Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#465 Sólveig Anna Jónsdóttir - Vinstrið verður að kljúfa sig frá woke-inu 07.09.2025 1:12:58
Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um stjórnmál, rétttrúnað, kjarabaráttu, stöðu láglaunafólks og margt fleira. Umfjöllunin snýr meðal annars að undarlegum vendingum á vinstri væng stjórnmálanna, þar sem áherslan hefur oft færst yfir í táknræn mál á borð við „píkupólitík“ og kvennafrídaga. Sólveig leggur áherslu á að barátta láglaunafólks verði að byggjast á raunveruleg...
#464 Kolbeinn H. Stefánsson - Frelsi og sjálfsritskoðun akademíunnar 05.09.2025 1:08:26
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um akademískt frelsi, útlendingamál og Háskóla Íslands. Akademískt frelsi hefur verið sérstaklega áberandi umræðuefni undanfarið eftir að Ingólfur Gíslason, aðjúnkt við deild menntunar og margbreytileika, tók þátt í mótmælum sem urðu til þess að ísraelski prófessorinn Gil S. Epstein gat ekki haldið erindi á vegum Háskóla Íslands. Sama dag og hlaðvarpið var...
#463 Konráð Guðjónsson - Lækkunarferli stýrivaxta lokið í bili 03.09.2025 1:04:35
Þórarinn ræðir við Konráð Guðjónsson, fyrrum aðstoðarmann utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem og fyrrverandi efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar síðustu, um stefnu og stöðu efnahagsmála á Íslandi nú þegar lækkunarferli stýrivaxta er komin á bið. Rætt er um áhrif húsnæðismála á verðbólguna, kjaramál og krónutöluhækkanir, framleiðni, styttingu vinnuvikunnar, stefnu ríkisstjórnarinnar, kulnun o...
#462 Hjálmtýr Heiðdal - Akademískt frelsi, prinsip og þjóðarmorð 30.08.2025 1:11:58
Þórarinn ræðir við Hjálmtý Heiðdal, formann Félagsins Ísland-Palestína um stríðið fyrir botni miðjarðarhafs, stjórnmálin á Íslandi, akademískt frelsi og sumarbústaðarferðir. Rætt er um stríðið ásamt því að ræða vendingar hérlendis er varðar mótmælendur sem hafa bæði ráðist gegn fjölmiðlum og akademísku frelsi á Íslandi. Hjálmtýr og Þórarinn takast á um það hvar mörk tjáningarfrelsi prófessora eig...
#461 Magnús Árni Skjöld Magnússon - Á Ísland að ganga í ESB? 28.08.2025 1:07:37
Þórarinn ræðir við Magnús Árna Skjöld Magnússon, formann Evrópuhreyfingarinnar og prófessor við stjórnmálafræðideild á Bifröst, um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Farið er um víðan völl og rætt um Draghi skýrsluna, stjórnmálin í Evrópu, stjórnmálin í Evrópu, hvað það þýðir að kíkja í pakkann, hvaða praktísku þýðingu það hefði fyrir Ísland að ganga í ESB, stöðu Evrópuríkjanna og mar...
#460 Snorri Másson - Annaðhvort segir þú hug þinn eða lætur kúga þig 26.08.2025 1:55:51
Þórarinn ræðir við Snorra Másson, inngildingarsérfræðing og þingmann Miðflokksins. Samræðurnar fara um víðan völl en sérstök áhersla er lögð á þær menningarbreytingar sem viðmælandi og þáttarstjórnandi telja að séu að eiga sér stað bæði erlendis en engu að síður hér heima. Menningarbreytingarnar eru settar í samhengi við það hvenær umburðarlyndi verður að trúarsetningu og jafnvel stjórnlyndi. Í þ...
