Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#408 Hörður Ægisson - Hver verða áhrif tollastríðs Trumps á Ísland? 07.04.2025 1:07:06
Þórarinn ræðir við Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja á Vísi, um áhrif tollastríðs Trumps á Ísland. Lögð er sérstök áhersla á hvað Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og ríkisstjórnin þurfi að gera til þess að takast á við þetta, hvort að vextir verða lækkaðir, hvort að sóknartækifæri geti leynst í þessum aðstæðum og hvort Íslendingar muni nú einbeita sér að verðmætasköpun í annarri mynd en við höfum ge...
#406 Guðrún Hafsteinsdóttir - Bauð sig ekki fram í formann til þess að vera millistykki 03.04.2025 1:19:53
Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þrátt fyrir að hún sjái ekki fyrir sér að vera í embætti formanns í jafn langan tíma og Bjarni Benediktsson sé hún ekki þarna sem millistykki áður en nýr formaður tekur við. Í þessum þætti ræðir hún í hvaða átt hún vilji leiða Sjálfstæðisflokkinn, hvort hún myndi vilja mynda ríkisstjórn með Flokki fólksins, ríkisstjórnarsambandið,...
#405 Hermann Nökkvi og Ingvar Smári - Norðurlöndin munu loka hælisleitendakerfunum til að vernda velferðarkerfin 01.04.2025 55:14
Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, og Ingvar Smári Birgisson, lögmaður fara yfir helstu málefni líðandi stundar með Þórarni. Sérstök áhersla er lögð á útlendingamál, aðlögun, menningu og gildi. Einnig er rætt um mál Ásthildar Lóu sem nýlega sagði af sér sem barna- og menntamálaráðherra. - Er mismunandi hvaða hópa þarf að aðlaga? - Hvernig geta þeir sem gagnrýna feðraveldið á Ísl...
#404 Stefán Baxter - Ríkið, gervigreind og hagræðing 22.03.2025 1:04:10
Þórarinn ræðir við Stefán Baxter um gögn, gervigreind, hraðar breytingar í heiminum og hagræðing í ríkisrekstri. Hvernig tengist þetta allt? Það má heyra hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
#402 Róbert Guðfinsson - Fjárfestingar og Ísland 11.03.2025 58:03
Þórarinn ræðir við Róbert Guðfinsson, fjárfesti og athafnamann. Róbert hefur gert sig gildandi á Siglufirði þar sem hann hefur fjárfest mikið á síðustu árum. Í þessum þætti er rætt um áhættufjárfestingar, stjórnmál á Íslandi, ungt fólk, mistök í fjárfestingum, fiskeldi og þeirri spurningu varpað fram hvort að Reykjavík sé ljót. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eð...
#403 Flosi Eiríksson - Á VR að berjast fyrir jöfnuði? 10.03.2025 44:40
Þórarinn ræðir við Flosa Eiríkisson en hann er að vonast eftir því að gerast formaður VR í kosningum sem standa nú yfir fyrir félagsmenn VR. Rætt er um hugmyndafræðilegar ástæður stéttarfélaga, húsnæðismál, stjórnmál, jöfnuð, Ragar Þór Ingólfsson, Höllu Gunnarsdóttur og margt fleira. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn...
#400 Eldur Ólafsson - Áhugi Bandaríkjanna breytir stöðu Amaroq 05.03.2025 1:05:43
Þórarinn ræðir við enn einu sinni við Eld Ólafsson, forstjóra Amaroq Minirals á Grænlandi. Að þessu sinni er rætt um alþjóðastjórnmálin og hvernig staða Amaroq kann að hafa breyst nú þegar Donald Trump hefur sýnt landinu aukinn áhuga vegna fágætra málma og öðru jarðefni. - Hvað þarf Þorgerður Katrín að gera til þess að vinna fyrir hagsmunum Íslands? - Hvernig gengur gröftur Amaroq eftir strategísk...
#401 Ein Pæling á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 01.03.2025 1:28:27
1. Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson 00:00 2. Jens Garðar Helgason 29:44 3. Heiðar Guðjónsson 52:35 4. Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir 1:15:30 Þórarinn er staddur á landsfundi sjálfstæðisflokksins til þess að taka stöðuna. Rætt er við áhrifafólk innan fólksins sem og fleiri. Fyrst er rætt við Þórð Gunnarsson, hagfræðing, og Andreu Sigurðardóttur, blaðamann. Rætt er um stöðu Sjá...
