RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Reginfjöll haustnóttum 2 26.01.2025 49:59
Aftur er lesið úr bókinni Reginfjöll að haustnóttum eftir Kjartan Júlíusson. Lengsta frásögnin og sú veigamesta segir frá einni af þeim gönguferðum sem Kjartan var frægur fyrir að fara upp um fjöll og firnindi.
Reginfjöll að haustnóttum 1 19.01.2025 50:00
Árið 1978 kom út hjá Iðunni dálítil bók með endurminningum og frásöguþáttum gamals bónda í Eyjafirði. Hún hét Reginfjöll að haustnóttum. Óvenjulegt var að það var ekki minni maður en Halldór Laxness sem skrifaði formálann og fór þar fögrum orðum um bóndann, Kjartan Júlíusson. Í þættinum er formáli Halldórs lesinn og fáeinar frásagnir úr bókinni.
Sögur Chekhovs 1: Marskálksfrúin, Vanka litli og Veðmálið 12.01.2025 50:00
Í janúar 1915 birtist í fyrsta sinn í íslensku blaði smásaga eftir Anton Chekhov, Marskálksfrúin. Á næstunni ætlar umsjónarmaður Frjálsra handa að flytja með óreglulegu millibili ýmsar af þeim fyrstu smásögum eftir Chekhov er birtust í íslenskum blöðum, og fara ýmsum orðum um höfundinn og ævi hans. Í þessum þætti verða lesnar sögurnar Vanka litli og Veðmálið, auk Marskálksfrúarinnar.
Illugasaga Tagldarbana 05.01.2025 50:00
Eins og venjulega þegar um fyrsta þátt ársins er að ræða lýkur honum á því að lokalag þáttarins er leikið í fullri lengd, Adagio í g-moll eftir Remo Giazotto, þó oft sé það kennt tónskáldinu Albinoni. Fram að því les umsjónarmaður úr sannkallaðri tröllasögu, Illugasögu Tagldarbana, en hún var skrifuð í stíl Íslendingasagna en sennilega nokkrum öldum á eftir þeim. Ekki skortir viðburði því tröll, f...
Svaðilfarir: Sigurður á Syðstu-Mörk og Matthías Jochumsson 29.12.2024 50:00
Í þessum þætti er fjallað um svaðilför Sigurðar á Syðstu-Mörk þegar hann var 15 ára og fór til að sækja sjó undan Eyjafjöllum og út á Suðurnes. Frásögnhans lýsir giska vel aðstæðum og erfiðleikum sem við blöstu á ferðalögum og við sjósókn á ofanverðri 19. öld. Í loks þáttarins er svo stutt en litrík frásögn Matthíasar Jochumssonar af svipaðri ferð á svipuðum tíma en í öfuga átt
Arabíska barnæskuguðspjallið 25.12.2024 49:59
Í þessum þætti les umsjónarmaður jólaguðspjallið en þó ekki hið alkunna jólaguðspjall Lúkasar heldur frásögn af fæðingu og fyrstu dögum Jesú sem er að finna í hinu svonefnda Arabíska barnæskuguðspjalli, sem er - þrátt fyrir nafnið - kristið verk frá því á 5. öld. Frásögnin er ítarlegri en hjá Lúkasi og þarna kemur fram að Jesúbarnið var strax við fæðingu farið að gera kraftaverk og lækna margvísle...
Þórður Sveinbjörnsson háyfirdómari 15.12.2024 50:00
Í þessum þætti er lesið úr sjálfsævisögu Þórðar sem var einn helsti valdamaður á Íslandi laust fyrir miðja 19. öld. Merkilegast við feril Þórðar var að fram undir þrítugt var fátt sem benti til þess að hann ætti nokkurn veraldlegan frama í vændum, því þótt hann lyki nokkurri menntun hér heima komst hann ekki nærri strax út til Danmerkur til frekara náms. Um ástæður þess verður lesið í þættinum
Æskuminningar Hagaíns 2 08.12.2024 50:00
Áfram er gluggað í sjálfsævisögu Guðmundar Hagalíns, Ég veit ekki betur, og fjallað um fólkið sem að honum stóð en hann fæddist á Lokinhömrum á Vestfjörðum og stóð að honum litríkt fólk sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Æskuminningar Hagalíns 1 01.12.2024 50:00
Guðmundur G. Hagalín var einn kunnasti og vinsælasti rithöfundur Íslands á 20. öld. Auk skáldsagna skrifaði hann vinsælar ævisögur, bæði um annað fólk en ekki síður eigin sjálfsævisögu í mörgum bindum. Í þessum þætti og þeim næsta eru lesnir kaflar úr fyrsta bindinu, sem bar heitið Ég veit ekki betur. Að þessu sinni er helst fjallað um forfeður og -mæður Hagalíns.
