Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Innkastið - Brekka eftir brekkusöng 07.08.2019
15. umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki en Innkastið fer yfir umferðina og skoðar gang mála. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru allir á sínum stað. Í þættinum eru meðal annars tilnefndir þeir fjórir leikmenn sem geta orðið besti leikmaður annars þriðjungs, Inkasso-horn og Gunni giskar.
Fantabrögð - Góð ráð fyrir Fantasy tímabilið 07.08.2019
Fantabrögð er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem farið er yfir Fantasy deildina í ensku úrvalsdeildinni. Þáttastjórnendur eru þeir Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson. Enska úrvalsdeildin hefst á föstudaginn en stefnan er sett á að vera með hlaðvarpsþáttinn reglulega í kringum tímabilið.
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham 07.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Tottenham. Tottenham hefur verið mikið í umræðunni við gluggalok og þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson fóru yfir stöðuna hjá Spurs.
Enska upphitunin - Ungviði og engin kaup hjá Chelsea 06.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Chelsea. Í þættinum komu þeir Jóhann Már Helgason og Snorri Clinton frá cfc.is í spjall.
Enska upphitunin - Breyttur leikstíll Manchester United 06.08.2019
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Í þættinum komu þeir Halldór Marteinsson og Björn Friðgeir Björnsson frá raududjoflarnir.is í spjall.
Þórir Hákonar um könnunina hjá Leikmannasamtökunum 03.08.2019
Fótboltapólitík úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson mætti í þáttinn og ræddi við Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas um könnun sem gerð var meðal leikmanna Pepsi Max-deildarinnar. Launamál, hagræðing &u...
Gluggadómar og Eyjafjör í Maxaranum 03.08.2019
Sumarglugganum var lokað núna um mánaðamótin en Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðuð þær hræringar sem urðu á leikmannamálum í Pepsi Max-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Skemmtanastjórinn Arnar Daði var einnig &...
Heimir Guðjóns í beinni frá Færeyjum 03.08.2019
Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum, var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. HB er eitt af fimm liðum sem eru í harðri toppbaráttu í færeysku Betri-deildinni og er auk þess komið í úrslitaleik bikarsins. Samningur Heimis við HB...
Inkasso-hornið - Farið yfir bæði topp- og botnbaráttuna 31.07.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna í deildinni og bæði topp og botnbaráttan skoðuð og spáð í framhaldið. Línur eru farnar að skýrast í deildinni. Fimm lið eru í baráttu um sæti í Pepsi Max-deildinni og fjögur lið í harðri...
Heimavöllurinn - Úrvalslið Inkasso og súpersystur 31.07.2019
Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir opinbera úrvalslið fyrri hluta Inkasso-deildarinnar, velja besta leikmanninn og heyra í henni hljóðið. Þá fara þær yfir helstu fréttir vikunnar og taka púlsinn á félagaskiptum rétt fyrir gluggalok. Heimavöllurinn fékk svo hjálp á samfélagsmiðlum við að velja eftirlætissystur efstu deildar undanf...
Innkastið - Samstillt átak um að KR verði meistari 29.07.2019
Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már gera upp 14. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ljóst er að KR verður meistari en í þætti dagsins er farið yfir alla leikina, rætt um slúðursögur, vandræðagang FH, slæmt gengi Breiðabliks, markasúpuna í Grindavík, Evrópukeppnina, Inkasso-hornið, Gunni giskar og fleira og fleira.
Magnús Agnar: Hroki í garð íslensku deildarinnar 27.07.2019
Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem hann ræddi aðeins um bransann og leikmannamarkaðinn á Íslandi. Hann segir að árangur íslenska landsliðsins hafi ekki haft þau áhrif á áhuga erlendra félaga á íslenskum leikmönnum sem spáð var.
Lið fólksins á flugi - Leifur og Arnar í viðtali 27.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK og markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson voru gestir þáttarins. Nýliðar HK hafa verið á flugi í Pepsi Max-deildinni og eru búnir að vinna þrjá sigra í röð.
