Margrét Pála og Móey Pála
Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynna...
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Margrét Pála og Móey Pála
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 29, 2023
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Bræður og systur 07.02.2021 39:07
Adeline Brynja kom beint úr fyrsta ungbarnasundtímanum í hlaðvarpsupptöku ásamt móðurbróður sínum og mömmu. Í þessum þætti spjalla systkinin Agnar og Móey Pála um þeirra systkinasamband og hvernig það er að eiga sjö önnur systkini. Þau tala um ferðalög, afbrýðissemi, kröfur, ábyrgð, leikfélaga, rifrildi og hvernig nýta má yngri systkini til ýmissa verka, eins og t.d. að gilla bak eða fá gistifélag...
Systkini rífast og hvað svo? 31.01.2021 50:13
Systkinaerjur má sennilega finna á langflestum heimilum og halda ömmgurnar áfram að kryfja þau mál. Þær spurðu fylgjendur á samfélagsmiðlum hvernig málum væri háttað hjá þeim og fengu frábærar viðtökur. Niðurstöðurnar komu ekki á óvart; langflest systkini rífast. Þær ræddu þá hvernig er hægt að bregðast við og hjálpa börnum sem lenda í þessum vanda. Þær mæla með nokkrum ráðum sem geta komið í veg...
Systkinaátök og morðtilræði 24.01.2021 39:41
Adeline Brynja lék sér á gólfinu þegar Móey Pála og Magga Pála spjalla í þætti vikunnar. Þær ræddu nýjustu fréttir af Adeline Brynju, sem er orðin 5 mánaða. Hún er vön úrvalsþjónustu enda mikið af fólki sem vill halda á henni og leika við hana. Hún er athugul og forvitin um umhverfið sitt og heldur áfram að æfa sig að borða graut. Í nýjustu skoðun kom í ljós að hún ,,fylgir kúrfu” en Móey passar s...
Áföll sem kenna og hvað skiptir máli 17.01.2021 32:55
Móey Pála og Magga Pála halda sér í dýptinni í þessum þætti. Þær ræða það sem raunverulega skiptir máli í lífinu og hvernig harkalegar áminningar móður náttúru og lífsins sjálfs geta hjálpað okkur að setja hlutina í samhengi. Móey Pála deilir átakanlegri reynslu með hlustendum þegar hún blindaðist á öðru auga. Sú reynsla fær hana til að þakka reglulega fyrir það sem hún sér og minnir hana á að ekk...
Hver gerir hvað á heimilinu? 10.01.2021 34:27
Adeline Brynja þroskast og dafnar, æfir sig að grípa, spjalla og stýra umhverfinu sínu. Litla fjölskyldan tekst á við breytingar í svefnrútínu, eitthvað sem gæti flokkast undir 4 month sleepregression , sem er ansi algeng og tengist auknum þroska. Það eru eflaust fleiri að kljást við breytta svefnrútínu eftir fríið og finna vonandi að hversdagurinn er kærkominn með sinni rútínu og reglum. Ömmgurna...
Áramótaheit og væntingastjórnun 03.01.2021 34:03
Magga Pála, Móey Pála, Adeline Brynja og Katla komu í hljóðver og gerðu upp árið 2020. Þær ræddu það sem skiptir máli og hvað væntingastjórnun er mikilvæg þegar beðið er eftir nýju ári. Þær ræddu covid-19 og áhrif þess á árið sem er að líða og síðast en ekki síst áhrif sem veiran hafði á fjölskyldulífið. Katla óskar margs á nýju ári og er þakklát fyrir margt, eins og t.d. fæðingu litlu frænku, hen...
Trúir þú á jólasveina? 20.12.2020 32:28
Adeline Brynja tengist ömmu sinni Adeline sem er komin til landsins frá Bahamas og gleðst yfir fleiri leikfélögum. Hún tekur þroskastökk og er farin að bragða graut rétt tæplega 4 mánaða og er líka á leiðinni í sund í fyrsta skipti, það gerist margt í lífi lítillar stúlku. Ömmgurnar ræddu um jólasveinana, þeirra tilvist og trú barna. Börn á ákveðnum aldrei eiga það til að efast um tilvist sveinan...
Jólasveinar og hver er eiginlega Grýla? 13.12.2020 38:03
Hlustendur fá að heyra nýjustu fréttir af litlu fjölskyldunni sem undirbýr komu föðurömmunnar frá Bahamas. Ömmgurnar ræddu einnig komu jólasveinanna og skynsemi þeirra. Upp úr dúrnum kom saga frá Móeyju sem fékk eitt sinn hráa kartöflu í skóinn en annars var hún alltaf afar þakklát fyrir snjallar gjafir eins og mandarínur, sokkabuxur eða annað nothæft. Hlustendur fá líka að heyra Grýlusögu frá M...