Kravténko og hreinsanir 4 24.11.2024 49:59
Enn herðir einræðisherrann Jósef Stalín tökin á samfélagi kommúnista í Úkraínu. Fylgst er með öllum og njósnað um alla en á sama tíma er rekinn gífurlegur áróður meðal verkamanna um að þeir skuli fórna öllu í þágu hinnar nýju iðnbyltingar Sovétríkjanna. Óánægja eykst þegar svonefndir “Stakhanovar” fá meira kaup en aðrir í sæluríki öreiganna. Viktor Kravténko þarf að gæta sín æ betur að ekki komist...
Kravténko og hreinsanir 3 17.11.2024 48:46
Í frásögnum Úkraínumannsins Viktors Kravténkos, Ég kaus frelsið, sem áður hefur verið lesið úr, var komið fram á miðjan fjórða áratug 20. aldar og einræðisherrann Stalín var farinn að herða mjög tökin á samfélagi Sovétríkjanna. Í frásögnum þessa þáttar er þar komið að Kravténko veit að allt í kringum hann er fólk sem hefur það hlutverk að fylgjast með honum.
Norman Lewis 5 10.11.2024 50:00
Á árinu 2023 las umsjónarmaður Frjálsra handa í nokkrum þáttum úr stórmerkilegum endurminningum bresks dáta sem var í herliði því sem tók Napólí úr höndum þýskra nasista og ítalskra fasista haustið 1943. Frásögnin er óvenju hreinskilin og einlæg um vandamálin sem við blöstu í hinni hernumdu borg, og hér verður enn gluggað í bókina og sagt frá því hvernig bresku hernámsyfirvöldin reyndu að finna sé...
Guðrún á Taðhóli 2 03.11.2024 50:00
Fyrir nokkrum vikum las umsjónarmaður úr æviminningum Guðrúnar Guðmundsdóttur (1863-1946) sem komu út undir nafninu Minningar frá Hornafirði. Hér er haldið áfram í sama dúr, Guðrún segir frá því sem hún og fjölskylda hennar fengust við í lífinu og meðal annars er hér að finna næsta dramatíska frásögn af missi tveggja bræðra Guðrúnar.
Bréf til Láru 2 27.10.2024 49:59
Hér er framhald af síðasta þætti, þar sem umsjónarmaður las úr Bréfi til Láru eftir Þórberg Þórðarson en 100 ár eru liðin frá útkomu hennar. Sem fyrr er það hinn óviðjafnanlegi texti Þórbergs sem fær að njóta sín í sprellfjörugum frásögnum um ævi hans og raunar flest milli himins og jarðar.
Bréf til Láru 1 20.10.2024 50:03
Á árinu 2024 eru 100 ár liðin frá því að út kom ein áhrifamesta bók 20. aldar, Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson, þar sem hann fjallar um ævi sína, lífskoðanir, andleg málefni, pólitík og margt fleira, og af þvílíkri stílsnilld og hugkvæmni að annað eins hafði vart áður sést. Í þættinum verður sagt nokkuð frá bókinni en aðallega fær litríkur, flæðandi texti Þórbergs að njóta sín í fjörlegum fr...
Guðrún á Taðhóli 1 13.10.2024 50:00
Guðrún Guðmundsdóttir (1863-1946) ólst upp á Taðhóli í Hornafirði og skrifaði undir ævilok sín bernskuminningar þar sem hún sagði á mjög fróðlegan og skemmtilegan hátt frá ættum foreldra sinna og síðan fólkinu á Taðhóli, lifnaðarháttum, húsakynnum og hugarfari.
Manngerðir Canettis 1 06.10.2024 49:59
Nóbelshöfundurinn Elias Canetti lagði gjörva hönd á margt um dagana, skrifaði skáldsögu, æviminningar og fræðirit um manngrúa og vald. En hann skrifaði líka bráðskemmtilega litla þætti, þar sem hann gekk í smiðju hins gríska Þeófrastosar og skrifaði kátlegar en þó um leið skarpar lýsing á ótal manngerðum sem hann taldi sig sjá í kringum sig. Bráðskemmtileg skrif og beitt.
