RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Matthías Johannessen 2 04.08.2024 50:01
Annar þáttur þar sem umsjónarmaður tekur saman og les úr viðtölum Matthías Johannessen við margvíslegt fólk. Hér er lesið úr viðtölum hans við Helgu á Engi og Etilríði Pálsdóttur móður Steins Steinarrs.
Konungskoman 1874 2 28.07.2024 50:01
Framhald af fyrra þætti. Enn segir af konungskomunni 1874 og er nú lýst veisluhöldum og þjóðhátíð sem Kristján 9. var viðstaddur. Síðan er, líkt og í fyrra þætti, athyglinni beint að forfeðrum Kristjáns á konungsstóli Dana og nú ekki síst fjallað um Kristján 1 og Hans son hans.
Konungskoman 1874 1 21.07.2024 50:04
Lesið er um komu Kristjáns 9. Danakonungs til Íslands 1874 en þá kom hann hingað fyrstur konunga. Meðal annars úr frásögn Matthíasar Jochumssonar í Þjóðólfi. Í síðari hluta þáttarins er athyglinni hins vegar beint að eldri Danakonungum, til dæmis Valdimari afturdegi og Margréti dóttur hans.
Sigríður frá Miklabæ 2 14.07.2024 50:00
Lesið meira úr æskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965), Í ljósi minninganna. Áfram segir á ljúfan og einlægan hátt frá uppeldi í Skagafirði í blábyrjun 20. aldar og því fólki sem umhverfis Sigríði og fjölskyldu hennar var.
Livius upphaf Rómar 2 07.07.2024 50:00
Þessi þáttur er framhald af næsti þætti undan og hér les Illugi meira úr Rómarsögu sagnaritarans Livíusar. Nú segir frá átökunum milli Rómverja og nágranna þeirra á fyrstu árum borgarinnar um konur, og sömuleiðis er greint frá dularfullu hvarfi stofnanda borgarinnar Rómulusar.
Livius upphaf Rómar 1 30.06.2024 49:59
Rómaborg var sögð hafa verið stofnuð árið 753 FT (eða fyrir upphaf tímatals okkar). Sagnaritarinn Livius skrifaði um Trójukappann Anesear sem hraktist til Ítalíu eftir ósigur í Trójustríðinu og varð þar konungur í smáborg, og löngu síðar voru afkomendur hans, tvíburarnir Romulus og Remus bornir út nýfæddir af afbrýðisömum frænda sínum. En þá kom úlfynja til sögunnar.
Sigríður frá Miklabæ 1 23.06.2024 49:59
Hér er tekið saman efni og lesið úr Í ljósi minninganna, bernskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965) frá Miklabæ. Hún lýsir á fallegan og næman en um leið hispurslausan hátt uppvexti í Skagafirði, þar sem lífið var svo rólegt og fábreytt að koma vegavinnumanna var sannkallað ævintýri og molasykur var ígildi hins stóra heims.
Riddaraliðsstúlkan - seinni hluti 16.06.2024 50:00
Framhald af fyrri þætti. Nadezhda Durova fæddist í Rússland laust fyrir 1800. Hún þráði ekkert meira en stunda útreiðar og hernað en móðir hennar var ákveðin í að þvinga hana í hefðbundið mynstur ungra stúlkna með tilheyrandi ófrelsi og kúgun. En þótt það væri freistandi að láta undan urðu kröfur móður hennar að lokum til þess að Nadezhda greip til örþrifaráða eins og hún segir frá í sjálfsævisögu...
Riddaraliðsstúlkan - fyrri hluti 09.06.2024 50:04
Nadezhda Durova var rússnesk stúlka, fædd á ofanverðri 18. öld. Hún átti sér mjög litríka ævi, enda gekk hún í rússneska herinn um tvítugt og þjónaði þar við góðan orðstír í riddaraliði. Hún gekk í karlmannsfötum þótt allir, og þar á meðal keisarinn sjálfur, vissu að hún væri kvenmaður. Hér verður lesið úr sjálfsævisögu hennar þar sem hún segir á bráðskemmtilegan hátt frá uppeldi sínu og vonum hen...
