Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Society IS ↓ 618 episodes

Hlaðvarp

Author

Thorarinn Hjartarson

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#332 Guðmundur Fertram - Heilbrigðisþjónusta, innviðir og fiskeldi 14.08.2024

Þórarinn ræðir við Guðmund Fertram, stofnanda og forstjóra Kerecis. Fjallað er um stöðu Landspítalans, innviði á Vestfjörðum, stjórnmálin og ríkisstjórnina, orkumál, samgöngumál, yfirstéttina úr Reykjavík, alræði neitunarvaldsins, fiskeldi og margt fleira.

#331 Atli Harðarson - Símanotkun og ofurviðkvæmni barna 01.08.2024

Atli Harðarson er prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Í þessum þætti eru hugmyndir og bækur Jonathan Haidt ræddar og þá sérstaklega hans nýjasta, The Anxious Generation sem fjallar um aukinn kvíða barna sem Haidt telur eiga rætur sínar að rekja í símanotkun.

#330 Ómar Annisius - Hvað er að gerast á landamærunum? 21.07.2024

Ómar Annisius er fyrrum sérsveitarmaður en starfar í dag sem aðstoðaryfirlögregluþjónninn á Keflavíkurflugvelli. Í þessum þætti er rætt um stjórn og málefni landamæraeftirlits.  - Er óstjórn á landamærunum? - Hver eru áhrif stjórnmálanna? - Hvaða áhrif hefur umræðan á störf lögreglu? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling

#329 Diljá Mist Einarsdóttir - Ofstækisfólk ógnar friðsömu samfélagi á Íslandi 16.07.2024

Diljá Mist Einarsdóttir mætir til að ræða rétttrúnaðinn, stjórnmálin, stöðu Sjálfstæðisflokksins, útlendingamál og margt fleira. - Veitum við innflytjendum súkkulaðipassa í mannréttindamálum? - Hvað þarf Sjálfstæðislfokkurinn að gera til að auka fylgið? - Er ofstækisfólk haldið sjálfshatri? - Hvernig viðhöldum við eigin gildum er varðar jafnrétti? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heil...

#328 Þórður Gunnarsson - Allt vinstramegin við miðju er öfgahægri 12.07.2024

Þórarinn ræðir við Þórð Gunnarsson um stjórnmálin á Íslandi, stöðu efnahagsmála, þróun í Evrópu, hið öfgahægri og hvað það er, horfur í viðskiptalífi á Íslandi og margt fleira. Til að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/einpaeling

#327 Tryggvi Hjaltason - Staða drengja er slæm 07.07.2024

Þórarinn ræðir við Tryggva Hjaltason um stöðu drengja innan skólakerfisins. Nýlega skrifaði Tryggvi skýrslu um stöðuna sem hann segir vera mjög slæma. Rætt er um kerfið í heild, aðkomu foreldra í því að bæta stöðuna, hvað muni koma til með að eiga sér stað ef ekkert er að gert og margt fleira. Til að styðja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

#326 Brynjar Níelsson - Hættur ef að xD krefst prófkjörs 30.06.2024

Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Þórarins. Í þættinum er rætt um stjórnmálin, nýju Samfylkinguna, útlendinguamál og fjölmenningu, þróunina í Evrópu og þá flokka sem hafa verið kallaðir öfgahægrihóparnir, hvort að Brynjar hyggst bjóða sig fram á lista fyrir næstu Alþingiskosningar og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#325 Guðrún Hafsteinsdóttir - Útlendingamál: Lokuð búsetuúrræði, fingrafaraskannar og fækkun umsókna 27.06.2024

Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur um stöðu útlendinga- og lögreglumála. Meginþorri hlaðvarpsins fer í að ræða hluti sem snúa að útlendingamálum og fjallað er um lokuð búsetuúrræði, pólitíkina, landamærin, menningu og gildi, erlenda þróun og það sem að Guðrún kallar séríslensk lög. Einnig er fjallað um skólamál, velferðarkerfið, stjórnmálin á Íslandi og fleira. Hlaðvarpið í heild má finna...

