Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#17 Forsetaframbjóðandinn Guðmundur Franklín (Viðtal við Guðmund Franklín) 24.06.2020 23:30
Þórarinn ræðir við Guðmund Franklín forsetaframbjóðanda. Viðtalið er stutt og fer þorri þess í að rýna í pólitískar skoðanir Guðmundar á hinum ýmsu málefnum. Stefna hans er að efla forsetaembættið með því að nýta málskotsréttinn í meira mæli en fyrrum forsetar. Þeir ræða innflytjendamál, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og hvaða alþingismann Guðmundur myndi kjósa sér til þess að prófa ayah...
#16 Lögregluofbeldi og morðið á George Floyd 14.06.2020 1:58:13
Í þessum þætti ræða Kristín, Þórarinn og Eyþór lögregluofbeldi og morðið á George Floyd. Þau velta fyrir sér hugmyndafræði Black Lives Matter, dyggðarskreytingu fjölmiðla og black out tuesday, hvort rasismi sé meiri á Íslandi eða í Bandaríkjunum og hvaða áhrif mótmælin og óeirðirnar munu koma til með að hafa á framtíðina.
#15 Fitufordómar (Viðtal við Töru Margréti og Ernu Kristínu) 08.06.2020 1:22:09
Kristín og Þórarinn ræða við Töru Margréti og Ernu Kristínu um fitufordóma. Fyrst fara Tara og Erna yfir skilgreiningu fitufordóma og hvaða áhrif þeir hafa á samfélagið í heild. Rætt er um álitamál heilbrigðisvísindanna, holdarfar og hamingju, offitu barna, hvort það megi gera grín að feitum og ummæli Kára Stefánssonar um greindarvísitölu fólks í offitu.
#14 Hver er Brynjar Níels? (Viðtal við Brynjar Níelsson) 30.05.2020 1:03:56
Í þessum þætti kynnast Þórarinn og Eyþór Brynjari Níelssyni. Í fyrstu er rætt um upphaf Brynjars í stjórnmálum og álit hans á ýmsum efnum. Þaðan er lagt í umræður um fíknivanda, hugsunastjórnun, akademíuna, fóstureyðingar og aðgerðir stjórnvalda á tímum Covid-19. Að lokum er Brynjar spurður hverjum hann myndi bjóða í eftirparty og hverjum hann myndi síst vilja fara með í sumarbústaðarferð.
#13 Covid 19 - Kreppan og aðgerðir stjórnvalda (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 27.05.2020 1:08:27
Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðgerðir stjórnvalda og þá kreppu sem Covid-19 krísunni fylgir. Þeir ræða hlutabótaleiðina, mismunandi styrki og lán sem stjórnvöld hafa lofað, ójöfnuð, skiptingu auðlinda, fjórðu iðnbyltinguna og fleira.
Podcastumræður #1 - Yuval Noah Harari og Sam Harris 17.05.2020 37:24
Kristín og Þórarinn prófa örlítið nýtt í þessum þætti. Þau ræða mismunandi hugmyndir sem komu fram í hlaðvarpi Sam Harris þar sem hann ræðir við Yuval Noah Harari. Hlaðvarpið nefnist Making Sense Podcast og er þátturinn númer 201. Umræðuefnin eru breyttar hugmyndir um dauðann, vald og ný gildi á tímum covid, stöðu alþjóðasamskipta, samfélagslegan klofning og jákvæðar hliðar þjóðernishyggju, og að...
#12 Covid 19 - Efnahagur, heimspeki og fleira 10.05.2020 1:25:23
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða Covid 19 og áhrif þess. Tekist er á um hvort að "sænska leiðin" sé rétta svarið og hvaða afleiddu afleiðingar það mun koma til að hafa á efnahag þróunarlanda. Þeir ræða hlutabótaleiðina, hegðun fyrirtækja á opinberum markaði og hvaða áhrif það muni hafa á stjórnmál á Íslandi í náinni framtíð. Að lokum er heimspeki rædd og reynt að finna svar við hvers virði mannslí...
#11 Fjölmiðlar og pólitískur rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 13.02.2020 1:35:31
Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, ak...
#10 Samfélagsmiðlar 06.02.2020 1:17:43
Að þessu sinni ræða Eyþór, Kristín og Þórarinn samfélagsmiðla. Þau ræða menningarleg, heilsufarsleg og pólitísk áhrif þeirra og spá fyrir um hvernig þetta muni breyta samfélögum um allan heim í náinni framtíð. Rýnt er í gögn um þau geðrænu vandamál sem samfélagsmiðlar virðast auka og hvort rétt sé að, og jafnframt hvort hægt sé að, sporna við síauknum yfirráðum tæknirisanna.
