Aðalsteinn Hannesson

Friðhelgispjallið

Tv IS ↓ 83 episodes

Íslenskt Survivor hlaðvarp. Vikulega fær Aðalsteinn til sín góða gesti og ræðir nýjasta þáttinn af raunveruleikaþáttunum Survivor á léttum nótum.

Author

Aðalsteinn Hannesson

Category

Tv

Podcast website

rss.com

Latest episode

May 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

S47 E05: Pulsur með engu 18.10.2024

Í þessum þætti fær Aðalsteinn hana Herdísi í þáttinn í gegnum töframátt internetsins til að ræða nýjasta útspil Jeff. Keppendur gæða sér á eintómum pylsum á félagsstundinni, og við veltum fyrir okkur framtíðarmöguleika keppenda nú þegar samruninn er á næsta leiti.

S47 E04: Hænan eða eggið? 12.10.2024

Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia 4. þátt 47. seríu af Survivor. Skiptar skoðanir eru á uppátækjum Rome og sömuleiðis á hinni sígíldu Survivor spurningu, "á að slátra hænsnunum eða nýta sér eggin?" Við stiklum ekki á stóru málunum í friðhelgisspjallinu, og sérstaklega ekki eftir svona svakalegan þátt af Survivor.

S47 E03: Allir vegir liggja til Rómar 05.10.2024

Í þessum þætti fær Aðalsteinn hana Hildi Maríu í heimsókn og þau ræða 3. þátt 47. seríu af Survivor. Allir ættbálkarnir senda einn fulltrúa í leiðangur þar sem þau eiga á hættu að missa atkvæðin sín. Keppendur stinga sér til sunds í friðhelgiskeppninni og Teeny og Kishan standa á krossgötum í ættbálknum sínum.

S47 E02: Stóri hrísgrjónaþjófnaðurinn 29.09.2024

Aðalsteinn og Gummi ræða eftirminnilegan 2. þátt 47. seríu af Survivor. Rome heldur áfram að útskúfa sig, Sam tekur að sér barnapíustörf og Gabe sér sér leik á borði eftir ágreining í ættbálknum. Allt þetta og fleira verður rætt út í þaula.

S47 E01: Klöppum fyrir kókoshnetunni 20.09.2024

Aðalsteinn, Sofia og Gummi fara yfir fyrsta þáttinn af nýjustu survivor seríunni. Við fylgjumst með keppendunum eiga fyrstu kynni við hvort annað og mynda tengsl. Ótrúleg atburðarrás hjá einum keppanda kemur honum í klandra, en var rétta manneskjan kosin út í lokin? Við reynum eftir fremsta megni að svara þessari spurningu ásamt því að slá á létta strenga í þessum eftirminnilega frumsýningaþætti s...

S47 E00: Kynnumst keppendunum í seríu 47 16.09.2024

Aðalsteinn, Sofia og Gummi fara yfir keppendur í 47. seríu af Survivor. Við vegum og metum ágæti hvers og eins, og komum með okkar spár fyrir seríuna. Við munum svo örruglega hafa kolrangt fyrir okkur þegar upp er staðið.

S46 E13: Skæri Blað Steinn 25.05.2024

Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi rosalegan lokaþátt 46. seríu af Survivor. Umdeilt atvik í byrjun þáttarins er krufið til mergjar og hörkubarátta á lokaþinginu skiptir kviðdómnum og þáttastjórnendum í tvennt! Farið er yfir seríuna í heild sinni, og auðvitað nöldrað smá í endan.

S46 E12: Sigur innan seilingar 18.05.2024

Aðalsteinn fær Gumma í heimsókn og þeir ræða rosalegan 12. þátt 46. seríu af Survivor. Sagan virðist endurtaka sig endalaust en við erum samt með hökuna á gólfinu eftir hvern einasta þátt. Tveir bandamenn snúast gegn hvorum öðrum en aðeins einn getur staðið uppi sem sigurvegari! Fumble ársins og margt annað rætt í þessum þetti af Friðhelgispjallinu.

S46 E11: Pizzupartý 12.05.2024

Eftir fjóra magnaða þætti í röð kom einn hljóðlátur en fyndinn þáttur sem leggur á borð fyrir svakalegan endasprett. Aðalsteinn og Sofia ræða þennan óvænta þátt, og fara yfir nokkur stór mistök leikmanna í þessari umferð.

S46 E10: Bourbonstrætis Sveppa Sviss Borgarinn 05.05.2024

Aðalsteinn og Sofia ræða 10. þátt af 46. seríu af Survivor. Hreint út samt ótrúleg útkoma úr verðlaunakeppni snemma í þættinum hrindir af stað brjálæðiskasti og keppendur falla fyrir sömu lygi í þriðja skiptið í röð á tribal. Vertu með álpappírshattinn á hasunum þegar þú hlustar á þennan óborganlega þátt.

