Hafsteinn Sæmundsson

Bíóblaður

Tv IS ↓ 379 episodes

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Author

Hafsteinn Sæmundsson

Category

Tv

Podcast website

www.biobladur.is

Latest episode

Jan 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#286 Vídjó áskorun með Hugleiki Dags og Söndru Barilli 08.05.2024

Uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og framleiðandinn Sandra Barilli byrjuðu með kvikmyndahlaðvarpið Vídjó árið 2021. Í hlaðvarpinu horfa þau saman á eina kvikmynd og spjalla síðan um hana í þætti hjá sér. Hugleikur og Sandra kíktu til Hafsteins og sögðu honum aðeins frá Vídjó og einnig kom Hafsteinn þeim á óvart með skemmtilegum leik. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Rocky sé...

#285 The Rings of Power með Auðunni, Ragga og Aroni 24.04.2024

ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 2. desember 2022. Auðunn Torfi, Raggi Ólafs og Aron Andri eru allir rosalega miklir Lord of the Rings aðdáendur og vita alveg heilmikið um Tolkien og allt Middle-Earth lore-ið. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að ræða risa seríuna, The Rings of Power, en strákarnir voru alls ekki sammála um gæði þáttanna og úr varð skemmtilegur og hitamikil...

#284 Hot or Not með Kiddu Svarfdal 17.04.2024

Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins og tók þátt í skemmtilegum leik sem Hafsteinn bjó til. Hafsteinn fann 15 kynæsandi kvikmyndaplaköt sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu og Kidda og Hafsteinn skiptust á að segja hvort þau væru virkilega heit eða ekki. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Jessica Alba sé með góð gen, hvort þa...

#283 Topp 10 með Róbertu Michelle Hall 10.04.2024

Róberta Michelle Hall er skemmtikraftur, burlesque dansari og veislustjóri. Róberta sagði Hafsteini aðeins frá því sem hún er að gera þessa dagana og kom líka með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu góð lög eru í Django Unchained, hvort Leonardo DiCaprio hafi staðnað í þroska, hversu áhrifamikil The Green Mile er, hversu vanmetin A.I. er eftir Steven Spielberg, hversu mik...

#282 Topp 10 með Önnu Margréti 03.04.2024

Anna Margrét Pálsdóttir er hjúkrunarfræðingur og mikill kvikmyndaaðdáandi. Anna kíkti til Hafsteins með topp 10 lístann sinn. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu skemmtileg Legally Blonde er, hversu fáránleg Face/Off er, hversu ógeðslegur Robert De Niro er í Cape Fear, hvort Quentin Tarantino sé myndarlegri en Richard Madden, Tom Hanks og hans leik í Captain Phillips og margt, margt fleira. Þá...

#281 Topp 10 með Ásgeiri Sigurðs 27.03.2024

Ásgeir Sigurðsson er ungur kvikmyndagerðarmaður en hann gerði ásamt Antoni Karli kvikmyndina Harmur sem kom út árið 2021. Ásgeir gaf út fyrir stuttu sjónvarpsseríuna Gestir en serían er á streymisveitu Símans. Ásgeir skrifaði þættina, leikstýrði, framleiddi og leikur aðalhlutverkið ásamt Diljá Pétursdóttur. Ásgeir kíkti til Hafsteins og ræddi þættina og kom einnig með sinn topp 10 lista yfir sínar...

#280 Topp 10 með Ísrael Daníel Hanssen 20.03.2024

Ísrael Daníel Hanssen hefur komið áður til Hafsteins og rætt Óskarsverðlaunin en Ísrael er algjör sérfræðingur þegar kemur að Óskarnum. Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín til að ræða eitthvað annað en Óskarinn og því mætti Ísrael með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu fullkomin ævintýramynd Jurassic Park er, hversu góður Marlon Brando er í The Godfather, hv...

#279 Óskarinn 2024: Part II með Agli, Ísrael og Teiti 08.03.2024

Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins. Í þessum seinni hluta ræða þeir myndirnar Oppenheimer, Anatomy of a Fall, American Fiction, The Holdovers og Killers of the Flower Moon. Strákarnir ræða einnig hversu góður leikur er í A...

#278 Óskarinn 2024: Part I með Agli, Ísrael og Teiti 06.03.2024

Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins. Í þessum fyrri hluta ræða þeir myndirnar Barbie, Maestro, Past Lives, Poor Things og The Zone of Interest. Strákarnir ræða einnig hversu vinsæl Barbie var, hvort Greta og Margot hefðu át...

#277 Blade með Kilo 28.02.2024

ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 11. nóvember 2022. Í þessum þætti ræða strákarnir Blade seríuna en þeir eru báðir miklir Blade aðdáendur. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel fyrsta myndin eldist, hvort Del Toro hafi staðið sig vel með mynd númer tvö, hvort Ryan Reynolds leiki alltaf sama karakterinn, hvort það hafi verið rétt ákvörðun að hafa Drakúla sem vonda kall...

#276 Bíóspjall með Ivy Björgu 22.02.2024

Ivy Björg er áhættuleikari, Parkour iðkandi og loftfimleikalistamaður. Ivy hefur líka gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð og Hafsteinn var því spenntur að fá hana til sín í fjölbreytt bíómyndaspjall. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu mikið Ivy elskar James Cameron, hvort hún væri til í að láta kveikja í sér sem áhættuleikari, hversu stórt Blu Ray safn hún á, hversu erfið Dahmer s...

