Margrét Pála og Móey Pála
Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynna...
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Margrét Pála og Móey Pála
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 29, 2023
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni" 29.10.2023 37:29
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mör...
Svarthvíta regnbogafjölskyldan 08.10.2023 53:21
Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi. Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fo...
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál 09.07.2023 35:06
Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis. Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hæt...
Björkin fæðingarheimili 25.06.2023 54:29
Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga. Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og af...
Í fréttum er það helst 11.06.2023 37:36
Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi...
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar! 28.05.2023 38:12
Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um sögun...
Gunnlöð Jóna ræðir skilnað, stefnumót og barneignir 20.06.2021 39:21
Síðasti þáttur fyrir sumarfrí hjá Fjölskyldunni ehf og ofuramman er enn fjarri góðu gamni. Móey Pála lætur sína krafta ekki eftir liggja og fær til sín gullfallega, glæsilega og einhleypa konu í spjall. Það er Gunnlöð Jóna sem ræðir skilnað, kvíða, stefnumót, fjölskylduna og það að langa í börn og vera einhleyp. Hvernig er að vera fráskilin 29 ára og finna pressu frá samfélaginu varðandi barneign...
Pálína Axelsdóttir Njarðvík og kjötát, dýraást og alls konar ást 13.06.2021 37:40
Amman er fjarri góðu gamni í þessum þætti en hún sinnir Hjallastefnuleikskólanum í Skotlandi. Móey Pála stýrir móðurskipinu á meðan og fær til sín góðan gest í hlaðvarp vikunnar. Það er hún Pálína Axelsdóttir Njarðvík eða fyrrum tengdasystir Móeyjar. Pálína heldur úti vinsælli Instagram síðu - Farmlife Iceland - þar sem hún deilir lífi sauðfjárbónda. Hún er ekki bara samfélagsmiðlastjarna því hún...
Andrea Eyland og útópían um barnvænt samfélag 06.06.2021 36:50
Ömmgurnar fá til sín góðan gest í þessum þætti en það er hún Andrea Eyland í Kviknar samfélaginu. Andrea á 5 börn, rekur fyrirtæki og er framkvæmdarstjóri fjölskyldunnar sinnar. Hún ræðir um fjölskyldulífið, þriðju vaktina, sjálfsrækt, barnvænt samfélag og margt fleira. Atvinnuþátttaka kvenna hefur stóraukist og samfélagið mikið breyst á síðastliðnum áratugum. Það sem hefur lítið breyst er fjölsky...
Drengir og menn, karlmennska og ofurhetjur 31.05.2021 52:05
Ömmgurnar Móey Pála og Magga Pála taka veðrið í upphafi þáttar og Magga Pála ræðir hvernig lítil börn geta verið eins og barómetar eða loftþrýstingsmælar á veðurfar. Veðrið hefur vissulega áhrif á okkur öll og þá líka á samskipti okkar. Ömmgurnar ræða einmitt samskipti drengja og hvernig fullorðið fólk þjálfar samskipti ólíkt við stúlkur og drengi. Umræðan um drengjauppeldi heldur áfram af fullum...
Drengjauppeldi og allar sálirnar í sveitinni 24.05.2021 42:09
Ömmgurnar komu sér vel fyrir á meðan Adeline Brynja svaf og tóku upp þátt vikunnar. Hlustendur hafa beðið um að ýmis umræðuefni séu tekin fyrir og í þættinum var drengjauppeldi efst á baugi, í takt við umræðu samfélagsins. Margrét Pála hefur rannsakað og unnið með kynjaskipt skólastarf í fjölda mörg ár og hafði sitthvað um málið að segja. Hvernig skal mæta drengjum í skólastarfi og hvers vegna græ...
Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita? 16.05.2021 29:13
Kynnir þáttanna, hún Katla, er spennt að fara í sauðburð í Laxárdal og fylgjast með lífinu í sveitinni. Hlustendur fá tóndæmi úr fjárhúsunum. Ömmgurnar Magga Pála og Móey Pála spjalla um mataræði barna og hvernig sektarkennd foreldra getur tengst því. Það er þrennt sem börn gera að ágreiningsefni við foreldra sína um leið og þau geta en það er matur, svefn og fatnaður. Gullna reglan er að muna að...
