Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Society IS ↓ 618 episodes

Hlaðvarp

Author

Thorarinn Hjartarson

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#42 Húsnæði í Reykjavík - Þétting, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn (Viðtal við Pawel Bartoszek) 30.01.2021

Þórarinn og Eyþór ræða við Pawel Bartoszek um húsnæðismál í Reykjavík. Farið er yfir stefnu borgarstjórnar og áform hennar um að þétta byggð, hugmyndafræðileg álitaefni, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn.

#41 Kjötneysla og loftslagsaðgerðir í Reykjavík (Viðtal við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson) 26.01.2021

Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson borgarfulltrúa um ágreining þeirra varðandi áætlanir meirihluta borgarstjórnar um að minnka kjötneyslu til muna á ýmsum sviðum Reykjavíkurborgar. Samræðurnar fara um víðan völl, auk kjötneyslu ræða þau loftslagsmál, lífstílssjúkdóma, þéttingu byggðar og húsnæðisskort.

#40 Mun Bitcoin ná heimsyfirráðum? (Viðtal við Ívar Ketilsson) 20.01.2021

Kristín, Þórarinn og Eyþór koma öll saman til þess að ræða við Ívar Ketilsson um Bitcoin. Fólk sér ýmist Bitcoin fyrir sér sem fjárfestingu, gjaldmiðil eða jafnvel eitthvað sem mun koma til með að gjörbreyta núverandi efnahagskerfi. Umræðurnar snúa að því að fara betur í saumana á þessu máli. Þau ræða peninga í sögulegu samhengi, hvernig Bitcoin virkar og hvaða eiginleika það hefur ásamt því að rö...

#39 Árás á þinghúsið í Washington D.C. (Viðtal við Friðjón R. Friðjónsson) 13.01.2021

Þórarinn ræðir við Friðjón R. Friðjónsson um árásina á þinghúsið í Washington þann 6. janúar. Rætt er um hvaða orsakasambönd leiddu til þess að árásin var gerð, hugtakið "Moral Marshall Plan" ásamt því að íhuga og ígrunda hvaða skref séu nauðsynleg fyrir Bandaríkjamenn að taka til þess að takast á við þau vandamál sem bandarísk stjórnmálamenning stendur frammi fyrir.

#38 Skattar, neysla og landsbyggðin 08.01.2021

Þórarinn og Eyþór ræða við Ívar Elí um skatta, neyslu og vægi landsbyggðarinnar. Auk þess ræða þeir hvort fyrirgefa eigi Samherja, atvinnuleysisbætur og álitamál sem snúa að niðurgreiddri sálfræðiþjónustu.

#37 Ekki-party í Ásmundarsal (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 29.12.2020

Eyþór og Þórarinn ræða við Þórð Snæ Júlíusson um grein Þórðar sem ber heitið 'Bjarni Sigurvegari'. Greinin fjallar um athæfi Bjarna Benediktssonar á Þorláksmessu þegar honum var boðið í samkvæmi sem lögreglan stöðvaði vegna brots á sóttvarnarreglum. Þremenningarnir ræða kosningagengi Sjálfstæðisflokksins í sögulegu samhengi og hvaða áhrif Þorláksmessuævintýrið muni koma til með að hafa í komandi k...

#36 Sjálfstæðisflokkurinn í borginni (viðtal við Hildi Björnsdóttur) 19.12.2020

Þórarinn og Eyþór ræða við Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þríeykið ræðir hugmyndafræði sjálfstæðisflokksins, einkavæðingu skóla, skatta, kynjakvóta, ungt fólk og byggingariðnaðinn í Reykjavík.

#35 Landsréttarmálið, hrossakaup og fleira (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson) 13.12.2020

Bjarni Halldór Janusson komst í fréttirnar vegna atkvæðagreiðslu árið 2017 í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu, hrossakaup og hræsni í íslenskum stjórnmálum, ítök Sjálfstæðisflokksins, Bandarísk stjórnmál, Covid-19 og fleira. MDE 00:02:00 Hrossakaup í íslenskum stjórnmálum og aðhaldsskylda stjórnmálamanna 00:14:30...