#275 Lethal Weapon með Anthony, Hansel og Snorra 14.02.2024

ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 25. júlí 2023. Sjómaðurinn Anthony Evans Berry, leikarinn Hansel Eagle og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina þekktustu kvikmyndaseríu allra tíma, Lethal Weapon. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er besta Lethal Weapon myndin, hversu miklar bíómyndalöggur Riggs og Murtaugh eru, hversu gott chemist...

#274 Bíóspjall með Brynjólfi Guðmunds 07.02.2024

Brynjólfur Guðmundsson lærði húsgagnasmíði og verkfræði áður en hann flutti út með fjölskylduna til Los Angeles til að láta drauminn rætast. Brynjólfur hefur alltaf haft gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og í fyrra ákvað hann að sækja um nám við kvikmyndaskólann New York Film Academy. Brynjólfur lærir ýmislegt í skólanum en sérstök áhersla er lögð á handritagerð. Brynjólfur kíkti til Hafsteins og ræd...

#273 Sexy 90’s með Kiddu Svarfdal 31.01.2024

ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 17. apríl 2023. Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins til að ræða erótíska þrillera. Í þættinum ræða þau myndirnar Basic Instinct, Sliver, Jade og Color of Night en þessar myndir voru þó nokkuð vinsælar á tíunda áratugnum. Þau ræða einnig hversu mikill aldursmunur var á Michael Do...

#272 Topp 10: Part II með Óla, Mána og Haffa 19.01.2024

Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hvaða áhrif Spider-Man 2 hefur á Óla, hversu góð Mána finnst The Silence of the Lambs ve...

#271 Topp 10: Part I með Óla, Mána og Haffa 17.01.2024

Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu erfitt er að gera svona topp 10 lista, hvort The Rocketeer sé hin fullkomna ævintý...

#270 Movie Legends: Hugleikur Dagsson vs. Óli og Máni 09.01.2024

Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti! Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir. Strákarnir skiptast á að sv...

#269 2023 með Ásgeiri Kolbeins 03.01.2024

Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2023. Strákarnir fara vel yfir árið og ræða meðal annars hversu þreytt þetta ofurhetjudæmi er orðið, hvort DiCaprio hafi náð að leika aumingja í Killers of the Flower Moon, hvort Barbie hafi hitt í mark hjá Ásgeiri, hversu vel heppnuð Oppenheimer var, hvort Tom Cruise ætti ekki að snúa sér að öðruvísi myndum eftir að nýja Mission...

#268 2023 Quiz: Gummi Sósa vs. Snorri vs. Oddur Klöts 27.12.2023

Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur.    Strákunum var hinsvegar komið á óvart með...

#267 Comedy Quiz: Kilo vs. Villi Neto 17.12.2023

Rapparinn Kilo og leikarinn Villi Neto eru miklir kvikmyndaáhugamenn og grínistar. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að keppa í skemmtilegri spurningakeppni. Hafsteinn samdi 60 spurningar sem allar snúast um grínmyndir að einhverju leyti.   Í þættinum þurfa strákarnir meðal annars að svara almennum spurningum, flokkaspurningum og plakatspurningum. Hvað ár kom Mean Girls út? Hver var fyrsta myndin...

#266 Rétt eða Rangt með Blaffa og Jóa Degi 13.12.2023

Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big...

#265 Íþróttir með Snævari Sölva 06.12.2023

Snævar Sölvi Sölvason er kvikmyndagerðarmaður sem hefur gert indie kvikmyndir á borð við Albatross og Eden. Snævar er nýbúinn að gera sjónvarpsseríu fyrir RÚV sem heitir Skaginn en serían fjallar um fótboltalið ÍA og þeirra sigurgöngu á árunum 1992 til 1996.   Snævar kíkti til Hafsteins til að ræða seríuna og íþróttamyndir. Strákarnir ræða meðal annars myndirnar Happy Gilmore, The Wrestler, Raging...

Bíóblaður áskrift #39 - Come and See með Marteini og Hauki 29.11.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Áhættuleikarinn Marteinn Úlfur Gunnarsson og þungarokkarinn Haukur Þór Valdimarsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina hrikalegustu stríðsmynd allra tíma, rússnesku myndina Come and See (Idi i Smotri).   Strákarnir ræða meðal annars hversu erfið myndin er, hversu mikilvægt er að sjá svona útgáfu af stríðsmynd, hversu lengi leikstjórinn var að gera hana, hlöðuatriðið...

#264 Kilo snýr aftur! 22.11.2023

Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru...

Bíóblaður áskrift #38 - Hannibal Lecter með Mána 19.11.2023

— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða einn ógeðslegasta morðingja kvikmyndasögunnar, mannætuna Hannibal Lecter.   Í þættinum ræða strákarnir meðal annars af hverju Lecter er svona áhugaverður karakter, muninn á myndunum og bókunum, hversu sturluð The Silence of the Lambs er, hversu mikið maður saknar Jodie Foster í Hannibal, hversu áhugave...

Listen to the Bíóblaður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.