RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Jóhann Kúld selveiðimaður í íshafinu 20.08.2023 52:00
Jóhann Kúld var sjómaður sem var við störf á norskum skipum á árunum upp úr 1920 eins og þegar hefur verið lýst í einum þætti af Frjálsum höndum. Hér er svo lýst vist hans á norsku selveiðiskipi sem sigldi inn í hafísinn og athafnaði sig þar vikum saman. Í þá daga efaðist enginn um réttmæti selveiða og lýsingin á veiðum og hættum inni í hafísbreiðum er litrík. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Einar Kvaran í Vesturheimi 1907 13.08.2023 50:00
Einar Hjörleifsson Kvaran var í upphafi 20. aldar einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar en hann var jafnframt vel metinn blaðamaður. Árið 1907 fór hann í ferðalag til Vesturheims, þar sem hann hafði áður búið, og í þessum þætti er lýst ferðalagi hans og ferðafélögum. Einar hefur augun hjá sér í lýsingum á fólki en getur sjaldan stillt sig um að víkja talinu að dulrænum efnum. Umsjón: Illugi Jöku...
Bretinn Stuart og seinni ferð hans á Öræfajökul 06.08.2023 52:00
Á vordögum las umsjónarmaður næsta ótrúlega frásögn um heimsókn Breta sem Stuart hét til Íslands árið 1926. Hann fór um suðurland í fylgd Stefáns Filippussonar leiðsögumanns og hegðaði sér hvarvetna stórundarlega, þótt hinn þrautþjálfaði leiðsögumaður hafði aldrei kynnst öðrum eins ferðamanni. Í þessum þætti er lýst framhaldi ferðarinnar og jafnframt síðari ferð Stuarts á Öræfajökli sem er engu sk...
Selveiði í íshafinu 04.06.2023 52:00
Jóhann Kúld frá Mýrum segir frá ferð sem hann fór árið 1924 á norsku selveiðiskipi, sem hélt norður í íshafi til að stunda þar selveiði. Skipið sigldi inn í ísinn sem virtist ætla að ganga vel, en það breyttist á augabragði.
Einkennilegur ferðalangur 28.05.2023 52:00
Stefán Filippusson fæddist 1870 í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp. Hann var bóndi í Borgarfirð eystra og var m.a. fylgdarmaður erlendra ferðamanna sem komu til landsins. Árni Óla skráð æviminningar Stefáns Filippussonar, sem komu út í bókinni Fjöll og firnindi. Illugi Jökulsson les frásögn úr bókinni sem heitir Einkennilegur ferðalangur. Þar segir frá ferð sem Stefán fór í með erlendan fer...
Marco Polo hittir Kublai Khan 21.05.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að glugga í bókina Milljónin sem segir frá ferðum Marco Polo og föður hans, ásamt frænda þeirra til Kína. Þeir eru komnir til Kína og hitta stórkhaninn Kublai Khan, sem var frá Mongólíu og sonarsonur Genghis Khan. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Bayard Taylor ritar um þjóðhátíðina 1874 14.05.2023 52:00
Sumarið 1874 stóð mikið til í Reykjavík og nágrenni. Haldin var þjóðhátíð til að minnast 1000 ára afmælis Íslands byggðar. Bayard Taylor, bandarískt skáld og ferðabókahöfundur, kom til Íslands þetta ár á vegum bandaríska blaðsins New York Tribune, til að fylgjast með hátíðahöldunum. Hann kom til landsins frá Egyptalandi og skrifaði bók um dvöl sína þar og í sömu bók segir hann frá dvölinni á Íslan...
Æviminningar Hólmfríðar Hjaltason 07.05.2023 50:00
Árið 1948 kom út bókin Tvennir tímar eftir Elínborgu Lárusdóttur rithöfund, með endurminningum Hólmfríðar Margrétar Björnsdóttur Hjaltason. Sagan hefst norður á Siglufirði árið 1870 og lýsir ævi alþýðukonu er giftist Guðmundi Hjaltasyni kennara og alþýðufræðara. Umsjónarmaður les kafla sem fjalla um átakanleg æskuár Hólmfríðar sem ólst upp við mikla fátækt og þurfti að þola mikið harðræði og hungu...
Framhald á frásögnum Viktors Kravtsjenko 30.04.2023 52:00
Haldið er áfram að lesa úr bókinni Ég kaus frelsið eftir Viktor Kravtsjenko. Hungursneyðin hræðilega í Úkraínu stóð sem hæst og Viktor Kravténko átti að sjá til þess að bændurnir færu eftir fyrirmælum að ofan. Eftir að aðeins fór að slakna hungursneyðin í Úkraínu, hefði átt að komast á einhver ró en það var öðru nær. Stalín var að undirbúa hreinsanir í flokknum og samfélaginu sem áttu að gera hann...