Inkasso, ÞÞÞ og komandi umferð í Pepsi Max 27.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Inkasso-deildina og fóru yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður FH, var á línunni en hann gekk í raðir Fimleikafélagsins frá ÍA í vikunni.
Heimavöllurinn - Bikardrama og markaregn eftir markaþurrð 25.07.2019
Knattspyrnuþjálfararnir Baldvin Már Borgarsson og Steinunn Sigurjónsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála í Pepsi Max-deildinni og helstu boltafréttir nýliðinnar viku.
Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi barátta í 2. deild 24.07.2019
Keppni í 2. deild karla er æsispennandi en þegar tólf umferðir eru búnar eru einungis sex stig sem skilja að topplið Selfyssinga og Völsung í 9. sætinu. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni en þeir eiga báðir mörg tímabil að baki í deildinni. Þeir kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir hvert einasta lið í deildinni og völdu einnig lið fyrri umferð...
Innkastið - Topp táningar og volæði í FH 22.07.2019
Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunni Birgis fara yfir 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hverjir eru bestu táningarnir í deildinni? Tom valdi topp fimm! Meðal efnis í þættinum: Brynjar Björn með frábæra uppskeru, volæði hjá FH, Björn Daníel mestu vonbrigðin, formaðurinn á lyklaborðinu, allt í núlli hjá Grindavík, Big Bó skorar, Kristján Flóki á leiðinni, Glenn ömurlegur á vinstri kantinum, I...
Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall 21.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Greni...
Innkastið - Basl hjá KA og breytt staða FH 16.07.2019
9. umferðinni í Pepsi Max-deild karla lauk loksins í gærkvöldi, tæpum mánuði eftir að hún byrjaði. Liðin í Evrópukeppni spiluðu í þessari umferð fyrir tæpum mánuði en nú eru öll lið með jafnmarga leiki í deildinni. KR er áfram með þægilegt forskot á toppnum en fallbaráttan harðnar og KA er komið í fallsæti. Arnar Daði Arnarsson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson skoðuðu stöðuna í Innkastinu...
Heimavöllurinn - Inkasso og 2. deildar veisla 15.07.2019
Það er komið að því að skoða hvað hefur verið í gangi í neðri deildunum það sem af er sumri. Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins en einnig er farið yfir gang mála í 2. deild. Gestur þáttarins að þessu sinni er knattspyrnuþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson.
Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars 13.07.2019
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 13. júlí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Gestur: Óskar Hrafn Þorvaldsson. Aðrir viðmælendur: Arnar Þór Viðarsson og Daníel Geir Moritz.
Inkasso-hornið - Farið yfir fyrri umferðina og úrvalslið valið 12.07.2019
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir fyrri hluta Inkasso-deildarinnar en 11. umferðin lauk í gær. Sérfræðingarnir fara yfir stöðuna á hverju liði, ræða spútnik lið umferðarinnar, fallbaráttuna og toppbaráttuna. Í seinni hluta þáttar...
Heimavöllurinn: Lokahóf fyrri hluta Pepsi Max 11.07.2019
Nú er keppni í Pepsi Max deildinni hálfnuð og í þætti dagsins á Heimavellinum gera þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, upp fyrri hluta mótsins með gestasérfræðingnum Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur.
Innkastið - Stigamet við botninn og vonbrigðaval 08.07.2019
Nýtt Innkast eftir 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar sem var heldur betur dreifð! Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis eru allir á sínum stað. Þeir völdu meðal annars einn leikmann úr hverju liði sem kallað er eftir að skili meiru en þeir hafa gert í sumar. Vonbrigðaval. Meðal efnis: Nauðsynlegur sigur fyrir Óla Kristjáns, Víkingar fá hrós en eru í fallsæti, Blikar í brekku, HK-ingar...
Pepsi Max hringborð - Eyjafréttir, Valur á flugi og umdeildir dómar 06.07.2019
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fjölluðu ítarlega um Pepsi Max-deildina. - Daníel Geir Moritz var í beinni frá Vestmannaeyjum en það er nóg í gangi í fótboltamálunum þar. Þjálfaraskipti og leikmannabreytingar. -...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.