Sjóslys á Mýrum 02.06.2024 50:00
Hér segir frá skerjagarðinum á Mýrum í Borgarfirði, fyrst frá staðháttum og höfn, sem þar virðist hafa verið allt frá þjóðveldistíma, og langt fram á tíma einokunarkaupmanna, og m.a. greint frá skipakomum frá Grænlandi þar skömmu áður en byggð þar lagðist af. Einnig segir rá systur Sæmundar fróða, sem þar er sögð hafa búið, og loks hörmulegum sjóslysum sem orðið haa í serkjagarðinum. Umsjón: Jónat...
Skammdegisgestir 1 26.05.2024 52:00
Í þessum þætti les umsjónarmaður úr bókinni Sammdegisgestum þar sem Magnús F. Jónsson rekur æviminningar sínar, einkum frá æskudögum þegar fátækt íslenskt heimili þurfti að glima við harðindi, óveður og heyþurrð. Sannkallaðar rammíslenskar örlagasögur.
Everest 3 19.05.2024 50:00
Loksins eru þeir Hillary og Tenzing komnir í grennd við efsta tind jarðar. En þá segja óvæntir erfiðleikar til sín. Verða þeir að snúa til baka eða komast þeir loksins á tind Everest? Já - það vita nú reyndar allir að þeir náðu vissulega markmiði sínu? En er hægt að segja til hvor þeirra var á undan? Og skiptir það máli?
Everest 2 12.05.2024 52:00
Áfram segir frá leiðangrinum á Everest-fjall árið 1953. Þeir Hillary, Tenzing og fleiri ætla sér að verða fyrstir manna til að ná á efsta tind jarðar, en hættur leynast við hvert fótmál. En hverjir voru þessir kappar?
Everest 1 05.05.2024 50:00
Í óbeinu framhaldi af þáttum fyrr á árinu um tilraun Englendingsins Mallorys til að komast á tind Everest-fjalls, þá verður fjallað í þessum þætti og þeim næstu um tilraun Ný-Sjálendingsins Hillarys og Sjerpans Tenzing Norgay til að komas á tindinn. Í þessum þætti verður sagt frá misheppnuðum leiðöngrum á fjallið og síðan þeim þátttakendum í nýjum leiðangri sem voru staðreráðnir í að komast á tind...
Kravténko og Jelena 2 28.04.2024 50:00
Áfram heldur Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko að segja frá ævi sinni í Sovétríkjunum á 4. ára síðustu aldar. Járngreipar Stalíns herðast æ meira um samfélagið og ást Kravténkos á stúlkunni Jelenu verður meðal fórnarlambanna. En hver var Jelena, hvað vakti henni og hver urðu örlög hennar?
Kravténko og Jelena 1 21.04.2024 52:00
Hér víkur sögu eins og stundum áður til Úkraínumannsins Viktors Kravténkos og sjálfsævisögu hans, Ég kaus frelsið. Þegar þarna er komið sögu á 4. áratug 20. aldar er Kravténko óðum að komast í röð hinnar kommúnísku yfirstéttar í Sovétríkjunum, en honum er þó ekki að öllu leyti rótt. Þegar hann kynnist konu að nafni Jelana renna enn á hann nokkrar grímur.
Undir fönn 14.04.2024 52:00
Fyrir nokkrum mánuðum var í Frjálsum höndum fjallað um hinn svonefnda Jósef Axfirðing sem bjó um tíma í Ameríku en endaði austur á fjörðum, nánar tiltekið í Norðfirði. Þar hafði hann ráðskonu til áratuga sem Ragnhildur Jónsdóttir hét og fyrir 60 árum skrifaði Jónas Árnason rithöfundur bók með samtölum við hana, þar sem hún segir ekki síst frá sambúð sinni við dýr og náttúru. Bókin nefnist Undir fö...
Fréttir 1874, 2 07.04.2024 52:00
Hvað var í erlendum fréttum þá daga þegar Íslendingar voru að undirbúa þjóðhátíð sína fyrir 150 árum, eða 1874? Jú - meðal annars var sagt frá afar viðhafnarmikilli heimsókn þessa skeggprúða karls til Frakklands, en þetta er enginn annar en Mozaffar ad-Din, sjálfur konungur konunganna í Persíu. Ég les um heimsókn hans í þættinum í kvöld og einnig fleiri erlendar fréttir, þar á meðal um uppreisn fr...