#324 Frosti Logason - Umbrotatímar vegna hægri sveiflu í Evrópu 24.06.2024

Þórarinn ræðir við Frosta Logason, útvarps- og hlaðvarpsstjórnanda veitunnar Brotkast. Í þættinum er rætt um hið nýja hægri í Evrópu, stjórnmálin á Íslandi, #MeToo, Vestræn gildi og viðmið, trúleysi og Kristna trú og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á pardus.is/einpaeling

#323 Margrét Valdimarsdóttir - Eru tengsl milli fjölda innflytjenda og glæpatíðni? 21.06.2024

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við Háskóla Íslands um nýja skýrslu Margrétar um tengsl ungra innflytjenda við samfélagið. Sérstök áhersla er lögð á glæpatíðni á Norðurlöndunum og rætt hvort að rekja megi fjölgunina til aukins fjölda innflytjenda. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#322 Guðmundur Skúli - Óafskipt lesblinda veldur stríði í kennslustofunni 18.06.2024

Þórarinn ræðir við Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins. Guðmundur telur að mikið af þeim samfélagsmálum sem eigi sér stað megi með beinum eða óbeinum hætti rekja að miklu leiti til lesblindu. Stjórnvöld geri ekki nægilega mikið til þess að koma til móts við fólk með lesblindu, ungt fólk, og sérstaklega strákar, verði því fyrir mismunun sem brýst út í óæskilegri hegðun. Þeir einstakl...

#321 Stefán Baxter - Gervigreind mun valda meiri breytingu en uppgötvun rafmagnsins 15.06.2024

Stefán Baxter er frumkvöðull sem að hefur komið af fjölmörgum verkefnum sem varða tæknigeirann og starfar í dag sem framkvæmdarstjóri snjallgagna. Hann er viss um að gervigreindin muni koma til með að umbylta okkar hugmyndum um störf og að eftir tíu ár verði hlutirnir orðnir allt öðruvísi.  - Hvernig verður þín persónulega gervigreind? - Verða tölvunarfræðingar ónothæfir? - Hvaða störf munu hverfa...

#320 Jakob Birgisson - Bakslag í gríninu og grínið í bakslaginu 09.06.2024

Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson um ýmis mál sem snýr að gríni og bransanum í kringum uppistandið. Fjallað er um hvort að grínistar eigi að skipta sér að stjórnmálum, forvirka meðvirkni, hvort að spuni sé skemmtilegur, veitt er hjónabandsráðgjöf, rætt um föðurlaus börn, þróun framtíðarinnar, heimsmálin og íslensk stjórnmál. Til þess að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/...

#319 Brynjar Karl - Breiðholtið, þjálfun, vandamál og lausnir 07.06.2024

Þórarinn ræðir við Brynjar Karl, körfuboltaþjálfara og frumkvöðul. Brynjar hefur reynslu af því að starfa í Efra Breiðholti og í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að starfa þar, hvernig eigi að takast á við félagsleg vandamál, þjálfun, markmið, hvað það þýðir að vera sterkur einstaklingur, framtíðina og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

#318 Albert Jónsson - Loftslagsmálin verða ekki leyst af alþjóðakerfinu 04.06.2024

Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðakerfið, áhrif þess og praktískt eðli er varðar stríðið á Gaza, loftslagsmálin, stríðið í Úkraínu, alþjóðasáttmála og margt fleira. - Getur alþjóðakerfið leyst loftslagsvána? - Hvaða áhrif hefur stríðið á Gaza á alþjóðakerfið? - Hvað mun gerast í Úkraínu? - Er Ísland á villigötum í loftslagsaðgerðum? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#317 Mads Gilbert - Israel, Gaza, and the Palestinian people 31.05.2024

Tóti speaks with Mads Gilbert, a physician and a specialist in anesthesiology who has been fighting for the Palestinian cause for decades. What is happening in Gaza today?  How can the conflict be resolved? Are the numbers provided by health officials in Palestine to be trusted? What does this conflict mean for the political situation in the Western world?   All of these questions, and more, are a...