Bréf frá Íslandi, bók eftir Uno von Troil 23.04.2023 50:00
Lesið er úr bókinni Bréf frá Íslandi eftir Uno von Troil, sænskan guðsmann sem kom til Íslands 1772. Hann ritaði bréfin eftir Íslandsför sína. Bókin var gefin út árið 1961 í íslenskri þýðingu Haraldar Sigurðssonar, sem ritaði jafnframt formála. Frásögnin hefst á því að umsjónarmaður les formálann. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Lesið úr Mósebók 16.04.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að lesa úr Mósebók Biblíunnar. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hver var Móse? 09.04.2023 52:00
Páskahátíðin í Jerúsalem, þar sem Jesú mætti örlögum sínum, var haldin til minningar um þann atburð þegar Móse leiddi Ísraelsmenn úr Egyptalandi. Þetta var og er mesta hátíð Ísraelsmanna. En hver var Móse og var hann allur þar sem hann er séður? Í páskaþætti Frjálsra handa er lagst í Mósebækur og reynt að grafast fyrir um hver Móse var. Umsjónarmaður: Illugi Jökulsson.
Marco Polo í Kína 02.04.2023 52:00
Árið 1271 lagði Marco Polo af stað í ferð til Kína og fór eftir Silkileiðinni. Faðir hans og föðurbróðir höfðu komið til Kína nokkrum árum áður og hitt Kublai Khan, keisara í Kína. Umsjónarmaður hefur frásögnina þar sem Ítalarnir þrír eru komnir til borgarinnar Shangdu. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Fleiri sögur af Münchausen 26.03.2023 52:00
Umsjónarmaður grípur í þriðja sinn niður í bókinni Svaðilfarir á sjó og landi. Herferðir og kátleg ævintýri Münchausens baróns, eins og hann sagði þau við skál við vini sína, eftir Gottfried August Bürger, í þýðingu Ingvars G. Bryjólfssonar. Bókin var gefin út af bókaútgáfunni Norðra árið 1951. Í þetta sinn liggur leið hans um ísilagðar slóðir Norðurhafa, þar sem hann hittir ísbirni og allskonar k...
Framhald frásagnar Richard Henry Dana Jr. 19.03.2023 52:00
Hornhöfði, syðsti oddi Suður-Ameríku, er sakleysislegur í góðu veðri en sumarið (veturinn!) 1838 var bandaríska skipið Alert vikum saman að reyna að brjótast fyrir hann gegnum hafísbreiður, jakaborgir og illviðri sem stóðu vikum saman. Fyrir viku las Illugi Jökulsson úr frásögnum Richard Henry Dana, háseta á Alert, en þá voru aðstæður um borð orðnar svo skelfilegar að skipverjar voru farnir að und...
Hásetinn Richard Henry Dana Jr. 12.03.2023 52:00
Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hé...
Æviminningar Gunnars Þorbergssonar, framhald 05.03.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, eins og nefndi sig þegar hann bjó vestanhafs. Frásögnin hefst á því þegar ísbjörn nálgast land í Loðmundarfirði árið 1881.
Æviminningar Gunnars Þorberssonar, framhald 26.02.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að vinsa efni úr hinum fróðlegu æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, sem fæddist á Loðmundarfirði 1865. Hann greinir frá uppeldi sínu á venjulegu alþýðuheimili á látlausan en snotran hátt og hlustendur frá að kynnast ýmsu sem ekki öllum hefði þótt frásagnarvert.
Sagt frá Gunnari Th. Oddssyni 19.02.2023 50:00
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel...
Hungursneyð í Úkraínu 1932-33 12.02.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur afrma að lesa úr æviminningum Viktors Kravtsenkos. Haldið er áfram að segja frá hungursneyðinni í Úkraínu, sem Sovétmenn reyndu að halda í þagnargildi. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Samyrkjubús- og iðnvæðing í Úkraínu 1932 05.02.2023 52:00
Umsjónarmaður les úr æviminningum Viktors Kravtsenkos, þar sem fjallað er um samykjubúin í Úkraínu, iðnvæðinguna og harðstjórn Moskuvaldsins. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Ævisaga Viktors Kravtsjenkos, framhald 29.01.2023 52:00
Höfundur heldur áfram að lesa úr æviminningumr Úkraínumannsins Viktors Kravtsjhenkos, Ég kaus frelsið. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hrakningar á sjó 22.01.2023 52:00
Umsjónarmaður les frásagnir sem Jens Hermannsson kennari safnaði saman og gaf út á síðustu öld. Þetta er frásagnir breiðfirskra sjómanna. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Munchhausen hjá Tyrkjasoldáni 15.01.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að segja frá þýska baróninum af Munchhausen. Hann var kominn í þjónustu Tyrkjasoldáns og frásagnir hans eru lyginni líkastar. Umsjón: Ilugi Jökulsson.
Skólaár Þorvaldar Thoroddsen 08.01.2023 50:00
Þorvaldur Thoroddsen sem var einn merkasti vísindamaður okkar Íslendinga báðum megin við aldamótin 1900. Umsjónarmaður les úr minningum hans frá skólaárum í Latínuskólanum og fyrstu árunum í Reykjavík. Skemmtilegar lýsingar á skólalífi og höfuðstaðnum á ofanverðri 19. öld. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.