Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Landsliðsvalið og þeir bestu í Pepsi Max 01.09.2019

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þættinum: Í byrjun: Landsliðsval Erik Hamren fyrir komandi landsleiki gegn Moldóvu og Albaníu í undankeppni EM. 19:45 Pepsi Max-deildin. Val hlustenda á bestu leikmönnum deildarinnar. 48:20 Kristján Atli Ragnarsson ræðir um enska boltann.

Ástríðan í neðri deildunum - Lokaspretturinn í 2 og 3. deild 29.08.2019

Einungis fjórar umferðir eru eftir í sumar í 2 og 3. deild karla og spennan fer að magnast. Í 2. deildinni er baráttan hörð um sæti í Inkasso-deildinni að ári og fallbaráttan er ekki ennþá ljós. Í 3. deild eru Kórdrengir og KF komin með annan fótinn upp um deild en þessi lið mætast í stórleik um helgina. Ennþá er hart barist á botninum þar.

Heimavöllurinn: Partý í Laugardalnum og stelpurnar okkar 28.08.2019

Stútfull dagskrá í dag. Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín Þróttarana Álfhildi Rósu og Lindu Líf sem flugu upp í Pepsi Max deildina á dögunum. Knattspyrnusérfræðingurinn Daði Rafnsson spáir í landsleikina sem framundan eru og farið verður yfir allt það helsta í Pepsi Max og Inkasso deildunum.

Ástríðan í neðri deildunum - Spennandi úrslitakeppni í 4. deild 27.08.2019

Úrslitakeppnin í 4. deild karla hefst á föstudaginn þegar fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum er á dagskrá. Ótrúleg dramatík var í B-riðlinum í lok riðlakeppninar og spennan er mikil fyrir úrslitakeppnina.

Inkasso-hornið - Mikil spenna bæði á toppi og botni deildarinnar 27.08.2019

Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan...

Innkastið - Lögreglumál, sirkusdómgæsla og flöskukast 26.08.2019

18. umferð Pepsi Max-deildarinnar var ótrúlega fjörug, nóg af mörkum, umdeild atvik og dramatík. Fullmannaður þáttur í Innkastinu að þessu sinni, Elvar Geir, Tómas Þór, Gunnar Birgis og Magnús Már fóru yfir hlutina. Meðal efnis: Eitt af atvikum tímabilsins á Hlíðarenda, lögreglan kölluð til, viðsnúningur Blika í Krikanum, Gústi Gylfa og sögusagnirnar, lið færast úr fallbaráttu yfir í Evróṕub...

Innkastið - Óvænt úrslit og rýr uppskera Solskjær 26.08.2019

Evrópu-Innkastið eftir þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir og Magnús Már halda um stjórnartaumana að þessu sinni en gestur er Runólfur Trausti, stuðningsmaður Manchester United. Runólfur sagði meðal annars sína skoðun á byrjun United í deildinni. Miðað við nýliðna umferð er ekkert lið að fara að ógna Liverpool og Manchester City. Það var nóg af óvæntum úrslitum og umdeildum VAR atvi...

Framtíðarsýn yfirmanns knattspyrnumála 25.08.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Yfirmaður knattspyrnumála KSÍ í ítarlegu viðtali um framtíð íslenska boltans allt frá innköstum í 7. flokki upp í bestu leikmenn þjóðarinnar. Arnar Þór Viðarsson talaði hreint út við T&oacute...

Fantabrögð - Salah stríddi sorgmæddum sérfræðingum 25.08.2019

Mönnum var heitt í hamsi þegar þriðja umferð enska boltans var gerð upp af Fantabrögðum. Pukki heldur áfram að refsa, Salah þakkaði traustið en Kane gerði Aroni og Gylfa lífið leitt. Óvænt úrslit gerðu spilurum erfitt fyrir og aftur héldu fá lið hreinu.

Ítalski boltinn - Upphitunarþáttur tímabilsins 22.08.2019

Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítölsku A-deildina, hitar upp fyrir tímabilið í þessum sérstaka upphitunarþætti. Boltinn byrjar að rúlla á Ítalíu um helgina. Elvar Geir ræddi við Björn um það hvernig landið liggur í ítalska boltan...

Heimavöllurinn: Bikarsturlun á brúnni 21.08.2019

Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín nýkrýnda bikarmeistara, þær Önnu Maríu Friðgeirsdóttur og Þóru Jónsdóttur.

Fantabrögð - Þáttur 3 21.08.2019

Fantabrögð gerðu upp aðra umferðina í Fantasy Premier League. Fá lið héldu hreinu, Teemu Pukki gerði þrennu og Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir næstu umferð. Er of snemmt að taka Wildcard?