Sólarsamba, kvöldrútína og hænuungar 09.05.2021 36:36
Ömmgurnar eru í sólskinsskapi að venju og auðvitað hafa sólríkir dagar áhrif á umræðuefni þáttarins. Þær byrja á helstu fréttum af yngsta fjölskyldumeðlimnum Adeline Brynju og ræða hvernig kvöldrútínan gengur. Einnig ræða þær tungumál, tvítyngd börn og hvernig áhrif það getur haft á málþroskann. Þær spjalla síðan um vordaga, sól og áhrif hennar á börn. Hverju þarf að gæta að þegar sólin er hátt á...
Mannafæla eða frábærlega skynsöm snót 02.05.2021 36:30
Hér eru ömmgurnar sestar við hljóðnemann og Móey Pála deilir reynslu sinni af því að vera að heiman með barnið í 10 daga. Öll rútina fór í vaskinn og unga snótin vissi ekki hvað var að gerast í þessu framandi umhverfi svo að hún hékk föst á mömmu sinni og vildi lítið brosa til frænku og frænda og afa og stjúpömmu og allra vina og vandamanna af öllum gerðum á Þórshöfn. Það var helst að hún samþykk...
Lilja, finnst þér leiðinlegt að vera ekki afi? 25.04.2021 31:22
Nú er Katla komin í hlutverk þáttastjórnandans þar sem hún tekur á móti Lilju - sem er helmingurinn af "ömmu og Lilju" á Gilsbakkanum. Móey Pála og Adeline Brynja eru staddar á Þórshöfn að hitta hálfsystur sínar - eða hálfsystur hálfsystur Kötlu. Alls kyns fjölskyldur, hálfar og heilar, stjúptengsl og þarftu að fæða móður barns til að til að vera alvöru amma? Eftir hlé blandast amma í...
Stolt "brottfall", basl og betrun 18.04.2021 44:11
Þáttur vikunnar er tileinkaður Agnari sem er barnabarn númer tvö í Fjölskyldunni ehf. Hann fann sig ekki í framhaldsskóla en vissi ekki hvað hann vildi gera. Áfengi og gras voru freistingar sem hann féll fyrir um tíma en hvað gerði fullorðna fólkið til að styðja unga manninn? Hvað er í boði ef framhaldsskólinn virkar ekki? Hvernig er að eiga eldri systur sem er með allt à hreinu? Er samanburður í...
Umbun, refsing, hótanir og svipting í alvöru??? 11.04.2021 39:14
Að venju fara ömmgurnar yfir stöðuna hjá ungu snótinni sem vex og dafnar, fær sér brauð með kæfu í morgunverð og helst vill ráða rútínu kvöldsins fyrir hönd heimilisins. Hugarstarfsemi hennar er og verður þannig næstu árin að allt er annað hvort eða - ekkert bæði og Því fylgir að allt verður að reglu, líka það sem er óttaleg óregla fyrir barnið. Látum við undan nauði í barni og endum með jæja þá...
Koma unglingsárin með kröfum um kynlíf og neyslu? 04.04.2021 44:46
Að þessu sinni er það unglingurinn Lilja Björk í Fjölskyldunni ehf. sem spjallar við ömmu og Móeyju Pálu. Hún lýsir því hvernig er að vera unglingur og spjallar opinskàtt um áskoranirnar sem því fylgja. Hvernig á að velja framhaldsskóla sem hentar? Skiptir félagslífið meira máli en námið, eða öfugt? Hvernig er einkalíf unglingsins inn á stóru heimili? Hvenær þarf að taka til og þrífa? Lilja Björk...
