Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Society IS ↓ 618 episodes

Hlaðvarp

Author

Thorarinn Hjartarson

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#282 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Það ríkir neyðarástand í menntamálum 25.01.2024

Þórarinn ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í þessum þætti er rætt um stjórnmálin á Íslandi, verðmætasköpun og hugmyndafræði, stöðu menntamála og þá sérstaklega STEM greina og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#281 Íris Róbertsdóttir - Ísland hefur ekki efni á að hafa þetta skólakerfi 23.01.2024

Þórarinn ræðir við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, um orkumál, stöðu Vestmannaeyja en einna helst um skólamál og þær áherslubreytingar sem gerðar hafa verið með góðum árangri. Til að styrkja þetta hlaðvarp: www.pardus.is/einpaeling

#280 Sigurður Hannesson - Fyrirtæki fá ekki þá orku sem þau þurfa 20.01.2024

Þórarinn ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka Iðnaðarins. Þetta er í annað skipti sem að tvímenningarnir ræða saman en að þessu sinni er rætt um meintan yfirvofandi orkuskorts og hvaða áhrif það muni koma til með að hafa á fyrirtæki í iðnaði. Fjallað er um húsnæðismál, verðmætasköpun, loftslagsmál og að sjálfsögðu mismunandi orkugjafa. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardu...

#279 Hörður Arnarson - Rúllandi rafmagnsleysi ekki óhugsandi 16.01.2024

Þórarinn ræðir við Hörð Arnarson um orkumál á Íslandi. Fjallað er um þann orkuskort sem Hörður telur yfirvofandi, sjónarmið umhverfissinna, loftslagsmál, flutningsgetu, jarðefnaeldsneyti og fleira. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#278 Helga Vala Helgadóttir - Hvernig getum við tekið á móti flóttafólki frá öðrum menningarheimum 11.01.2024

Þórarinn ræðir við Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrum þingmann Samfylkingarinnar. Rætt er um stjórnmálin og hvort að Helga Vala sakni þess að vera á þingi. Þá er einnig talað um fólk á flótta og hvaða skyldum Ísland þarf að bera ábyrgð á í því að taka á móti fólki og samfélagsleg áhrif sem fylgir því að taka á móti fólki frá öðrum menningarheimum. Að lokum er svo rætt um rétttrúnað og woke-...

#277 Jasmina Vajzović Crnac - Stefnuleysi ríkir í hælisleitendamálum 05.01.2024

Þórarinn ræðir við Jasminu Vajzović Crnac um flóttamanna- og hælisleitendamál. Jasmína er stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þær áskoranir sem fylgja því að taka á móti flóttafólki og hælisleitendum. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#276 Áramótadeigla 2023 01.01.2024

Þórarinn, Ívar Elí og Eyþór ræða ýmis mál. Þar á meðal frásagnarlistina, stjórnmálin, ríkt fólk, fiskeldi, Grindavík, frelsi og fleira. Til að styrkja þetta framlag og fá aðgang að öllu efni hlaðvarpsins má fara á www.pardus.is/einpaeling

#275 Júlíus Viggó Ólafsson - Trúverðugleiki Sjálfstæðisflokksins, flóttafólk, PISA og skipun Svanhildar Hólm 24.12.2023

Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó, formann Heimdallar. Tvímenningarnir ræða það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur komist hjá því að missa meira fylgi, hvernig flokknum hefur tekist að takast á við aukinn straum hælisleitenda, menntakerfið og PISA, og hvað Júlíusi finnst um að ráða Svanhildar Hólm sem nýjan sendiherra í Bandaríkjunum. Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#274 Jón Pétur Zimsen - Hagsmunaöfl skólakerfisins í vörn eftir hörmulegar PISA niðurstöður 18.12.2023

Jón Pétur Zimsen er aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. Í þessum þætti er rætt um nýlegar niðurstöður PISA sem sýna að 40% grunnskólabarna útskrifast án þess að geta lesið sér til gagns. Jón Pétur telur lausn vera fyrir hendi til þess að bæta þessa stöðu en kerfis- og hagsmunaöfl innan skólakerfisins ríghalda í eigin hagsmuni á kostnað barnanna. Þetta telur hann að muni koma til með að leiða til...

#273 Ingvar Smári Birgisson - Flóttamenn, þriðja vaktin og íslensk stjórnmál 15.12.2023

Þórarinn ræðir við Ingvar Smára Birgisson en í dag starfrækir hann lögmannsstofuna Firma. Ingvar var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar á meðan hann sinnti stöðu dómsmálaráðherra núverandi ríkisstjórnar. Hann er því sjóaður er varðar málefni hælisleitenda hér á landi en eins og þekkist lagði Jón Gunnarsson sérstaka áherslu á þann málaflokk í sinni ráðherratíð. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stöðu mála...