#459 Björgvin Ingi Ólafsson og Sigurður Stefánsson - Hvernig hægt er að leysa húsnæðisvandann 24.08.2025 1:24:41
Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson og Sigurð Stefánsson um það hvernig megi leysa húsnæðisvandann. Rætt er um skipulagsmál, forgangsröðun, markmið, pólitíska eftirspurn, flöskuhálsana, fæðingartíðni, lóðaskort, félagsleg vandamál og margt fleira. Björgvin og Sigurður telja báðir að staðan í dag sé afar slæm og ef fram fer sem horfir muni sífellt færri ungmennum takast að fjárfesta í þaki yf...
#458 Árni Árnason - Er Ugla Tré pólitísk ádeila? 22.08.2025 1:01:41
Þórarinn ræðir við Árna Árnason en hann hefur undanfarið farið mikinn á samfélagsmiðlum þar sem hann birtir satíriskar ádeilur um íslenskt stjórnkerfi og stjórnmál í dulargervi fígúrurnar Ugla Tré. Rætt er um stjórnsýsluna, grín, mannúð, velferð, hvernig maður opnar bakarí og fleira. Árni og Þórarinn deila sögum um reynslu sína og annarra af því að eiga við kerfið en þeir eru sammála um að víða...
#457 Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir - Valkyrjuelskendur: Þáttur 3 20.08.2025 1:18:08
Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson, aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Að þessu sinni er eftirfarandi spurningum svarað: - Er swing sena í Grafarvogi? - Hvað kjósa hlustendur Hjörvars Hafliða? - Hvað hefur Jakob farið oft í Gísla Martein? - Á að setja stífari reglur hvað varðar klæðaburð kvenna? - Þarf nýja baráttu fyrir tálmuð kvár? - Er Jakob...
#456 Róbert Helgason - Hlutir sem kostuðu þúsundir munu kosta örfáar krónur 19.08.2025 52:50
Þórarinn ræðir við Róbert Helgason, sjálfstætt starfandi sérfræðing í málefnum sem snúa að gervigreind. Í hlaðvarpinu er farið yfir mismunandi forsendur og sviðsmyndir sem munu óumflýjanlega valda breytingum á samfélaginu. Róbert telur að þetta muni koma til með að valda straumhvörfum á lífsháttum, atvinnumarkaði og öðru. - Hvernig er best að gera sit tilbúinn fyrir byltinguna sem mun fylgja auknu...
#455 Frosti Sigurjónsson - Þeir fljúga á einkaþotum því þeir vita að þetta er della 17.08.2025 1:17:13
Þórarinn ræðir við Frosta Sigurjónsson, frumkvöðul og fyrrum alþingismann. Frosti hefur miklar efasemdir um ágæti loftslagsaðgerða og að loftslagsbreytingar séu yfir höfuð af mannavöldum. Hann telur að Ísland nýti tækifæri sín ekki að fullu og að margt megi bæta í því að bæta lífskjör á Íslandi. Fjallað er um loftslagsaðgerðir, faraldurinn, thorium, vindmyllur, stjórnmál á Íslandi og hvort að Ísla...
#454 Albert Jónsson - Íslendingar myndu ekki samþykkja loftslagsaðgerðir ef þeir vissu kostnaðinn 13.08.2025 1:04:41
Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um loftslagsmál. Albert hefur víðtæka reynslu af því að vinna á sviði alþjóðamála og hefur skrifað mikið um aðgerðir Íslands í loftslagsaðgerðum sem hann telur ekki byggja á forsendum raunveruleikans. Hann telur að almenningur á Vesturlöndum hafi ekki verið nægilega vel upplýstur um kostnaðinn sem loftslagsaðgerðum fylgir og að stuðningur við slíkar aðgerðir myndi...
#453 Margrét Valdimarsdóttir - Þróun innflytjendamála á Íslandi 05.08.2025 1:12:17
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og kennara við Háskóla Íslands. Í þættinum er rætt um afbrot innflytjenda og hælisleitenda sérstaklega og breytta sviðsmynd á Íslandi í þeim efnum. Sérstök áhersla er lögð á áhrif umræðunnar og hvernig óþol hefur aukist á Íslandi gagnvart menningartengdum breytingum. Fjallað er um spurningar sem vakna þegar hópar taka sig saman á borð vi...