Innkastið - Keppst við að stimpla sig í fallbaráttu 19.08.2019

17. umferð Pepsi Max-deildarinnar er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis standa vaktina. Meðal efnis: Valsmenn kasta aftur frá sér forystu, Brynjólfur Darri vs Mikkelsen, KR kæfði Víkinga, Skagamenn sjá ekki til sólar, Smalinn í miðverðinum, svekktir Fylkismenn, Brandur Olsen á flugi, Zeba fær aftur á sig víti, Halldór Páll á trúnó, rándýrt vítaklúður og rosaleg Inkasso-...

Innkastið - Miðjumoð og varsjá í Manchester 19.08.2019

Boðið var upp á nett Manchester United þema í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni er Einar Kristinn Kárason var gestur í stofu Daníels Geirs Moritz.

Hjálparhönd, brjálæði í bikarnum og Davíð Viðars 17.08.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um undanúrslitaleikina í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og spjalla við Davíð Þór Viðarsson, fyrirliða FH. Meðal efnis: Hvað var Óli Kristjáns að meina í viðtali vikunnar? Víkingar voru í vígahug gegn Blikum, Óskar Hrafn og Heimir Guðjóns orðaðir við starfið hjá Gústa Gylfa, yfirvofandi leikbann Elfars, enga...

Inkasso-hornið - Gróttugestir og æsispennandi barátta um að fara upp 17.08.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla í samvinnu við Inkasso. Óliver Dagur Thorlacius og Arnar Þór Helgason, leikmenn Gróttu, eru gestir þáttarins. Það er æsileg spenna í baráttunni um að komast upp en aðeins fimm umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni.

Bransasögur frá Anfield - Eiður vinsæll 17.08.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rætt um Evrópuboltann og Tómas Þór Þórðarson segir frá heimsókn sinni á opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar þegar Liverpool og Norwich áttust við fyrir rúmri viku. Tómas fór á leikinn ásamt...

Heimavöllurinn: Ætlum við að dragast endalaust aftur úr? 14.08.2019

Það er veisla á Heimavellinum að þessu sinni. Hulda Mýrdal fær þau Anítu Lísu Svansdóttur og Guðmund Guðjónsson til sín og fer yfir allt það sem skiptir máli. Þau fara yfir landsliðshópinn sem var tilkynntur á dögunum, Pepsi Max deildina, Inkasso deildina, þær bestu í umferðum 7-12, leiðina á Laugardalsvöll og miklu miklu meira.

Fantabrögð - Fyrsta umferð gerð upp 13.08.2019

Enska hófst með látum á föstudaginn. Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson gerðu upp fyrstu umferðina í Fantasy en mörg stór nöfn skiluðu fullt af stigum um helgina. Hægt er að taka þátt í umræðunni með því að fylgja Fantabrögðum á samfélagsmiðlum.

Innkastið - Enski mættur aftur með hvelli 12.08.2019

Evrópu-Innkastið er mætt á nýju tímabili! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City heldur áfram að trompa Liverpool, Lampard steinlá á Old Trafford, Eriksen breytti öllu hjá Tottenham, krakkarnir fengu tækifæri hj...

Innkastið - Gufurugluð Pepsi Max-deild 11.08.2019

Fimm af sex leikjum 16. umferðar Pepsi Max-deildarinnar fóru fram í dag og voru úrslitin það áhugaverð að ekki var annað hægt en að blása samstundis í upptöku á Innkastinu. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már sátu við hljóðnemana. Meðal efnis: Erfitt að fara inn...

Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Inkasso 10.08.2019

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 10. ágúst. Elvar Geir og Benedikt Bóas sáu um þátt dagsins. Í upphafi þáttar var fjallað um Inkasso-deildina. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. Eftir það var rætt um enska boltann og félagaskiptagluggann við Daníel Geir Moritz. Að lokum var komandi umferð í Pepsi Max-deildinni skoðuð með Magnúsi Má Einarssyni.

Enska upphitunin - Manchester City getur unnið alla titlana 09.08.2019

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester City.

Enska upphitunin - Lokað á skrifstofu Liverpool 08.08.2019

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Liverpool. Sigursteinn Brynjólfsson og skólastjórinn Magnús Þór Jónsson af kop.is ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil hjá Evrópumeisturunum og fleira! Meðal umf...

Enska upphitunin - Spennandi sumargluggi hjá Arsenal 08.08.2019

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Arsenal. Sumarglugginn er að enda fjörlega hjá Arsenal og þeir Einar Guðnason og Jón Kaldal fóru yfir stöðuna hjá Skyttunum.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.