#272 Magnús Þorkell Bernharðsson - Hin fullkomna deila - Ísrael og Palestína 09.12.2023

Þórarinn ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson um stöðu mála við botni Miðjarðarhafs. Magnús Þorkell er prófessor við Williams College þar sem hann kennir Mið-austurlandafræði. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi og hvaða áhrif stríðið mun koma til með að hafa á Mið-Austurlönd í heild sinni. Hlaðvarpið er hægt að finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#271 Atli Þór Fanndal - Er Ísland land lágrar spillingar? 03.12.2023

Atli Þór Fanndal er framkvæmdarstjóri Transparency International sem eru alþjóðasamtök sem berjast gegn spillingu. Í þessum þætti er fjallað um spillingu á Íslandi, fjölmiðla, stjórnmálamenningu og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#270 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir - KSÍ, kulnun kvenna, þriðja vaktin og aumingjar 29.11.2023

Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, kynjafræðikennara við Borgarholtsskóla þar sem tekin er staðan á KSÍ-málinu svokallaða og árangur þeirrar baráttu sem hófst árið 2021. Einnig er rætt um mál Frosta Logasonar og Eddu Falak, þriðju vaktina, kulnun kvenna, valdaójafnvægi milli kennara og foreldra, ástarsorg og aumingja. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#269 Heiðar Guðjónsson - Það sem skiptir mestu máli er að trúa á framtíðina 24.11.2023

Þórarinn ræðir í þriðja sinn við Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og fyrrverandi forstjóra Sýnar. Í þessum þætti er rætt um: - Umhverfismál - Sorpu - Rétttrúnað - Hvort að Heiðar gæti séð fyrir sér að gerast formaður Sjálfstæðisflokksins - Fjölmiðlastéttina - Skattamál - Akademíuna - Deilu Palestínumanna og Ísraelsmanna Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#268 Hlynur Guðmundsson - Sjálfstæðismaður ekki velkominn í Samtökin 20.11.2023

Hlynur Guðmundsson lýsir reynslu sinni af því að vera samkynhneigður maður sem kemur seint út úr skápnum í litlu bæjarfélagi. Hann fluttist til Reykjavíkur í von um að kynnast fleira fólki á keimlíkum stað og hann var sjálfur þegar hann sótti nám en þar mætti honum andstaða vegna þess að hann er hægrisinnaður í stjórnmálum. Í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#267 Brynjar Níelsson - Uppeldis- og hjónabandsráðgjöf 13.11.2023

Brynjar Níelsson kemur enn eina ferðina og í þetta sinn býður hann upp á uppeldis- og hjónabandsráðgjöf. Farið er um víðan völl og meðal annars þessum spurningum svarað: Hvað á að skattleggja sjávarútveginn mikið? Er Kristrún Frostadóttir í rauninni vinstri manneskja? Viltu bjóða Þorsteini V. heim til þín? Hver sinnir þriðju vaktinni heima hjá Brynjari? Er ríkisstjórnarsambandið að grafa undan ímy...

#266 Már Wolfgang Mixa - Lækkun stýrivaxta var dýrkeypt tilraun 11.11.2023

Þórarinn ræðir við Má Wolfgang Mixa um stöðu húsnæðismála. Rætt er um leigjendur, stýrivaxtahækkanir og lækkanir, stjórnmálin, hvata og fleira. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling

#265 Þórður Pálsson - Maðurinn drap Guð og fór að trúa á ríkið 04.11.2023

Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um allt á milli himins og jarðar. Meðal annars menntamál, orkumál, woke-hugmyndafræðina, stríðið í Ísrael og Palestínu, heimspeki, íslensk stjórnmál, og kjarasamninga. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#264 Þórður Gunnarsson - Orka, matvæli og raunhagkerfið 01.11.2023

Þórarinn ræðir við Þórð Gunnarsson um framtíðarhorfur í efnahagsmálum. Rætt er um orkumál, alþjóðamál, matvælaöryggi, lánamál og stöðu Íslands í öllum þessum málum. Til þess að styrkja hlaðvarpið má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

#263 Ísrael, Palestína og hatursorðræða (með Lenyu Rún Taha Karim) 28.10.2023

Þórarinn ræðir öðru sinni við Lenyu Rún Taha Karim. Að þessu sinni er rætt um hatursorðræðu, deilu Ísrael og Palestínu, íslensk stjórnmál og orkumál. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling

#262 SA verði að mæta grjóthörð í kjaradeilurnar (með Magdalenu Torfadóttur) 22.10.2023

Þórarinn ræðir við viðskiptablaðamanninn Magdalenu Torfadóttur um ýmis mál. Rætt er um efnahagsmál, stjórnmálin, áherslur í menntastefnu háskóla á Íslandi, snjóhengju lána og verðbólguna. Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

#261 Hvað þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera? (með Birgi Ármannssyni) 19.10.2023

Þórarinn ræðir við Birgi Ármannsson um ríkisstjórnarsambandið, Lindarhvolsmálið, heilbrigðiskerfið og hvort að þessi ríkisstjórn geti starfað saman. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling.

#260 Afsögn Bjarna Ben - Hvað nú? (með Birni Inga Hrafnssyni) 12.10.2023

Þórarinn ræðir við Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans, um stöðu ríkisstjórnarinnar. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi, stöðu stjórnarandstöðunnar, stöðu Bjarna Benediktssonar, fráfarandi fjármálaráðherra, stöðu Samfylkingarinnar og margt fleira. Í heild á www.pardus.is/einpaeling

#259 Hvað myndi Viðreisn gera? (með Sigmari Guðmundssyni) 10.10.2023

Þórarinn ræðir við Sigmar Guðmundsson um ríkisstjórnarsambandið, stjórnmálin, flóttamannamál og fleira.

#258 Gervigreind, rökhugsun og framtíðin (með Þorsteini Siglaugssyni) 06.10.2023

Þórarinn og Þorsteinn Siglaugsson ræða um gervigreind, ákvörðunartöku, hagfræði, bók Þorsteins sem nefnist From Symptoms to Causes: Applying the Logical Thinking Process to an Everyday Problem og margt fleira.

Listen to the Ein Pæling podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.