leikmannamarkaðnum lo...

Gullkastið - Sálfræðitími 23.08.2022

Svona þættir eru ekki síður sáfræðitími en fótboltaumræða. Ömurleg úrslit á Old Trafford, eitt versta tap Liverpool undir stjórn Klopp og staðan í deildinni bara alls ekki sexy. Ljóst að liðið þarf að stíga hressilega upp og orðið mjög augljóst að það þarf fleiri ferska gæðaleikmenn í þennan hóp. Liverpool virkar þreytt, gamalt og meitt fyrstu vikurnar á nýju tímabili. Bournemouth er kjörið tækifæ...

Gullkastið - Copy/Paste 16.08.2022

Það er eins og Liverpool sé alltaf að spila sama leikinn, þeir virðast allir þróast á svipaðan hátt og ætlar að reyna erfitt að brjóta af þeim vana. Endalaus meiðsli og annarskonar fjarverur lykilmanna einfalda alls ekki lífið. Rosalega vond töpuð stig gegn Palace og strax fjögur stig í toppliðin. Næsti leikur er svo gegn botnliðinu á Old Trafford! 1.mín  – Copy/Paste gegn Palace 26.mín  – Það hel...

Gullkastið – Kjaftshögg gegn Fulham 08.08.2022

Liverpool var mjög lengi í gang í hádegisleiknum gegn Fulham í fyrstu umferð og það kostaði á endanum tvö mjög dýrmæt stig. Vond byrjun á mótinu sem helstu keppinautar nýttu sér vel í kjölfarið. 1.mín  – Fulham leikurinn 25.mín  – Fyrsta umferðin – hin liðin 52.mín  – Crystal Palace í næstu viku Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Gummi Ben hitar upp fyrir nýtt tímabil 05.08.2022

Enski boltinn fer formlega af stað núna um helgina og byrjar Liverpool á ferð til London í fyrramálið. Gummi Ben tók skemmtilegt spjall við okkur til að spá í spilin fyrir komandi vertíð. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Gummi Ben

Gullkastið – Fiðringur fyrir nýju tímabili 28.07.2022

Undirbúningstímabilið er tæknilega búið og Liverpool ferðast nú aftur til Englands eftir stífar æfingar undanfarna viku og tvo æfingaleiki gegn Leipzig og Salzburg. Góðgerðarskjöldurinn er klukkan 15:00 á laugardaginn og mótið hefst svo helgina á eftir. 2.mín  – Æfingaleikurinn gegn Salzburg og undirbúningstímabilið 22.mín  – Helstu fréttir úr knattspyrnuheiminum 61.mín  -Upphitun fyrir góðgerðars...

Gullkastið - Korter í mót 18.07.2022

Góðgerðarskjöldurinn er eftir 12 daga og æfingatímabilið að fara í næsta fasa. Töluvert að frétta af leikmannamarkaðnum en svosem ekki mikið hjá Liverpool. 1.mín – Æfingaleikir í Asíu 17.mín  – Breytingar á miðjunni? 35.mín  – Hvað er að frétta af hinum liðunum í deildinni 72.mín.mín  – Næstu leikir Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull (l...

Gullkastið – Salah skrifar undir nýjan samning 04.07.2022

Salah er búinn að gera nýjan þriggja ára samning við Liverpool, hin toppliðin sitja heldur betur ekki auðum höndum í sumar og æfingaleikjatímabilið hefst strax í næstu viku. 1.mín  – Salah með nýjan samning 14.mín  – Fleiri leikmannakaup í sumar? 23.mín  – Breytingar á hinum liðunum 55.mín  – Æfingar og æfingaleikir framunda Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda...

Gullkastið – Klopp lið Liverpool 2.0 17.06.2022

Darwin Nunez er komin til Liverpool en Sadio Mané er að fara. Tókum stöðuna á helstu fréttum af Liverpool á leikmannamarkaðnum og horfðum til næsta tímabils sem er handan við hornið. 1.mín  – Darwin Nunez 25.mín – Mané að fara 38.mín  – Calvin Ramsey frá Aberdeen 46.mín  – Fleiri að fara/koma í sumar? 58.mín  – Leikjaplanið 22/23 Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að h...

Gullkastið – Merde! 02.06.2022

Frakkar sýndi það og sönnuðu í eitt skipti fyrir öll að þeir eru ömurlegir heim að sækja, það var ekki hægt að standa mikið verr að Úrslitaleik Meistaradeildarinnar og hjálpaði það ekki ofan í vonbrigðin yfir leiknum sjálfum. Hvað gera Julian Ward, Jurgen Klopp og félagar í sumar til að hressa upp á hópinn og hvernig er prógrammið framundan í sumar? 1.mín  – Klúður hjá Liverpool í París 12.mín  –...

Gullkastið – Liverpool búið að bursta tennurnar frá 2018 26.05.2022

Stærsti leikur tímabilsins framundan, Liverpool – Real Madríd í París í Úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þetta verður einfaldlega ekkert stærra en það. Hituðum upp fyrir leikinn í París, tókum stutt spjall við hressa meistara úr stjórn Liverpool klúbbsins sem eru staddir í París og horfðum aðeins yfir tímabilið sem var að klárast um helgina. 1.mín  – Lokaumferðin og stemmingin á Anfield 18.mín  –...

