Aðalsteinn Hannesson
Friðhelgispjallið
Íslenskt Survivor hlaðvarp. Vikulega fær Aðalsteinn til sín góða gesti og ræðir nýjasta þáttinn af raunveruleikaþáttunum Survivor á léttum nótum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
S49 E00 - Kynnumst keppendunum í seríu 49 22.09.2025 2:08:01
Aðalsteinn og Sofia fara yfir keppendur í seríu 49 af Survivor og koma með sín brakandi fersk take (sem eiga alls ekki eftir að eldast illa). Hlustið og njótið
Au Vs World 07-10: Á milli heims og Heljar 08.09.2025 1:47:00
Aðalsteinn, Sofia og Gummi ræða svakalegan endasprett á á draumaseríu allra Survivor aðdáanda; Ástralía gegn heiminum! Þættirnir eru ræddir einn í einu svo hægt er að hlusta þó maður sé bara búinn með 7. 8. 9. eða lokaþáttinn. Ekki missa af þessum snilldarþætti af Friðhelgispjallinu, sem eru orðin sjóðheit, alveg í tæka tíð fyrir komandi Survivor Season!
Au Vs World 04-06: Heimar mætast og kætast 04.09.2025 1:19:59
Aðalsteinn og Sofia ræða 4-6 þátt af hinni æsispennandi seríu; Ástralía gegn heiminum! Þættirnir eru ræddir einn í einu svo hægt er að hlusta þó maður sé bara búinn með 4, 5 eða sjötta þátt. Ekki missa af þessum ofurhressa þætti af Friðhelgispjallinu.
Au Vs World 01-03: Heimsmeistaramót í Survivor 23.08.2025 1:49:54
Aðalsteinn, Sofia og Gummi ræða epíska byrjun á draumaseríu allra Survivor aðdáanda; Ástralía gegn heiminum! Þættirnir eru ræddir einn í einu svo hægt er að hlusta þó maður sé bara búinn með 1, 2 eða þrjá þætti. Ræðum svo aðrar sláandi fréttir í survivor heiminum! Ekki missa af þessum ofurhressa þætti af Friðhelgispjallinu, sem eru komin aftur eftir langt sumarfrí!
S48 E13: Búið spil + [SURVIVOR 50 KEPPENDUR KYNNTIR + ÁLIT OKKAR!!!!] 29.05.2025 1:54:30
Aðalsteinn, Sofia og Gummi ræða lokaþátt Seríu 48 af survivor... og auðvitað stærstu survivor frétt ársins, tilkynningin um hvaða keppendur muni snúa aftur í seríu 50!!! Þú vilt ekki missa af þessari friðhelgisVEISLU!
S48 E12: Börger, Bjór og Bréf frá ástvinum 19.05.2025 53:40
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia 12. þátt 48. seríu af survivor og nú loks er kominn hiti í leikinn. Úrslitin eru á næsta leiti og allt í einu er leiðin greið fyrir, tjahh, allflesta leikmenn að hreppa hnossið í lokin. Ekki missa af þessum ástríka þætti af Friðhelgispjallinu *þið vonandi afsakið að hljóðið er smá asnalegt, fattaðist ekki fyrr en eftir á :'(
S48 E11: Leynileikurinn 09.05.2025 1:11:25
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi 11. þátt af 48. seríu af Survivor. Eftir nokkrar frústrerandi Survivor þætti upp á siðkastið var eftirvæntingin fyrir þessum þætti mikil, en allt kom fyrir ekki. Við ræddum gang seríunnar í grófum dráttum en vorum mögulega heldur neikvæð hehe.
S48 E10: Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar! 04.05.2025 1:02:09
Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingu...
S48 E08+09: Hinir ríku verða ríkari 26.04.2025 1:39:37
Í þessum tvöfalda post-páskafrí þætti af friðhelgispjallinu ræða Aðalsteinn og Sofia svaðalega þáttatvennu; þátt 8 og 9 af seríu 48 af Survivor. Meirihlutabandalag massana heldur áfram að vera með minnimáttarkennd og mitch pitch-ar eitthvað sem gæti breytt gangi seríunnar, en mun rétta fólkið bíta á öngulinn?
