Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

HM Innkastið - Ólíkir sjálfum sér en samt ekki 22.06.2018

Eftir 2-0 tap gegn Nígeríu sneri íslenska liðið aftur í bækistöðvar sínar í Karabdinka í Rússlandi.

HM Innkastið - Sögulegur fundur í Volgograd 21.06.2018

Innkastið er að þessu sinni sent út frá Volgograd leikvangnum þar sem Ísland og Nígería mætast á morgun. Elvar Geir og Magnús Már fóru yfir það sem hefur verið að gerast í Volgograd. Hörður Snævar Jónsson var með þeim og Tómas Þór Þórðarson var á kantinum. Meðal þess sem um var rætt: Fjarvera Jóa, áhugaverðir fréttamannafundir dagsins, flugur, frestaður fjölmiðlaleikur, styttuskoðun og rýnt í leik...

HM Innkastið - Gylfi í garðinum og gamli skólinn á Instagram 20.06.2018

HM innkast dagsins var tekið upp á flugvellinum í Gelendzhik rétt fyrir flug til Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu á föstudaginn. Magnús Már Einarsson og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Hilmarssyni íþróttafréttamanni á Morgunblaðinu. Gummi kom með góðar sögur af því þegar Gylfi Þór Sigurðsson var að sparka í bolta í garðinum hjá honum á yngri árum. Gylfi og Viktor Örn, son...

HM Innkastið - Foringinn, fluguhræðsla og félagaskipti 19.06.2018

Henry Birgir Gunnarsson, eða Foringinn eins og hann er kallaður á hótelinu í Rússlandi, var með í Innkastinu að þessu sinni. Komið var víða við í skemmtilegu spjalli við Elvar og Magga. Moskítófaraldur í Stalíngrad, heimsókn frá Mið-Íslandi, rússneskar styttur, félagaskiptatíðindi af Kára og Rúnari, Rúrik á Instagram, hornspyrnur Harry Kane, umræðan í Nígeríu og rússneskt sjónvarp koma við sögu ás...

HM Innkastið - Spjallað við Tómas Þór um landsliðið og lífið í Rússlandi 17.06.2018

Hvað gerði gæfumuninn gegn Argentínu? Hvernig byrjar Ísland gegn Nígeríu án Jóa Berg? Hvað gerðu strákarnir okkar á æfingu dagsins? Verður karókí-keppni annað kvöld? Þessar spurningar og fleiri í HM-Innkastinu þar sem Tómas Þór Þórðarson var með Elvari og Magnúsi í þráðbeinni frá Rússlandi. Áttunda daginn í röð er HM-Innkastið sent út frá Rússlandi. Þátturinn tekur sér frí á morgun en mætir svo en...

HM Innkastið - Lokað á hrokafulla Argentínumenn 16.06.2018

Innkastið þennan daginn var sent út frá rútunni sem flutti íslenska fjölmiðlamenn frá Spartak vellinum eftir 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu. Einn allra besti vinur Innkastsins, Haukur Harðarson á RÚV, spjallaði við Elvar og Magga. Fyrsti leikur Íslands á HM var krufinn. Maradona og Messi...

HM Innkastið - Mállítill Messi og síðustu vangaveltur fyrir stærsta leikinn 15.06.2018

Stærsti leikur Íslandssögunnar verður á morgun þegar leikið verður gegn Argentínu í Moskvu. Innkastið að þessu sinni var tekið upp þegar stund gafst milli stríða í fréttamannaherberginu, rétt fyrir fréttamannafund Argentínu. Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, spjallað við Elvar og Magga.

HM Innkastið - Flugferð og framtíð Heimis 14.06.2018

Innkastið er útvarpsþátturinn Fótbolti.net þennan fimmtudaginn! Tómas Þór Þórðarson spjallaði við Elvar Geir Magnússon og Magnús Má Einarsson á flugvellinum í Gelendzhik áður en flogið var yfir til Moskvu. Argentínuleikurinn er handan við hornið og spen...

HM Innkastið - Svaðilför í Svartahaf og tími til að tengja 13.06.2018

Elvar Geir og Magnús Már fengu ansi góðan gest í HM Innkastið að þessu sinni. Reynsluboltinn Arnar Björnsson spjallaði við þá félaga og var víða komið við. Arnar hefur upplifað margt á löngum ferli en bjóst aldrei við því að fjalla um íslenska fótboltalandsliðið á stórmóti. Sundferðir í Svartahaf, rússneskir hermenn, líklegt byrjunarlið Argentínu, þjálfarabrottrekstur Spánar, gamlar og góðar sögur...

HM innkastið - Sturlaður ferill Hannesar og fyrstu varamenn 12.06.2018

Hörður Snævar Jónsson var gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Arnar Daða Arnarsson frá Fótbolta.net. Rætt var um ótrúlegan feril markmannsins Hannesar Þórs Halldórssonar og sögurnar í kringum hann. Skoðað var hvaða varamenn eru líklegastir til að koma fyrst inn af bekknum hjá Íslandi í mótinu og rætt var um fyrstu dagana í Rússlandi.

HM Innkastið - Pælingar við sundlaugarbakkann 11.06.2018

Haukur Harðarson er gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Elvar Geir við sundlaugarbakkann á fjölmiðlahótelinu. Umfjöllun RÚV, lífið í Rússlandi, heimsmeistaramótið framundan, svakaleg sóknarlína Argentínu, hugsanlegt byrjunarlið Íslands í fyrri leiknum, Pepsi hornið og dómaraferill Hauks koma við sögu!

