Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Fótbolti.net - Djúpar boltaumræður með Arnari og Arnari 12.12.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. desember. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir, Fyrri hlutinn: Landsliðsumræður og rætt við Helga Kolviðsson, fyrrum aðstoðarþjálfara landsliðsins. Helgi er opinn fyrir því að snúa aftur til starfa fyrir KSÍ ef krafta hans er óskað. Seinni hlutinn: Rætt um leikfræði við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings, og Arnar Hallsson, þjálfara ÍR. Spjallað var um h...

Fantabrögð - Gyllta fimman og aðrar nauðsynjavörur 10.12.2020

Vitringarnir þrír settust niður og ræddu framtíðina. Helstu lúxusleikmennirnir skiluðu allir sínu og nú sitja margir stjórarnir með höfuðverk. Stutt á milli umferða og jólatörnin á næsta leyti. Hvern er best að hafa? Og hvað með Dominic-Alveg-Búinn? Nóg af spurningum, nóg af svörum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland, Nemíu og GÓ Training.

Ítalski boltinn - Íslendingur til Napoli eftir 107 ára bið! 09.12.2020

Í þætti vikunnar snýst allt um nágrannaslagi. Torino tapar sem fyrr gegn nágrönnum sínum í Juventus og þjálfari Birkis og Hólmberts í Brescia fékk stígvélið daginn fyrir nágrannaslaginn mikla sem kenndur er við strengjahljóðfæri - Derby del violino. AC Milan he...

Innkastið - Lokkandi riðill og óvissuástand í Laugardal 08.12.2020

Fótbolti.net blæs í Innkast. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis ræddu málin. Farið var yfir riðil íslenska landsliðsins í undankeppni HM en dregið var í gær. Þýskaland, Rúmenía, Norður-Makedónía, Armenía og Liechtenstein eru í riðli Íslands. Þá var rætt um landsliðsþjálfaramálin og rennt yfir þá sem eru komnir og farnir í Pepsi Max-deild karla.

Enski boltinn - Fjögurra hesta kapphlaup um titilinn 07.12.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Son og Kane í banastuði, góð kaup hjá Spurs, Tottenham getur orðið meistari, Arteta eins og snákasö...

Landsliðsumræða - Trúnaðarbrestur og þjálfaraleit 05.12.2020

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um landsliðsþjálfaramálin og stóru fréttirnar af því að Jón Þór Hauksson hafi farið yfir strikið í ummælum sínum við leikmen...

Enska hringborðið - Úrvalsliðið og ruslflokkurinn 05.12.2020

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Fyrsta fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætir í hljóðverið. Hann ræðir við Elvar og T&o...

Heimavöllurinn: VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL ENGLANDS! 02.12.2020

Ísland er komið á EM! Það var ljóst í gærkvöldi að landsliðið okkar bjargaði fótboltaárinu 2020 með því að tryggja sér sæti beint á Evrópumótið á Englandi 2022. Það voru því kallaðir út sérfræðingar til að fara yfir málið en þær Aníta Lísa yfirþjálfari hjá KR og Bára Kristbjörg þjálfari Augnabliks mættu á Heimavöllinn.

Fantabrögð - Man City mættir aftur 01.12.2020

Manchester City tóku Burnley 5-0 á heimavelli, í fjórða skiptið í röð. Þau sem tóku sénsinn á Mahrez uppskáru ríkulega í Fantasy Premier League en 2 þáttastjórnendur settu bandið hins vegar á De Bryune sem gekk sömuleiðis vel. Ollie Watkins sá til þess að Ollie-hornið var ríkulegt að þessu sinni, en það er búið að fresta næsta leik hjá honum vegna hópsmits hjá Newcastle. Hvaða leikmann hræðistu me...

Enski boltinn - Mögnuð innkoma Cavani og reiður Klopp 30.11.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Jóhann Skúli Jónsson, þáttastjórnandi í hlaðvarpinu Draumaliðið, fóru yfir umferðina. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Markaskorarinn Cavani, þreytt að ræða Pogba, miklar breytingar Solskj...

Maradona í faðmi ljónsins 28.11.2020

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Orri Páll Ormarsson blaðamaður og rithöfundur mætti í þáttinn. Rætt var um goðsögnina Diego Maradona sem lést á dögunum. Maradona er einn besti, ef ekki besti, fótboltamaður allra tíma og var ótrúlegur karakter. Þá er einnig rætt um áhuga Íslendinga á enska boltanum. Orri skrifaði ástarsögu um þjóðaríþrótt Íslendinga, Í faðmi lj...

Þorvaldur Örlygs ræðir um stöðu íslenska boltans 28.11.2020

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða við Þorvald Örlygsson um stöðu íslenska boltans og um framtíðarpælingar. Þorvaldur lét nýlega af störfum hjá KS&Ia...