#452 Jón Pétur Zimsen - Framtíð barna fórnað vegna gíslatöku hagsmunaafla 04.08.2025 1:07:44
Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen, skólamann og þingmann Sjálfstæðisflokksins. Rætt er um veiðigjöldin, umræðuna í kringum þau á Alþingi Íslendinga og áhrif þess á stjórnmál framtíðarinnar. Að því loknu er vikið að bágri stöðu skólakerfisins og afhverju foreldrum er haldið í myrkrinu hvað varðar árangri barnanna. Fjallað er sérstaklega um áhrif skjánotkunar og afhverju erfitt virðist vera að úti...
#451 Guðjón Heiðar Valgarðsson - Þetta er alltaf sama klíkan 01.08.2025 1:23:56
Þórarinn ræðir við Guðjón Heiðar Valgarðsson, sjálftitlaðan samsæriskenningamann, um stjórnmál, innflytjendamál, alþjóðapólitík, skjánotkun, heimspeki og margt fleira. Guðjón telur að innflytjendastraumur til Vesturlanda sé hluti af stærri stefnu fólks sem vill koma á heimsstjórnvöldum með auknu vægi stofnanna bandalagsríkja. Hann telur þetta ólýðræðislegt en hælisleitendastraumurinn sé til þess...
#450 Jónas Atli Gunnarsson - Hækkun húsnæðisverðs hefur áhrif á fjölskyldumynstur framtíðarinnar 30.07.2025 1:04:32
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, um uppbyggingu húsnæðis. Fjallað er um þau áhrif á fasteignamarkaðinn sem kunna að eiga sér stað vegna dræmrar sölu á nýbyggingum. Rætt er um ýmsa þætti sem kunna að hafa áhrif á þessa stöðu líkt og hlutdeildarlán, lækkun stofnkostnaðar fyrir óhagnaðardrifna úrræða, stjórnmálin, hvort að HMS sé pólitísk stofn...
#449 Þórður Gunnarsson - Spurning hvað Flokkur fólksins þolir lengi að fá ekkert í gegn 28.07.2025 1:07:09
Þórarinn ræðir við hagfræðinginn Þórð Gunnarsson um ýmis málefni. Rætt er um stjórnmálin á Íslandi, breytta stöðu í útlendingamálum og orkumálum, vindorku, orkutilraunir á Spáni, stöðu vinstrisins, Sjálfstæðisflokkinn og margt fleira. - Afhverju vill enginn hlusta lengur á Landvernd? - Hversu lengi þolir Flokkur fólksins að fá ekkert í gegn? - Er Kristrún Frostadóttir besti leiðtogi Íslandssögunna...
#448 Jasmína Crnac - Hvernig er hægt að eiga samtal um útlendingamál? 24.07.2025 1:16:33
Þórarinn ræðir við Jasmínu Crnac sem hefur bæði reynslu af því að vera flóttamaður og starfa með flóttafólki hér á landi. Fjallað er um hinar ýmsu áskoranir sem mæta löndum sem taka á móti flóttafólki og hvaða áhrif almenningsumræður hafa á málaflokkinn. Rætt er um menningu, stjórnmálin, lýðræði, MENAPT löndin, hvort að endurkomubann eigi að vera á afbrotamenn, öfgaöfl á Íslandi, ofþjónustu og fy...
#447 Jóhanna Jakobsdóttir - Woke-ið er yfirstéttardekur 19.07.2025 1:06:57
Þórarinn ræðir við Jóhönnu Jakobsdóttur, skjalaþýðanda, um tungumálið, rétttrúnaðinn, stjórnmálin, triggerwarning, transmál og áhrif skoðunarkúgunar. Rætt er sérstaklega um stjórnlyndi latra einstaklinga sem að vilja ekki verja eigin skoðanir. Uppeldismál koma einnig upp og rætt hvaða áhrif það hefur ef börn öðlast ekki skráp áður en komið er á fullorðinsár og hvernig þau verða ósjálfbjarga. Trig...