#9 Saving Democracy (A conversation with Lawrence Lessig) 26.01.2020 1:02:07
In this episode Þórarinn talks to Lawrence Lessig. Lawrence is a professor at the Harvard School of Law and an adamant fighter for democracy around the world. They discuss how technology is corrupting our minds to benefit financially while simultaneously undermining our democratic institutions. Lawrence gives a brief description of the Icelandic referendum in 2012 for a new constitution, what it m...
#8 Innflytjendur (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac) 03.01.2020 1:26:42
Kristín og Þórarinn fá Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac með sér í hlaðvarpið til þess að ræða innflytjendur. Þórður er ritstjóri Kjarnans og Jasmína er verkefnastjóri fjölmenningar hjá Mennigarhúsum í Kópavogi og varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Farið er yfir efnahagslegar, menningarlegar og samfélagslegar afleiðingar þess að taka á móti innflytjendum. Munurinn milli innflytjenda, flóttamanna o...
#7 Breskar þingkosningar 2019 (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson) 31.12.2019 1:38:46
Eitt þverpólitískt. Þórarinn er einn að þessu sinni en fær til sín góðan gest. Bjarni Halldór Janusson var á sínum tíma yngsti þingmaðurinn til þess að gegna Alþingisembætti og stundar nú framhaldsnám í stjórnmálafræði í Bretlandi. Þórarinn og Bjarni ræða Breskar þingkosningar og hvernig popúlismi hefur haft áhrif á landslag stjórnmálanna í Evrópu. Þeir varpa fram eftirfarandi spurningum: Hafa vin...
#6 Viðbótarhlaðvarp 06.12.2019 1:15:15
Sökum veikinda og prófatíðar hefur meðlimum hlaðvarpsins ekki tekist að setjast niður í nokkurn tíma. Eyþór og Þórarinn ákveða því að fá Ívar Elí aftur í heimsókn. Hlaðvarpið er að mestu óundirbúið og tekur á eftirfarandi málefnum: Neysluhyggju Loftslagsmálum Kapítalisma Afhverju vinstri-flokkar gáfust upp á verkafólki Kynþáttahatri (Deeyah Khan og Daryl Davis) Hillary Clinton Sameiningu pólitískr...
#5 Karlmennskan (Viðtal við Þorstein V. Einarsson) 21.11.2019 2:10:27
Í þessu hlaðvarpi setjast Kristín og Þórarinn niður með Þorsteini V. Einarssyni og ræða um karlmennsku. Þorsteinn er forsprakki hugverksins #Karlmennskan sem leitast eftir að brjóta niður kynjaðar staðalímyndir sem samfélagið setur okkur. Kristín og Þórarinn hafa spurningar og leiðir það til áhugaverðrar samræðu um femínisma, karlmennsku, samfélagið, pólitík, aðferðarfræði „vondra/góðra“ femínista...
#4 Kynjakvóti, Íslandsbanki og Samfylkingin 05.11.2019 34:29
Kristín, Þórarinn og Eyþór rökræða bæði kynjakvóta og kvennakvóta. Til þess eru notuð tvö tilvik sem nýverið leituðu í fréttirnar. Annarsvegar er rætt um þegar Íslandsbanki tilkynnti að bankinn myndi koma til með að hætta að auglýsa hjá þeim fjölmiðlum sem ekki hefðu jafnrétti kynjanna á sinni stefnuskrá. Og hinsvegar er rætt um nýja stefnu Samfylkingarinnar um kvennakvóta. Flokkurinn vildi rótfes...
#3 Reykjavíkurdætur 03.11.2019 1:10:39
Hvenær gengur grín of langt? Í þessu hlaðvarpi fjalla Eyþór, Þórarinn og Ívar Elí um siðferði uppistandara og nota dæmi þess þegar Anna Svava gerði grin að Reykjavíkurdætrum í uppistandi sínu með Birni Braga.
#2 Norðurvígi 03.11.2019 55:09
Í þessu hlaðvarpi fjalla Þórarinn, Kristín og Eyþór um Norðurvígi, innflytjandamál og hvað það þýðir að vera Íslendingur.
#1 Tjáningarfrelsi 03.11.2019 1:22:31
Stunda Samtökin 78' hatursorðræðu? Í þessu hlaðvarpi ræða Eyþór, Þórarinn og Kristín um tjáningafrelsi. Farið er yfir siðferðislegar spurningar þessa hvar línan eigi að liggja og hvar tjáningafrelsi verður of rúmt. Einnig er talað um andstæðinga Donald Trump, Trigger Warnings, Safe spaces, Kína og sjálfstæðar hugsanir.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.