Ítalski boltinn - Táraflóð í Napolí og Inter berst við gamla djöfla 27.11.2020

Eftir vel heppnað landsleikjahlé ítölsku liðanna er deildin farin aftur af stað. Stuðningsmenn Napolí kveðja hetjuna sína sem féll frá í vikunni og Antonio Conte hefur ekki tekist að særa út úr Inter liðinu gamla djöfla. Í höfuðborginni standa yfir upptökur á þriðju Airplane! grínmyndinni en í þetta sinn tekur Claudio Lotito forseti liðsins við hlutverki Leslie Nielsens . Ítalski boltinn er hlaðva...

Ungstirnin - 2000 úrvalslið og Blikar koma í heimsókn 27.11.2020

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum níunda þætti er fjallað um Yusuf Demir (Rapid Vienna), Marash Kumbulla (Roma) og Yunus Musah (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2000. Davíð I...

Miðjan - Siggi Bond var neyddur til að ræna apótek í Amsterdam 26.11.2020

Sigurður Gísli Snorrason varð Íslandsmeistari með FH árið 2015 en lífernið fór illa með hann. Fimm árum síðar fann hann botn í lífinu þegar hann mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam og var handtekinn. Hann sneri lífinu við, tók sig á og átti gott tímabil með Þrótti í Vogum í sumar og stefnir hátt í fótboltanum að nýju. Siggi Bond segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Hvaðan kemur g...

Fantabrögð - Lognið á undan storminum næstu helgi 24.11.2020

Það var fullur bátur af föntum í þættinum í dag. Hlutirnir virðast loks vera að færast í eðlilegt horf. Fantasy-guðirnir sýndu spilurum vægð þegar þeir leyfðu Bruno að skora. Liverpool hélt hreinu. Dominic Calwert-Lewin skoraði. Kane lagði upp. Chris Wood svaraði kal...

Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor 23.11.2020

Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net. Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis...

Útvarpsþátturinn - Arnar Viðars, Sindri Kristinn og enski 21.11.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða ítarlega við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara U21 árs landsliðsins og yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Rætt er um frábæran árangur U21 land...

Fantabrögð - Kaup og Salah 19.11.2020

Fantasy liðin okkar halda áfram að verða fyrir áföllum í landsleikjahléum. Stærstu fréttirnar eru þær að Mohamed Salah sýktist af kórónaveirunni en spurningin er hvort hann verður frá í einn leik eða lengur. Ef maður selur hann, hvern á maður að kaupa í sta...

Heimavöllurinn - Íslandsmeistari best í 2. deild og ungfrú Hveragerði skuldar tattú 19.11.2020

2. deildin á hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. HK-ingarnir Karen Sturludóttir og Lára Hallgrímsdóttir fara yfir sumarið en HK leikur í Lengjudeildinni að ári. Þá kemur Dagný Rún Gísladóttir, konan sem átti stóran þátt í að stofna nýjan meistaraflokks Hamars, í heimsókn og segir frá ævintýrinu í Hveragerði.

Innkastið - Íslenska blandan breytist en margt jákvætt í kortunum 18.11.2020

Innkastið eftir tap Íslands gegn Englendingum á Wembley. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Magnús Már Einarsson fara yfir sviðið og ræða landsliðsmálin. Meðal umræðuefna: Frammistaðan gegn Englandi og einkunnir, Hamren og fleiri kveðja, hver verður næsti landsliðsþjálfari?, staða enska landsliðsins, U21 landsliðið á EM. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og...

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti hjá Íslandi og Pepsi Max tíðindi 14.11.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Örvar Arnarsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á línunni en hann var í Búdapest á fimmtudaginn þegar Ísland tapaði úrslitaleiknum gegn Ungverjalandi. Sigu...

Innkastið - Ólýsanlegt svekkelsi en hvað gerist næst? 12.11.2020

Landsleikurinn gegn Ungverjum er gerður upp í boði White Fox, Viking og Domino's. Íslandi tókst ekki að koma sér á þriðja stórmótið í röð. Hrikalega svekkjandi tapleikur í Búdapest þar sem Ísland var yfir þar til á 88. mínútu. Hvað fór úrskeiðis og hvað tekur við? Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir leikinn í .Net hljóðverinu.

Ungstirnin - Mikilvægt verkefni U21 og Luigi gestur 11.11.2020

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum áttunda þætti er fjallað um Becir Omeragic (FC Zurich), Leonidas Stergiou (St. Gallen) og Florian Wirtz (Bayer Leverkusen). Rætt er um mikilvæga leiki U21-landsliðsins sem spilar gegn Ítalíu...

Ítalski boltinn - Kvensjúkdómalæknirinn Lotito og lið umferða 1-7 10.11.2020

AC Milan trónir á toppnum þegar sjö umferðir eru liðnar af Serie-A. Lazio heldur áfram að safna stigum í uppbótartíma en utan vallar er liðið í vandræðum enda starfsmenn félagsins sakaðir um að svindla á Covid prófum. Eða hvað? Veit forseti liðsins betur en við öll hvernig veiran dreifir sér? Fiorentina nýtir landsleikjahléið til að ráða nýjan þjálfara sem þekkir Flórens betur en flestir og fyrstu...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.