Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

Music IS ↓ 112 episodes

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: einmitt.libsyn.com

Author

Einar Bárðarson

Category

Music

Podcast website

einmitt.libsyn.com

Latest episode

Nov 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Menn eins og við "Haga sér í skólanum" 20.11.2026

Hvað má maður eiginlega gera í skólanum, hver ræður jólamatnum og má pabbi hafa skoðun á jólaskreytingunum? Einar og Baldur fara víða í 28. þætti af Menn eins og við og hlæja að sjálfum sér á leiðinni. Gamlar sögur af barnum koma við sögu, leyndarmál um tölvuleik fær óvæntan áheyrendahóp og einföld spurning um jólahefðir verður snögglega flókin. Svo þarf að velja jólagjafir og koma stærðarinnar jó...

Menn eins og við #27 Afmælisgjöfin 16.11.2026

Konan á afmæli og í pakkanum er ryksuga. Einar og Baldur ræða viðtökurnar, velta fyrir sér hvort slátturóbótinn sé kominn ofar í goggunarröðina en hundurinn og rifja upp hvernig pabba með reynslu af tískusýningum gekk að flétta hár fyrir danskeppni. Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.  Helstu samstarfsaðilar þáttarins www.gefur...

122 EINMITT: Jón Jónsson "Eitt grínmyndband fyrir sumarið" 30.10.2026

Einar Bárðarson opnar seríu 5 af Einmitt með einlægu og fallegu samtali við Jón Jónsson, sem fagnar 41 árs afmæli sínu á upptökudegi. Þeir ræða tónlistina, fjölskyldulífið, vináttuna og IceGuys-ævintýrið — kvikmyndina sem var frumsýnd kvöldið áður og jólatónleikana í desember sem marka lok þessarar vegferðar.   Aðalbakhjarlar Einmitt eru:   hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is   Bpro.is St...

Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn" 25.10.2026

Stóra kombakkið! Einar og Baldur snúa aftur með sögur af Valencia, þvottavélaveseni og lífinu eftir hárígræðslu. Jólastress, raunveruleikaþættir og eilíf barátta við slátturóbótann koma líka við sögu. Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.  Helstu samstarfsaðilar þáttarins   www.gefur.is www.bpro.is www.kolski.is www.bkhonnun.is

MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?" 25.09.2026

Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í...

MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi? 10.09.2026

Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight ? Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið. Um lei...

MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn" 01.09.2026

Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem...

MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal 21.08.2026

MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall. Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu...

MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?" 12.08.2026

MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?" Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega  ekkert um sólmyrkvann , enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu , hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "...

Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn" 31.07.2026

Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og...

Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" 24.07.2026

Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar regl...

Menn eins og við #18 Á einhver startkappla? 18.07.2026

Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þ...

Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare" 10.07.2026

Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi o...

Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund 30.06.2026

Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmars...

Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum 20.06.2026

Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunveruleg...

Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu 12.06.2026

Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólm...

Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?" 02.06.2026

Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga....

Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?" 16.05.2026

Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.i...

Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?" 08.05.2026

Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://...

121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni" 07.05.2026

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is   < http://bkhonnun.is/ > hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is     bpro.is   < http...

120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni" 18.04.2026

Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.

119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum" 11.04.2026

Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is     Bpro.is Sterero.is Samstarf...

118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu" 04.04.2026

Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavo...

117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta" 24.03.2026

Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig...

Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi" 23.03.2026

Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu...

Listen to the Einmitt / Menn eins og við podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.