Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#307 Jónas Atli Gunnarsson - Ákvarðanir og stefna Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 20.04.2024 19:24
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eða HMS. Þórarinn ræðir efasemdir um, og fær svör við, ákvarðanir um: Hlutdeildarlán og önnur sértæk úrræði Merkjalýsingar Sértök úrræði Loftslagsmarkmið Forgangsröðun Er mygla í skólum siðfár? Hlaðvarpið í heild sinni má finna á www.pardus.is/einpaeling
#306 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Jón Gnarr 16.04.2024 1:25:36
Þórarinn ræðir við Jón Gnarr en hann býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áherslur Jóns, hvort að grínisti geti valdið svo formlegu embætti, hvað hann vill setja á dagskrá verði hann forseti, muninn á þjóðarstolti og stærilátum, framboð Katrínar Jakobsdóttur, Bandaríkin og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á...
#305 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Helga Þórisdóttir 13.04.2024 54:44
Þórarinn ræðir við Helgu Þórisdóttur um það hvaða áherslur hún sér fyrir sér að leggja fram fyrir komandi kosningar en hún hefur boðið sig fram til forseta. Rætt er um persónuvernd, gildi, agaleysi í skólum, PISA kannanir hvort að börn séu snillingar og margt fleira.
#304 Hjálmtýr Heiðdal - Sex mánaða stríð Ísrael og Palestínu 10.04.2024 22:01
Þórarinn ræðir við Hjálmtý Heiðdal, formann samtakanna Ísrael-Palestína. Rætt er um: - Árás Hamas samtakanna þann 7. október - Hverjum tilheyrir landsvæði Ísraels og Palestínumanna - Eru Hamas samtökin hryðjuverkasamtök? - Er tveggja ríkja lausnin fyrir bí? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#303 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Baldur Þórhallsson 07.04.2024 1:01:55
Þórarinn ræðir við Baldur Þórhallsson en hann sækist eftir forsetaembættinu í komandi kosningum. Hér er rætt um hatursorðræðu, veru maka Baldurs, Felix Bergssonar á Twitter, hvað framboð Katrínar Jakobsdóttur þýði fyrir stjórnmálin á Íslandi, alþjóðastjórnmálin og margt fleira.
#302 Viðtal við forsetaframbjóðanda — Halla Tómasdóttir 06.04.2024 1:00:47
Þórarinn ræðir við Höllu Tómasdóttur en Halla býður sig fram til forseta í komandi kosningum.
#301 Viðtal við forsetaframbjóðanda — Arnar Þór Jónsson 03.04.2024 1:02:19
Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson en Arnar hefur boðið sig fram til forseta í komandi kosningum.
#300 Andrea Sigurðardóttir - Ríkisstjórnin þurfi að vera í næstu seríu Viltu finna milljón 30.03.2024 22:14
Þórarinn ræðir við Andreu Sigurðardóttur um ýmis mál og eftirfarandi spurningum svarað: Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Afhverju virðist HMS ekki taka góðar ákvarðanir? Hvernig verður lágri fæðingartíðni snúið við? Hvað er hægt að gera í leikskólamálum? Áhrif áforma Sigurðar Inga um þrengri leigulög á leigjendur. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
#299 Orri Páll Jóhannsson - Inngilding, aðlögun og mannréttindastofnun 26.03.2024 20:32
Þórarinn ræðir við Orra Pál Jóhannsson, alþingismann og þingflokksformaður Vinstri Grænna. Í hlaðvarpinu ræða tvímenningarnir um stjórnmálin, útlendingamál, muninn á aðlögun og inngildingu, hatursorðræðu og mannréttindastofnun. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#298 - Guðmundur Hrafn Arngrímsson - Leigjendur geti hvorki reitt sig á bandalög né stéttarfélög 22.03.2024 16:50
Þórarinn ræðir við Guðmund Hrafn Arngrímsson, formann leigjendasamtakanna, um nýundirskrifaða kjarasamninga og hvaða áhrif þeir muni koma til með að hafa á stöðu leigjenda. - Erum við enn í Covid stjórnmálunum? - Skyldu stéttarfélögin leigjendur eftir? - Þurfti fátækasta fólkið á ókeypis skólamáltíðum að halda? - Þarf húsnæðismarkaðurinn á fleiri kostum og úrræðum til þess að búa til húsnæði? Þess...
