Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#431 Sigríður Á Andersen - Fengjum legusár við borðið í ESB 26.06.2025 1:12:24
Þórarinn ræðir við Sigríði Á Andersen, þingmann Miðflokksins um stjórnmálin á Íslandi, veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar og bókun 35. Rætt er sérstaklega um áhrif veiðigjaldafrumvarpsins á byggðir út á landi og hvort að það muni koma til með að skila árangri þegar allt kemur til alls. Einnig er rætt um réttaráhrif Bókunar 35 á dómskerfið á Íslandi, hvort að aðrar reglur þurfi að lúta í lægra...
#430 Teitur Atlason - Vinstrimenn skapa öfgahægrið með rasistastimplinum 23.06.2025 1:12:43
Þórarinn og Teitur Atlason ræða hreinskilningslega um hælisleitendamál á Ísland og í Evrópu. Fjallað er um flóttafólk í samhengi við velferðarkerfið og vakiðathygli á ýmsum málum er varðar sumarfrí flóttafólks til heimalands sem það er að flýja, atvinnuþátttöku í Evrópulöndum, öfgahreyfingar og vinstrið, hópinn Ísland þvert á flokka og margt fleira. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur he...
#429 Diljá Mist Einarsdóttir - Við mætum ekki ómenningu á miðri leið 21.06.2025 40:22
Diljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti er rætt um ýmsa hluti. Meðal annars Facebook, stjórnmál á Íslandi, stöðu kvenna í Mið-Austurlöndum, tvískinnung femínista og margt fleira. - Eigum við að koma til móts við ómenningu? - Afhverju eru femínistar tilbúnar að styðja íhaldssöm gildi er varðar klæðaburð kvenna? - Er ný ríkisstjórn að gera allt sem síðasta ríkisstjó...
#428 Gunnar Úlfarsson - Svartir sauðir þrífast best á opinberum vinnumarkaði 18.06.2025 1:09:10
Þórarinn ræðir við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um svarta sauði á opinberum vinnumarkaði og húsnæðismál. Fjallað erum áhrif þess á vinnustaðamenningu að yfirmenn hafi fá sem engin bjargráð til þess að losa sig við lélega starfsmenn. Rætt er um afleiddar afleiðingar á vinnuþrek annarra starfsmanna og hvernig til langs tíma þetta fyrirkomulag mun koma til með að rýra þjónustu hjá...
#427 Hermann Nökkvi Gunnarsson - Það sem sameinar þá sem mótmæla öllu er andúð á Vestrænum gildum 14.06.2025 1:04:03
Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva Gunnarsson, blaðamann á Morgunblaðinu, um stjórnmálin á Íslandi, hægrisveifluna, Trump, leikskólamál, og margt fleira. Sérstök áhersla er lögð á Suðurnesin en Þórarinn og Hermann telja báðir að Reykjanesskaginn í heild sinni fái minni athygli en hann á skilið í opinberri umræðu. Rætt er um jarðshræringar og Grindavík, hælisleitendamálin á Ásbrú, álit embættismanna...
#426 Líf Magneudóttir - No borders er ekki raunhæft 11.06.2025 1:10:06
Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík, um stjórnmálin. Rætt er um framtíð Vinstri grænna, borgarmeirihlutann, pólitíkina, hægribylgjuna, útlendingamál, húsnæðismál, leikskólamálin og borgarlínuna. - Afhverju telur Líf no borders hugmyndafræðina vera ómögulega? - Hver er framtíð Vinstri grænna? - Hvenær verður borgarlínan kláruð? Þessum spurningum er s...
#425 Brynjar Karl - Er ævintýri Aþenu lokið? 04.06.2025 1:14:12
Þórarinn ræðir við Brynjar Karl enn á ný þar sem að þessu sinni er rætt sérstaklega um aðkomu borgarinnar og samskipti hennar við Aþenu, körfuknattleikliðs sem hefur verið undir stjórns Brynjars frá upphafi. Fjallað er sérstaklega um málefni Breiðholtsins sem hafa verið mikið í deiglunni undanfarin misseri. Farið er yfir þær félagslegu áskoranir sem hafa farið síversnandi, menningarlegar áskoranir...
#424 Heiðar Guðjónsson - Pendúllinn er að sveiflast kröftulega til hægri 02.06.2025 1:31:20
Þórarinn ræðir enn á ný við Heiðar Guðjónsson sem er hlustendum þáttarins vel kunnugur. Í þættinum er rætt um fjölbreytt og djúpstæð málefni sem varða íslenskt samfélag og þróun þess til framtíðar. Fjallað er um hægri bylgju meðal ungs fólks og hvernig Ísland gæti litið út eftir hálfa öld, um átakamál á borð við Queers for Palestine og tengsl gyðinga við fjármálakerfið, auk þess sem saga mótmælend...
