RÚV

Frjálsar hendur

Society IS ↓ 271 episodes

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mallory 1 11.02.2024

Í þessum þætti segir frá fyrstu tilraunum manna til klífa hæsta tind jarðar, Mount Everest í Himalaja-fjöllum. Fyrst er vikið að fjallinu sjálfu og heiti þess en síðan beinist athyglin að leiðangri sem Bretar skipulögðu upp á fjallið árið 1924 en frægasti þátttakandinn þá var George Mallory, helsti fjallagarpur Englendinga, en hann týndist á fjallinu ásamt ungum og efnilegum klifurmanni sem hét An...

Síðasta skip suður 2 04.02.2024

Vegna fjölda áskorenda verður hér litið öðru sinni í bókina Síðasta skip suður eftir Jökul Jakobsson og Baltasar sem út kom fyrir 60 árum og fjallar um mannlíf og samfélag í Flatey og á fleiri Breiðafjarðareyjum. Hér segir frá selveiðum og búskap í Flatey og síðan rifjaðar upp minningar um ýmsa mektarmenn í Flatey á 19. öld - Ólaf Sívertsen, Eirík Kúld, Brynjólf Benedictsen og Matthías Jochumsson....

Ingibjörg Lárusdóttir, annar hluti 28.01.2024

Öðru sinni tekur umsjónarmaður saman efni úr æviminningum Ingibjargar Lárusdóttur. Hér er framhald sögunnar um brottför bróður hennar til Ameríku og lýsing á heimili hennar og fjölskyldu í Húnavatnssýslu. Þá er hjartnæm og falleg lýsing á fyrstu kirkjuferð hennar en jafnvel í þeirri fegurð allri má finna átakanlegt dæmi um grimmt samfélag og fátækt. Loks fylgir ein stutt frásögn af dulræna taginu....

Ingibjörg Lárusdóttir - Unaður við Blöndu og Ameríkuferð 21.01.2024

Ingibjörg Lárusdóttir fæddist í Húnavatnssýslu 1861 og bjó þar alla sína tíð. Á efri árum fór hún að skrifa m.a. æskuminningar og er þar um að ræða fallegar og áhrifamiklar frásagnir af innihaldsríku mannlífi þó fátækt sé mikil. Í þessum þætti er lýst ferð til grasa, þar sem náttúran leikur við hvern sinn fingur, en einnig undirbúningi að för bróður Ingibjargar til Ameríku, för sem er lituð miklum...

Kravténko, sældarlíf yfirstéttarinnar 15.01.2024

Síðast þegar umsjónarmaður skildi við Úkraínumanninn Viktor Kravténko var hann í þann veginn að útskrifaðst sem verkfræðingur en í kjölfar morðsins á Kirov 1934 fer skuggi hreinsana Stalíns að færast yfir Sovétríkin. Heppilegt sjálfsmorð kunningja hans kemur í veg fyrir að grunur falli á hann um andstöðu við yfirvöldin og Kravténko verður yfirmaður í nýrri verksmiðju í Úkraínu. Hann lifir sældarlí...

Síðasta skip suður 07.01.2024

Í þættinum er þess minnst að 60 ár eru liðin frá því að Jökull Jakobsson gaf út, ásamt listamanninum Baltasar, bókina Síðasta skip suður, þar sem lýst er mannlífi á Breiðafjarðareyjum, ekki síst í Flatey, bæði á ritunartímasögunnar og fyrri tíð.

Ími Arnórsson, peningafalsari og hvalveiðimaður 01.01.2024

Í þessum þætti verður fjallað um Íma nokkurn sem komst í kast við lögin í byrjun 18. aldar þegar hann var sakaður um peningafals, flúði til útlanda með hvalveiðimönnum en sneri að lokum aftur heim og náði sátt við guð og menn. En var hann allur þar sem hann var séður? Í lok þáttar er lokalag þáttarins, Adagio í G, flutt í allri sinni lengd, eins og venjulega í fyrsta þætti hvers árs. Umsjón: Illug...

Svaðilfarir um jól 25.12.2023

Á fyrri öldum reyndu Íslendingar að ferðast sem minnst um vetrartímann, enda samgöngur eriðar og veður válynd. Margir sem voru fjarri heimilum sínum við störf lögðu þó ýmislegt á sig til að komast heim til sín um jólin til þess að fagna hátíðinni með nánustu fjölskyldu og vinum. Í þættinum segir af tveim slíkum ferðum sem farnar voru í Breiðafirði og nærsveitum á fyrri hluta 19. aldar. Tveir bændu...