Torfhildur Hólm 1 29.09.2024 50:02
Torfhildur Hólm á tryggan stað í íslenskri bókmenntasögu fyrir skáldsögur sínar en hún safnaði líka skemmtilegum þjóðsögum meðal Íslendinga í Vesturheimi. Hér segir nokkuð af ævi Torfhildar en síðan lesnar sögur eins og Kona grafin lifandi, Nakin kona fæst við draug og Tilberinn í tunnunni. Þættinum lýkur á að flutt er gamalt uppáhaldslag umsjónarmanns, Danke úr leiksýningu Christophs Marthalers.
Undir fönn 3 22.09.2024 50:00
Þriðji þátturinn þar sem tekið er saman efni úr viðtalsbók Jónasar Árnasonar við Ragnhildi Jónasdóttur, Undir fönn. Sem fyrr er athyglinni einkum beitt að dýrum þeim sem Ragnhildur hafði haft kynni af á ævinni. Hér segir til dæmis af kindinni Buddu, heimaalningum mörgum og kúm tveim sem hétu báðar Njóla og lesnar vísur sem Ragnhildur orti fyrir dýrin sín
Undir fönn 2 15.09.2024 49:59
Annar þáttur þar sem lesið var úr bókinn Undir fönn þar sem Jónas Árnason skráði endurminningar Ragnhildar Jónasdóttur sem bjó lengst af á bænum Fannardal í Norðfirði. Fyrsti þáttur með lestri úr þeirri bók var fluttur 14. apríl 2024, einkum lesnar dýrasögur. Þá sagði frá gimbli einum, músum og rottum, kettinum Mollý, en í þessum þætti frá hestunum Jarpi og Söðulkollu, geitum, söngelskri kind, haf...
Kafka 1 08.09.2024 49:59
Hér er þess minnst að 100 ár eru liðin frá andláti Franz Kafka. Lesnar eru nokkrar af hinum styttri smásögum hans í þýðingu Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar. Sögurnar eru Sveitalæknir, Föturiddarinn, Nýi lögfræðingurinn, Til íhugunar fyrir knapa, Fyrir dyrum laganna og Bróðurmorð.
Steingrímur Matthíasson í seinna stríði 01.09.2024 50:14
Hér er lesið úr minningum Steingríms Matthíassonar læknis sem bjó í Danmörku á árum seinni heimsstyrjaldar, lengst af á eyjunni Borgundarhólmi og upplifði stríðið þaðan. Hér segir fyrst frá mánuðunum áður en stríðið helltist yfir Danmörku en síðan sértaklega frá stríðslokum þegar fyrst þýskir hermenn á flótta og síðan sigri hrósandi hermenn Rauða hersins komu til Borgundarhólms.
Síðasta skip suður 3 25.08.2024 50:00
Hér er leitað fanga í bók Jökuls Jakobssonar, Síðasta skip suður, sem kom út fyrir 60 árum og fjallaði um mannlíf í Breiðafjarðareyjum að fornu og nýju. Nú segir frá Guðmundi Scheving, stuðningsmanni Jörundar hundadagakonungs sem verslaði lengi í Flatey og hafði fallbyssur til að verja ríki sitt, frá hörkutólinu Eyjólfi Eyjajarli og byggð og þjóðsögum úr Hergilsey.
Prestasögur 3 18.08.2024 50:00
Í þessum þætti er gluggað í Prestasögur Oscars Clausen, líkt og í tveim þáttum fyrr á árinu. Fyrst segir frá séra Einari „prestlausa“ í Grímstungu í Húnavatnssýslu á 18. öld en hann var sagður „hrekkjamaður og illmenni“. Þá segir af hinum bláfátæka séra Jóni Mikaelssyni í Vesturhópshólum sem var dæmi um að síst væru allir prestar vel stæðir. Þá segir frá séra Þorbirni Einarssyni í Sauðlauksdal á 1...
Matthías Johannessen 3 11.08.2024 50:00
Þriðji þátturinn þar sem lesið er úr viðtölum sem skáldið og ritstjórinn átti við allskonar fólk. Hér lýkur viðtali Matthíasar við Eitilríði Pálsdóttur og síðan lesið úr viðtali við Maríu Andrésdóttur og loks við Hlín Johnson um kynni hennar við Einar Benediktsson.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.