Sjö mánaða og stjórnar heimilinu 28.03.2021 35:04
Nú eru ungu foreldrarnir komnir í fyrstu uppeldisklípuna enda stækkar unga snótin og þroskast stöðugt. Hún er komin á þann aldur þar sem börn gera mikinn greinarmun á fólki sem þau þekkja og ókunnugum sem þau fara að mótmæla hástöfum. Eins vill hún ekki vera aðskilin frá mömmu sinni og það á bara eftir að versna á næstu mánuðum. Auk alls þessa eru sjö mánaða börn byrjuð að leita leiða til að stjór...
Hlutir kosta peninga 21.03.2021 30:38
Ömmgurnar sátu í glænýju heimastúdíói og tóku upp þátt vikunnar í ,,heimakastinu”. Þættirnir eru orðnir 44 og brátt verður komið ár frá því hlaðvarpið Fjölskyldan ehf fór í loftið. Í tilefni þess verða m.a. gjafaleikir á Instagram og Facebook síðum Fjölskyldunnar ehf. Magga Pála og Móey Pála ræddu fátækt barna og ungmenna á Íslandi og muninn á fátækt og blankheitum. Einnig ræða þær hvernig er hægt...
,,Mig langaði mest að hvæsa á hann” 14.03.2021 31:04
Fæðingarorlof, vinnan heima, hlutverkaskipti og samvinna eru m.a. umræðuefni þáttarins að þessu sinni. Adeline Brynja er farin að una sér vel í pössun á meðan ömmgurnar spjalla og þær létu gamminn geysa í góðu og auðvitað mikilvægu spjalli. Móey Pála hefur áhyggjur af því að fara með Adeline Brynju í vistun hjá öðrum, hún er sjálf núna orðin mjög háð dóttur sinni. Alls konar tilfinningar spila þar...
Samtöl við börn 07.03.2021 28:24
Ömmgurnar fóru stuttlega yfir nýjustu fréttir af Adeline Brynju í upphafi þáttar en hún er nýfarin að sitja. Einnig ræddu samtöl við börn og hvernig og hvenær við tölum við börn. Hvers vegna er mikilvægt að tala við börn? Þær ræddu einnig jarðhræringar, áhrif þeirra á börn og mikilvægi þess að segja börnum satt frá en á máli sem hæfir þeirra aldri. Eðlilegt er að börn fylgist með tali fullorðinna...
Heilsa, veikindi og bólusetningar barna 28.02.2021 32:29
Móey Pála og Adeline Brynja komu með ömmu Brynju í hljóðver að þessu sinni. Hún er hjúkrunarfræðingur sem vinnur á barnaspítala Hringsins. Mæðgurnar spjölluðu um heilsu, veikindi barna og bólusetningar. Þær ræddu hita í börnum, verkjalyf og hverju er gott að fylgjast með þegar börn eru veik og hvenær skal leita til læknis með börn yngri en 3 mánaða. Þær ræddu líka foreldrahópa á samfélagsmiðlum o...
Rannsóknaraldur, öskudagur og afreksíþróttir 21.02.2021 40:51
Ungbarnasundið var á sínum stað þessa vikuna og Adeline Brynja full af orku þegar þátturinn var tekinn upp. Hún er nú orðin 6 mánaða og komin á svokallaðan rannsóknaraldur; hún skoðar allt og fylgist gaumgæfilega með umhverfinu. Rannsóknir umhverfisins fara að miklu leiti í gegnum munninn á þessu stigi og svo er ótrúlega spennandi að láta hluti detta! Öskudagurinn er auðvitað nýafstaðinn og búning...
Ungbarnasund, dulbúin uppeldisfræði 14.02.2021 26:49
Adeline Brynja var nýkomin úr Skálatúnslaug þegar ömmgurnar tóku upp hlaðvarp vikunnar. Þær nýttu að sjálfsögðu tækifærið og ræddu ungbarnasund og hverslags töfrastund það getur verið. Þær ræddu þroskaþjálfunina sem fer fram í sundinu, foreldrafærnina, tengslamyndunina, uppeldisfærnina og fleira. Í ungbarnasundinu myndast mikilvægur vettvangur til að æfa samskipti, að bregðast við barninu sínu,...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.