Fokkjú eða kæri vinur 06.12.2020 28:50
Desember er genginn í garð með öllum sínum áskorunum. Þá er nú mikilvægt sem aldrei fyrr að vanda orðin sín, ríghalda í jákvæðnina og vera lausnamiðuð fyrir velferð allra. Tími sem er ekki gleðilegur fyrir alla þarf mögulega að endurhugsa og endurskipuleggja. Ömmgurnar ræða einnig hvenær á að eignast börn? Þarf að vera búið að festa kaup á húsnæði, klára menntun eða hvað þarf að gera? Katla er ko...
Nánd og kynlíf eftir meðgöngu 29.11.2020 40:47
Hvenær ,,má” stunda kynlíf eftir fæðingu? Er eðlilegt að bíða lengi? Hvernig vita pör að þau eru tilbúin að stunda kynlíf eftir oft átakanlega líkamlega og andlega reynslu? Í þættinum kom Sigga Dögg kynfræðingur og ræddi um kynlíf og nánd eftir meðgöngu við ömmgurnar. Í þessu spjalli er einlægnin og heiðarleikinn í algeru fyrirrúmi og unga móðirin hlífir sér ekkert um þetta mikilvæga málefni. Fjö...
Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið 22.11.2020 43:15
Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sin...
Jólahald í fæðingarorlofi og á lágmarkslaunum 14.11.2020 37:14
Eftir þungt ár eru eflaust margar fjölskyldur uggandi yfir jólahátíðinni. Litla fjölskyldan fer ekki varhuga af þeim áhyggjum enda eru skertar tekjur í fæðingarorlofi og lágmarkslaun í ummönnun ekki upp á marga fiska. Magga Pála lumar að sjálfsögðu á góðum ráðum til að draga úr streitu í fjölskyldum fyrir jólin og hvernig hægt er að færa fókusinn yfir á það sem öllu máli skiptir. Föðuramma og föðu...
Framkvæmdastjóri stórfyrirtækis deilir gleði og sorgum 07.11.2020 35:53
Magga Pála, Brynja, Móey Pála, Adeline Brynja og hundurinn Árni komu saman í hljóðver, en Árna var ekki treyst á músaveiðar. Í þættinum er spjallað um einelti, uppteknar fjölskyldur og öll verkefni framkvæmdarstjórans í Fjölskyldunni ehf. Adeline Brynja æfir röddina sína af kappi og spjallar í gríð og erg. Brynja gerir sig klára til að fara á Covid vakt og ræða þær hversdaginn á breyttum tímum. Ka...
Einelti og ungfrú Lágafellsskóli 01.11.2020 50:04
Litla fjölskyldan dafnar og fregnir af skelfingu eineltis angra móðurina með litla krílið í fanginu því að hver vill ekki vernda barnið sitt fyrir hættum heimsins. Magga Pála tekur léttar einræður um leiðir til að fyrirbyggja mögulelikana á einelti ef raunverulegur vilji er fyrir hendi og ungfrú Lágafellsskóli deilir neikvæðum afleiðingum slíkrar kosningar. Katla kynnir þáttinn inn að vanda og fær...
Föðurhöfnun, fjölskyldugalskapur og fall á smíðaprófi (næstum). 25.10.2020 44:18
Adeline Brynja er enn að vinna í því að taka pabba sinn í sátt og fjölskyldan litla leggst á eitt til að styrkja tengslin. Ömmgurnar standa sig vel í síma-afvötnuninni og finna breytingar með minni símanotkun. Amman setti nýtt met í einkunnum en hún hefur ekki fengið svona lágt í prófi áður, hvernig tekst kona á við það? Spurningarnar halda áfram að berast og í þættinum fór áherslan á systkinaerju...
Ömmgur í afvötnun 18.10.2020 45:48
Móey Pála og Magga Pála komu í hljóðver ásamt Adeline Brynju og tóku stöðuna á ömmunni eftir heilandi frí. Einnig ræddu þær hvernig Móey Pála stígur inn í móðurhlutverkið og hversu krefjandi það getur verið að gera einfalda hluti eins og að sturta sig með grátandi ungabarn. Þá ræddu þær símanotkun og hvernig foreldrar þurfa að stíga inn í ný verkefni í uppeldinu og hvernig við fullorðna fólkið hö...
"Móðursjúkt" ungbarn og samband foreldra eftir fæðingu 11.10.2020 37:42
Í þessum þætti er Móey Pála ein í stúdíóinu því að amman skellti sér í andlegar heilsubúðir út á land. Hér svarar hún mörgum persónulegun spurningum frá hlustendum um nýja hlutverkið eins og um móðurástina og brjóstagjöf þar sem pabbinn er utan gátta og samband þeirra foreldranna á nýjum forsendum. Jafnréttið á heimilinu kemur til tals ásamt sektarkennd móður ef barnið fær í magann því hvað borðað...