#34 The Future of Capitalism (A conversation with Sir Paul Collier) 06.12.2020

On this podcast, Þórarinn speaks to Sir Paul Collier, professor of economics at the Blavatnik School of Government at Oxford University. They speak about Paul's book, The Future of Capitalism: Facing the New Anxieties, which was published in 2018. They discuss what implications Covid-19 has had on his prior projections and how societies can fix the economic problems following the great divergence...

#33 Iceland and the Great Barrington Declaration (An interview with Martin Kulldorff) 28.11.2020

Martin is a professor of medicine at Harvard University and does research in statistical and epidemiological methods for disease surveillance. Martin answers Þórarinn's inquiries about the proposals laid out in the infamous Great Barrington Declaration within the context of Iceland, the political implications of the virus, and much more.

#32 Fyrirtæki og hagsmunir (Viðtal við Simma Vill) 25.11.2020

Þórarinn og Eyþór ræða við Simma Vill um rekstur fyrirtækja á Íslandi. Þeir ræða veitingarekstur og muninn á því að vera í slíkum rekstri á Íslandi í samanburði við önnur lönd og sögu Simma í rekstrinum. Í kjölfarið á því er skipt um gír. Þremenningarnir ræða pólitískan rétttrúnað og stjórnmál. Mun langtímahugsjóna Kína í samanburði við skammtímalausnir vestrænna landa. Orkumál og hvaða þýðingu lo...

#31 Sóttvarnalæknir svarar gagnrýni vegna Covid-19 aðgerða (Viðtal við Þórólf Guðnason) 20.11.2020

Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um aðgerðir vegna Covid-19 á Íslandi. Þórólfur svarar gagnrýni Barrington-yfirlýsingarinnar, hvað bóluefni þýðir fyrir næstu mánuði, hvernig tímanum hefur tekist að gera veiruna pólitískt íþyngjandi og fleiru.

#30 Aðgerðir vegna Covid-19 - Ofríki og frelsi (Viðtal við Brynjar Níelsson) 14.11.2020

Brynjar Níelsson sest niður með Þórarni til þess að ræða álitamál sem snúa að aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19. Þeir ræða sænsku leiðina, tjáningarfrelsi og umræðuna í kringum veiruna, hvort að auka eigi útgjöld til heilbrigðiskerfisins og fleira.

#29 Hlaðvarpið eins árs - Uppgjör og fleira 08.11.2020

Hlaðvarpið Ein pæling hefur nú verið starfandi í heilt ár. Stofnendur fagna því með því að fara yfir fyrri hlaðvörp og margt, margt fleira.

#28 Að snúa baki við róttækni - Einsleitni skoðana, hóphyggja og öfgar (Viðtal við Ivu Adrichem) 29.10.2020

Þórarinn ræðir við Ivu Adrichem um einkennapólitík, fræðasamfélagið, hóphyggju, LGB teymið, tjáningarfrelsi, dygðaskreytingu og margt fleira.

#27 Sósíalískur Femínismi (Viðtal við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur) 24.10.2020

Þórarinn ræðir við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur um sósíaliskan femínisma, hóphyggju, hatursorðræðu, rasisma og fleira.

#26 Þróun stjórnmála í hinum vestræna heimi - Kosningar, lýðræði og Covid 19 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson) 20.10.2020

Þverpólitískt hlaðvarp þar sem Þórarinn sest niður með Ólafi Þ. Harðarsyni háskólaprófessor við Háskóla Íslands. Þeir ræða þróun flokkakerfisins á Íslandi síðastliðin 20 ár, óstöðuleika í stjórnmálum, áhrif covid 19 á íslensk og erlend stjórnmál, uppgang popúlisma, hvort að vinstri stjórnmálaflokkar hafi svikið verkamenn, bergmálshella og nýju stjórnarskrána.