Haust patríarkans 31.03.2024 50:01
Í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá andláti kólumbíska Nóbelshöfundarins Gabriel Garcia Marquez les umsjónarmaður hér úr einu stóru skáldsögu höfundarins sem ekki hefur komið út á íslensku. Sú heitir Haust patríarkans og fjallar um einræðisherra í ónefndu landi sem deyr eftir langa valdatíð og íbúar landsins, sem þora þó varla að treysta því að hann sé dauður, byrja að takast á við minninguna u...
Fréttir 1874, 1 24.03.2024 49:59
150 eru síðan Íslendingar fengu stjórnarskrá og héldu þjóðhátíð og verður fjallað um það í Frjálsum höndum síðla sumars. Þetta er fyrri þáttur af þeim sem eru einskonar formáli og er lesið úr erlendum fréttum Skírnis frá árinu 1874. Í þessum þætti eru lesnar fréttir um kosningar á Bretlandi, siglingu skipsins Polaris um heimskautaslóðir Kanada og Grænlands þar sem leiðangursstjórinn Hall dó með du...
Matthías Johannessen 17.03.2024 50:00
Í þessum þætti verða lesin tvö af samtölum þeim sem Matthías Johannessen birti í Morgunblaðinu á sínum tíma. Fyrst er lesið samtal sem hann átti við Elías Hólm en hann var litríkur kaupsýslumaður í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar og sveiflaðist frá því að vera vel stæður hótelrekandi niður til þess að vera Hafnarstrætisróni eins og hann orðaði það sjálfur. Eftir viðtalið við hinn "alþekkta tugth...
Óstýrilátir prestar 2 10.03.2024 49:59
Í þessum þætti er áfram fjallað um séra Þórð Jónsson í Reykjadal í Hrunamannahreppi sem sagt var frá í síðasta þætti. Hér segir frá deilum sem hann lenti í við skólapilta í Skálholti en á biskupssetrinu virðist hafa verið alsiða að berja hann og kvelja, gamlan manninn. Síðan segir frá séra Jóni Guðmundssyni sem var um tíma einnig prestur í Reykjadal en hafði áður misst embættið vegna þess að hann...
Óstýrilátir prestar 1 03.03.2024 49:59
Í þessum þætti verður fjallað um séra Þórð Jónsson í Reykjadal í Hrunamannahreppi en hann átti í sífelldum við flestöll yfirvöld hér á landi, og raunar í Kaupmannahöfn líka en þangað fór hann oftar en einu sinni til að fá úrlausn sinna mála - og hikaði þá ekki við að leita til sjálfs kóngsins og biðja hann að leysa sig úr því leiðinlega og kalda fangelsi sem honum fannst Ísland vera. Umsjón: Illug...
Jósep Axfjörð, tröllasögur frá Ameríku og baldinn hundur 25.02.2024 49:59
Jósep Jósepsson Axfjörð fór til Ameríku laust fyrir 1900 og miklar sögur gengu um líf hans þar. Hann var sagður hafa framið bankarán og jafnvel drepið mann. Hann sneri svo heim og álit fólks á honum var sérlega mismunandi. Ýmist var hann þrasgjarn letihaugur eða harðduglegur og mjög atorkusamur. Hann hafði ráðskonu í rúm 40 ár og hún sagði frá viðskiptum hans við einstaklega óþekkan hund. Umsjón:...
Mallory 2 18.02.2024 50:00
Þetta er framhald næsta þáttar á undan og hér segir frá hinni dramatísku atburðarás þegar George Mallory og Andrew Irvine týndust á Mount Everest í byrjun júní 1924. Aldrei hefur orðið ljóst hvort þeir náðu á tindinn og urðu þar með fyrstir til að standa á hæsta stað jarðar. Hvarf þeirra dró mikinn dilk á eftir sér. Hér segir einnig frá þeirri örlagaríku stund þegar lík annars þeirra fannst 75 áru...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.