#423 Lil Binni - "Ég myndi deyja fyrir stelpurnar sem vilja cancela mér" 30.05.2025 58:57
Lil Binni, eða Brynjar Barkarson, er tónlistarmaður sem er frægastur fyrir aðkomu sína í hinni sívinsælu hljómsveit ClubDub. Brynjar hefur miklar áhyggjur af því hvert samfélagið virðist stefna og fyrir skömmu tjáði hann sig um fjölmenningarstefnu Vesturlanda og lét orð falla um múslima sem eru ekki til eftirbreytni. Í þessum þætti er rætt um þessi ummæli og sýn Brynjars á heiminum. Hann er spurðu...
#422 Taxý hönter - Leigubílstjórar fluttir beint frá Mogadishu á Leifstöð 29.05.2025 1:47:15
Þórarinn talar við Friðrik Einarsson en hann hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undir nafninu Taxý hönter þar sem hann birtir myndbönd af breyttu ástandi á leigubílamarkaði. Hann telur ástandið vera óviðnunandi og er það vegna erlendra aðila sem hafa komið inn á markaðinn sem eru ekki tilbúnir að lúta sömu reglum og viðmiðum sem tíðkast hafa á leigubílamarkaði hérlendis. Friðrik segir þetta vera...
#421 Jón Gunnarsson og Brynjar Níelsson - Woke-ið er bara gamli fasisminn 27.05.2025 1:58:10
Þórarinn ræðir við tvíeykið Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Farið er um víðan völl og rætt um stjórnmálin heima fyrir, ESB, veiðigjöldin, Dag B. Eggertsson, þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, Grafarvoginn, Útlendingamál, félagslegt húsnæði, rétttrúnaðinn, Gretu Thunberg, borgarlínuna og Úlfar Lúðvíksson. - Var það rétt hjá Þorbjörgu Sigríði að reka Úlfar Lúðvíksson úr embætti? - Er woke-ið bar...
#420 Árni Helgason - Umræðan heldur okkur í stanslausu uppnámi 24.05.2025 1:45:43
Þórarinn ræðir við Árna Helgason, lögmann og varaþingmann Sjálfstæðisflokksins, um stjórnmál, hugmyndafræði, mannréttindabylgjur og margt fleira. Farið er yfir mismunandi hugðarefni er varðar veiðigjöldin, ríkisstjórnarsamband Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins, rétttrúnaðinn og hvernig samfélagið missti hausinn og útlendingamál. - Afhverju hefur útlendingaumræður breyst undanfarin ár? -...
#419 Sigurður Stefánsson: Ríkisstjórnin muni slá Íslandsmet í fjölda þeirra sem eignast ekki húsnæði 22.05.2025 1:17:27
Þórarinn ræðir við Sigurð Stefánsson, framkvæmdarstjóra og stofnanda Aflvaka, þróunarfélags sem starfar í Kópavogi að yfir 5000 íbúðum. Í þættinum er rætt um stöðuna á húsnæðismarkaðnum, hvað sé að, skilyrði til uppbyggingar, stjórnmálin og fleira. Sigurður telur gagnadrifna nálgun vera lykil þess að tryggja fólki séreign en það skorti sárlega hjá stjórnvöldum sem stefni samfélaginu í óefni. - Mun...
#417 Albert Jónsson - Er þriðja heimsstyrjöldin hafin? 18.05.2025 1:05:55
Þórarinn ræðir við Albert Jónsson, sérfræðing í öllu er varðar utanríkismál. Að þessu sinni er rætt um þær miklu vendingar sem nú eiga sér stað í alþjóðakerfinu, hverjar þær eru, hvað þær þýða, og hvaða áhrif þær kunna að hafa á Vesturlönd. Þar að auki er rætt um loftslagsmál í víðum skilningi og stöðu Íslands sérstaklega í þeim efnum. - Er þriðja heimsstyrjöldin hafin? - Afhverju ætti Ísland að t...
#418 Stelpurnar í Aþenu - "Við erum ekki fórnarlömb" 16.05.2025 55:42
Þórarinn ræðir við leikmenn kvennaliðs körfuknattleiksdeildar Aþenu, sem hafa æft og keppt undir stjórn Brynjars Karls Sigurðssonar. Þetta eru þær Eybjört Ísól Torfadóttir, Gréta Björg Melsted, og Tanja Brynjarsdóttir, dóttir Brynjars Karls. Starfsemi félagsins hefur vakið talsverða athygli undanfarið, einkum vegna umræðu um þjálfunaraðferðir Brynjars, sem ýmsir innan íþróttahreyfingarinnar hafa g...
#416 Gunnlaugur Jónsson - Fórnarlambsvæðing er sníkjudýr kærleikans 12.05.2025 54:14
Þórarinn ræðir við Gunnlaug Jónsson, frumkvöðul og forstjóra Fjártækniklasans. Í þessum þætti er fjallað um stöðu samfélagsins út frá hugmyndafræðilegum forsendum. Lögð er sérstök áhersla á þá hvata og hagkerfi sem liggja að baki fórnarlambsvæðingar. Það fyrirbæri er Gunnlaugi ofarlega í huga en til þess að takast á við þann vanda hér á landi hefur hann fengið Gad Saad til þess að koma til Íslands...
