Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Helstu fótboltamálin rædd með Helga Sig 01.07.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu Helga Sigurðsson, þjálfara Fylkis, í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu. Rætt var um Fylkismenn og allar helstu fótboltamál vikunnar í íslenska boltanum. Meðal annars var rætt um það hvernig Íslandsmeistarar FH hafa verið að spila í sumar, hugsanlega komu Sölva Geirs Ottesen til FH, Evrópuframmistöðu íslensku liðanna, hrikalegan júnímán...

4. deildar Innkastið - Runólfur og Maggi Bö skoða Passion League 30.06.2017

Það er komið að þriðja þætti af 4. deildar Innkastinu en að þessu sinni er Ingólfur Sigurðsson fjarri góðu gamni. Runólfur Trausti og Magnús Valur Böðvarsson, sem hefur verið helsti sérfræðingur um neðstu deild í mörg ár, ræða málin. Að sjálfsögðu er Afríka í brennidepli en liðið hefur verið mikið í fréttunum í vikunni eftir að það neitaði að spila leik gegn KFR vegna þess dómara sem KSÍ setti á l...

Innkastið - Guðni Bergs í ítarlegu viðtali 30.06.2017

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, er gestur í Innkastinu á Fótbolta.net í dag. Guðni var kjörinn formaður KSÍ í febrúar og í Innkastinu ræðir hann fyrstu mánuðina í starfi.

Innkastið - Rifist um framherjamál Vals 27.06.2017

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu um 9. umferð deildarinnar. Einnig ræddu þeir um 8-lið úrslit bikarsins.

Hreiðar Haralds: Andleg nálgun ætti að vera fastur liður í ferlinu 26.06.2017

Íþróttasálfræðiráðgjafinn Hreiðar Haraldsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardaginn. Hreiðar ræddi þar við Elvar Geir Magnússon um andlega þáttinn í fótboltanum og hvort félög á Íslandi hugsi nægilega mikið um hann varðandi leikmenn sína.

EM kvenna hringborð - Íslenski hópurinn og stórmótið framundan 26.06.2017

Þann 14. júlí heldur íslenska kvennalandsliðið til Hollands á Evrópumótið í Hollandi þar sem fyrsti leikurinn verður gegn stórliði Frakklands þann 18. júlí. Arnar Daði Arnarsson, fréttaritari Fótbolta.net og sérfræðingur um kvennaboltann, ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon um mótið framundan og íslenska hópinn sem valinn var á dögunum.

Freysi skoðar leikina í 9. umferð Pepsi-deildarinnar 24.06.2017

Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins fór yfir leiki 9. umferðar Pepsi-deildar karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Elvar Geir Magnússon ræddi við hann, örstutt um kvennalandsliðið, og svo var komið að því að fara yfir leikina framundan í Pepsi-deildinni.

Innkastið - Stórveldi í djúpri lægð á meðan aðrir koma á óvart 20.06.2017

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Magnús Már Einarsson er í sumarfríi en Elvar Geir Magnússon fékk til sín tvo góða menn til að fara yfir 8. umferðina. Ingólfur Sigurðsson og Daníel Geir Moritz tóku upp hnífinn til að kryfja leikina. Einnig er fjallað aðeins um Inkasso-deildina og brottrekstur Ásmundar Arnarssonar.

Pepsi-hringborðið - Vegleg upphitun fyrir 8. umferðina 17.06.2017

Rætt var ítarlega um komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Farið var yfir alla leikina og ýmsum spurningum velt fram. Getur Fjölnir fallið? Hverjar eru líkurnar á því að Valur verði meistari? Er rétta lausnin að reka Willum? og fleiri spurningar flugu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um allt það helsta. Einnig var I...

Kristján Guðmunds um ÍBV og Álfukeppnina 17.06.2017

Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, ræddi við Elvar og Tómas í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Rætt var um byrjun ÍBV á mótinu, síðasta leik gegn KR, lífið í Vestmannaeyjum og komandi leik gegn Grindavík. Þá var einnig rætt um Álfukeppnina í fótbolta sem mun lífga upp á boltaumræðuna næstu daga. Kristján er mikill aðdáandi Álfukeppninnar.