S48 E07: Kóngar og kraftlyftingar 13.04.2025 56:23
Í þessum þætti af friðhelgisspjallinu ræða Aðalsteinn og Sofia 7. þátt af seríu 48... sem var.... þáttur.... Það verður stiklað á stóru í strategíunni og tvískipt þing hendur tveimur leikmönnum úr leiknum. Ekki missa af þessum þætti af Friðhelgispjallinu.
S48 E06: Ekki-merge (en samt merge) 05.04.2025 1:00:47
Í þessum "ekki merge" merge þætti ræða þau Aðalsteinn, Sofia og Gummi allt sem gerðist í 6. þætti af 48. seríu af Survivor. Jeff fer í einhverja maníu á tribal og allir keppendurnir nema einn eru neydd til að synda í gegnum drullupoll. Ekki missa af þessum drullugóða þætti af Friðhelgispjallinu.
S48 E05: Tárvotur Probst 30.03.2025 1:02:31
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi tilfinningaþrunginn 5. þátt 48. seríu af survivor. Jeff var í essinu sínu, og felldi meira að segja tár yfir friðhelgiskeppninni, en hvaða áhrif hefur þessi atburður á keppendurna í leiknum? og hvað er málið með þetta blindside i lok þáttar?!?
S48 E04: Skrifað í ströndina 23.03.2025 1:13:27
Aðalsteinn og Sofia ræða svaðalegan fjórða þátt 48. seríu af Survivor. Jeff heldur keppendunum á tánum og skiptir upp ættbálkunum, sumum til ánægju en öðrum til ama. Við ræðum fyrstu viðbrögð við þessum nýju breytingum og þeim áhugaverðu stöðum sem nýju ættbálkurinn býr til. Ekki missa af þessum swap-alega þætti af Friðhelgispjallinu!
S48 E02+03: Vandræðagangur Vula 15.03.2025 1:33:48
Aðalsteinn og Sofia taka tvíhleypu að þessu sinni og ræða bæði 2. og 3. þátt af seríu 48 af Survivor í þessum smekkfulla þætti. Vandræðagangur Vula heldur áfram að setja svip sinn á seríuna, og við ræðum meðal annars umdeilt þing og atkvæðareglur Survivor. Ekki missa af þessum frábæra þætti af Friðhelgispjallinu. Ef þið viljið spreyta ykkur á púslinu úr þætti 2 getið þið gert það hér: https://maxi...
S48 E01: Sævar í hættu 02.03.2025 1:21:42
Í þessum hressa og skemmtilega frumsýningarþætti fyrir seríu 48 af Survivor ræða þau Aðalsteinn, Sofia og Gummi allt það sem gerðist í eftirminnilegum þætti survivor. Einnig gefum við út okkar opinberu "meðmæli" þegar kemur að atkvæðagreiðslunni fyrir seríu 50: In the hands of the fans!
S48 E00: Kynnumst keppendunum í seríu 48 16.02.2025 2:10:39
Í þessum þætti fara Aðalsteinn og Sofia yfir keppendur í Seríu 48 af Survivor og gefa sín sjóðheitu og/eða ísköldu "teiks". Fullkomin hlustun til að hita sig upp fyrir seríu 48 af Survivor sem hefst 26. febrúar. Ef þú vilt skrá þig í Þraukarann, smelltu hér 👉 https://forms.gle/XSQTsKwrmwKvirgu8
The Traitors - Meðmæli Friðhelgispjallsins 10.01.2025 7:28
Í þessum örstutta aukaþætti gefur Aðalsteinn ykkur örkynningu á The Traitors.
