Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2922 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Oct 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Óli veit og leigubílasögum fjölgar 18.09.2017

20. umferð Pepsi-deildarinnar fór að mestu fram í gær. Þar bar helst til tíðinda að Valur stóð uppi sem Íslandsmeistari þegar tvær umferðir eru eftir. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu saman í Innkastinu.

Íslenskt hringborð - Pepsi, Eiður og ungir leikmenn með Arnari Grétars 16.09.2017

Arnar Grétarsson var gestur við hringborðið á X977 og ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um íslenska fótboltann. Pepsi-deild karla, Eiður Smári Guðjohnsen og ungir leikmenn voru meðal umræðuefna.

Hnitmiðuð yfirferð yfir neðri deildirnar 16.09.2017

Hvaða lið hafa náð að klifra upp um deild og hvaða lið færast neðar? Magnús Már Einarsson skoðaði neðri deildirnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Magnús.

Innkastið - Rauða spjaldið sem klauf heiminn 11.09.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Riðlakeppni Meistaradeildarinnar fer af stað á morgun og var sú keppni auðvitað einnig í sviðsljósinu.

Innkastið - Þjálfaraslúður og pirraðir stuðningsmenn 11.09.2017

18. umferðin í Pepsi-deildinni fór fram um helgina og er nóg að ræða eftir hana. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir málin í Innkastinu.

Einkunnir leikmanna Íslands í undankeppni HM 10.09.2017

Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson gerðu upp liðna landsliðstörn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir fóru meðal annars yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands nú þegar riðlakeppnin í undankeppni HM er hálfnuð.

Bestur í 16. umferð: Mitt langbesta tímabil 09.09.2017

Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur átt frábært sumar með Valsmönnum. Hann vann sér inn byrjunarliðssæti fyrir tímabilið og hefur leikið gríðarlega vel. Einar, sem er fæddur 1993, skoraði bæði mörk Valsmanna í 2-0 sigri gegn Grindavík þann 21. ágúst og hefur verið valinn leikmaður 16. umferðar. Einar var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Stórsigur Man City á Liverpool gerður upp af Kristjáni Atla 09.09.2017

Manchester City vann 5-0 sigur gegn Liverpool í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar eftir landsleikjahlé. Leroy Sane og Gabriel Jesus skoruðu báðir tvívegis og Sergio Aguero skoraði eitt. Stóra málið í leiknum var þó rauða spjaldið sem Sadio Mane í liði Liverpool fékk.

Hitað upp fyrir Pepsi-umferðina með Jörundi Áka 09.09.2017

18. umferð Pepsi-deildar karla fer fram um helgina. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Jörund Áka Sveinsson um leikina framundan. Einnig var rætt um goðsögnina Marco van Basten sem sat við hlið Jörundar á landsleik Íslands og Úkraínu.

Innkastið - Ofdekraðir af geggjuðu landsliði 05.09.2017

Allt er galopið í riðli Íslands eftir sigurinn frábæra gegn Úkraína. Tryggvi Guðmundsson var heillaður af frammistöðu íslenska liðsins í seinni hálfleiknum. Tryggvi fór yfir leikinn með Elvari Geir Magnússyni og Daníel Moritz í kjallara Laugardalsvallar.

Gluggayfirferð með Tómasi og Kristjáni Atla 03.09.2017

Sumarglugganum var skellt í lás í liðinni viku. Háum fjárhæðum var eytt í leikmenn og nóg af hræringum á lokadegi gluggans Tómas Þór Þórðarson og Kristján Atli Ragnarsson gerðu gluggann upp og fóru yfir helstu fréttir gluggadagsins í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Hitað upp fyrir landsleikinn með Kristjáni Guðmunds 02.09.2017

Klukkan 16 hefst leikur Finnlands og Íslands í undankeppni HM en leikið er í Tampere. Tómas Þór Þórðarson og Kristján Guðmundsson hituðu upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hlustaðu á upphitunina í spilaranum hér að ofan.

Innkastið - Miður sín vegna Arsenal 28.08.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Daníel er stuðningsmaður Arsenal og var lítill í sér í þætti dagsins. Elvar lagði sitt mat á leikmannahópi Arsenal.

