Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 398 episodes

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Author

Kop.is

Category

Sports

Podcast website

www.kop.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullkastið - Sanngjarnt svekkjandi jafntefli 04.10.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Rétt eins og í síðasta deildarleik tapaði Liverpool tvisvar sinnum forystu og gerði á endanum jafntefli. Man City var þó eðli málsins samkvæmt töluvert annað stríð en háloftaboltinn gegn Brentford. Svakalegur stórslagur á Anfield. Porto er hinsvegar okkar uppáhalds borg, það er nokkuð ljóst. Tókum púlsinn á öllu því helsta frá leikjum helg...

Gullkastið – Tvö töpuð stig 27.09.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool lenti í bölvuðu veseni með kála leik helgarinnar gegn Brentford þrátt fyrir að skora þrjú mörk og fá færi til að skora a.m.k. þjrú í viðbót. Það kostaði á endanum, auðvitað. Porto næst á dagskrá og svo risaleikurinn gegn Man City yfrirvofandi um helgina.

Gullkastið – Gamla góða formið 21.09.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Góður sigur á Palace í deild eftir fáránlega óöruggan sigur á AC Milan í Meistaradeildinni. Liverpool er farið að minna aftur á 2018-2020 liðið. Norwich lítið mál í deildarbikarnum. 

Gullkastið - Svartur blettur á góðum sigri 13.09.2021

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Meiðsli Harvey Elliott settu sannarlega svartan blett á annars frábæra frammistöðu Liverpool gegn Leeds núna um helgina. Það eru kunnuleg andlit búin að raða sér í efstu fjögur sætin strax í fjóðu umferð og Meistaradeildin fer af stað í vikunni.

Gullkastið – Glugginn glatað tækifæri 04.09.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Árni Steinn Landsleikjahlé og nýbúið að loka leikmannaglugganum. Skoðuðum hvað Liverpool gerði á markaðnum í sumar og hvaða skilaboð það sendir. Ljóst að andstæðingar Liverpool sátu alls ekki auðum höndum.

Gullkastið – Jafnteflistap og leikmannaglugginn 30.08.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Svekkjandi jafntefli gegn tíu Chelsea mönnum, lokametrar leikmannagluggans og slúðrað um mögulega brottför Michael Ewdards.

Gullkastið – Lokavika leikmannagluggans 23.08.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Flott þrjú sig á ofboðslega leiðinlegu Burnley liði og góð byrjun á tímabilinu. Risaslagur strax í næstu umferð og lokavika leikmannagluggans. Gerir Liverpool eitthvað spennandi þar? Ný lína í dómgæslu, áhugaverð úrslit í öðrum leikjum o.fl.

Gullkastið - Alvöru Liverpool 17.08.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool, alvöru Liverpool fór til Norwich í fyrsta leik á nýju tímabili og sótti þægileg þrjú stig í leik sem var fullur af jákvæðum punktum. Fjörug fyrsta umferð annars í deildinni sem lofar góðu fyrir tímabilið. Leiðinlegasta lið deildarinnar næst á dagskrá og leikmannaglugginn er ennþá opinn.

Gullkastið - Tilbúnir í mót 11.08.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þá er ekkert að vanbúnaði og mótið má bara hefjast. 

Gullkastið - Læti á leikmannamarkaðnum 06.08.2021

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool hefur lokið æfingaferð sinni til Austurríkis og Frakklands, næst eru tveir leikir á Anfield og svo hefst nýtt mót næstu helgi. Það eru risa stórar bombur á leikmannamarkaðnum en fæstar hafa nokkuð með Liverpool að gera, Edwards er meira í að semja við okkar bestu menn. Nýjar áherslur í VAR og sitthvað fleira í þætti vikunnar.

Gullkastið - Leikmannamarkaðurinn á Englandi 28.07.2021

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Yfirferð yfir helstu fréttir vikunnar með áherslu á leikmannamarkaðinn hjá helstu keppinautum Liverpool sem og auðvitað Rauða Hernum.  

Gullkastið – Æfingaleikir, sölur og samningar 21.07.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Æfingaleikjatímabilið hófst með óvenjulegum hætti í dag þegar Liverpool spilaði tvo hálftíma leiki í Austurríki. Það er svo venjulegur leikur á föstudaginn gegn Mainz. Liverpool seldi tvo leikmenn í þessari viku og það gæti verið stutt í sölu á fleiri mönnum. Eitthvað sem gæti losað um fyrir kaupum á nýjum mönnum. Svo voru áhugaverðar frét...

Gullkastið - Nýtt tímabil 05.07.2021

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Maggi og Steini skelltu sér í heimsreisu austur fyrir fjall og var nýtt tímabil í enska boltanum formlega hafið á Selfossi að þessu sinni, bullandi sumar, nokkrar Egils Gullstundir og almenn gleði. Það má fara klára þetta landsliðamót og fara hefja alvöru fótbolta á ný.

