Hafsteinn Sæmundsson
Bíóblaður
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#310 Óskarinn 2025 með Agli, Ísrael og Teiti 02.03.2025 3:26:05
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir miklir Óskarsverðlaunaáhugamenn og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta kvikmynd ársins. Í þættinum ræða þeir myndirnar The Brutalist, Wicked, Emilia Peréz, Dune: Part Two, The Substance, Nickel Boys, A...
#309 Gott og Slæmt með Helga og Hauki 19.02.2025 2:22:30
Kvikmyndaáhugamennirnir Helgi Edwald Einarsson og Haukur Bjarnason kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skiptið vildu strákarnir ræða lélegar myndir og góðar myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Battlefield Earth, Batman and Robin, La La Land, The Room, X-Men: First Class og Bullet Train. 00:00 - Intro 00:12 - Helgi og Haukur hafa komið áður 03:52 - Ant-Man: Quantumania 10:36 - The...
#308 Topp 10 með Donnu Cruz 04.02.2025 1:39:10
Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Í þættinum ræða þau meðal annars Tucker and Dale vs. Evil, Flipped, Grand Budapest Hotel, Spirited Away, sjónvarpsseríuna From, hversu æðislegur Tom Hiddleston er, hvort það sé í lagi að horfa á döbbaðar myndir, hvort það sé í lagi fyrir kvikmyndanörda að fara ekkert í bíó í þrjá mánuði, hversu skemmtileg Sh...
#307 Stallone vs. Schwarzenegger með Ísrael og Binna 23.01.2025 2:29:16
Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að...
#306 Stanley Kubrick: Part II með Teiti Magnús 12.01.2025 2:55:56
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar 2001: A Space Odyssey, A Clockwork Orange, Barry Lyndon, The Shining, Full Metal Jacket og Eyes Wide Shut. Strákarnir ræða einnig sínar uppáhalds Kubrick myndir, samsæriskenningar, hinn sérstaka Leon...
#305 Stanley Kubrick: Part I með Teiti Magnús 12.01.2025 2:02:56
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum fyrri hluta fara strákarnir yfir fyrstu myndir Kubrick og ræða meðal annars Fear and Desire, Killer’s Kiss, The Killing, Paths of Glory, Spartacus, Lolita, Dr. Strangelove og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Loksins er komið að Kubrick! 01:3...
#304 2024 með Ásgeiri Kolbeins 08.01.2025 3:29:28
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2024. Strákarnir fara vel yfir árið en ræða helst vinsælustu kvikmyndirnar og sjónvarpsseríurnar á árinu. Í þættinum ræða þeir meðal annars stjörnuleikinn sem Naomi Scott sýnir í Smile 2, hvort Paul Mescal nái sömu hæðum í Gladiator II eins og Russell Crowe gerði í Gladiator, hversu miklum tíma þau eyða í sandinum í Dune II, hvor...
#303 Harry Potter: Part II með Jes Gislason 10.12.2024 1:52:39
Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum seinna hluta ræða strákarnir fimmtu, sjöttu, sjöundu og áttundu Harry Potter myndina. 00:0...
#302 Harry Potter: Part I með Jes Gislason 03.12.2024 2:56:24
Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir fyrstu fjórar Harry Potter myndirnar. 00:00 - Intro 00:15 - Le...
#301 Hot Takes með Arnari Tómas 20.11.2024 1:32:53
Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest...
#300 Part II (Illska og Hasar) 13.11.2024 2:21:16
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum seinni hluta e...
#300 Part I (Disney, Sci-Fi og Blockbusters) 06.11.2024 3:00:54
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum fyrri hluta er...
#299 Halloween með Pétri og Jökli 31.10.2024 3:22:33
Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu slasher seríu allra tíma, Halloween. Í þættinum ræða þeir meðal annars allar þrettán Halloween myndirnar, af hverju fyrsta myndin er talin svona góð, hversu mikið gríman hans Myers virðist breytast með hverri mynd, hverjar eru bestu myndirnar, hversu góð Jamie Lee Curtis hefur verið sem La...
#298 Joker: Folie á Deux með Teiti Magnús 16.10.2024 1:10:29
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða eina umtöluðustu mynd seinni ára, Joker: Folie á Deux. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst myndin, hvort Todd Philips hafi skuldað áhorfendum eitthvað, hvernig það heppnaðist að hafa söngatriði í myndinni, hvernig Lady Gaga stóð sig og margt, margt fleira.