#297 Jakob Bjarnar - Er woke-ið til vinstri eða hægri? 16.03.2024 20:37
Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson um listamannalaun, stöðu blaðamanna, útlendingamálin og rétttrúnaðinn. - Er afhending blaðamannaverðlaunanna á villigötum? - Eru hlaðvörp fjölmiðlar? - Var Kristrún að segja það sem að öllum finnst? - Hver ber ábyrgð á auknum fasisma? - Afhverju er Gunnar Smári woke? - Eigum við að taka þátt í Eurovision? - Er rétttrúnaðurinn með stjórnmálmenn í sjálfri...
#296 Þorsteinn Siglaugsson - Mun gervigreindin eyðileggja samfélagsmiðla eða fjölmiðla? 11.03.2024 16:22
Þórarinn ræðir við Þorstein Siglaugsson um áhrif gervigreindar, einstaklingsábyrgð, nýjar kröfur og samfélagshnignun. Fer Ísland sömu leið og Feneyjar forðum? Mun gervigreind eyðileggja samfélagsmiðla? Hvaða áhrif hefur gervigreind á fjölmiðla? Hvaða áhrif hefur gervigreindin á persónulega ábyrgð? Hvað gerist þegar gervigreindin tekur störfin? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#295 Árni Helgason - Breytt staða í útlendingamálum krefst hreinskilnari umræðu 05.03.2024 31:49
Þórarinn ræðir við Árna Helgason um útlendingamál. Árni hefur starfað sem lögmaður á ýmsum mismunandi sviðum í útlendingamálum í yfir 15 ár. Tvímenningarnir reyna að finna svörin við eftirfarandi spurningum: - Hvernig getur Ísland lært af Norðurlöndunum? - Breytti Kristrún Frostadóttir umræðum um hælisleitendamál? - Hvað finnst Pólverjum á Íslandi um hælisleitendamál? - Hvaða áhrif hefur breytt st...
#294 Halldór Armand - Þarf ríkið að verja mig fyrir mínum eigin ákvörðunum? 02.03.2024 20:35
Þórarinn ræðir við rithöfundinn Halldór Armand þar sem eftirfarandi spurningum er svarað: - Hversu langt má ríkið ganga í því að verja mig fyrir sjálfum mér? - Þarf ríkið að réttlæta eigið vald? - Afhverju erum við hérna saman? - Hvað sameinar okkur? - Hvert erum við að fara? - Hvernig ræktum við hæfileika okkar? - Hvað þýðir það að við treystum ekki löggjafanum? - Rifna samfélög frá vinstri til h...
#293 Snorri Másson - Íslensk tunga og menning þarf á málsvara að halda 28.02.2024 19:52
Snorri Másson stýrir miðlinum Ritstjóri en miðillinn hefur náð mikilli athygli allt frá því að hann hóf göngu sína. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslenskrar tungu og menningar ásamt þeim spurningum sem vert er að spyrja sig á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Þessum spurningum er meðal annars svarað: Hvaða áhrif hefur bág fæðingartíðni Íslendinga? Er rétttrúnaðurinn liðinn undir lok? Afhverju hæ...
#292 Hilmar Þór Hilmarsson - Alþjóðastofnanir sem ættu að stuðla að friði eru úreltar 25.02.2024 1:01:13
Þórarinn ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson um stöðu mála í síbreytilegu alþjóðakerfi. Rætt er um tengsl stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs við stríðinu í Úkraínu, stöðu Bandaríkjanna og Kína. Hvernig Ísland eigi að móta sína stöðu í breyttum heimi og ályktanir um það hvað framtíðin ber í skauti sér.
#291 Brynjar Níelsson - Gæti Þórdís orðið Margaret Thatcher? 23.02.2024 32:25
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um hælisleitendamál, íslensk stjórnmál, heimspeki, menningu og margt margt fleira.
#290 Björgvin Ingi Ólafsson - Hvað er gott, hvert stefnum við? 18.02.2024 32:12
Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson, meðeiganda hjá Deloitte. Í þættinum er rætt við skilvirkni og hagræðingu innan opinberra kerfa. Farið er yfir hvaða forsendur og hvatar þurfa að liggja fyrir ef að bæta eigi kerfi og hvaða áhrif það hefur ef að starfsfólk vinnur við öfugsnúna hvata. Rætt er um eftirfarandi spurningar: Er neyslumynstur upplýsinga að breytast? Hvað er Íslendingur og hvað er...
