Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#67 Er samfélagið safnhaugur einstaklinga? (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 26.06.2021 1:47:31
*Upptaka frá 12.06.21 Þórarinn og Gunnar Smári Egilsson ræða um dauða nýfrjálshyggjunnar, húsnæðismarkaðinn, stjórnmál, félagslegan Darwinisma og margt fleira. •00:06:20 Dauði nýfrjálshyggjunnar •00:20:00 Afrek sósíalískrar hugsunar á 20. öldinni •00:26:00 Aporophobia og húsnæðismarkaðurinn •00:31:00 Að hata vandamálin •00:34:00 Magnús Scheving og innantómar tilfinningar og væl stjórnmálamanna •00...
#66 Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi (Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason) 24.06.2021 57:11
Þórarinn ræðir við Jóhannes Þór, framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar, um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi. •00:00 - Tilgangur SAF •04:50 - Simmi Vill er að tala út um rassgatið á sér •14:50 - Þegar ferðaþjónustan breyttist úr frjálshyggjumönnum í sósíalista vegna Covid-19 •21:40 - Hlutverk stjórnvalda eftir Covid •27:30 - Ferðaþjónustan var á niðurleið fyrir Covid-19. Hversu langt mun viðspy...
#65 Á að niðurgreiða sálfræðiþjónustu? (Viðtal við Tryggva Guðjón Ingason) 17.06.2021 57:40
Tryggvi Guðjón Ingason er formaður Sálfræðingafélag Íslands. Þórarinn ræðir við Tryggva um pólitísk og praktísk álitaefni sem snúa að niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.
#64 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar stefnir á þing (Viðtal við Hildu Jönu Gísladóttur) 15.06.2021 1:00:35
Þórarinn ræðir við Hildu Jönu Gísladóttur. Hilda er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Akureyrarbæ og stefnir nú á þing. Hún tók þátt í hinu nýstárlega þverpólitíska tilraunarverkefni þar sem pólitíkin byggðist á samstöðu og allir flokkar mynduðu meirihluta í sameiningu. Þau ræða meðal annars hvort að Hilda sjái fyrir sér hvort slíkt fyrirkomulag myndi virka á Alþingi ásamt öðrum álitaefnum.
#63 Brynjar snýr aftur í stjórnmál (Viðtal við Brynjar Níelsson) 11.06.2021 1:19:22
Brynjar er ekki hættur í stjórnmálum. Þórarinn ræðir við hann um prófkjörið, framtíðina, verðmætasköpun, #metoo, markþjálfun og spillingu.
#62 Í stjórnmál eftir þrjátíu ár í fjölmiðlum (Viðtal við Sigmar Guðmundsson) 06.06.2021 59:39
Sigmar Guðmundsson stefnir á þing eftir um þrjátíu ár starf í fjölmiðlum. Hann býður sig fram í Suðvesturkjördæmi fyrir flokk Viðreisnar. Þórarinn ræðir við Sigmar um stefnumál flokksins, krónuna, geðheilbrigðismál, frelsi og margt fleira.
#61 Afglæpavæðing fíkniefna - Eiturlyf eða vímuefni (Viðtal við Ólaf Ísleifsson) 04.06.2021 1:01:00
Þórarinn og Kristín ræða við Ólaf Ísleifsson, þingmann Miðflokksins, um afglæpavæðingu fíkniefna.
#60 Kveður eftir fjörutíu ára þingmennsku - Kosningar, umhverfið og Samherji (Viðtal við Steingrím J. Sigfússon) 02.06.2021 1:09:50
Þórarinn ræðir við Steingrím J. Sigfússon um ferilinn, pólitík, kosningar og umhverfisvernd. Í síðari hluta viðtalsins ræða þeir um stjórnmálamenningu á Íslandi og hvort að Kristján Þór Júlíusson hefði átt að segja af sér embættinu í kjölfar Samherjamálsins. Að lokum er rætt um hverja Steingrímur myndi helst vilja fá með sér í sumarbústaðarferð.
#59 Eru hlaðvörp fjölmiðlar? (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 30.05.2021 1:10:33
Þórarinn og Jakob Bjarnar leggja fyrir sig rannsóknarspurningu: Eru hlaðvörp fjölmiðlar? Auk þess að svara henni ræða þeir um blaðamennsku og ritstjórnir, ríkisspenann, góða fólkið, traust til fjölmiðla og margt fleira.
#58 Héraðsdómari á leið í stjórnmál (Viðtal við Arnar Þór Jónsson) 23.05.2021 1:05:57
Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson héraðsdómara um fyrirhugaða þátttöku hans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Auk álitaefna um að dómari bjóði sig fram til setu á Alþingi ræða þeir ýmis hugmyndafræðileg og samfélagsleg álitamál.
#57 Hugleiðingar með Ivu Adrichem 21.05.2021 1:38:03
Þórarinn og Kristín ræða við Ivu Adrichem um allskyns samfélagsleg álitaefni. Rætt er um Onlyfans, stjórnmál, fasisma, feminísma og margt fleira.
#56 Formaður Samfylkingarinnar - Stefnumál, forræðishyggja og gervigreind (Viðtal við Loga Einarsson) 13.05.2021 57:15
Þórarinn ræðir við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar. Umræðurnar snúa að stefnumálum Samfylkingarinnar, forræðishyggju, , tjáningarfrelsi, skatta og gervigreind.
#55 Formaður VR - Lífskjarasamningar og húsnæðismál (Viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson) 09.05.2021 1:00:14
Þórarinn ræðir verkalýðsmál við Ragnar Þór Ingólfsson. Rætt er um hina títtnefndu lífskjarasamninga, krónutöluhækkanir og húsnæðismál.
