Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór

Comedy IS ↓ 145 episodes

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: bubblurogbjor.podbean.com

Author

Búbblur & Bjór

Category

Comedy

Podcast website

bubblurogbjor.podbean.com

Latest episode

Nov 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Spurt og svarað 16.11.2025

Vitringarnir fjórir (not), Birkir, Daði, Davíð og Þröstur eru allir mættir saman í dag, í þessum þætti fara þeir út í persónulega rými hvers og eins og spyrja hvorn annan spjörunum úr, allt frá djúpum pælingum yfir í algjöra þvælu eins og þeim einum er lagið, hér koma mörg spes og skrítin svör fram, rosalega gaman og mikið hlegið, leggið við hlustir!

Spuni 09.11.2025

Birkir, Daði, Davíð og Þröstur fara allir út fyrir þægindarammann í þessum þætti og annaðhvort verður þetta besti þátturinn hingað til, eða sá versti, ef hann er einhversstaðar þar á milli, þá er hann bara vandræðalegur! Við munum setja kjánalegar klippur á instagram og TikTok úr þættinum. Það koma upp allsskonar spuna aðstæður í þessum þætti sem við þurfum að klóra okkur út úr eins og: Rosalega s...

Birkir yfirheyrður 02.11.2025

The Twosome Gruesome eða dúllurnar tvær, þið ráðið hvort þið kallið þá, Birkir og Þröstur eru mættir á svæðið, þeir athuga hvar í andskotanum Daði er, þeim fannst "fríið" hans hljóma eitthvað skringilega, og svo lendir Birkir í allsherjar yfirheyrslu frá Þresti þar sem við lærum ýmislegt um hann. Sumt við hann er venjulegt en annað ekkert eðlilega skrítið!

Halloween 26.10.2025

Syndirnar 4 eru mættar saman í þessum frábæra Halloween þætti, Birkir, Daði, Davíð og Þröstur, þeir ræða um allt og ekkert tengt þessum degi, sumt er mjög áhugavert, annað minna, en alltaf er jafn gaman hjá þessum vitleysingum!

Árið er 2000 19.10.2025

Birkir og Davíð koma saman og tala um aldamótin 2000. Það eru 25 ár síðan svo það er engin furða að Davíð man ekkert eftir þessum tíma, en það er svo sem skiljanlegt því hann er svo gamall en Birkir minnir hann á hvað þetta var góður tími!

Lélegar markaðssetningar 12.10.2025

Það er mikið fjör og gaman hjá Birki og Davíð í þætti vikunnar þar sem þeir fara yfir lélegustu markaðssetningar fyrri tíma, eins og til dæmis New Coke…hver man ekki eftir því? Það var stórkostlegt klúður!

Pyntingar 05.10.2025

Það er hugljúfur þáttur í dag, enda er Ed Gein vika á Netflix! Í þessum þætti er fullur bátur af misfullum strákum. Birkir, Daði, Davíð og Þröstur eru allir mættir í hús og ræða allsskonar pyntingar sem hafa verið framkvæmdar í gegnum tíðina. Mannskepnan getur verið fjandi gróf og það klikkaðasta er að á sínum tíma þótti sumt af þessu nokkuð eðlilegt! Endilega leggjið við hlustir og fáið smá hroll...

Topp 10 sjónvarpsþættirnir 28.09.2025

Birkir og Davíð fengu Krissu aftur í heimsókn. Þau fara yfir topp 10 bestu sjónvarpsþætti sem þau hafa séð! Til dæmis: Dexter, Supernatural, Breaking Bad og fleiri, sumir eru vissulega með betri smekk en aðrir, en þið kæru hlustendur, þið dæmið það!

Eru allir að missa sig? 21.09.2025

Það er loksins fullur bátur í dag, Birkir, Daði, Þröstur og Davíð eru allir komnir saman í stúdíóið. Strákarnir ræða um hvað þeir eru búnir að vera að bralla undanfarið og ræða hvað er að gerast í heiminum í dag sem er ansi margt! Hér er bara vitleysan töluð en til í mörgu samt, eða hvað?

Nostalgía 14.09.2025

Birkir og Davíð fengu gestastjórnanda með sér í þennan þátt, hana Krissu vinkonu þeirra og dyggan hlustanda þáttarins. Þau fóru yfir nostalgíu og hvað fylgir henni. Tónlist, þættir og hlutir sem láta mann fá þessa tilfinningu sem er nostalgia

Hollywood bölvanir 07.09.2025

Birkir og Davíð velta fyrir sér hvort að Hollywood bölvanir séu í raun til, þeir fara yfir þær nokkrar sem tengjast til dæmis Poltergeist og Glee, mjög spennandi, áhugaverður og skemmtilegur þáttur þar sem mikið er pælt og mikið hlegið!

Ógeðslegar staðreyndir 31.08.2025

Birkir og Davíð fara yfir morbid facts eða öðru nafni ógeðslegar staðreyndir í þessum þætti, margt af þessu viltu ekki vita af en ef þú ert með svartan húmor þá er þessi þáttur fyrir þig!