Gullkastið – Uppgjör á lokaumferðinni 23.05.2022

Uppgjör á lokadegi tímabilsins og tímabilinu í heild var aðalmál á dagskrá í þessari viku með annað augað á hvað gerist í framhaldinu, bæði á leikmannamarkaðnum og auðvitað í París um helgina. Einar Örn annar af stofnendum Kop.is mætti aftur eftir langt hlé og fréttamaðurinn knái og fráfarandi Formaður  Liverpool klúbbsins  Hallgrímur Indriða var með okkur að auki. 1.mín  – Lokaumferðin á Anfield...

Gullkastið – BIKARMEISTARAR 15.05.2022

Liverpool eru bikarmeistarar 2022 eftir annan sigur gegn Chelsea á Anfield South eftir vítaspyrnukeppni. West Ham gaf Liverpool svo líflínu í deildinni með því að taka stig af City en dauðþreytt Liverpool liðið á næsta leik, Southampton úti á þriðjudaginn. Sigur þar gerir næstu helgi spennandi, Liverpool fær Úlfana á Anfield á meðan Steven Gerrard og félagar fara á Etihad… Okkar allra besta Hanna...

Gullkastið - Úrslitaleikir 09.05.2022

Úrslit í Meistaradeildinni staðfest, Real Madríd aftur. Deildin fór ekki vel um helgina en það er strax komið að næstu umferð í kvöld (þriðjudag) gegn Aston Villa og svo bíður sjálfur Úrslitaleikur FA Cup um næstu helgi. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Egils Gull (léttöl) Húsasmiðjan Sólon Bistro Bar Ögurverk ehf Stjórnandi:  Einar Matthías Við...

Gullkastið - Beint frá Spáni 01.05.2022

Four more years af Jurgen Klopp, flott staða í Meistaradeildinni og góður sigur í Newcastle. Úrvals vika hjá Liverpool. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Haukur Guðmunds (Liverpool Haukur)

Gullkastið - Hin fullkomna vika 26.04.2022

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Ef það ætti að teikna upp hina fullkomnu viku fyrir stuðningsmann Liverpool væri sigur á Man City, stórsigur á Man Utd og nánast algjörir yfirburðir gegn Everton ansi nærri lagi. Framundan eru svo tveir undanúrslitaleikir Meistaradeildarinnar og ferðalag til Newcastle í millitíðinni. 1.mín  – Everton leikfélagið 26.mín  – United niðurlægt,...

Gullkastið – Úrslitaleikur í hverjum leik 18.04.2022

Liverpool fór illa með Man City á Wembley og er komið í bikarúrslit gegn Chelsea. Ferðalag í undanúrslit Meistaradeildarinnar eru einnig staðfest og gegn Gula kafbátnum sem sökkti FC Bayern. Þessi vika verður einokuð af báðum alvöru höfuðandstæðingum Liverpool. 1.mín  – Fótbolti.net 20 ára 5.mín  – Sannfærandi á Wembley 37.mín  – Undanúrslit í Meistaradeildinni 51.mín  – Sean Dyche og baráttan um...

Gullkastið – Status Quo 11.04.2022

Efst á dagskrá var auðvitað risaslagurinn á Etihad og helstu viðburðir helgarinnar. Sömu andstæðingar í næstu viku en allt aðrar aðstæður. 1.mín  – Stórleikur tímabilsins 30.mín  – Leikir helgarinnar – Spurs með keflið 40.mín  – Meistaradeildin – Hvaða lið fara áfram? 66.mín  – Undanúrslit í bikarnum Það er svo mikið ánægjuefni að kynna til leiks nýja samstarfsaðila sem hjálpa okkur við að halda s...

Gullkastið - Risa mánuður, Risa vika, RISA leikur 04.04.2022

Háspenna lífshætta framundan, útileikur í Meistaradeildinni til að hita upp fyrir stórleik tímabilsins á Etihad á sunnudaginn. Roy Hodgson og félagar í Watford voru afgreiddir um helgina og því búið að tía upp hreint rosalegan leik næstu helgi. Annarsstaðar í deildinni er Everton er áfram í vandræðum, United er í verulegri brekku í baráttunni um Meistaradeildarsæti og Chelsea var fékk Will Smith l...

Gullkastið - Þá hefst fjörið fyrst að byrja 28.03.2022

Síðasta landsleikjahlé tímabilsins er lognið á undan storminum framundan. Spáðum í spilin fyrir næstu umferð, veltum fyrir okkur vænanlegum eigendaskiptum hjá Chelsea og hverjir eru líklegir til að taka við Man Utd og hvað bíður þeirra þar. Watford er svo verkefni helgarinnar í hádeginu á laugardaginn. 02:00 – Eigendaskipti Chelsea 28:00 – Næsti stjóri United 49:00 – Watford og leikir helgarinnar...

Gullkastið – Lúxus leikjaálag 21.03.2022

Apríl mánuður verður rosalegur hjá Liverpool enda liðið komið djúpt í þremur keppnum. Stuðningsmenn Liverpool hafa í um hálfa öld sungið um að hata Nottingham Forest og stuðningsmenn þeirra sýndu ágætlega afhverju það er. Arsenal var sigrað í þriðja skipti á þessu tímabili og næstu andstæðingar í Meistaradeild og FA Cup voru opinberaðir. 03:00 – Nottingham Forest 20:00 – Dregið í Meistaradeild 33:...

Listen to the Gullkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.