Gullkastið - Þjálfarakapall 31.05.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Spáum í helstu vendingar á leikmanna og þjálfaramarkaðnum, horfum aðeins til baka á þetta tímabil og tókum snúning á úrslitaleikjunum í Evrópu sem voru í þessari viku  

Gullkastið – Þetta er loksins búið! 25.05.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Gullkastið er 10 ára í dag en fyrsti þáttur fór í loftið á Istanbul daginn árið 2011. Til hamingu við sjálfir. Djöfull sem þetta hefur verið gaman og það var sannarlega létt yfir okkur í þætti vikunnar. Höfðum reyndar ekki hugmynd um þessi tímamót þegar á upptöku stóð en það breytir því ekki að Liverpool er komið í Meistaradeildina og náði...

Gullkastið - Heilagur Alisson Becker 17.05.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þvílíka vikan! Endurkoma gegn United þar sem Salah kláraði dæmið í uppbótartíma. Það var þó ekkert miðað við fagnaðarlætin þegar Alisson, já Alisson Becker skoraði sigurmarkið eftir að uppbótartíminn var liðinn gegn liði sem Sam Helvítis Allardyce stjórnar og er nú þegar fallinn með. Þetta einfaldlega galopnar baráttuna við Leicester og Ch...

Gullkastið - Vonarneisti 10.05.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Guðlaugur Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson Utanríkisráðherra mætti í hellinn með okkur og fórum við yfir það helsta úr boltanum undanfarnar vikur. Sigur á Southampton, fíaskóið í kringum leikinn á Old Trafford, helstu væringar í Evrópuboltanum o.fl.

Gullkastið - Þar fór það 26.04.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Vonbrigðin þetta tímabilið ætla bara engan enda að taka. Enn einu sinni kastar Liverpool frá sér leik sem ætti að öllu eðlilegu að vera löngu búinn. Tímabilið fjaraði svo gott sem endanlega út fyrir vikið.

Gullkastið – PR hamfarir hjá FSG 20.04.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það tók ekki langan tíma að kála hugmyndum um European Super League

Gullkastið - European Super League 19.04.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Fyrstu viðbrögð við ESL

Gullkastið – Meistaradeildin í aðalhlutverki 12.04.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er orðið raunhæfara í dag en það fyrir ekki svo löngu síðan en baráttan um sæti í 8-liða úrslitum á þessu tímabili er orðin töluvert snúnari. Fórum yfir misjafna leiki gegn Aston Villa og Real Madríd. Liverpool hefur auðvitað séð það svartara gegn spænskum risa fyrir leik á Anfield. Leeds bíður svo hand...

Gullkastið – Frá höfuðborg Englands til höfuðborgar Spánar 06.04.2021

Stjórnandi:  Maggi Viðmælendur:  SSteinn og Einar Matthías Real Madríd bíður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hressandi yfirspilun á Emirates var einmitt upphitunin sem við þurftum fyrir það. Reyndar líka  þessi upphitun  frá því í gær. Baráttan um Meistaradeildarsæti er síður en svo búin en Liverpool nær að spila svona áfram.

Gullkastið - Lokaspretturinn 30.03.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælandi: Maggi Síðasta landsleikjahléi tímabilsins lokið og alvöru prógramm framundan sem hefst með stórleik gegn Arsenal á laugardagskvöldið. Ræðum nýjasta slúðrið af leikmannamarkaðnum en Liverpool var í vikunni nokkuð sterklega orðað við miðvörð frá Leipzig. Framtíð Salah, breytingar á Meistaradeild, arftaki Aguero hjá City o.fl.

Gullkastið – Real Madríd á leiðinni til Istanbul 22.03.2021

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Ljót þrjú stig gegn Úlfunum og annar sigur á RB Leipzig léttu aðeins andann fyrir langt þriggja vikna hlé. Real Madríd kom upp úr pottinum í Meistaradeildinni og Liverpool á sannarlega harma að hefna gegn þeim. Óvenjulegt landsleikjahlé nýtist Klopp svo vonandi vel fyrir lokakafla tímabilsins.

Gullkastið - Gleðivísitalan í lágmarki 08.03.2021

Enn ein hörmungarhelgin og nákvæmlega ekkert gengur á Anfield, Meistaradeildarsætisbaráttan svo gott sem búin en Liverpool er þó ennþá inni í núverandi tímabili í Meistaradeildinni. Fengum formann Liverpoolklúbbsins og fréttamanninn Hallgrím Indriðason með okkur til að fara yfir síðustu viku og til að kynna  nýjan hlaðvarpsþátt Liverpoolklúbbsins  sem fór í loftið á miðvikudaginn.

Listen to the Gullkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.