#289 Þórður Snær Júlíusson - Umræða um hælisleitendur pólitísk tækifærismennska Sjálfstæðisflokksins 13.02.2024 18:22
Þórður Snær er ritstjóri hjá Heimildinni en í þessu hlaðvarpi er rætt um hælisleitendamál. Þórður telur að umræðan sem hefur átt sér stað undanfarið vera til komin vegna pólitískrar tækifærismennsku Sjálftæðisflokksins sem beitir þessum málaflokki sem örþrifaráði vegna sífallandi fylgi flokksins.. Þarf að hafa áhyggjur af menningarlegum breytingum á Íslandi vegna aukins fjölda útlendinga? Er núver...
#288 Kristrún Frostadóttir - Hvað vill Samfylkingin gera í hælisleitendamálum? 10.02.2024 19:19
Þórarinn ræðir enn einu sinni við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar. Að þessu sinni er rætt um hælisleitendamál og hvað Samfylkingin sér fyrir sér að þurfi að gera í þeim efnum. - Hvað finnst Kristrúnu um fyrirhuguð áform Guðrúnar Hafsteinsdóttur um lokaðar flóttamannabúðir? - Hvað fannst Kristrúnu um tjaldbúðirnar á Austurvelli? - Telur Kristrún að grípa þurfi til álíka úrræða og...
#287 Guðlaugur Þór Þórðarson - Mun þessi ríkisstjórn koma í veg fyrir orkuskort? 08.02.2024 18:53
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu ríkisstjórnarinnar, hælisleitendamálin og orkumálin. Mun VG koma í veg fyrir orkuöflun og mun þessi ríkisstjórn geta komið í veg fyrir orkuskort? Hvað finnst Guðlaugi um tjaldbúðirnar á Austurvelli? Mun Guðlaugur bjóða sig aftur fram í formann Sjálftæðisflokksins? Er Ísland að ljúga að sjálfu sér með fyrirhug...
#286 Þórður Gunnarsson - Endamarkmiðið er að fækka fólki og minnka lífsgæði 04.02.2024 15:02
Þórður Gunnarsson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður. Í þessum þætti er rætt um stöðu orkumála í breyttum heimi. Fjallað er um orkuskiptin, orkuöflun, matvæli, áherslur stjórnmálanna og eftirfarandi spurningum svarað: Getum við útrýmt notkun jarðefnaeldsneytis? Í hvaða stöðu er Ísland í orkumálum? Hvernig heim skiljum við eftir fyrir börnin okkar? Í hvaða stöðu er ríkisstjórnin? Hlaðvarpið í h...
#285 Þorgerður María Þorbjarnardóttir - Lífsgæði, samdráttur, orkuskortur og náttúruvernd 02.02.2024 17:36
Þorgerður María er formaður Landverndar. Í þessum þætti er rætt um lífsgæði, loftslagsmál og náttúruvernd og eftirfarandi spurningum svarað: Hvað þýða kröfur um minnkandi losun fyrir þróun í fátækari löndum heimsins? Er hægt að halda í lífsgæði samhliða samdrætti? Er orkuskortur á Íslandi? Hver er sýn Landverndar gagnvart virkjunum? Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling
#284 Eldur Ólafsson - Sjaldgæfir málmar leggja undirstöður velmegunar 31.01.2024 16:14
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq kemur í annað skiptið til þess að svara eftirfarandi spurningum: Afhverju eru Norðmenn að íhuga að grafa á hafsbotni? Í hvað eru sjaldgæfir málmar notaðir? Verður Ísland og Grænland að sameiginlegu efnahagssvæði? Afhverju er Kína OPEC málmheimsins? Hvað þarf að gera í orkumálum á Íslandi? Hvaða áhrif hafa sjaldgæfir málmar á alþjóðastjórnmálin? Hlaðvar...
#283 Diljá Mist Einarsdóttir - Þeir sem þagga niður umræðu bera ábyrgð á aukinni skautun 27.01.2024 15:53
Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af rey...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.