S47 E13+14: Tvöfaldur lokaþáttur 21.12.2024 1:29:45
Í þessum lokaþætti af Friðhelgispjallinu fyrir seríu 47 af Survivor ræða Aðalsteinn og Sofia allt það helsta úr seinustu tveimur þáttum. Við sjáum eftirmála Operation Italy, og hvernig það getur reynst dauðadómur að halda jarðarför fyrir leikmann sem er ennþá í leiknum. Við förum yfir spennandi lokaþing og ræðum hvernig sigurleikur sigurvegarans lítur út miðað við aðra sigurvegara "in the new era"...
S47 E12: Ítalski draumurinn 08.12.2024 56:41
Aðalsteinn, Sofia og Gummi ræða 12. þátt af 47, seríu af Survivor, sem var algjör negla. Þegar allt virðist vera staðfest, skjalfest og þinglýst í final 7 þá vaknar Andy með klikkaða hugmynd og býður upp í dans. Ekki missa af þessari bráðskemmtilegu umræðu af algjörum þrusuþætti af Survivor!
S47 E11: Ógnir og Undirhundar 01.12.2024 1:02:06
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia 11. þátt 47. seríu af Survivor. 8 keppendur eru eftir í leiknum, og nú fer hver að verða seinastur til þess að sýna hvað í sér býr. Meirihlutabandalag undirhundanna virðist vera skothelt, og ógnirnar óttast um líf sitt í leiknum. Einn leikmaður kemst í ansi eftirsóknaverða stöðu eftir heppilegan leiðangur. Það styttist í endalokin á seríunni og það verður fo...
S47 E10: Ormurinn langi 23.11.2024 1:23:21
Í þessum drekkhlaðna þætti af friðhelgispjallinu ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi tíunda þátt 47. seríu af Survivor. Eftir svaðalegt blindside í seinasta þætti eru undirhundirnar ólmir yfir því að snúa goggunarröðuninni á hvolf. Jeff lætur keppendurna skríða eftir jörðinni eins og ormar til þess að vinna cookies and cream köku. Tuku eru við það að ná hreinum meirihluta á þingi, mun einhver stoppa þ...
S47 E09: Á síðasta snúningi 20.11.2024 30:07
Í 9. þætti 47. seríu er Aðalsteinn aleinn... og seinn! Það er bara við hæfi að þessi þáttur kemur smá seint út þar sem Jeff ákvað að leyfa keppendunum ekki að spila Survivor fyrr en alveg í lokin, eftir að hafa hótað að taka atkvæðin af fjórum keppendum! Leikmennirnir létu þó ekki deigan síga og gáfu okkur svakalegt blindisde á algjörum fan-favourite keppanda! Hlustið og upplifið (og afsakið!)
s47 E08: Extreme Makeover: Andy Edition 09.11.2024 1:08:06
Aðalsteinn og Gummi ræða 8. þátt 47. seríu af Survivor. Uppboðið snýr aftur í annað skipti í "the new era" og okkur líst ekkert mikið betur á það en við gerðum seinast. Leikmaður finnur forskot í frönskunum sínum og Andy tekur málin í eigin hendur í þessum æsispennandi "final 11" þætti.
S47 E07: Er þetta forskot í brókinni þinni? 02.11.2024 1:01:14
Aðalsteinn og Sofia ræða 7. þátt 47. seríu af Survivor. Jeff skiptir þraukurunum í tvennt eins og honum einum er lagið, en í þetta skipti er bara einn hópur sem fer á þing á meðan hinn horfir á. Við sjáum nýtt forskot í leiknum, sem hefur afdrífaríkar afleiðingar fyrir hópinn sem fór á þing og einhverjar vísbendingar um nýtt bandalag ólíklegra keppenda!
S47 E06: Jeff finnur upp hjólið 26.10.2024 1:05:02
Aðalsteinn og Sofia ræða sorglegan útfararþátt eins ástsælasta keppanda seríunnar. Við ræðum nýja "tvistið" hans Jeff og nýstárlega notkun á amulet-forskotinu. Gríptu þér ananas-skífu og rauðvínssglas fyrir þennan svaðalega merge "but not merge" þátt af Survivor.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.