Er thetta fyrsta barn
Er þetta fyrsta barn?
Tvær vinkonur spjalla um foreldrahlutverkið. Allt frá getnaði, meðgöngu, að fæðingu og allt þar á milli, fá til sín gesti og deila eigin reynslu.
Author
Er thetta fyrsta barn
Category
Podcast website
Latest episode
May 6, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
"Ég var ekkert búin að ákveða heimafæðingu" 28.06.2023 1:12:25
Klara Ívarsdóttir kom til okkar og sagði okkur sína meðgöngu og fæðingarsögu en hún átti stelpuna sína með dásamlegri heimafæðingu.
"Áskrift, spjall og Q&A" 21.06.2023 1:38:18
Í þætti dagsins segjum við frá áskriftarleiðinni okkar sem er um það bil að detta í loftið og verða 4 auka þættir í áskriftarpakka júlí mánaðar. Einnig tökum við létt spjall og svörum skemmtilegum spurningum sem við fengum frá hlustendum. Þátturinn er í boði Tan.is
"Var ekki búið að reyna vendingu?" 14.06.2023 1:12:01
Margrét kom til okkar og sagði sína meðgöngu og fæðingarsögu en á meðgöngunni kom í ljós að strákurinn hennar var skorðaður sitjandi auk þess sem að vaxtaskerðing mældist í vaxtasónar sem þó var ekki til staðar eftir fæðingu. Þátturinn er í boði Tan.is
"Ég veit ekki hvernig ljósmóðirin lítur út, ég var með lokuð augun allan tímann" 07.06.2023 1:42:03
Ása Hrund kom til okkar og sagði okkur sínar meðgöngu og fæðingarsögur, en hún á tvö börn og átti hún strákinn sinn á Landspítalanum og stelpuna sína í Björkinni. Þátturinn er í boði Tan.is
"Bað um panodil en vissi að myndi ekki virka" 03.06.2023 1:56:20
Anetta Eik kom til okkar og sagði okkur sína sögu, hún á 2 stráka. Eldri strákurinn hennar greinist við tveggja ára aldur með Sykursýki 1, segir hún okkur frá greiningarferlinu og þeirra lífi í dag. Þátturinn er í boði Tan.is
"Nú er bara að klæða kúluna fallega og njóta" 31.05.2023 1:02:55
Í þættinum ræpum við annan þriðjung meðgöngu ásamt allskyns vangaveltum og eigin reynslu. Þátturinn er í boði Tan.is
"Ég svíf bara um á bláu skýi" 18.05.2023 1:01:22
Í þættinum förum við yfir kynjaveisluna hennar Anítu ásamt skemmtilegu rannti.
"Fyrsti þriðjungur meðgöngu" 10.05.2023 1:26:03
Það er ný sería! Við förum yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því tvær línur birtast á prófinu. Tölum um þá fylgikvilla sem geta fylgt fyrstu vikunum, einkennum, breytingum ásamt því að skoða hvað felst í fósturgreiningu á 11v-14v. Þátturinn er í boði Tan.is Upplýsingar sem farið er yfir eru af Ljosmodir.is og heilsuvera.is
"Þú ert með blóðtappa í hægri lunga" 03.05.2023 1:32:57
María kom til okkar og deildi sinni fæðingarsögu en hún var vægast sagt átakanleg en hún endaði í bráðakeisara og eftir að dóttir hennar kom í heiminn komu í ljós blóðtappar í lungum. Þátturinn er í boði Tan.is
"Það er keisari á morgun" 26.04.2023 1:04:01
Gunnhildur kom til okkar og sagði okkur sína sögu en hún átti strákinn sinn eftir 33 vikna meðgöngu. Þátturinn er í boði Tan.is
"Málefni líðandi stundar" 19.04.2023 1:30:57
Förum yfir málefni líðandi stundar, hvað við erum búnar að brasa síðustu vikur og hvað er framundan
"Fór í IVF ferli í Boston" 12.04.2023 1:25:37