#25 Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Þórhildur Sunna (Viðtal við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur) 18.10.2020

Eyþór og Þórarinn ræða við Þórhildi Sunnu þingmann Pírata. Þau ræða aðgerðir stjórnvalda vegna Covid 19, stéttabaráttu Icelandair, málefni hælisleitenda, mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu og fleira.

#24 Hvað er framtíðin? (Viðtal við Berg Ebba) 11.10.2020

Í þessu hlaðvarpi ræða Kristín og Þórarinn við Berg Ebba um framtíðina. Umgjörð spjallsins byggist á bók Bergs Ebba, Skjáskot, og fara þremenningarnir vítt og breytt í sínum hugleiðingum um tækniframfarir, samfélagsmiðla og gervigreind.

#23 Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir (Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur) 11.09.2020

Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir sest niður með Þórarni og Eyþóri til þess að ræða ýmis pólitísk álitaefni. Þau ræða núverandi stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, kosningarnar 2021, aðgerðir stjórnvalda í kringum heimsfaraldurinn, nýju stjórnarskrána og fleira.

#22 Skoðanapakkar, háskólar og stjórnmálamenning (Viðtal við Einar Steingrímsson) 09.09.2020

Farið er um víðan völl. Einar Steingrímsson er stærðfræðingur sem bítur sjaldan í tunguna. Eyþór og Þórarinn ræða við hann um háskólamenningu og rannsóknarstarf, liðahugsun og skoðanapakka, einkennapólitík (identity politics), hlutafjárútboð Icelandair, trickle down economics og stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Að lokum tala þremenningarnir um tjáningarfrelsi og spá í framtíð a...

#21 Trans - Samfélagsleg álitamál (Viðtal við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur) 15.08.2020

Þórarinn og Kristín ræða við Uglu Stefaníu um samfélagslegu spurningar sem brenna á mörgum í sambandi við trans mál. Þau ræða tjáningarfrelsi og siðareglur fjölmiðla, mismunandi kyn og fornöfn, hvenær trans manneskja verður trans, blæðingar, íþróttir, fangelsi vald og fleira.

#20 Afleiðingar lögregluafskipta í Bandaríkjunum 09.08.2020

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur um lögregluafskipti og afleiðingar þess í Bandaríkjunum. Rasismi er rauði þráður hlaðvarpsins en Margrét skrifaði doktorsritgerð um afleiðingar lögregluafskipta á ungt fólk og hvernig það hefur áhrif á framtíð þess. Ásamt ritgerðinni ræða þau morðið á George Floyd, ákvörðun Trump um að beita alríkislögreglunni til þess að takast á við mótmælin, aðrar rit...

#19 Cultural appropriation og rasismi á Íslandi (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere) 11.07.2020

Kristín, Sunna og Þórarinn ræða um menningarnám (cultural appropriation) og fara yfir þau ýmsu álitamál sem að málinu snúa. Þau ræða íþróttir, hrekkjavökubúninga, fastar fléttur og fleira. Hefði Dagbjört Rúriks átt að biðjast fyrirgefningar fyrir að fá sér fastar fléttur? Hefði Pétur Jóhann átt að biðjast fyrirgefningar fyrir það að gera grín að asískum vændiskonum? Þríeykið reynir að svara þessum...

#18 Rasismi, óeirðir og mótmæli (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere) 30.06.2020

Sunna Sasha Larosiliere er blönduð stelpa sem ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Hún er stjórnmálafræðingur og með mastersgráðu í krísustjórnun. Kristín og Þórarinn ræða við hana um rasisma í Bandaríkjunum, óeirðirnar og mótmælin í kringum morðið á George Floyd og fleira. Viðtalið er nokkurskonar framhald af þarsíðasta viðtali þar sem aðrir vinklar eru skoðaðir.

Listen to the Ein Pæling podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.