#347 Daníel Jakobsson - Fiskeldi besta leiðin til að auka útflutningsverðmæti 17.07.2025 1:05:08
Þórarinn ræðir við Daníel Jakobsson, forstjóra Arctic Fish, á Ísafirði um fiskeldi, samfélagslega ábyrgð, Þingeyri, veiðigjöldin, stjórnmálin og margt annað. Rætt er sérstaklega um áhrif veiðigjaldsins á Ísafjörð, ákvörðun Arctic Fish að leggja niður fóðurstöðina á Þingeyri, áhrif fiskelda á nærumhverfi og sjávarbotn fjarðanna þar sem þau eru starfrækt, dýraníð og áhrif á laxveiðiár. Einnig er ræt...
#446 Páll Heiðar Pálsson - Hið opinbera á að vera lausnin, en er vandamálið 11.07.2025 1:03:19
Páll Heiðar er fasteignasali og eigandi stofunnar pallpalsson.is. Í þessum þætti er rætt um fasteignamál og rýnt í virðiskeðju húsnæðisuppbyggingar. Fjallað er um lóðaskort, stjórnmálin, stöðu verktaka, afhverju fólk kýs að nýta þjónustu fasteignasala, hver er munurinn á að selja nýbyggingu og annað húsnæði og hvaða áhrif kulnun á markaði muni koma til með að hafa til lengri tíma og verðbil nýrra...
#445 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller - Ríkjandi hugmyndafræði menntaelítunnar er skemmdarstarfsemi 09.07.2025 1:31:53
Þórarinn ræðir við Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller um tengsl þekkingar, efnahagslegs frelsis og pólitísks frelsis. Sérstök áhersla er lögð á menningu og menntakerfið sem undirstöður framfara í nútímasamfélagi. Þremenningarnir vara við að óveðurský séu farin að hrannast upp og að verði ekki gripið í taumana muni þróunin leiða til minni velsældar fyrir komandi kynslóðir. Hugleiðingarnar eru...
#434 Ævar Sveinn Sveinsson - Sveitarfélögin ábyrg fyrir fasteignaskorti og hárri verðbólgu 05.07.2025 1:04:54
Þórarinn ræðir við Ævar Svein Sveinsson, húsasmiðameistara og verktaka um húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað er sérstaklega um þau atriði sem að viðhalda skorti á húsnæði og hvað veldur því að ákveðnar íbúðir seljast ekki. Ævar Sveinn telur að afköst þeirra sem starfa við húsnæðisuppbyggingu sé ekki nálægt því sem hún gæti verið. Ástæðan sé einföld; ákvarðanir stjórnvalda. Þétting...
#433 Gunnar Smári Egilsson - Yfirtaka hýenuhvolpa á Sósíalistaflokknum 02.07.2025 1:06:31
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um stöðu sósíalisma á Íslandi í samhengi við yfirtöku nokkurra aðila á Sósíalistaflokknum nýverið. Rætt er um hugmyndafræðina, pólitíkina, hvort að Gunnar sér sár yfir því að hafa verið bolað út, hvort að byltingin éti alltaf börnin sín, staða Samfylkingarinnar, stöðu vinstrisins, peninga Sósíalistaflokksins og hvort að Gunnar Smári sé hættur í stjórnmálum....
#432 Frosti Logason - Þversagnir og fráhvarf rétttrúnaðarins 30.06.2025 1:12:02
Þórarinn ræðir við Frosta Logason, fjölmiðlamann með meiru sem stýrir þáttum ða Brotkast.is. Fjallað er um hvernig rétttrúnaðurinn náði tökum á akademíu í Vestrænum háskólum og leikhúsinu, uppruna woke-sins í samhengi við Frankfurtar Háskólann, Ísrael, Íran og Írak, #MeToo, innflytjendamál og Vestræn gildi. - Afhverju kemur straumur fólks til Evrópu sem hatar Evrópsk gildi? - Hver er afrakstur #Me...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.