Ásta Haralds kom til okkar og deildi sinni sögu en hún fór í gegnum IVF ferli í Boston ásamt því að fara í rannsóknir með strákinn sinn eftir fæðingu. Ótrúlega mögnuð saga þar sem við vorum vægast sagt orðlausar að heyra frá öllu ferlinu þarna úti og þeim ólíku aðstæðum þarna og hér heima. Þátturinn er í boði Tan.is Minirent.is
"Smá breytingar frammundan" 05.04.2023 58:29
Þessi þáttur er með aðeins öðru sniði en vanalega þar sem við ætlum að ræða aðeins breytingar sem framundan eru. Þátturinn er í boði Tan.is
"Ég er að fara að enda í keisara, þetta verður alveg eins og síðast" 29.03.2023 1:06:51
Sara Rut kom til okkar og deildi sínum fæðingarsögum en hún á að baki keisara með eldri strákinn sinn en leggangafæðingu í seinni fæðingunni sinni með dóttur sína. Þátturinn er í boði Tan.is
"Ég var í gráum skims kjól svo er ég bara orðin rennandi blaut" 22.03.2023 1:21:47
Guðrún kom til okkar í skemmtilegt spjall. Í þættinum ræddum við utanlegsfóstur sem hún fékk 2019 ásamt því að ræða meðgöngurnar og fæðingarnar hennar. Þátturinn er í boði Tan.is
"Svo lést hún í fanginu á pabba sínum" 15.03.2023 1:17:22
Særós kom til okkar í spjall og deildi sínum sögum en hún gekk í gegnum þá átakanlegu reynslu að missa dóttur sína sem fæddist á 22 viku. Hún á einnig tvo stráka og deilir hún meðgöngu og fæðingar sögunum þeirra auk þess að deila því hvernig hún tókst á við missinn.
"Þá var ég komin með bullandi meðgöngueitrun" 08.03.2023 1:14:10
Diljá kom til okkar og sagði okkur sína sögu, hún greindist með meðgöngueitrun og endaði í keisara. Þátturinn er í boði Tan.is
"Kamilla Rut tilheyrir Einstökum börnum" 28.02.2023 42:41
Svandís segir okkur söguna þeirra Kamillu, en eftir miklar læknisrannsóknir kom í ljós að Kamilla er með heilkenni sem heitir Silver Russel sem er sjaldgæft heilkenni og segir hún okkur frá ferlinu og hvaða áhrif það hefur á þær í dag.
Svefnró "ímyndaðu þér að sofna einhverstaðar svo færir þig einhver yfir til nágranans" 22.02.2023 1:23:16
Linzi stofnandi og eigandi Svefnró kom til okkar og ræddi við okkur um svefn barna ásamt því að svara spurningum okkar og hlustenda. Þátturinn er í boði Tan.is - það er gjafaleikur á næstunni svo fylgdu okkur á instagram
"Svo missi ég bara vatnið í andlitið á henni" 15.02.2023 1:03:42
Nadía kom til okkar og sagði meðgöngu og fæðingasöguna sína en þau eiga hann Marino eftir yndislega fæðingu.
"Þetta var löngu orðið fullreynt" 08.02.2023 1:06:11
Hædí kom til okkar og sagði okkur sína fæðingarsögu en hún fór í gangsetningu og við tók inngrip eftir inngrip en á endanum fæddist Manúel Nói með keisarafæðingu eftir langan aðdraganda.
"Hvað fer mest í taugarnar á þér" 01.02.2023 1:26:49
Við vinkonurnar spjöllum á léttu nótunum, svörum spurningum með tilheyrandi fíblagangi.
Mini "gangsetning" 30.01.2023 55:35
Í þættinum ræðum við gangsetningar, tölum út frá okkar reynslu og því sem við höfum kynnt okkur varðandi þær.
"Þá segir ljósmóðirin að barnið sé sitjandi" 18.01.2023 1:18:19
Bryndís Ósk kom til okkar og sagði okkur sínar fæðingasögur.
"Svo kom föstudagurinn lengsti" 11.01.2023 1:42:44
Andrea Ósk kom til okkar og deildi með okkur fæðingasögunum sínum en hún á tvær ólíkar fæðingar, með einbura og tvíbura.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.