Elvar og Tómas ræða um Ronaldo, Færeyjar og landsliðið 17.06.2017

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru mættir aftur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Fyrsti hluti þáttarins fór í að ræða um helstu mál fótboltans. Cristiano Ronaldo vill yfirgefa Spán, sagt er frá Færeyjarferð útvarpsþáttarins og loks rætt um íslenska landsliðið. Opinberað er hvaða leikmenn eru hæstir í einkunnagjöf Íslands í riðlinum.

Viðar: Menn í kringum liðið segja mér að ég eigi að kæra þá 13.06.2017

Viðar Örn Kjartansson endaði sem markakóngur í Ísrael á fyrsta tímabili sínu þar en hann skoraði 24 mörk með Maccabi Tel Aviv. Viðar var gestur í útvarpsþætti Fóbolta.net um helgina þar sem hann ræddi tímabilið í Ísrael.

Innkastið - 65% líkur á sæti á HM 11.06.2017

Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi riðilsins með 1-0 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið undir lokin eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, og Magnús Már Einarsson settust niður á Laugardalsvelli eftir leik og fóru yfir leikinn. Í þættinum.... Frábær varnarleikur Íslands, öxlin hans Harðar, l...

Einar Örn og Sigurbjörn Hreiðars rýna í leik Íslands og Króatíu 09.06.2017

Ísland og Króatía mætast í toppslag í I-riðli í undankeppni HM á Laugardalsvelli á sunnudagskvöld klukkan 18:45.

Viðar Örn: Þessi umræða truflaði mig 08.06.2017

Viðar Örn Kjartansson, framherji Maccabi Tel Aviv, er ekki í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu á sunnudaginn. Viðar byrjaði gegn Kósóvó í mars en hann var síðan ekki valinn í hópinn fyrir stórleikinn á sunnudaginn.

Grindvíkingar í spjalli - „Fuck you Tómas" uppi á vegg í klefanum 07.06.2017

Grindavík er heitasta liðið í Pepsi-deildinni í dag en nýliðarnir eru jafnir og Stjörnunni og Val á toppnum. Andri Rúnar Bjarnason og Gunnar Þorsteinsson, leikmenn liðsins, kíktu í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net um helgina.

Innkastið - KR þarf að skipta um taktík 06.06.2017

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar.

Landsliðshópurinn gegn Króatíu til umræðu 06.06.2017

Á föstudaginn tilkynnti Heimir Hallgrímsson landsliðshópinn sem mætir Króatíu í stórleik á Laugardalsvelli næstkomandi sunnudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um hópinn í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn. Fjarvera Theódórs Elmars Bjarnasonar og Viðars Arnar Kjartanssonar var meðal annars til umræðu.

Pepsi-hringborðið - Hitað upp fyrir 6. umferð með Grétari 04.06.2017

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi-deildar karla i útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.

Innkastið - Stig sem litlu breytir og Grindavíkurgleði 29.05.2017

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum.

Davíð Kristján: Fékk að heyra það eftir Cheerios-auglýsinguna 28.05.2017

Davíð Kristján Ólafsson, leikmaður Breiðabliks, var í viðtali sem tók óvænta stefnu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu.

Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 5. umferðina 27.05.2017

Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Grétar um helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.

Inkasso-yfirferð: Fjörug byrjun á deildinni 27.05.2017

Inkasso-deildin, 1. deild karla, fer ákaflega skemmtilega af stað en fjórða umferðin er í fullum gangi.

Innkastið - Lokahóf ensku deildarinnar 25.05.2017

Það er komið að Evrópu-Innkastinu en í þessum þætti er rætt um sigur Manchester United í Evrópudeildinni og enska úrvalsdeildin gerð upp. Farið er lauslega yfir tímabil allra liða í deildinni.

Innkastið - Samsæriskenningar og meistarar að elta 23.05.2017

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.