#297 Bókamyndir: Part II með Óla Bjarka 02.10.2024 1:50:49
Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu góð The Social Network er, hversu mikið allir elska Tom Hanks, Liam Neeson og hversu góður dramaleikari hann er í kvikmyndinni The Grey, hversu mikið Óli Bjarki tengir persónulega við Big Fish, hvort V for Vendetta sé vanmetin og margt, mar...
#296 Bókamyndir: Part I með Óla Bjarka 18.09.2024 1:41:19
Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvað flokkast sem góð skáldsaga, hvað góð aðlögun þarf að uppfylla, Coraline og hversu mikil áhrif hún hafði á Óla, hversu frábær Gone Baby Gone er eftir Ben Affleck, hvernig strákunum fannst Dune 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Samb...
#295 007: Pierce Brosnan með Agli, Ísrael og Teiti 04.09.2024 2:40:39
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í annan James Bond þátt en að þessu sinni var fjallað um Pierce Brosnan og hans fjórar Bond myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Martin Campbell sé besti Bond leikstjórinn, hversu æð...
#294 Topp 10 með Hansel Eagle 21.08.2024 2:49:30
Leikarinn Hansel Eagle kíkti til Hafsteins með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Armageddon sé góð eða ekki, hversu vanmetin 90´s myndin Sleepers er, Ex Machina og gervigreind, hvernig The Matrix breytti leiknum, hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu góður kvikmyndagerðarmaður Quentin Tarantino er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
#293 A Nightmare on Elm Street með Pétri og Jökli 07.08.2024 2:36:32
Í tilefni þess að A Nightmare on Elm Street fagnar 40 ára afmæli í ár þá kíktu kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson og Pétur Ragnhildarson til Hafsteins til að ræða þessa stórmerkilegu slasher seríu. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars allar Nightmare myndirnar, hversu frábær Freddy Krueger er sem karakter, hvort Dream Warriors sé besta Nightmare myndin, hvernig Wes Craven fékk hugmyndina að...
#292 Friday the 13th: Part II með Jökli, Pétri og Hödda 26.06.2024 2:00:59
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 13. október 2023. Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th. Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu...
#291 Beverly Hills Cop með Hansel Eagle, Kilo og Snorra 19.06.2024 1:58:06
Í tilefni þess að fyrsta Beverly Hills Cop myndin fagnar 40 ára afmæli í ár og þar sem fjórða myndin er á leiðinni á Netflix, þá komu leikarinn Hansel Eagle, rapparinn Kilo og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson til Hafsteins til að ræða þessa skemmtilegu seríu. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu ungur Eddie Murphy var í fyrstu myndinni, hversu gamall Taggart var í rauninni, hvort Beverly Hill...
#290 007: Daniel Craig með Agli, Ísrael og Teiti 05.06.2024 3:02:24
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í fyrsta James Bond þátt Bíóblaðurs. Í þetta skiptið er fókusinn á myndirnar sem Daniel Craig lék í. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel Craig hafi passað sem Bond, hvort það hafi veri...
#289 Bíóspjall með Anthony Evans 29.05.2024 2:44:51
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 20. janúar 2023. Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90’s myndir og hversu geggjaða...
#288 Star Wars: Dave Filoni: Part II með Gumma, Adam og Aroni 17.05.2024 1:52:28
Star Wars sérfræðingarnir Gummi Sósa, Adam Sebastian og Aron Andri kíktu til Hafsteins til að ræða ýmislegt tengt Star Wars heiminum en þó með sérstakri áherslu á öllu sem Dave Filoni hefur komið nálægt. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars allar leiknu Star Wars seríurnar sem hafa komið út, hversu stórkostleg Andor er, hvernig The Book of Boba Fett gat klikkað svona, hvort Filoni ha...
#287 Star Wars: Dave Filoni: Part I með Gumma, Adam og Aroni 15.05.2024 2:31:42
Star Wars sérfræðingarnir Gummi Sósa, Adam Sebastian og Aron Andri kíktu til Hafsteins til að ræða ýmislegt tengt Star Wars heiminum en þó með sérstakri áherslu á öllu sem Dave Filoni hefur komið nálægt. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hver Dave Filoni er, hversu góðir The Clone Wars þættirnir voru, hvernig Filoni skapaði magnaðan karakter í Ahsoka Tano, hvort Star Wars Rebels sé...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.