#397 Þórður Pálsson - ESG, menningarbreytingar og rétttrúnaðurinn 25.02.2025 1:08:28
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um breytingar í heiminum og hvað þær munu koma til með að hafa áhrif á í samhengi við fjármálamarkaði og fleira. - Er ESG kerfið fallið? - Hvaða áhrif munu áherslubreytinar Trump koma til með að hafa? - Á að taka á móti fólki sem hafnar menningu okkar? Þessum spurningum er svarað hér Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
#399 Áslaug Arna Sigubjörnsdóttir - Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? 24.02.2025 56:31
Þórarinn ræðir við Áslaugu Örnu, frambjóðanda til formanns Sjálfstæðisflokksins, um stefnu og strauma í stjórnmálunum. Fjallað er um nýja hægribylgju í stjórnmálunum, pólitík á Íslandi og margt fleira. - Hvernig hefði Áslaug tæklað mál Helga Magnúsar? - Afhverju gagnrýndi Áslaug Ásmund Friðriksson í útlendingamálunum? - Mun Áslaug Arna verða Margaret Thatcher okkar Íslendinga? Þessum spurningum er...
#398 Hersir Aron Ólafsson - Hvað þarf til þess að verða formaður Sjálfstæðisflokksins? 22.02.2025 57:37
Hersir Aron Ólafsson er fyrrum aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti er rætt um hvað formaður Sjálfstæðisflokksins þarf að geta tekist á við, stjórnmálin, breytta heimsmynd, að stjórna narratívi, Íslandsbankasölumálið, fjölmiðla, útlendingamál og að geta unnið með fólki sem er manni ósammála. Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeli...
#396 Jón Pétur Zimsen - Ótrúlegt ábyrgðarleysi í Breiðholtsskólamálinu 20.02.2025 1:06:12
Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, fyrrum skólastjóra og núverandi alþingismann Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um stöðuna sem er komin upp í Breiðholtsskóla þar sem drengir af erlendum uppruna valsa stjórnlaust um óafskiptir og hefur tekist að ná heljargreipum á skólanum. Jón Pétur gagnrýnir þetta og segir yfirvöld og stjórnendur skólans bersýnilega hafa brugðist í þessu máli. - Afhverju geta sk...
#395 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir - Gerendur neita alltaf sök 19.02.2025 59:50
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um stöðu feminískrar baráttu. Rætt er um gerendur, breytt viðhorf ungmenna, stjórnmálin og margt fleira. Til að styðja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
#394 Árni Helgason - Sjálfstæðisflokkurinn þarf að leita út fyrir Borgartúnið 17.02.2025 1:14:58
Þórarinn og Árni Helgason, lögmaður og fyrrum hlaðvarpsstjórnandi, stinga á hin ýmsu kýli. Rætt erum rétttrúnaðinn og hvernig stjórnmálin hafa breyst á undraskömmum tíma. - Hvað gerir vinstrið þegar pendúllinn sveiflast til baka? - Er búið að reka Gretu Thunberg sem orkumálastjóra heimsins? - Hvað ef Trump ásælist Ísland? - Hvaða áhrif hefur menningarmunur í byggingariðnaði? - Þarf Javier Milei...
#393 Sigurður Hannesson - Hver verða áhrif tollastríðs á lífskjör á Íslandi? 14.02.2025 54:40
Þórarinn ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka iðnaðarins, um stöðuna er varðar verðmætasköpun, tollamál, stjórnmálin og margt fleira. - Hver verða áhrif tollastríðs á lífskjör á Íslandi? - Var Jóhann Páll sá ráðherra sem við biðum eftir? - Á að loka álverum og gagnaverum? Þessum spurningum er svarað hér.
#392 Agnar Tómas Möller - Pendúlsveiflan til hægri verður ekki stöðvuð 13.02.2025 1:03:40
Þórarinn ræðir öðru sinni við Agnar Tómas Möller um hin ýmsu mál. Sérstök áhersla er lögð á breytt umhverfi stjórnmálanna í heiminum og hvernig pendúllinn virðist ætla að sveiflast langt til hægri eftir langt skeið vinstri stjórnmála. - Hver er framtíð Evrópu? - Er MEGA á leiðinni? - Hvað ætlar Trump sér að gera með tollastríðinu? Þessum spurningum er svarað hér.
#391 Diljá Mist og Jakob Birgisson - Valkyrjuelskendur 09.02.2025 55:04
Þórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur og Jakob Birgisson um stöðu stjórnmálanna. Til að styðja þetta framtak og fá þáttinn á undan öðrum má fara á www.pardus.is/einpaeling.
