Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Hungur, endurkomur og óboðlegar frammistöður 31.07.2018

14. umferð Pepsi-deildarinnar er að baki og það er mikil spenna á báðum endum. Elvar Geir Magnússon og Gunnar Birgisson eru á sínum stað í íslenska Innkastinu en Arnar Daði Arnarsson fyllir skarð Magnúsar Más að þessu sinni.

Leiðin út - Oliver Sigurjónsson 30.07.2018

Leiðin út er nýtt podcast hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Oliver Sigurjónsson. Hann ræðir akademíu Breiðabliks, sjálfstraust, hvernig er best að hefja atvinnumannaferilinn, líf...

Oliver mætti í útvarpið - Blikaspjall og boltapælingar 29.07.2018

Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann spjallaði við Elvar Geir og Tómas Þór um Breiðablik, stöðu sína hjá Bodö/Glimt og pælingar sínar varðandi þjálfun. Svo eitthvað sé nefnt!

Úrvalslið umferða 1-11 í Inkasso-deild karla 28.07.2018

Fyrri helmingur Inkasso-deildarinnar var gerður upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag, umferðir 1-11. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinberuðu úrvalsliðið, besta leikmanninn og besta þjálfarann en fréttaritarar Fótbolta.net voru í dómnefndinni.

Útvarpsumræða - Landsliðsmál, Pepsi og Evrópuframmistaða 28.07.2018

Hér má nálgast upptöku af fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net sem var á X977 laugardaginn 28. júlí. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um leitina að næsta landsliðsþjálfara Íslands, skoðuðu komandi umferð í Pepsi-deildinni og ræddu um Evrópuframmistöðu íslenskra liða.

Leiðin út - Rúnar Alex Rúnarsson 23.07.2018

Leiðin út er ný hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Fyrsti gestur þáttarins er Rúnar Alex Rúnarsson. Í þættinum er meðal annars rætt um fótboltalegt uppeldi hans erlendis, aukaæfingar, hugarfar, samkeppni...

Inkasso-umræða úr útvarpsþættinum 21.07.2018

Inkasso-deildin er rétt rúmlega hálfnuð en hún var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu málin.

Pepsi-hringborð: Tómas Þór, Ingó Sig og Grétar Sigfinnur ræða málin 21.07.2018

Pepsi-deildin tók stóran hluta af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu málin og skoðuðu komandi leiki.

HM uppgjör 2018 - Sportrásin 15.07.2018

Sportrásin er á Rás 2 á sunnudagskvöldum en umsjónarmaður er Orri Freyr Rúnarsson. Í nýjasta þættinum var HM í Rússlandi gert upp en með Orra voru Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu. Rætt var um sigur Frakklands gegn Króatíu í úrslitaleiknum í Moskvu og sérstök verðlaunaafhending var sett upp fyrir mótið í heild sinni.

Elvar og Tómas ræða um Pepsi-deildina - Skortur á mörkum áhyggjuefni 14.07.2018

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Pepsi-deildina og frammistöðu íslenskra liða í Evrópukeppnum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Talað var um hversu lítið flest liðin í Pepsi-deildinni skora af mörkum. Er lágt skemmtanagildi í deildinni áhyggjuefni. Víkingar fá verðskuldað lof og rætt um möguleika Valsmanna í seinni leiknum gegn Rosenborg.

Stærstu fótboltatíðindin - Sarri og Ronaldo færa sig um set 14.07.2018

Það bárust stórtíðindi í vikunni þegar Cristiano Ronaldo yfirgaf Real Madrid og samdi við Ítalíumeistara Juventus. Í morgun tilkynnti Chelsea svo formlega um ráðningu á Maurizio Sarri sem stýrði áður Napoli. Björn Már Ólafsson er helsti sérfræðingur landsins um ítalska fótboltann og hann ræddi við Elvar og Tómas um þessar stóru fréttir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

HM hringborðið - Í beinni frá Frakklandi og Englandi 14.07.2018

Úrslitaleikur Frakklands og Króatíu á HM í Rússlandi er framundan. Elvar og Tómas hituðu upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum á X977. Davíð Snorri Jónasson, HM sérfræðingur þáttarins, er staddur í Frakklandi og sagði frá stemningunni í landinu og sinni tilfinningu fyrir leiknum. Þá var rætt um enska landsliðið og grasrótarstarfið í landinu. Árni Ingi Pjetursson vinnur fyrir Nike og hefur unnið náið...

Vængjum þöndum - Valur í Evrópu 10.07.2018

Fótbolti.net fékk sérstakt leyfi til að birta viðhafnarþátt af Podcasti Vals, Vængjum þöndum. Í þættinum er hitað upp fyrir komandi leiki Valsmanna gegn Rosenborg og möguleikarnir skoðaðir. Jón Grétar Jónsson og Þorgrímur Þráinsson, fyrrum leikmenn Vals, settust niður í hljóðveri og rifjuðu upp nokkra Evrópuleiki. Þegar Kevin Keegan spilaði með Hamburg, viðureignina við Mónakó þar sem Arsené Wenge...