Norman Lewis 4 17.12.2023

Í Napólí er hættan af flugumönnum Þjóðverja ekki að baki þó farið sé að vetra 1943. Í þessari frásögn úr minningum Norman Lewis segir frá gríðarlegri sprengingu sem verður í borginni, og einnig frá ungum nasista sem heimtar píslarvætti fyrir der Fuhrer. Einnig blandast Lewis inn í aðskilnaðarhreyfingu Napólí-búa og svo kemur í ljós að hvað sem líður stríði og hörmungum, þá er holdin sem fyrr torve...

Norman Lewis 3 10.12.2023

Enn er umsjónarmaður staddur í fylgd breska dátans Norman Lewis í Napólí haustið 1943. Þótt Þjóðverjar hafi verið hraktir burt frá borginni eftir innrás Bandamanna á Ítalíu eru flugumenn þýskra nasista og/eða ítalskra fasista enn sagðir vera á kreiki og Lewis og menn hans halda niður í katakomburnar undir borginni í leit að þeim. En uppi á yfirborðinu leitar til hans kona út af líki í garði hennar...

Þórbergur og Lifnaðarhættir í Reykjavík 03.12.2023

Árið 1937 birtist merkileg ritgerð Þórbergs Þórðarsonar um Lifnaðarhætti í Reykjavík á seinni hluta 19. aldar. Hér verða lesin valin brot úr þeim, um þrifnað, þvotta, áfengisnautn, drauga- og álfatrú, útfararsiði og veislugleði. Frásögn Þórbergs er bæði fróðleg og skemmtileg og stundum - til dæmis í kafla um óttann við dauðann - gæti enginn annar haldið á penna en hann. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Norman Lewis og árás bandamanna á Napólí 2 26.11.2023

Í fyrri frásögn höfðu Bandamenn lagt undir sig Napólí og meðal setuliðsmanna þar er breski dátinn Norman Lewis. Í þessum þætti er tekið saman efni úr æviminningum hans þar sem hann lýsir ástandinu í Napólí eftir að borgin hefur verið leyst úr viðjum fasista, en íbúarnir þurfa að glíma við hungur, skort og alveg nýjan veruleika. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Norman Lewis og árás bandamanna á Napólí 1 19.11.2023

Norman Lewis hét breskur dáti sem tók þátt í innrás Bandamanna á Ítalíu í september 1943 og síðan árás þeirra á Napólí. Hann skrifaði æviminningar sínar sem eru næsta einstæðar í sinni því þær lýsa stríðinu frá sjónarhóli hins óbreytta dáta sem oft veit ekkert hvað er á seyði í stríðinu en reynir að halda velli og gera sitt besta. Lewis dregur heldur ekki dul á að hans eigin menn frömdu líka oft v...

Þorfinnur Kristjánsson - Reykjavík í upphafi 20. aldar 12.11.2023

Nú verður lesið úr æviminningum Þorfinns Kristjánssonar sem var prentari og bjó reyndar síðari hluta ævinnar í Kaupmannahöfn. Hann ólst upp í Reykjavík og segir á skemmtilegan hátt frá uppvexti sínum, fótboltafélagi sem hann og fleiri strákar stofnuðu, hlutskipti fátæks fólks og geðsjúklinga, vist á Vífilstöðum og mörgu fleiru. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Þrjátíu ára stríðið 4 05.11.2023

Í þessum fjórða þætti um 30 ára stríðið og þeim síðasta í bili er fjallað um herferð „ljóns norðursins“ Gustavs Adolfs Svíakóngs suður til Þýskalands til stuðnings mótmælendum, þegar keisaraherir Wallensteins og Tillys virtust þess albúnir að knésetja mótmælendur. Svíakonungur þótti glæsimenn mikið og fær herstjórnandi en jafnvel hann átti stt skapadægur í þessu blóðuga stríði. Umsjón: Illugi Jöku...

Þrjátíu ára stríðið 3 29.10.2023

Þriðji þátturinn um sögu þrjátíu ára stríðsins. Hér koma Frakkar til sögunnar og koma mótmælendum til bjargar á örlagastundu, þótt sjálfir séu þeir kaþólskir. Stríðsrþeyta fer að segja til sín og Kristín Svíadrottning á sér þann draum að semja um frið. Og þegar upp var staðið, til hvers var þetta allt saman? Umsjón: Illugi Jökulsson.

Þrjátíu ára stríðið 2 22.10.2023

Áfram verður sögð saga hins grimmilega 30 ára stríðs og hér kemur Svíakóngurinn Gustaf Adolf til sögunnar og sýnist þess albúinn að verða herra Norður-Evrópu. En hann fellur á örlagastundu og áfram er barist af skefjalausri grimmd en tilgangsleysið verður æ meira áberandi. Þegar stríðinu lýkur loks er Þýskaland lamað eftir, en til hvers var þetta allt saman? Umsjón: Illugi Jökulsson.