Lofið þreyttum að sofa 04.10.2020 35:36
Þær komu fjórar í hljóðver: Magga Pála, Móey Pála, Katla og hin nýskírða Adeline Brynja. Þær röbbuðu saman um skírnina og nafn litlu stúlkunnar. Stóra málið í þættinum var samt svefn og rútína. Hvernig gengur að búa til rútínu heima með lítið barn? Hvenær þurfa skólabörn að fara að sofa? Hvers vegna þurfum við að sofa svona mikið og hefur svefninn einhver áhrif á líkamsstarfsemi okkar? Þær ræða lí...
Róhildur Slök 26.09.2020 35:26
Mál málanna er nafn litlu stúlkunnar, hvað á barnið að heita? Hvernig á að velja rétt nafn? og skiptir nafnið máli upp á persónuleika barnsins? Í lok þáttarins fær Katla að deila nafninu með ykkur. En ömmgurnar ræða margt fleira og ekki síður mikilvægt. Nú er Móey Pála ein heima á daginn með litlu stúlkuna og David er farinn að vinna. Hvernig skiptast þá heimilisverkin? Og hvernig er að aðlagast n...
Erum við ekki öll frá sömu plánetunni? 20.09.2020 45:44
Fjórar kynslóðir sátu saman í hljóðveri og ræddu hvernig síprjónandi nýbökuð amma upplifir sitt hlutverk. Þær ræddu einnig eitthvað sem er alveg nýtt í fjölskyldunni: spennuna yfir því hvernig litla stúlkan verður á litinn. Þarf að tala um ólíkt litaraft? Og hvernig er rétt að nálgast það? Mikilvægt og hjartnæmt spjall sem endranær. Hlustið kæru vinir og munið að gefa þættinum stjörnur og deila h...
Kemur pósturinn nokkuð með börnin? 13.09.2020 30:21
Magga Pála, Móey Pála og sú litla spjalla saman í hljóðveri. Þær ræða tilfinningatengsl, vinnuna að vera í fæðingarorlofi og hvernig lífið aðlagast nýjum einstaklingi. Magga Pála segir tilfinningaþrungna sögu af rofnum tilfinningatengslum, hversu erfið lífsbaráttan gat verið árum áður og hversu mikið hefur breyst til hins betra. Hafið vasaklút við hendina kæru hlustendur. Styrktaraðilar þáttarins...
Yngst og best á bænum 06.09.2020 32:12
Ömmgurnar þrjár, Magga Pála, Móey Pála og sú nýfædda, komu í hljóðver ásamt föðurnum nýbakaða honum David. Foreldrarnir segja hlustendum fæðingarsöguna og hvaða tilfinningar bærðust innra með þeim. Einnig ræða þau hvernig lífið er núna með nýjum fjölskyldumeðlim og hvernig það er að vera með nýfætt barn á tímum Covid. Hvernig er svo lífið með barninu? Hvernig gengur að drekka? En að sofa? Skiptast...
Ástfangin enn á ný 30.08.2020 32:13
Barnið er fætt! Það þýðir að Magga Pála er orðin langamma og Móey Pála er orðin mamma. Magga Pála segir frá fæðingu dóttur sinnar, þá elstu dóttur hennar og loks nýfædda barninu. Hvað er líkt með öllum þessum fæðingum? Hvað er ólíkt? Einnig ræðir Magga Pála handtök og siði sem erfast á milli kynslóða og þá vinnu sem fer í að halda því sem er af hinu góða og því sem raunverulega þarf að sleppa. Sty...
Áramót í aðsigi 16.08.2020 32:42
Hin dásamlega óregla sumarfrísins er nú víkjandi rétt eins og björtu næturnar. Nú þarf röð, reglu og rútínu til að öllum börnum takist sem best til í opinbera lífinu í leik- og grunnskólum. Fjölskyldan og skólarnir bera ábyrgð á að byggja upp öruggt kærleiksríkt samband sín á milli svo að öllum geti liðið sem best. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruver...
Sjáðu barnið, ekki símann! 09.08.2020 27:12
Hvaða foreldri á það ekki til að gleyma sér í símanum? Börn eiga að vera litlir athyglisrukkarar sem berja á símadyrnar þegar þau finna að foreldrar hverfa inn í annan heim og hafa þar með yfirgefið þau. Munið að hamingjan á heimilinu og gæði parasambandsins er mesti áhrifavaldurinn fyrir þroska og velferð barnsins. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruve...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.