#415 Grímur Grímsson - Sænski afbrotaveruleikinn mun koma til hinna Norðurlandanna 11.05.2025 1:06:16
Þórarinn ræðir við Grím Grímsson, fyrrum yfirlögregluþjón og núverandi Alþingismann Viðreisnar. Í þættinum er farið yfir hin ýmsu mál og rætt um veiðigjöldin, Evrópusambandið, stjórnmálin á Íslandi, gjaldmiðilinn, útlendingamál, forvirkar rannsóknarheimildir, sænsk glæpahneigð, brottvísunarúrræði, skipulagða brotastarfsemi og hvort að þróun sem hefur raungerst í hinum Norðurlöndunum er varðar slík...
#415 Iva Adrichem - Hatursorðræða og hinseginsamfélagið 07.05.2025 53:01
Þórarinn ræði við Ivu Adrichem um hatursorðræðu, stjórnmálin, tjáningarfrelsi, hinseginsamfélagið, bakslagið, forréttindafyrringu og margt fleira. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Ljárdalur.is Alvörubón
#414 Heiðar Smith - Útlendingamálin hafa breytt fangelsismálunum 04.05.2025 56:57
Þórarinn ræðir við Heiðar Smith, formann félags fangavarða, um breytta stöðu í fangelsum á Íslandi. Rætt er um það hvaða áhrif aukinn fjöldi erlendra afbrotamanna hafi haft á fangelsin, hvort að Heiðar telji fýsilegt að erlendir aðilar afpláni sinn dóm erlendis, geðheilbrigði fanga, stjórnmálin, nýja fangelsið, hvort að Íslendingar fái öðruvísi meðferð, afbrot við landamærin, burðardýr og afhverju...
#413 Stefán Einar - "Það er öllum sama um börnin í Breiðholti" 27.04.2025 1:31:56
Þórarinn ræðir við Stefán Einar Stefánsson, blaðamann og þáttarstjórnanda Spursmála hjá Morgunblaðinu. Í þættinum er rætt um stjórnmálin á Íslandi, innflytjendastefnu, menningarmál, stríðið á Gaza, Ísrael, Trump, menntamál og menntamálaráðherra. - Er öllum sama um börnin í Breiðholti? - Þarf barna- og menntamálaráðherra að víkja? - Er Viðreisn flokkur atvinnulífsins? Þessum spurningum er svarað hé...
#412 Blaz Roca - Sjálfstæðismenn myndu krossfesta Jesú 24.04.2025 1:39:57
Þórarinn ræðir við Erp Eyvindarsson eða Blaz Roca. Erpur hefur gert garðinn frægan ásamt hljómsveit sinni XXX Rottweiler hundar en hún hefur sett svip sinn á íslenska tónlistarmenningu í áratugi. Í þessum þætti er fjallað um stjórnmálin á Íslandi, vókið, vinstrið, kapítalismann, nýfrjálshyggju, Marxisma, alþjóðapólitík, kúgun, ágreining fjöldans og margt fleira. - Er nýfrjálshyggjan afl alls ills?...
#411 Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir - Valkyrjuelskendur: þáttur 2 21.04.2025 1:06:21
Þórarinn, Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir fara um víðan völl og ræða stjórnmálin, bakslagið, vókið, uppeldismál, stemninguna í samfélaginu, fjármál og margt fleira. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Ljárd...
#409 Jóhannes Þór - Tjáningarfrelsi og trans börn 16.04.2025 1:11:49
Þórarinn ræðir við Jóhannes Þór um tjáningarfrelsi, eðlilegar takmarkanir, trans börn, hormónaaðgerðir, stjórnmálin, bakslagið, hatur og margt fleira. - Eru hormónaaðgerðir framkvæmdar á börnum? - Hversu langt má tjáning ganga áður en hún telst vera ofbeldi? - Á hvaða vegferð er Miðflokkurinn? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling...
#410 Naomi Wolf - "It was all deliberate" 15.04.2025 1:10:10
Þórarinn sits down with Naomi Wolf for a frank and unflinching conversation about the pandemic and its aftermath. Currently on a global tour, Naomi is raising alarm bells about what she views as unprecedented overreach by governments and institutions during the crisis of 2020-2022. She speaks candidly about the deep concerns that arose during that period — from the erosion of civil liberties and t...
#407 Halldór Armand og Dóri DNA - "Ísland er opið fangelsi" 09.04.2025 1:33:57
Þórarinn ræðir við fjölhæfu listamennina Halldór Armand og Dóra DNA. Farið er um vítt svið og rætt um stjórnmálin á Íslandi, borgarmálin, hvort að woke-ið sé Kristið, stjórnlyndi og grín, símanotkun barna, frið, ófyndið fólk og margt fleira. Er Ísland opið fangelsi? Afhverju elska vinstrimenn ekki lengur frið? Afhverju vilja hægrimenn ekki gott líf? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.