HM Innkastið - Edda uppljóstrar leyndarmálum í Rússlandi 10.06.2018

2. þáttur HM-Innkastsins er sendur út beint frá Rússlandi. Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, fékk sér sæti með Elvari og Magga í stúkunni við æfingasvæði íslenska landsliðsins. Rætt var um ferðalagið til Rússlands og aðstöðu íslenska liðsins, veisluna sem er framundan á RÚV og Edda uppljóstraði leyndarmálum enda er allt látið flakka í Innkastinu.

Útvarpsþátturinn - Rýnt í alla riðla HM í Rússlandi 09.06.2018

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 9. júní. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már skoðuðu alla riðla HM í Rússlandi og spáðu fyrir um hvaða lið munu komast upp úr þeim. Riðill Íslands fékk að sjálfsögðu gott pláss í þættinum!

HM innkastið - Mismikil bjartsýni eftir Ganaleik 07.06.2018

Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana í vináttuleik á Laugardalsvelli í kvöld. Um var að ræða síðasta leik Íslands fyrir HM í Rússlandi. Eftir leikinn fóru Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Tryggvi Guðmundsson yfir málin í HM Innkastinu. Leikurinn í kvöld var skoðaður sem og HM sem er framundan.

Innkastið - Landsliðið og sturlaður fyrsti þriðjungur Pepsi-deildarinnar 05.06.2018

Innkastið er sent út frá Laugardalsvelli þessa vikuna. 7. umferð Pepsi-deildarinnar lauk í gær og deildin verður sífellt áhugaverðari.

Gísli Eyjólfs og Davíð Kristján gera upp byrjun Blika á Íslandsmótinu 02.06.2018

Pepsi-deildin fer stórskemmtilega af stað og útlit fyrir hörkuspennandi mót. Í þessari jöfnu deild er Breiðablik á toppnum eftir sex umferðir. Fótbolti.net fékk Gísla Eyjólfsson og Davíð Kristján Ólafsson, leikmenn Blika, til að fara yfir byrjunina í útvarpsþættinum. Rætt var um hvern leik fyrir sig. Báðir hafa spilað gríðarlega vel í upphafi tímabils en Gísli er vafalaust einn af allra bestu leik...

Útvarpsþátturinn - Landsliðið og komandi leikir í Pepsi 02.06.2018

Hér má nálgast fyrri helming útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. júní. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Tryggvi Guðmunds ræddu um landsliðið, leikinn gegn Noregi og skoðuðu næstu leiki Pepsi-deildarinnar. Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, gaf okkur innsýn inn í næstu daga landsliðsins og áhuga erlendra fjölmiðla á strákunum okkar. Rætt var við sænska dómarann Jonas Eriksson sem ve...

Innkastið - Síðasta Evrópu-Innkast tímabilsins 28.05.2018

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz gerðu upp Evróputímabilið í boltanum í síðasta Evrópu-Innkasti tímabilsins. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu, þjálfara- og leikmannamálin og ýmislegt fleira. Balotelli hornið, draumalið úr fall-liðunum og ég vei...

Innkastið - Heitasta sætið er á Akureyri 28.05.2018

6. umferð Pepsi-deildarinnar lýkur í kvöld með leik FH og Fylkis í Kaplakrika. Innkastið gerir upp hina fimm leiki umferðarinnar.

Inkasso-hringborðið - Rýnt í öll liðin og byrjun deildarinnar 26.05.2018

Inkasso-deildin er farin af stað og útlit fyrir skemmtilega og spennandi deild. Menn eru þó sammála um að færri gæðalið séu í deildinni en oft áður og ljóst að þau lið sem fara upp þurfa að styrkja sig verulega. Öll lið deildarinnar voru skoðuð og spáð í...

Pepsi yfirferð - Elvar, Tómas og Maggi spáðu í komandi umferð 26.05.2018

Sjötta umferð Pepsi-deildarinnar er framundan og þeir Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson skoðuðu leikina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Risaleikur í kvöld - Hanna Sím í beinni frá Kænugarði 26.05.2018

Það er glimrandi stemning í Kænugarði þar sem Real Madrid og Liverpool eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um leikinn og heyrðu í fréttaritara þáttarins í Kænugarði. Hanna Símonardóttir verður á vellinum og sagði frá stuðinu í Úkraínu.

4. deildar Innkastið - Ástríðudeildin loksins farin af stað 25.05.2018

4. deild karla, neðsta deild Íslandsmótsins, er farin á fulla ferð og í tilefni þess sendum við hér út sérstakan þátt um deildina. Það má kalla þetta upphitunarþátt þrátt fyrir að boltinn sé vissulega farinn að rúlla! Runólfur Trausti Þórhallsson er umsjónarmaður þáttarins en með honum eru Einar Guðnason og Grétar Óskarsson.

Innkastið - Lof og last eftir 5. umferð Pepsi-deildarinnar 24.05.2018

5. umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með þremur leikjum. Pakkinn þéttist enn frekar í efri hluta deildarinnar.

Pepsi yfirferð - 4. umferðin gerð upp með Grétari Sigfinni 19.05.2018

Fjórða umferð Pepsi-deildarinnar var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Grétar Sigfinnur Sigurðarson voru í hljóðverinu og var nóg að ræða. Stórleikir voru á dagskrá, dómaraskandalar og áhorfandi fékk að líta rauða spjaldið. Leikir 4. umferðarinnar: Keflavík - Fjölnir 1-2 KR - Breiðablik 1-1 Víkingur R. -Grindavík 0-1 Valur - Stjarnan 2-2 Fylkir -...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.