Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Beggi og Gummi Kalli - Golf, fyrirlestrar og viðskilnaðurinn við FH 17.04.2018
Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl Guðmundsson gengu til liðs við Fjölni á nýjan leik í vetur eftir dvöl hjá FH. Þeir komu báðir til Fjölnis á sama degi í febrúar síðastliðnum en þeir sáu ekki fram á að fá mörg tækifæri í liði FH. Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, tilkynnti Bergsveini að hann væri ekki ofarlega í röðinni hjá sér.
Atli og Sindri í Eyjum - Enginn veit hvað mun koma frá okkur 17.04.2018
Atli Arnarson og Sindri Snær Magnússon, miðjumenn ÍBV, heimsóttu útvarpsþátt Fótbolta.net. Eyjaliðinu er spáð 9. sæti í Pepsi-deildinni og þegar Atli og Sindri voru spurðir að því hvort þeir myndu taka því sæti fyrir tímabilið var svarið einfaldlega nei.
Albert og Ragnar fara yfir víðan völl - Fylkishjartað, tölvuleikir og hestar 16.04.2018
Fótbolti.net spáir Fylki 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fylkismenn komu í gær heim frá Spáni þar sem þeir voru í æfingaferð en liðið gerði markalaust jafntefli við KR í æfingaleik á laugardag. Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag en sá síðarnefndi fékk rauða spjaldið í leiknum á laugardag.
Innkastið - Sófameistaratitill og Liverpool gestur 15.04.2018
Innkastið er mætt aftur eftir stutt hlé. Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var gestur Elvars og Daníels í þætti dagsins. Enska úrvalsdeildin, sófameistarar Manchester City, Meistaradeildin, Zlatan og fleira var til umræðu.
Gústi Gylfa kom í útvarpið - Stefnan sett á topp þrjá 14.04.2018
Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir um komandi tímabil en Blikar eru nýkomnir úr æfingaferð á Spáni. Gústi er augljóslega mjög bjartsýnn fyrir því sem framundan er og segir að Blikar setji stefnuna ótrauðir á að enda í einu af þremur efstu sætum Pepsi-deildarinnar.
Fótboltafréttir vikunnar - Ísland, Færeyjar og Meistaradeildin 14.04.2018
Hér má nálgast fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 þann 14. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr boltanum. Það styttist í Pepsi-deildina og Þróttarar skiptu um þjálfara rétt áður en átökin hefjast í Inkasso-deildinni. Þá sagði Elvar Geir frá ferð sinni til Færeyja en hann sá tvo leiki með HB, liði Heimis Guðjónssonar og Brynjars Hlöðverssonar, í...
Arnþór og Davíð Atla: Treysta á að Rikki T hrökkvi í gang 13.04.2018
Arnþór Ingi Kristinsson og Davíð Örn Atlason segja að leikmenn Víkings R. séu staðráðnir í að blása á hrakspár fyrir Pepsi-deildina í sumar. Fótbolti.net spáir Víkingi ellefta sæti í deildinni.
Bræðurnir í Keflavík: Liggur við að við förum í slag á æfingum 12.04.2018
Bræðurnir Sindri Kristinn Ólafsson og Ísak Ólafsson eru fastamenn í liði Keflavíkur en liðið er komið upp í Pepsi-deildina á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru. Fótbolti.net spáir Keflavík 12. sæti í sumar en Sindri og Ísak kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í vikunni og ræddu um hitt og þetta.
Návígi - Óli Þórðar 10.04.2018
Ólafur Þórðarson er gestur Gunnlaugs Jónssonar í hlaðvarpsþáttunum vinsælu Návígi í þessari viku.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. apríl 08.04.2018
Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Tómas Þór Þórðarson var einn við stjórnvölinn í fjarveru meðstjórnanda síns, Elvars Geirs Magnússonar sem er að fylgja íslenska kvennalandsliðinu. Þó var hringt í Elvar og staðan tekin. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefjist og Baldur Sigurðsson miðjumaður Stjörnunnar var í viðtali. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefj...
Innkastið - Nóg að frétta þrátt fyrir spennuleysi á toppnum 02.04.2018
Innkastið er mætt aftur eftir landsleikjahlé. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða það sem var í gangi í Evrópufótboltanum um páskahelgina. Enski boltinn er í aðalhlutverki að vanda en einnig kemur spænski og þýski boltinn til tals. Farið var yfir lista yfir bestu leikm...
Vetrarverðlaunin - Þeir bestu á íslenska undirbúningstímabilinu 31.03.2018
Vetrarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn! Elvar Geir og Tómas Þór völdu þá leikmenn sem skarað hafa fram úr á undirbúningstímabilinu hér á Íslandi. Horft var til Reykjavíkurmótsins, Kjarnafæðismótsins, Fótbolta.net mótsins og Lengjubikarsins. Valinn va...