Topp 10 verstu kvikmyndir 24.08.2025

Birkir, Daði og Davíð fara yfir topp 10 listann sinn yfir ömurlegustu kvikmyndir sem þeir hafa séð. Allar myndirnar eru ömurlegar og sumar miklu verri en aðrar, en strákarnir eru ekki sammála um þær allar samt. Áhugaverð yfirferð fyrir kvikmyndanörda.

Gay Pride and stuff 17.08.2025

Birkir og Davíð bjalla í Daða til að athuga af hverju hann beilaði á því að mæta í þáttinn. Daði kemur svo hressilega á óvart og mætir í þáttinn með látum. Strákarnir tala um það sem er búið að gerast í samfélaginu undanfarið og tala um Gay Pride og woke menninguna líka.

Star Wars Trilogies - Part 2 10.08.2025

Star Wars heimurinn er það stór að hann passar ekkert í einn þátt! Það er komið að því að ræða og rífast yfir Star Wars Prequels og Sequels, Birkir, Davíð og Þröstur eru alls ekki sammála með þessar myndir og það færist heldur betur hiti í leikinn þegar Birkir fer á rantið!

Star Wars Trilogies 03.08.2025

Birkir, Davíð og Þröstur fara yfir Star Wars trílógíurnar og byrja á elstu myndunum. Hver var á kókaíni alla myndina og hver var í ástarsambandi? Þeir fara líka yfir hvort þær eldist vel og hver af þeim er best!

Besta útilegan 27.07.2025

Verslunarmannahelgin er framundan og Birkir, Davíð og Þröstur tala um bestu útilegurnar, til dæmis Eyjar 2001 og ævintýri í Galtalæk, þetta og margt fleira í þessum þætti!

Trends 20.07.2025

Birkir, Davíð og Þröstur fara yfir fullt af hlutum sem hafa verið í tísku eða “trends” sem kemur eins og alda yfir allt og fer jafn fljótt í burtu, eins og að planka til hvers var það? Línuskautar, Pokemon, jójó, Segway! Og núna eru allir að missa sig yfir labubu böngsunum! Þetta og margt margt fleira verður kyrfilega krafið í þessum þætti!

Skemmtilegasta minningin 13.07.2025

Birkir skellir spurningunni "Hvað er það skemmtilegasta sem þið hafið gert?" í loftið og strákarnir reyna að svara henni eins vel og þeir geta og fara yfir minningarbankann sem er misgóður.

Stríð 06.07.2025

Það er fullur árabátur í dag og ekkert víst að hann sökkvi djúpt! Birkir, Daði, Davíð og Þröstur ræða um stríð sem hafa orðið eins og fyrsta og önnur heimsstyrjöldin, og hvort að þriðja heimsstyrjöldin sé handan við hornið. Einnig tala þeir 30 ára stríðið, krossferðina og eina stríð Íslendinga, þorskastríðið sem Birkir vill meina að hafi bara verið klessó leikur á skipum!

Skemmtilegt dót 29.06.2025

Birkir, Davíð og Þröstur skemmta sér konunglega að rifja upp leikföng sem þeir léku sér með þegar þeir voru litlir og fleiri vinsæl leikföng í gegnum tíðina, Birkir kemur svo með svakalega sögu í lokin þegar einhverjir ónefndir en verða kannski nefndir aðilar rændu Rússa…

Tölvuleikir 22.06.2025

Birkir, Davíð og Þröstur ræða um bestu og verstu tölvuleiki sem þeir hafa spilað í gegnum tíðina, það spannar allt í allt sirka 131 ár samanlagt, djöfull eru þeir gamlir! Þeir tala til dæmis um fornaldarleikinn Duck Hunt sem kom út á síðustu öld þegar þeir voru ungir, Super Mario Bros, Call of Duty, Rocket League og dónalega Larry leikinn...

Hryllingsmyndir 15.06.2025

Birkir og Davíð fá Þröst í heimsókn og þeir ræða um bestu og verstu hryllingsmyndirnar í gegnum tíðina. Er Jaws hryllingsmynd eða ekki? Er Scream besta 90´s hryllingsmyndin? Er Freddy Krueger besti vondi kallinn? Vonandi hafiði jafn gaman af þessum þætti og við, góða skemmtun!

Rifist um tónlist 08.06.2025

Það er fullur bátur í dag, 4 pungar á svæðinu samankomnir til þess að rífast aðeins um íslenska tónlist, smá safi kominn í alla og menn missammála. Hvaða lag er lélegast, hvaða hljómsveitir eru ömurlegar, hverjir hata Stuðmenn og Björk og hverjir ekki? Það er smá hiti í mönnum í þessum þætti!

Ripley´s Believe It Or Not 01.06.2025

Birkir og Davíð fengu Þröst í heimsókn og ræddu um heilsu og hvað dadbod er. Svo tala þeir um Ripley´s Believe It Or Not sem er tengt allsskonar þvælu!

Listen to the Búbblur & Bjór podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.