#54 Tjáningarfrelsi - Only Fans, stjórnmál og samsæriskenningar 20.04.2021 57:16
Kristín og Þórarinn ræða við Helga Hrafn Gunnarsson um tjáningarfrelsi. Þrátt fyrir stutt viðtal er farið um víðan völl. Rætt erum um takmarkanir á tjáningarfrelsi, klám, Only Fans vefsíðuna, stjórnmál, vísindi og samsæriskenningar.
#53 Sóttvarnarlæknir svarar gagnrýni öðru sinni (Viðtal við Þórólf Guðnason) 12.04.2021 54:32
Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni öðru sinni. Þeir ræða niðurstöðu dómstóla um sóttkvíarhótel, pólitíska samstöðu í aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19, umræðuna og fleira.
#52 Varnaðarorð Orwells - Siðanefndir og blaðamenn (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 30.03.2021 1:16:29
Jakob Bjarnar er þungavigtarmaður í íslenskri blaðamennsku. Þórarinn og Jakob ræða um úrskurð siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan og umfjöllun hans um Samherja, viðtal Frosta Logasonar við Katrínu Jakobsdóttur um aðgerðir stjórnvalda við Covid-19, hatursorðræðu og margt fleira. Rauður þráður í samtalinu eru varnaðarorð Orwells um málfrelsi og fleira.
#51 Ofríki samráðsins - Ungt fólk og stjórnmál (Viðtal við Hrafn Haraldsson Dungal) 28.03.2021 1:20:38
Þórarinn og Eyþór ræða við Hrafn Haraldsson Dungal um stjórnmál, ungt fólk og áhrif tækninnar. Umræðan hrærist í kringum hugtakið ofríki samráðsins, vísindi og sannleikann. Rætt er um líffræðilegar ástæður slaufunarmenningar, Orwell og stöðnun sögunnar, ábyrgð einstaklingsins, skjótfengna hamingju, andstæðuheitin jöfnuð og frelsi og fleira.
#50 Better Left Unsaid (With Curt Jaimungal) 24.03.2021 1:09:30
Better Left Unsaid: https://bit.ly/blu_preorder Tóti interviews Curt Jaimungal about Better Left Unsaid, a film written and directed by Curt. The film incorporates interviews with intellectuals such as Coleman Hughes, Steven Pinker, Michael Shermer, Noam Chomsky, Janice Fiamengo, and more. It addresses the issue of political extremism in the West, the implications of identity politics, and the new...
#49 In the aftermath of Trump (With Philip Gourevitch) 20.03.2021 56:11
Þórarinn discusses American politics with Philip Gourevitch. Philip is a staff writer at the New Yorker and an author of several books. The discussion is focused on how American politics will look like in the post-Trump era and Trump’s impact on the Republican party.
#48 Slaufunarmenning, ofstæki og ábyrgð (Viðtal við Brynjar Níelsson) 13.03.2021 58:19
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um slaufunarmenningu (cancel culture). Rætt er um fitufordóma, ábyrgð, femínisma, ofstæki innan akademískra stofnanna og margt fleira. Einnig er reynt að finna svar við spurningunni afhverju fólk gefur eftir í stað þess að standa í lappirnar gagnvart fasískum öflum.
#47 Nýfrjálshyggja og frelsi (Viðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson) 25.02.2021 1:25:32
Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein um nýfrjálshyggju. Bók: https://newdirection.online/2018-publications-pdf/ND-ThinkersVol2-2020f.pdf
#46 Formaður Viðreisnar (Viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur) 21.02.2021 53:58
Þórarinn og Eyþór ræða við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um áform og hugsjónir Viðreisnarflokksins. Farið er yfir skattamál, frjálslyndi, veiðigjöld, nýju stjórnarskránna og heilbrigðismál.
#45 Atvinnuframboðstrygging, húsnæði og peningar (Viðtal við Ólaf Margeirsson) 17.02.2021 47:01
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um atvinnuframboðstryggingu. Auk þess er rætt um borgaralaun, áhrif atvinnuframboðstryggingar á verkalýðsbaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Húsnæðismál (mínúta 25) eru einnig sérstaklega rædd. Ólafur er doktor í hagfræði með sérþekkingu á þróun og eðli peninga og tengslum þeirra við húsnæðisverð.
#44 Íslenskur sósíalismi (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 11.02.2021 1:36:40
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um sósíalíska baráttu á Íslandi. Tímalína: •00:01:00 – Samstöðin og elítu miðlar •00:03:00 – Kurteisi umræðunnar •00:17:20 – Hverjar yrðu áherslur sósíalistaflokksins með hreinan alþingismeirihluta? •00:25:00 – Frelsi og hinn frjálsi markaður •00:39:00 – Krónutöluhækkanir og lífskjör •00:47:00 – Lýðræðisfyrirtæki •00:57:00 – Sjálfstæðisflokkurinn og velferð...
#43 Alþingiskosningar 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson) 07.02.2021 2:13:24
Langloka þar sem Þórarinn ræðir við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson um næstkomandi alþingiskosningar. Drepið er á ýmsu og farið um víðan völl. Rætt er um hindranir, kosti, galla, sögulegan- og alþjóðlegan samanburð. Hér að neðan má sjá tímalínu umræðunnar: 0:01:00 – Kosningabaráttan 0:19:00 – Staða Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum 0:27:30 – Hvað þýðir að vera til vinstri eða hægri í...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.