Margrét Pála og Móey Pála
Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynna...
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Margrét Pála og Móey Pála
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 29, 2023
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Mikilvægt frí eða myglað í sófanum 02.08.2020 37:00
Verslunarmannahelgi og sumarfrí enn í algleymingi, ekki öllum til jafn mikillar gleði og hamingju. Sumir fylgja fyrirmælum ríkisstjórnarinnar og ferðast um landið, aðrir eru að vinna og enn aðrir ,,mygla" í sófanum. Góður gestur kemur í þáttinn og tekur þátt í sumarfrísumræðunni. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan e...
Fjórhjólaferð og bumbuboð fyrir fæðingu 26.07.2020 38:25
6 vikur þar til nýja barnið fæðist og tilvonandi móðir þrjóskast við í fullri vinnu. Amman snýr aftur úr sumarfríi eftir rúmlega tveggja vikna fjör fyrir norðan, lengsta sumarfrí hennar í 20 ár. “Baby Shower” er framundan og hvað á það fyrirbæri að heita á íslensku? Og hvað með ADHD og lyfjagjöf? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. F...
Er ADHD fólk alltaf úti að aka? 05.07.2020 41:52
Tvær systur og amma mættu á gullvagninum í stúdíóið - raunverulega úti að aka, nokkuð sem þær þekkja vel innan sinnar ADHD fjölskyldu. Þær trúa hlustendum fyrir vandræðalegum augnablikum í hvatvísi sinni og mótstöðuþrjóskuröskun og einhverfurófið kemur líka til umræðu. En spurt er; af hverju þarf þessi hugtök og greiningar yfirhöfuð? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaversl...
Eru tilfinningar stjörnur í geimnum? 28.06.2020 27:24
Nú tekur hin 7 ára Katla við af stóru systur sinni sem uppeldislegur ráðgjafi í umræðu um tilfinningar. Eru ekki allar tilfinningar í boði? Og eru börn ekki jafn frábær þótt þau séu ekki alltaf glöð? Og hvað er til ráða hjá 7 ára ungmenni sem tekst á við tilfinningar sínar? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebo...
ÞAÐ MÁ RUGLAST Í HEGÐUN 21.06.2020 38:30
Grundvallarfærni á fyrstu æviárunum er að læra að ganga, að tala - og haga sér vel í samskiptum. Allt þetta lærist af góðum fyrirmyndum, stuðningi, hvatningu og eftirfylgd - en hegðunarþjálfunin gleymist. Hvernig eru aðstæður fyrir hegðunarþjálfun? Hver á að gæta barnsins? Má ekki ruglast og gera gott úr öllu? Munum að lífið er dálítið rugl. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktæ...
Vöndum valið á orðunum okkar 14.06.2020 34:09
Stækkandi bumba og þreyta gerir vart við sig hjá verðandi móður en verður hún ekki að harka af sér og vinna fram á síðasta dag? Amman deilir smíðareynslu og loks missa þær sig í umræðu um mátt og vald tugumálsins og orðanna sem við veljum að nota með börnum. Katlan hefur skýra sýn á orðanotkun og á vel valin lokaorð. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruve...
Amman úr felum og blönduð börn 07.06.2020 34:15
Amman kemur úr felum með framtíðarplönin, tilvonandi foreldrar deila reynslu og upplifun af ólíkum bakgrunni og hvernig pabbinn upplifir sig öruggari á Íslandi en í lögregluríkinu USA. Loks velta hjónakornin því fyrir sér hvernig verður að eignast barn af blönduðum kynþætti. (Helmingur þáttarins er á ensku). Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin R...
Forsetar og fótamissir 31.05.2020 29:17
Ungabörn eru svo ógn viðkvæm og bjargarlaus og viðkvæmnin fer ekkert frá þeim þótt árunum fjölgi. Þess vegna er erfitt að hafa marga forseta í skólanum og smáræðis áfall í samskiptum getur haft meiri áhrif en við fullorðna fólkið áttum okkur á. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram...
Er það strákur eða stelpa? 23.05.2020 33:58
Tilvonandi foreldrar ákveða hvort þeir vilja vita um kyn barnsins og hvort og hvernig eigi að láta aðra vita af kyninu. Af hverju skiptir þetta svona óskaplega miklu máli, hvernig er staðan með gömlu kynhlutverkin og hvað með fleiri kyn en bara þessi tvö hefðbundnu? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjöls...
Gildi reglunnar í óvissum heimi 17.05.2020 28:58
Nú spjalla MP-in um röð, reglu og rútínu í uppeldin. Þar á meðal er samræming innan fjölskyldu, hlusta afi og amma á ungu foreldrana? Og hvað með kyn barnsins, skiptir það einhverju máli? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com
Uppeldið fyrstu mánuðina 10.05.2020 26:22
MP-in hugleiða tilveruna eftir að barnið mun fæðast. Þarf barnið sér herbergi, hvað með hjálpartæki eins og snuddu og pela? Á alltaf að bregðast við gráti ungbarna og á fólk að skipta sér af annarra manna börnum? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram Netfang þáttarins: fjolskyldane...
Fjölskyldan á dögum Kórónuveirunnar 02.05.2020 26:52
Fleiri fjölskyldumeðlimir taka til máls með MP-unum um Kórónaveiruna. Mamman með börnin fimm lýsir ástandinu á heimilinu í sóttkví. Sú 14 ára hefur áhyggjur af eldra fólkinu í fjölskyldunni en þeirri 7 ára þykir veiran ekki bara neikvæð. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram Netfa...
Nýtt líf kviknar 28.04.2020 31:14
Magga Pála er að verða LANGamma! Hún fékk elsta barnabarnið, tilvonandi móðurina með sér í hlaðvarpsgerð. Hér í fyrsta þætti spjalla þær um heimsbyltinguna og hamingjuna sem fylgir hverju nýju barni, um Fjölskylduna ehf, verkaskiptingu á heimili og allt uppeldis stússið sem fylgir fyrstu mánuðunum. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.