Þrjátíu ára stríðið 1 15.10.2023

Í tilefni þess að Þjóðleikhúsið frumsýnir brátt hið fræga leikrit Bertholts Brechts og Margarete Steffin, Mutter Courage und Ihre Kinder, sem gerist í 30 ára stríðinu í Þýskalandi verður hér rakin þessa grimmilega stríðs sem geisaði í hjarta Evrópu 1618-1648. Blóðþyrstir málaliðaherir fóru um Þýskalandi í upphafi stríðsins og eirðu engu og talið er að villimennska stríðsins hafi verið meiri og and...

Marco Polo - konungurinn og konurnar 08.10.2023

Öðru hvoru síðustu árin hefur verið lesið úr frásögnum Marco Polos um ferð sína til Kína við lok miðalda. Hér segir Marco Polo frá merkilegu ríki sem hann kom til í Kína og hafði kóng svo friðsaman að þar í ríkinu voru engir hermenn, og kóngurinn undi sér við nautnir og gleði með þúsund konum sem voru í fylgdarliði hans. En hvað gerist í slíku ríki þegar óvígur her Mongóla og Kínverja stendur á la...

Æskuminningar Þorvalds Thoroddsen 01.10.2023

Lesið er úr æskuminningum Þorvalds Thoroddsen og framan af þætti mest um þjóðhátíðina 1874 þegar Kristján IX konungur kom til Íslands. Þorvaldur lýsir konungskomunni hispurslaust og án hátíðleika og hann og Matthías Jochumsson segja frá sérkennilegum gestum sem hingað komu vegna hátíðarinnar. Lýst er heldur hráslagalegu lífi í Reykjavík en síðan vikið til Kaupmannahafnar þar sem Jón Sigurðsson ber...

Sveinn Pálsson, ferðir og rannsóknir 1 24.09.2023

Sveinn Pálsson var landlæknir í byrjun 19. aldar og vann ómetanlegt starf sem slíkur en eftir á eru rannsóknarferðir hans um Ísland þó sennilega það merkasta sem eftir hann liggur. Í þessum þætti tekur umsjónarmaður saman margt gott og fróðlegt bæði úr ferðabókum hans og dagbókum, og er óhætt að segja að bæði glöggt og bráðskemmtilegt er Sveins augað þegar hann rannsakar bæði náttúruna og mannfólk...

Sveinn Pálsson, ævi og uppvöxtur 17.09.2023

Sveinn Pálsson var einn merkasti vísindamaður og læknir Íslands um aldamótin 1800. Í þessum þætti verður fjallað um ævi hans framan af og stuðst við stórmerkilega sjálfsævisögu sem hann skrifaði. Hann segir frá uppvexti sínum fyrir norðan, skólagöngu fyrir sunnan og svo dvöl sinni í Kaupmannahöfn þar sem hann veit í fyrstu ekki nákvæmlega hvað hann ætlar að læra en fær loks tækifæri til að fara í...

Kravténko og hreinsanir 2 10.09.2023

Hreinsanir í Sovétríkjunum færast í aukana í frásögn Úkraínumannsins Viktors Kravténko (1905-1966) og nú er hann sjálfur í stórhættu. Vinur hans og samstarfsmaður er tekinn fyrir á opinberum fundi og Kravténko veit að þessi vinur hans getur orðið þess valdandi að hann sjálfur falli í ónáð, sem svo endar ævinlega með ósköpunum. Í síðari hluta þáttarins segir Kravténko svo frá morðinu á kommúnistale...

Kvavténko og hreinsanir 1 03.09.2023

Í samantekt umsjónarmanns á liðinum misserum úr stórmerkum æviminningum Úkraínumannsins Viktors Kravténkos (1905-1966) var sögunni þar komið að eftir hrylling hungursneyðarinnar miklu í Úkraínu var Stalín einræðisherra Sovétríkja fullur tortryggni í garð raunverulegra og ímyndaðra andstæðinga. Hreinsanir voru að hefjast og í þessum þætti segir Kravténko frá fundum þar grunaðir stjórnarandstæðingar...

Marco Polo í rannsóknarleiðangri í Kína 27.08.2023

Hér segir frá ferðalagi Ítalans Marco Polos frá Evrópu til Kína á ofanverðri 13. öld. Marco er nú kominn til hirðar hins mikla keisara Kublai Kahn og vinnur trúnað hans með þeim árangri að keisarinn sendir hann út í rannsóknarferð um lítt kunnar slóðir inni í víðáttum Kína þar sem eru ríki og þjóðir sem Evrópumenn höfðu aldrei kynnst. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Listen to the Frjálsar hendur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.