Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Heimavöllurinn - Markahæsti markvörðurinn kælir hanskana og 101 eignast fótboltalið 19.01.2021

Þær fréttir bárust á dögunum að markvörðurinn öflugi, Sonný Lára Þráinsdóttir, ætlaði sér ekki að leika áfram með Breiðablik þar sem hún hefur átt magnaðan tíma síðustu ár. Sonný Lára mætir í spjall til Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur og fer yfir málin. Þá koma einnig KM-leikmennirnir Júlía Óladóttir og Hrund Steinarsdóttir í spjall en KM stendur fyrir Knattspyrnufélag Miðbæjar og liðið ætlar...

Enski boltinn - Liverpool getur ekki skorað 18.01.2021

Erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Rikki G, lýsandi á Stöð 2 sport, og Hrafn Kristjánsson, körfuboltaþjálfari og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir leiki helgarinnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.

Útvarpsþátturinn - Stórleikurinn, Rooney og íslenski 16.01.2021

Útvarpsþátturinn 16. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins: Rætt um feril Wayne Rooney og fjallað um íslenska boltann. Rætt var við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, og Orra Frey Hjaltalín, nýjan þjálfara Þ...

Fantabrögð - Allt í skrúfunni fyrir tvöfalda umferð 15.01.2021

Umferð 18 er að baki í Fantasy Premier League og við tekur umferð 19. Margir notuðu Free Hit í 18 umferð enda lítið af leikjum og nú er spurning hvort það taki því að nota Bench Boost eða Triple Captain í þeirri 19. Fer leikur Leeds og Southampton fram eða ekki? Á maður að þ...

Enski boltinn - Tekist á fyrir stórleik ársins 14.01.2021

Liverpool og Manchester United mætast í toppslag í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á sunnudaginn. Hörður Magnússon og Magnús Gylfason fylgjast með hverju sparki hjá sínum liðum og þeir mættu í spjall í dag þar sem hitað var upp fyrir leik helgarinnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Stórleikurinn á sunnudag, dauðafæri fyrir Manchester Un...

Ítalski boltinn - Róm - höfuðborg alheimsins 14.01.2021

Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð síðustu umferð þar sem Juventus marði sigur á spræku Sassuolo-liði og Inter og Roma gerðu jafntefli í toppslag umferðarinnar. Framundan er stór helgi í ítalska boltanum. Lazio og Roma eigast við í hörðum nágrannaslag og Ju...

Ungstirnin - Heimsókn úr Breiðholti og íslensk ungstirni seld út 13.01.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum tólfta þætti er fjallað um Ilaix Moriba (Barcelona), Pierre Dwomoh (Genk) og Benoit Badashile (Mónakó) Rætt var um félagaskipti ungra íslenskra leikmanna en Finnur Tómas, Karólína Lea og Sve...

Útvarpsþátturinn - Óli Kristjáns, Emil og enski 09.01.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar og tóku svo upp símann og ræddu við góða viðmælendur. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Esbjerg, ræddi um lífið í Danmörku og það góða skrið sem hans lið hefur verið á en það trónir á toppi B-deildarinnar. Emil Pálsson ræddi um sín mál en hann ætlar að takast á við nýja áskorun á sínum ferli...

Ítalski boltinn - Toppliðin tapa stigum, Juve hrekkur í gang og nýr bad boy tekur við af Balotelli 08.01.2021

Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð vikunnar þar sem Juventus vann toppslaginn gegn AC Milan sem tapar sínum fyrsta leik síðan í mars. Inter og Napoli tapa óvænt stigum og ungstirnið Nicolo Zaniolo er með hjálp móður sinnar að taka við af Balotelli sem óþekki strák...

Fantabrögð - Free Hiti í mönnum 05.01.2021

Fyrsti þáttur Fantabragða á árinu 2021 var heldur betur viðburðaríkur. Aron og Gunni mættu í stúdíóið og fóru yfir umferð 17 auk þess að spá í spilin fyrir umferðir 18 og 19 sem liggja saman og krefjast nokkurrar íhugunar, enda liðin með mismarga leiki. Meða...

Enski boltinn - Manchester liðin í stuði 04.01.2021

Það hefur verið líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í dag. Hlynur Valsson og Gunnar Ormslev, lýsendur á Síminn Sport, voru gestir þáttarins að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Kórónuveiran truflaði ekki Manchester City, náðugt í fyrst...

Útvarpsþátturinn - Man Utd upp að hlið Liverpool og Alex til Svíþjóðar 02.01.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þætti dagsins var rætt við Tryggva Pál Tryggvason fréttamann og sérfræðing um Manchester United um enska boltann en United er komið upp að hlið Liverpool á toppi deildarinnar. Einnig var Alex Þór Hauksson í viðtali en hann er að yfirgefa Stjörnuna og halda til Svíþjóðar. Þá var rætt við Gunnar Einarsson...

