Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Risaleikur í kvöld - Hanna Sím í beinni frá Kænugarði 26.05.2018
Það er glimrandi stemning í Kænugarði þar sem Real Madrid og Liverpool eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um leikinn og heyrðu í fréttaritara þáttarins í Kænugarði. Hanna Símonardóttir verður á vellinum og sagði frá stuðinu í Úkraínu.
4. deildar Innkastið - Ástríðudeildin loksins farin af stað 25.05.2018
4. deild karla, neðsta deild Íslandsmótsins, er farin á fulla ferð og í tilefni þess sendum við hér út sérstakan þátt um deildina. Það má kalla þetta upphitunarþátt þrátt fyrir að boltinn sé vissulega farinn að rúlla! Runólfur Trausti Þórhallsson er umsjónarmaður þáttarins en með honum eru Einar Guðnason og Grétar Óskarsson.
Innkastið - Lof og last eftir 5. umferð Pepsi-deildarinnar 24.05.2018
5. umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með þremur leikjum. Pakkinn þéttist enn frekar í efri hluta deildarinnar.
Pepsi yfirferð - 4. umferðin gerð upp með Grétari Sigfinni 19.05.2018
Fjórða umferð Pepsi-deildarinnar var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Grétar Sigfinnur Sigurðarson voru í hljóðverinu og var nóg að ræða. Stórleikir voru á dagskrá, dómaraskandalar og áhorfandi fékk að líta rauða spjaldið. Leikir 4. umferðarinnar: Keflavík - Fjölnir 1-2 KR - Breiðablik 1-1 Víkingur R. -Grindavík 0-1 Valur - Stjarnan 2-2 Fylkir -...
Enska hringborðið - Lokauppgjör og upphitun fyrir risaleiki 19.05.2018
Síðasta enska hringborð tímabilsins! Úrvalsdeildin var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Einnig var hitað upp fyrir tvo stórleiki; bikarúrslitaleik Chelsea og Manchester United og sjálfan úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, viðureign Real Madrid og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýrðu umræðum. Góðvinir þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson (sérfræðingur um Live...
Innkastið - Blikar geta unnið mótið 14.05.2018
Þrátt fyrir að einum leik sé ólokið í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar var Innkast umferðarinnar tekið upp í dag. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.
Logi Ólafs: Myndi aldrei fara í þetta félag ef ég væri markmaður 13.05.2018
Víkingur Reykjavík hefur komið á óvart með frammistöðu sinni í fyrstu tveimur leikjum Pepsi-deildarinnar. Liðið er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Liðið gerði markalaust jafntefli við Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð. „Ég er mjög ánægður með framlagið og niðurstöðuna," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga, í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær.
Landsliðshringborð - Rýnt í landsliðsvalið fyrir HM 12.05.2018
Á föstudag var opinberað hvaða 23 leikmenn fara með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi. Mikil spenna var fyrir valinu og ýmsir leikmenn hafa verið gríðarlega svekktir. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson ræddu um valið í útvarpsþættinum Fótbolti....
Þriðja umferð Pepsi skoðuð með Davíð Snorra 12.05.2018
Komandi leikir í Pepsi-deild karla voru til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fengu Davíð Snorra Jónasson til að rýna í leiki umferðarinnar.
Innkastið - Fergie bati og spádómar 09.05.2018
Daníel Geir Moritz hélt um stjórnartaumana í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Hann fékk til sín tvo góða gesti, Runólf Trausta Þórhallsson og Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is. Spáð var í spilin fyrir tvo stórleiki sem eru framundan; úrslitaleik FA Cup þar sem M...
Innkastið - Spjaldað fyrir að sýna ástríðu 08.05.2018
Önnur umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.
Landsliðshringborð - Spáð í valið stóra sem tilkynnt verður á föstudag 06.05.2018
Næsta föstudag, 11. maí, mun Heimir Hallgrímsson opinbera landsliðshóp Íslands sem fer á HM í Rússlandi. 23 manna hópur verður valinn og er hart barist um flugmiðana. Hjörvar Hafliðason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem spáð var í valið og mótið framundan. Tómas Þór og Elvar Geir voru á sínum stað.
Upphitun - 2. umferð Pepsi skoðuð með Tryggva Guðmunds 05.05.2018
Ítarlega er fjallað um Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardögum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu í dag við markakónginn Tryggva Guðmundsson sem var í beinni frá Vestmannaeyjum og fór yfir 2. umferðina sem leikin er á sunnudag og mánudag. Þá fór Tómas yfir samantekt sína yfir framlag ungra leikmanna í markaskorun í 1. umferð deildarinnar.
Innkastið - Liverpool draumur og Arsenal martröð 03.05.2018
Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru mættir með Evrópu- Innkastið þessa vikuna. Daníel mættur úr fríi og endurnærður eftir að hafa skoðað landsbyggðina. Vonbrigði Arsenal voru auðvitað til umfjöllunar og frammistaða Liverpool sem hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Kænugarði.
Innkastið - Flugeldasýning í fyrstu umferð Pepsi 29.04.2018
Pepsi-Innkastið er mætt aftur. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki. <b>Meðal efnis:</b> Iðnaðarsigur Víkinga í k...