Landsliðsvalið fyrir HM - Reynt að lesa hugsanir Heimis 31.03.2018
Það er erfitt verkefni sem bíður Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara þegar kemur að því að velja HM hópinn þann 11. maí. Elvar Geir og Tómas Þór reyndu að lesa hugsanir Heimis í útvarpsþættinum og settu saman 23 manna hóp. Þeir pældu einnig í líklegu byrjunarliði gegn Argentínu þann 16. júní. Elvar var í Bandaríkjunum þar sem Ísland tapaði samtals 6-1 fyrir Mexíkó og Perú og sagði frá ferð sin...
Blikar spýta í lófana og skýrsla úr sigri Liverpool 31.03.2018
Hlustaðu á klippu úr útvarpsþættinum Fótbolti.net sem var á X977. Í fyrri hluta klippunnar er rætt við Sigmar Inga Sigurðarson sem er kominn í nýtt starf sem Breiðablik setti á laggirnar. Sigmar er markaðs- og viðburðastjóri félagsins. Í seinni hlutanum gefur Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, skýrslu eftir leik Crystal Palace og Liverpool sem Liverpool vann eftir að hafa lent und...
Návígi - Veigar Páll 29.03.2018
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Veigar Páll Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Veigar er nýfarinn að snúa sér að þjálfun en í samtali við Gunnlaug fer hann yfir feril sinn sem var heldur betur tíðindamikill, bæði með fél...
Ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina 24.03.2018
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag var í þriðja skipti í vetur birt ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina í sumar. Benedikt Bóas Hinriksson, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir öll liðin. Mánuður er í að keppni í Pepsi-deildinni hefjist og spennan er að magnast.
Landsliðshringborð - Mexíkó leikurinn krufinn 24.03.2018
Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson sáu um útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu í dag.
Návígi - Rúnar Kristins 21.03.2018
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rúnar tók við KR síðastliðið haust eftir að hafa undanfarin ár þjálfað Lokeren í Belgíu og Lilleström í Noregi. Á ferli sínum sem leikmaður spilaði Rúnar með öllum...
Magnaðir Magnamenn - „Ævintýri að koma út á Grenivík" 19.03.2018
Magni Grenivík leikur í Inkasso-deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni síðastliðið haust. Rúmlega 350 manns búa á Grenivík en fótboltaáhuginn þar er mikill. Magni komst síðast upp í næstefstu deild árið 1978 og mikil spenna er fyrir sumrinu á Grenivík. Hjörtur Geir Heimisson, markvörður og fyrirliði Magna, kíkti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu á laugardag ásamt...
Arnþór Ari um rannsókn á mætingu á leiki og KA TV 19.03.2018
Arnþór Ari Atlason, miðjumaður Breiðabliks, og Ágúst Stefánsson hjá KA TV voru á meðal viðmælenda í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn.
Landsliðshringborð - Rætt um hópinn og treyjuna 17.03.2018
Góð landsliðsumræða var tekin í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um hópinn fyrir komandi leiki gegn Mexíkó og Perú. Staðan var einnig tekin á möguleikum leikmanna fyrir sjálfan HM hópinn.
Innkastið - Harkaleg brotlending Mourinho 13.03.2018
Síðasta Innkast marsmánaðar (vegna landsleikjahlés) var tekið upp fljótlega eftir að Manchester United féll óvænt úr leik gegn Sevilla í Meistaradeildinni. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræddu um þessa hrikalegu brotlendingu Jose Mourinho. Meiðsli Gylfa, brjálæði West Ham stuðningsmanna, Dele Alli, bikarleikir, stjörnuleikur, Balotelli og margt fleira kemur við sögu.
Fjolla komst á rétta braut í lífinu með hjálp fótboltans 12.03.2018
Fjolla Shala, leikmaður Breiðabliks, er einn harðasti leikmaður kvennaboltans. Hún er fædd í Kosóvó en flutti ung til Íslands þar sem hún æfði með Leikni í Breiðholti. Í dag spilar hún fyrir landslið Kosóvó og er nýkomin úr landsliðsverkefni. Hún mætti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Í viðtalinu fór hún yfir leið sína í landslið Kosóvó og sagði frá því hversu erfið hún hafi verið...
Hjálmar Örn kom í spjall um Spurs og húliganisma 10.03.2018
Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Hjálmar er mikill stuðningsmaður Tottenham og kom það lið mikið við sögu í spjallinu. Þá er hann mikill áhugamaður um fótboltabullur, húliganisma, og var sú sturlaða menning einnig rædd.
Geta íslensk félagslið lært af Gnúpverjum? 10.03.2018
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hefur undanfarnar vikur fjallað mikið um markaðsmál í íslenskum fótbolta. í þættinum í dag var nýr vinkill, heyrt var í Mate Dalmay, formanni og þjálfara körfuboltaliðs Gnúpverja sem leika í 1. deild karla. Mate og hans menn hafa náð að skapa stórskemmtilega stemningu í kringum lið sitt með því að fara óhefðbundnar leiðir.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.