Innkastið - Agabann, ljótt orðbragð og eitt sæti laust niður 09.07.2018

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræða um 12. umferð Pepsi-deildarinnar í Innkastinu. Gunnar var fyrir norðan og sá KA vinna Fjölni.

Hannes: Tankurinn tómur eftir EM en ekki núna 08.07.2018

„Þetta kom upp beint eftir þennan Argentínuleik," segir markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson en hann er genginn í raðir Qarabag í Aserbaídsjan. Hannes ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu 977 í gær, laugardag.

Uppgjör umferða 1-11 í Pepsi með Elvari og Benna 07.07.2018

Pepsi-deildin er hálfnuð og á dögunum gerði Fótbolti.net upp fyrri helminginn. Elvar Geir og Benedikt Bóas skoðuðu niðurstöðuna í útvarpsþættinum á X977.

HM hringborðið - Átta liða úrslit með Davíð Snorra 07.07.2018

Er fótboltinn að koma heim? Davíð Snorri Jónasson er HM-sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net og fór yfir leikina í 8-liða úrslitum. Hann skoðaði sigurleiki Frakka og Belga í gær og ræddi um leiki dagsins við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Davíð var einn af leikgreinendum íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi.

Innkastið - Leikurinn sem bjargaði mótinu 03.07.2018

Pepsi-útgáfan af Innkastinu er mætt aftur eftir hlé vegna þátttöku Íslands á HM í Rússlandi. Í þætti dagsins skoða Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson elleftu umferð deildarinnar. Einnig er rætt aðeins um HM í fótbolta og Inkasso-deildina.

Lífið í FH - Gummi Kristjáns og Jónatan heimsóttu útvarpsþáttinn 01.07.2018

Guðmundur Kristjánsson og Jónatan Ingi Jónsson eiga það sameiginlega að hafa gengið í raðir FH fyrir yfirstandandi tímabil. Þeir voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur kom heim eftir atvinnumennsku í Noregi en Jónatan, sem er 19 ára, lék með unglingaliðum AZ Alkmaar. Í þættinum ræddu þeir um lífið í FH og erlendis, byrjun Hafnarfjarðarliðsins, markmið, fótboltann í Noregi og...

Landsliðspælingar - Kaflaskil hjá Íslandi 01.07.2018

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net ræddu Elvar og Tómas um þau kaflaskil sem íslenska landsliðið er nú að fara að ganga í gegnum. Báðir miðverðirnir virðast á förum, rétt eins og sjálfur landsliðsþjálfarinn. Þá eru leikmenn í liðinu komnir á lokasprettinn á sínum ferli. Þá var spjallað við Hilmar Jökul í Tólfunni og hann sagði aðeins frá upplifun sinni af því að styðja Ísland á HM í fótbolta.

Rýnt í 16-liða úrslit HM með Davíð Snorra 30.06.2018

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er kominn aftur í sitt eðlilega horf þar sem Elvar Geir og Tómas Þór eru komnir heim frá Rússlandi. Í þætti dagsins voru 16-liða úrslit HM í Rússlandi skoðuð með Davíð Snorra Jónassyni. Davíð var leikgreinandi fyrir KSÍ á HM í Rússlandi og hefur séð góðan fjölda leikja.

Gunnar Jarl skoðar komandi umferð í Pepsi-deildinni 30.06.2018

Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú sérfræðingu Pepsi-markanna, er staddur á Orkumótinu í Vestmannaeyjum. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu í Gunnari í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag og fengu hann til að skoða 11. umferð Pepsi-deildarinnar. Fimm leikir verða á morgun og umferðinni lýkur svo með stórleik FH og Stjörnunnar á mánudagskvöld.

HM innkastið - Eiga heima á stærsta sviðinu (Staðfest) 27.06.2018

Þátttöku Íslands á HM í Rússlandi lauk með 2-1 tapi gegn Króatiu í Rostov við Don. HM innkastið, það síðasta frá Rússlandi, var tekið upp í rútu eftir leik en þeir Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru þar yfir málin. Hljóðgæðin eru ekki eins og best verður á kosið, enda er erfitt að losna við rútuhljóðin. Meðal efnis var: Hetjuleg frammistaða gegn Króatíu, Heimir...

HM Innkastið - Jákvæðir í Rostov við Don 25.06.2018

HM Innkastið er enn í góðum gír í Rússlandi. Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður RÚV, er gestur Innkastsins að þessu sinni. Á morgun er komið að leik gegn Króatíu en Elvar og Maggi ræddu við Einar um komandi leik og líkleg byrjunarlið liðanna. Vangaveltur um hvaða lið sé líklegast til að vinna mótið, umræða um langar rútuferðir, spurningar frá Bleikt & blátt, læti á síðustu æfingu Íslands fyrir...

HM Innkastið - Hvað gerist gegn Króötum? 24.06.2018

Íslenska landsliðið er mætt til Rostov fyrir leikinn gegn KRóatíu á þriðjudagskvöld. HM innkastið var að þessu sini tekið upp í rútunni frá flugvellinum. Arnar Daði Arnarsson og Magnús Már Einarsson voru í þætti dagsins ásamt Kolbeini Tuma Daðasyni frá Vísi.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.