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. apríl - Pepsi og Inkasso 28.04.2018
Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu um íslenska boltann. Pepsi-deildin fór af stað með hvelli. Dramatískur sigur Vals á KR, endurkoma Keflavíkur gegn Stjörnunni og hitað upp fyrir aðra leiki. Einnig var spáð í spilin fyrir Inkasso-deildina sem fer af stað eftir viku.
Innkastið - Salah stoppar ekki 24.04.2018
Það er komið að sjóðheitum þætti af Innkastinu. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson ræddu um boltann. Aðalmálið var áhugaverður leikur Liverpool og Roma í Meistaradeildinni í kvöld en hann endaði með 5-2 sigri Liverpool. Daníel Geir Moritz var í fríi en lesið var upp skeyti frá honum þar sem hann valdi úrvalslið leikmanna sem hafa spilað undir stjórn Arsene Wenge...
Eiður Aron og Birkir Már - Ekki hægt að mæta Messi skjálfandi á beinunum 24.04.2018
Tveir af bestu varnarmönnum Pepsi-deildarinnar mættu á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða tímabilið framundan. Eiður Aron Sigurbjörnsson og Birkir Már Sævarsson, leikmenn Vals, spjölluðu við Elvar Geir Magnússon en ríkjandi Íslandsmeisturum er spáð efsta sætinu í sumar. Birkir Már, sem er 33 ára, á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en er kominn heim í Val.
Gummi Kristjáns og Davíð Þór - Fyrirliðinn er sem betur fer ekki á Twitter 23.04.2018
Guðmundur Kristjánsson og Davíð Þór Viðarsson, miðjumenn FH, voru brattir þegar þeir heimsóttu skrifstofu Fótbolta.net og ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil í Pepsi-deildinni. Guðmundur gekk í raðir FH í vetur eftir sex ára dvöl hjá Start í Noregi en Davíð er fyrirliði FH-liðsins og hefur verið einn allra öflugasti leikmaður íslenska boltans undanfarin ár.
Brynjar Gauti og Jói Lax: Menn misharðir í grillveislum í sveitinni 23.04.2018
Brynjar Gauti Guðjónsson og Jóhann Laxdal, varnarmenn Stjörnunnar, segja að liðið geti haft betur gegn núverandi meisturum í Val í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í sumar. „Við erum með lið í það. Valur er the team to beat. Það er erfiðara að verja titilinn en að sækja hann. Valur er mjög vel mannað og það verður mikið verkefni að kljást við þetta lið í sumar," sagði Jóhann við Fótbolta.net. St...
Pepsi-hringborðið - Rýnt í öll liðin og spáð í spilin fyrir mót 21.04.2018
Í veglegu Pepsi-hringborði var rýnt í öll lið deildarinnar fyrir komandi tímabil en sparkað verður til leiks á föstudagskvöld. Skoðuð var spá Fótbolta.net fyrir deildina og rætt um möguleika liðanna í mótinu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir málin en með þeim var Davíð Snorri Jónasson sem var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í fyrra og þjálfaði Leikni í deild...
Elfar Árni og Hrannar - Bjuggust aldrei við að spila með KA 20.04.2018
„Miðað við veturinn kemur þetta ekkert sérstaklega á óvart en það kemur á óvart að eitt af stóru liðunum er fyrir neðan okkur," segir Hrannar Björn Steingrímsson bakvörður KA um að Fótbolti.net spái liðinu 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.
Óskar og Aron - Breytingar hjá KR, karfan og Peter Crouch 19.04.2018
Óskar Örn Hauksson og Aron Bjarki Jósepsson komu báðir ungir til KR og hafa leikið með liðinu í áraraðir. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í gær og ræddu meðal annars um spá Fótbolta.net en KR er spáð 5. sæti í Pepsi-deildinni.
Gísli Eyjólfs og Arnþór Ari - Vissir um að geta endað ofar en Valur 18.04.2018
Fótbolti.net spáir Breiðabliki sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. Liðið myndi ekki sætta sig við þá niðurstöðu enda segir Ágúst Gylfason, þjálfari Blika, að stefnan sé sett á topp þrjá. Fótbolti.net ræddi við tvo leikmenn Kópavogsliðsins, Gísla Eyjólfsson og Arnþór Ara Atlason, í dag og bar æfingaferð liðsins til Spánar og aukin virkni á samfélagsmiðlum snemma á góma í því spjalli.
Brynjar Ásgeir og Gunnar - Lofa að Grindavík skorar meira í sumar 18.04.2018
Grindavík var spútnikliðið í Pepsi-deildinni í fyrra en nýliðarnir enduðu þá í 5. sæti. Grindavík hefur ekkert gefið eftir í vetur en liðið fór í úrslit bæði í Fótbolta.net mótinu og í Lengjubikarnum. Andri Rúnar Bjarnason skoraði 19 af 31 marki Grindvíkinga í fyrra en liðið hefur haldið sjó í vetur þó að hann sé horfinn á braut. Gunnar Þorsteinsson og Brynjar Ásgeir Guðmundsson leikmenn Grindavík...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.