Innkastið - Glaðir Valsarar og fáránleg hegðun þjálfara 28.08.2017

17. umferðin í Pepsi-deildinni fór fram í gær og þar var líf og fjör. Elvar Geir Magnússon, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir málin í Innkastinu.

Landsliðsumræða úr útvarpsþættinum 27.08.2017

Á föstudag var landsliðshópur Íslands sem mætir Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM opinberaður. Leikurinn gegn Finnum fer fram í Tampere laugardaginn 2. september og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en leikurinn gegn Úkraínu verður á Laugardalsvelli þriðjudaginn 5. september kl. 18:45. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um landsliðsvalið og leikinn gegn Finnum í útvarpsþættinum...

Enska hringborðið - Gylfi, Coutinho og Liverpool 26.08.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Kristján Atla Ragnarsson á kop.is við enska hringborðið. Aðaláherslan var á umræðu um Liverpool. Coutinho, Meistaradeildin og komandi leikur við Arsenal koma við sögu. Einnig var rætt um Gylfa og ýmislegt annað.

Pepsi-yfirferð - Heil umferð leikin á morgun 26.08.2017

Heil umferð verður leikin í Pepsi-deild karla á morgun. Þar á meðal er stórleikur Stjörnunnar og FH. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Hörð Snævar Jónsson á 433.is um komandi leiki.

Innlit í Inkasso - Bara Keflavík og Fylkir eiga erindi upp 26.08.2017

Rætt var um Inkasso-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Magnús Má Einarsson. Fallbaráttunni er lokið en það er enn spenna í toppbaráttunni. Keflavík og Fylkir eru einu liðin...

Innkastið - Gamanferð og rauður her í Meistaradeildinni 23.08.2017

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Þátturinn þessa vikuna var tekinn upp strax eftir að Liverpool hafði tryggt sér Meistaradeildarsæti með því að leggja Hoffenheim. Elvar sagði frá ferð sinni með Gaman Ferðum á Tottenham - Chelsea og Man City - Everton.

Innkastið - Fellur lið með metfjölda stiga? 23.08.2017

Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir 16. umferð Pepsi-deildarinnar í Innkastinu í dag

Ítalski boltinn - Upphitunarþáttur 19.08.2017

Í þessum upphitunarþætti beint frá Flórens á Ítalíu verður farið yfir breytingarnar á liðunum í ítölsku deildinni sem hefst nú um helgina. Bonucci fór frá Juventus til AC Milan, Napoli er með óbreytt lið og brunaútsala virðist vera hjá Fiorentina....

Pepsi-yfirferð - Fólkið í landinu valdi þá bestu 19.08.2017

Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson tóku góða yfirferð um Pepsi-deildina á X977. Farið var yfir val fólksins í stúkunni á bestu leikmönnum deildarinnar og einnig rýnt í komandi leiki.

Enska hringborðið - Everton og Gylfi í brennidepli 19.08.2017

Kaup Everton á Gylfa Sigurðssyni voru að sjálfsögðu fyrirferðamikil í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson voru í gasklefanum. Magnús Már Einarsson var í Liverpool þegar gengið var frá kaupunum og sagði frá heimsókn sinni þangað og spjalli sínu við Gylfa og enska sérfræðinga. Blaðamaðurinn Magnús Geir Eyjólfsson var einnig á línunni alla leið frá Ge...

Innkastið - Blásið til leiks í skemmtilegustu deild heims 15.08.2017

Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir sumarfrí. Vikulega á tímabilinu munu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir það helsta í Evrópufótboltanum. Sérstök áhersla er á enska boltann og Meistaradeildina. Reglulega koma góðir gestir til þeirra en í fyrsta þættinum voru þeir tveir að fara yfir málin. Þátturinn var tekinn upp strax eftir 2-1 sigur Liverpool gegn Hoffenheim í umspili fyrir Mei...

Innkastið - Óverðskuldað dómaradrull, Eyjastuð og falldraugur yfir Kópavogi 15.08.2017

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræða um íslenska fótboltann í Innkastinu. Óvæntur sigur ÍBV í bikarnum, fjórir leikir í Pepsi-deildinni og Evrópuverkefni FH eru til umræðu.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.