Áramótabomba Heimavallarins - Glerþök mölvuð 31.12.2020

Árinu 2020 er að ljúka og Heimavöllurinn hendir í áramótauppgjörsþátt af því tilefni. Gestir: Sveindís Jane, Ingibjörg Sigurðardóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir. Hápunkti ársins var náð á þriðjudagskvöldið þegar íslenskar knattspyrnukonur komu, sáu og sigruðu í kjöri á íþróttamanni, þjálfara og liði ársins. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta og heyrir í mögnuðum gestum. Nýjasta atvinnukonan ok...

Fantabrögð - Árið kvatt á viðeigandi hátt 31.12.2020

Hlustendur eru reiðir. Þessi umferð var ömurleg og það er ekkert um það annað að segja. Aron var lítill í sér heima en GT geitin og Sá besti reyndu að binda um sár hvor annars og hugga hlustendur. Við Fantar viljum nýta tækifærið og þakka fyrir árið sem er að l&iacu...

Ungstirnin - Jón Dagur og Alfons takast á 28.12.2020

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum ellefta þætti er fjallað um Charles De Ketelaere (Club Brugge), Amad Diallo (Man United) og Rayan Cherki (Lyon) Drengirnir búa báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2002. Jón...

Enski boltinn - Langþráður Arsenal sigur og frábær Bruno 28.12.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar umferðir í ensku úrvalsdeildinni.

Útvarpsþátturinn - Áramótakæfan 2020 26.12.2020

Hátíðarútgáfa útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977, síðasti þátturinn á árinu 2020! Elvar Geir, Tómas Þór, Benedikt Bóas og Magnús Már gera upp fótboltaárið 2020 á léttu nótunum og veita verðlaun í ýmsum misgáfulegum flokkum. Rætt er við Gary Martin, Sóla Hólm og Patrik Gunnarsson og gleðin að vopni.

Fantabrögð - Sá besti á bekknum 22.12.2020

Það var tilfinningarússíbani hjá Fantasy þjálfurum þessa helgi þegar Mohamed Salah byrjaði á bekknum hjá Liverpool. Margir voru farnir að horfa uppá að þurfa að treysta á varafyrirliðann, en Salah kom inná og skilaði 16 stigum, eins og GT geitin hafði spáð. Fantabrögð ákváðu að leika þetta eftir og Sá besti - Gunnar Björn Ólafsson var því hvíldur á bekknum í þessum þætti. Aron ofhugsaði fyrirliðav...

Enski boltinn - Kampakátir Liverpool menn á toppnum 21.12.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar umferðir í ensku úrvalsdeildinni.

Útvarpsþátturinn - Jólaþáttur: Ari Freyr og Heimir Guðjóns 19.12.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 19. desember. Síðasti þáttur fyrir jól. Í fyrri hlutanum ræða Elvar Geir og Tómas Þór um fótboltann í Katar, íslenskar fréttir og hringja í Ara Frey Skúlason landsliðsmann. Meðal annars er rætt um framtíðina hjá honum, tilfinningarnar á Wembley og Lagerback. Í seinni hlutanum er ítarlegt og áhugavert spjall við Heimi Guðjónsson, þjálfara Íslandsmeistara Vals. Rætt er...

Enski boltinn - Taktík Tottenham og nakti keisarinn 17.12.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar umferðir í ensku úrvalsdeildinni. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Totttenham og Vignir Már Eiðsson, stuðningsmaður Arsenal, kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir leiki vikunnar. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Ítalski boltinn - Paolo Rossi kvaddur og leikmenn þvingaðir í æfingabúðir 17.12.2020

Paolo Rossi er fallinn frá og því er farið ítarlega yfir hans feril í þessum áttunda þætti ítalska boltans. Íslendingarnir eru farnir að láta til sín taka á nýjan leik eftir erfiðar vikur, félög eru farin að loka leikmennina sína inni á æfingasv&aelig...

Enski boltinn - Gylfi í stuði og toppbaráttan harðnar 14.12.2020

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og stuðningsmaður Manchester United, fóru yfir leiki helgarinnar að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Ungstirnin - Ísak Bergmann er gestur 14.12.2020

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum tíunda þætti er fjallað um Karim Adeyemi (RB Salzburg), Nuno Mendes (Sporting) og Kang-in Lee (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2001. Hinn s...

Fantabrögð - Vardy party 14.12.2020

Dominic er aaalveg að verða búinn. Það eru nýir svipustrákar í bænum. Styttist í jólatörnina og áfram höldum við að undirbúa okkar lið fyrir hana. Við myndum bæta við að Son og Kane hafi haldið áfram að leggja upp mark hvor á annan en það er ekki l...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.