#390 Hörður Arnarsson - Vond staða í orkumálum komin til vegna meðvirkni gagnvart minnihlutahópum 06.02.2025 54:45
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunnar, mætir öðru sinni til þess að ræða stöðuna í orkumálum. Hann telur vonda stöðu í orkumálum komna upp og ástæðuna segir hann vera meðvirkni gagnvart minnihlutahópum sem hafa aðgengi að fjölmiðlum, sem dansa í takt. Staða Hvammsvirkjunnar sé mikið bakslag og mikilvægt sé að kippa leyfinu í liðinn eins fljótt og auðið er. Ellegar sé staðan orðin alvarleg. Ti...
#389 Helgi Hrafn Gunnarsson - Upplýsingahernaður og skömm 28.01.2025 1:20:27
Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmann Pírata, um stjórnmálin í dag, upplýsingahernað, Rússland, tjáningarfrelsi, lýðræði, skömm, heiðursglæpi og margt fleira. - Ætlar Helgi Hrafn aftur á þing? - Stendur lýðræðissamfélögum ógn af trúarbrögðum? - Eru Rússar þeir einu sem stunda upplýsingahernað? Þessum spurningum er svarað hér.
#388 Trausti Breiðfjörð - Hægrimenn flytja útlendingavandann inn 22.01.2025 1:07:00
Þórarinn ræðir við sósíalistann Trausta Breiðfjörð en hann hefur verið virkur í starfi sósíalistaflokksins og setið sem borgarfulltrúi í Reykjavík. Þá er rætt um símanotkun, sósíalisma, kapítalisma, fjölmenningu, heiðursmenningu, bresk kynferðisafbrotagengi, örorku og margt fleira. - Eru hægrimenn að flytja inn útlendingavandann? - Er fjölmenning komin til að vera? - Afhverju er örorka að aukast...
#387 Ísak Rúnarsson - Styður ný ríkisstjórn við verðmætasköpun? 21.01.2025 58:17
Þórarinn ræðir við Ísak Rúnarsson, forstöðumann málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins. Í þættinum er lögð sérstök áhersla á hvaða undirstöður þurfi að vera til staðar til þess að ríki ná árangri og er bókin Why Nations Fail notuð til þess að fjalla um þau mál. Í því samhengi er rætt um atvinnufrelsi, Milton Friedman, kerfislega þætti verðmætasköpunar, fjölmenningu, kulnun, strandveiðar, fiskeldi og...
#386 Brynjar Níelsson - Ríkið er ekki lausnin 15.01.2025 1:53:52
Þórarinn og Brynjar tylla sér og ræða hin ýmsu mál. Í fyrstu er fjallað um það afhverju það er gott að búa á Íslandi og formann Sjálfstæðisflokksins. Í kjölfarið er rætt um vanda Sjálfstæðisflokksins, kulnun, nýja ríkisstjórn, fjölmenningu, stjórn Reykjavíkurborgar, spillingu, skólamál, lyfjanotkun barna, væl innan veggja háskólanna og margt fleira. - Er hægt að taka mark á háskólagráðum? - Er Ísl...
#385 Sigurður Anton - Hvað er fasismi? 11.01.2025 1:53:02
TikTokstjarnan Sigurður Anton vakti mikla athygli í aðdraganda nýliðinna alþingiskosninga þar sem hann ræddi um fasisma, stjórnmálin, nýfrjálshyggju og fleira. Í þessum þætti er rætt um þau mál ásamt fyrirtækjaeign verkafólks, kynferðisafbrotahringi í Bretlandi, kynjamál og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#384 Sölvi Tryggvason - Sjálfsábyrgð, RÚV og Donald Trump 05.01.2025 1:07:41
Sölvi Tryggvason, hlaðvarpsstjórnandi með meiru, spjallar við Þórarinn um stjórnmálin á Íslandi, hugarfar, heilsu, Donald Trump, RÚV og margt fleira. - Afhverju klárar RÚV ekki umfjöllunina um Sölva Tryggvason? - Sölvi Tryggvason er spenntur að sjá breytingarnar sem Donald Trump og Robert F. Kennedy munu gera. - Myndi Sölvi starfa hjá RÚV fyrir þrjár milljónir á mánuði? Þessum spurningum er svarað...
#383 Björn Jón Bragason - Sjálfshatur hins Vestræna heims 30.12.2024 1:12:40
Björn Jón Bragason mætir í settið og ræðir hina ýmsu hluti. Meðal annars mannréttindi, stjórnmálin á Íslandi, hugarfar, hægribylgju ungs fólks, menningarlega afstæðishyggju, vinstri róttækni og Vestræn Gildi. - Fylgja því engar kröfur að gerast íslenskur ríkisborgari? - Er hægribylgja ungs fólks óumflýjanleg? - Er menningarleg afstæðishyggja fyrirlitlegri en aðrar syndir? Þessum spurningum er svar...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.