S46 E09: Everybody hates Q 29.04.2024

[Lagfærð útgáfa] Aðalsteinn og Sofia ræða níunda þátt 46. seríu af Survivor. Óvænt uppstokkun í friðhelgiskeppninni setur strik í reikninginn og enn fleiri keppendur ákveða að nú sé rétti tíminn til að kjósa út besta vin sinn... en bara ef þeir fá kreditið... Allt þetta og margt fleira í þessum fyrsta þætti sumarsins.

S46 E08: Pilsfaldakjúismi 22.04.2024

Í þessum þætti fara Aðalsteinn og Sandra yfir ótrúlega atburðarrás 8. þáttar 46. seríu af Survivor. Er Q búinn að ganga af göflum? eða er hann miskilinn snillingur? Við ræðum frábæran feluleik, nýjustu tískuna á fiji og kaótískasta tribal seríunnar hingað til!?!

S46 Eseveral 15.04.2024

Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia þrusu þátt þar sem keppendum er skipt í tvennt og allt fer í rugl. Skemmtileg keppni uppá friðhelgisfestina vekur athygli og lagt er á borð fyrir seinni helming seríunnar. Bon Appétit!

S46 E06: Nafn fyrir nafn 07.04.2024

Aðalsteinn, Sofia og Gummi spjalla um samrunaþátt 46. seríu af survivor. Jeff býður uppá nýliðakynningu og steinar í poka skipta í ójöfn lið... eða hvað?

S46 E05: Harðlífi 31.03.2024

Aðalsteinn fær Söndru í heimsókn og þau ræða 5. þátt 46. seríu af Survivor. Jeff reynir að endurskrifa sögubækurnar og þátttakendur vopnbúast í þessum svakalega þætti af Survivor!

S46 E04: Bhani Bhanu 23.03.2024

Aðalsteinn og Sofia ræða fjórða þátt 46. seríu af Survivor. Við förum í gegnum öll fimm skref sorgarinnar þegar við kryfjum þennan afar óhefðbundna þátt.

S46 E03: Milljón hjörtu 16.03.2024

Aðalsteinn fær Marín í heimsókn til að ræða þriðja þátt 46. seríu af Survivor. Ekki missa af Marín hella úr skálum reiði sinnar vegna eins keppanda sem var í miklu aðalhutverki í þessum þætti.

S46 E02: Stórskotaliðið 11.03.2024

Aðalsteinn og Sofia ræða 2. þátt 46. seríu af Survivor. Hiti færist í leikinn þegar ættbálkar skiptast á svívirðingum fyrir keppni og stórfurðuleg hegðun eins keppanda á þinginu vekur athygli. Málin eru krufin til mergjar!

S46 E01: Allt eðlulegt hér 02.03.2024

Aðalsteinn, Sofia og Gummi ræða svakalegan fyrsta þátt 46. seríu af Survivor. Við ræðum keppendur stóðu upp úr, hverjir ollu vonbrigðum og hvort að savage Jeff sé mögulega snúinn aftur!?

S46 E00: Kynnumst keppendunum í seríu 46 20.02.2024

Aðalsteinn, Gummi og Sofia heyra frá öllum keppendunum í komandi seríu af survivor og ræða sín á milli. Í lok þáttar velja þau nokkra keppendur í sitt lið.

S45 E13: Úps allir lögfræðingar 30.12.2023

Aðalsteinn og Sofia ræða lokaþátt 45. seríu af Survivor. 5 frækin eru eftir í leiknum og stórundarleg útkoma í final 5 þinginu setur strik í reikninginn. Við ræðum eldsmiðjukeppni, æsispennandi final tribal og hvernig allir í seríunni eru einhvernmeginn lögfræðingar!?

S45 E12: Kapteinn Ofurbrók 16.12.2023

Aðalsteinn og Sofia ræða 12. þátt 45. seríu af Survivor. Spennan magnast í þessum næst-seinasta þætti seríunnar og það er af nægu að taka. Rómantískt deit er truflað af þriðja hjólinu og á sama tíma er annar keppandi á brókinni einum klæða.

S45 E11: Aust-fanginn 11.12.2023

Aðalsteinn fær Sofiu í heimsókn til að ræða um 11. þátt 45. seríu af Survivor. Ástareldar tveggja keppanda og "óskarsverðlaunaframmistaða" annars er meðal umræðuefna í þessum þætti.

S45 E10: Griðastaðagellur og gauragangur 09.12.2023

Aðalsteinn fær Söndru í heimsókn til að ræða tíunda þátt 45. seríu af Survivor. Jeff sendir fólk á griðastaðinn með bréf frá ástvinum í hönd og sólstrandargæjarnir halda uppi strákastemningu. Í lok þáttar tölum við aðeins um þá fjölmörgu ,,first boots'' sem gætu leynt á sér og eiga skilið annað tækifæri.

S45 E09: Kjúklingur deilt með þremur 04.12.2023

Aðalsteinn fær Söndru í heimsókn og saman ræða þau níunda þátt 45. seríu af Survivor. Jeff rænir þremur þátttakendum atkvæðunum sínum og verðlaunar þrjá aðra með 990 kr kjúkling úr Krónunni.

Listen to the Friðhelgispjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.