#316 Dagbjört Hákonardóttir - Ekki hægt að bæta stöðuna án þess að fjármagna verkefnin 29.05.2024

Þórarinn ræðir við Dagbjörtu Hákonardóttur um leikskólamál, stjórnmálin, nýju stefnu Samfylkingarinnar, útlendingamál og bollaleggingar í því hvaða flokkum Samfylkingin væri tilbúin að vinna með. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#315 Jón Bjarki Bentsson - Hvað geta stjórnvöld gert í húsnæðisvandanum? 22.05.2024

Þórarinn ræðir við Jón Bjarka en hann er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Lögð er sérstök áhersla á efnahagsmál og hvaða áhrif húsnæðismarkaðurinn hefur á efnahagshorfurnar næstu árin.  Fjallað er um: - Inngrip hins opinbera. - Er peningaprentun hins opinbera stjórnlaus? - Hvaða áhrif hefur ákvörðun Seðlabankans á húsnæðismarkaðinn? - Er möguleiki að lækka stýrivexti án þess að húsnæðisverð fari enn...

#314 Þórður Pálsson - Það ríkir algjört ábyrgðarleysi ríkisfjármálum á Íslandi 18.05.2024

Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Farið er yfir víðan völl og rætt um ríkisfjármálin, framleiðni fyrirtækja, fyrirsjáanleika, stjórnmálin, heilbrigðiskerfið og heimspeki. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#313 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Katrín Jakobsdóttir 15.05.2024

Þórarinn ræðir að þessu sinni við síðasta forsetaframbjóðandann, Katrínu Jakobsdóttur. Rætt er um eftirfarandi málefni: - Fóstureyðingar - Mannréttindastofnun  - Verður VG sterkari án Katrínar? - Er Katrín stoltur Íslendingur? - Nýju stjórnarskrána

#312 Inga Sæland - "Ég er ekki Woke" 12.05.2024

Þórarinn ræðir við Ingu Sæland, formann Flokk fólksins. Rætt er um stjórnmálin, öryrkja, húsnæðis- og leigumál, útlendingamál og Eurovision sniðgönguna. Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling

#311 Ron Nehring and David Reade - Populism, conservatism and identity 08.05.2024

Þórarinn speaks with Ron Nehring and David Reade from the Leadership Institute where immigration, economics, politics and the Republican party are discussed.

#310 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Halla Hrund Logadóttir 27.04.2024

Þórarinn ræðir við Höllu Hrund Logadóttur en hún býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi. Í þessu hlaðvarpi er rætt um orkumál, háskólamál í Bandaríkjunum, hvaða áherslur Halla telur sig muna koma til með að leggja áherslu á verði hún forseti og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

#309 Jasmína Vajzović Crnac - Viðsnúningur Samfylkingarinnar í útlendingamálum? 26.04.2024

Þórarinn ræðir við Jasmínu Vajzović Crnac um viðsnúning Samfylkingarinnar í hælisleitendamálum. Fjallað er um orðið inngildingu, agavandamál í skólum, hvernig eigi að takast á við glæpi sem framdir eru af erlendum ríkisborgurum, stefnu stjórnvalda og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#308 Heiðar Guðjónsson - Blessun að vinstrimenn fara alltaf á hausinn 23.04.2024

Þórarinn ræðir við Heiðar Guðjónsson um Landspítalann, hugmyndafræði, Javier Milei, ábyrgð og skyldur, útlendingamál, orkumál og forystu Sjálfstæðisflokksins.

Listen to the Ein Pæling podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.