Hafsteinn Sæmundsson
Bíóblaður
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#29 Hrekkjavaka með Sigga og Snorra 30.10.2020 1:32:34
Þar sem Hrekkjavaka er á næsta leiti, þá datt Hafsteini í hug að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hann bjó til spurningakeppni og bauð Sigga og Snorra í þáttinn. Spurningarnar skiptast í bjölluspurningar, hraðaspurningar, vísbendingaspurningar og flokkaspurningar. Þar sem þetta er Hrekkjavökukeppni, þá eru þetta einungis hryllingsmyndaspurningar. Hvaða morðvopn notaði Candyman? Hvað heitir djöfu...
#28 Bíóspjall með Ásgeiri Kolbeins 28.10.2020 2:54:58
Ásgeir Kolbeins kom í heimsókn til Hafsteins og þeir ræddu alveg heilan helling. Í þættinum ræða þeir meðal annars íslenska kvikmyndagerð, ástríðuna sem Ásgeir hefur fyrir góðu hljóði í bíómyndum, baráttu minnihlutahópa í Hollywood, hversu mikið Ásgeir elskar Inception, byrjunaratriðið í Final Destination 2, hvernig Saw kom á óvart og margt, margt fleira.
#27 Bíó áskorun með Bjögga og Hödda 23.10.2020 1:39:44
Hafsteinn ákvað að búa til kvikmyndaáskorun fyrir Bjögga og Hödda. Hafsteinn bjó til 10 fjölbreyttar spurningar og strákarnir skiptast á að svara þeim. Þeir fara vel yfir öll svörin og ræða meðal annars líka hversu harður Jake the Muss er í myndinni Once Were Warriors, hvort það yrði gaman að hanga með Marsellus Wallace í heilan sólarhring, hversu blóðug Braindead er, hvort það hafi verið sniðugt...
#26 Keilubíó með Hafþóri Harðar 21.10.2020 1:58:59
Hafþór Harðarson, fjórfaldur Íslandsmeistari í keilu, kom til Hafsteins og þeir ræddu keilumyndirnar, Kingpin og The Big Lebowski. Þeir spjalla um þessar tvær myndir en þeir ræða líka margt, margt fleira. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu skemmtilegur leikari Tom Hanks er, hvernig fólk virðist ekki taka keilu alvarlega, hvað einkennir góðan keilara, hversu fyndinn Bill Murray er í Kingpin,...
#25 Ógeðslegar myndir með Kiddu Svarfdal 16.10.2020 1:51:37
Kidda Svarfdal, ritstjóri hun.is, kom í heimsókn til Hafsteins og þau ákváðu að spjalla um ógeðslegar myndir. Myndirnar sem þau nefna sérstaklega eru The House That Jack Built, A Serbian Film, Martyrs og The Human Centipede. Þau ræða þær og einnig hvað það er við ógeðslegar myndir sem þeim finnst heillandi, hvað Kidda hugsaði þegar hún hitti leikstjórann sem gerði The Human Centipede, skítugt blóð...
#24 Topp 10 með Guðrúnu Dögg og Ástrós Líf 14.10.2020 2:01:11
Hafsteinn fékk systurnar, Guðrúnu Dögg og Ástrós Líf, í heimsókn til sín og þær komu með lista yfir sínar topp 10 myndir. Guðrún og Ástrós eru mjög nánar systur en þær eru með mjög ólíkan kvikmyndasmekk. Hafsteinn og stelpurnar fara vel yfir þær myndir sem stelpurnar nefna en einnig ræða þau hversu töff leikari Tom Hardy er, hversu viðkvæmar þær eru fyrir ofbeldi gagnvart dýrum í bíómyndum, hversu...
#23 Sin City með Nönnu 09.10.2020 1:16:57
Nanna kom aftur og hún og Hafsteinn spjölluðu um Sin City. Sú mynd vakti mikla athygli á sínum tíma fyrir sitt frumlega og tölvugerða svart/hvíta útlit. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu vel myndin eldist, hversu hrikalega góður Mickey Rourke er sem Marv, hversu töff Rosario Dawson er sem Gail, ritgerðina sem Nanna skrifaði um Sin City, hvernig myndin nær að vera mjög trú myndasögunni og hvo...
#22 Nördaspjall með Óla Jóels 07.10.2020 2:03:15
Tölvuleikjaspilarinn og framkvæmdastjórinn, Ólafur Þór Jóelsson, kom til Hafsteins og þeir töluðu um bíómyndir og tölvuleiki. Strákarnir ræða ýmislegt saman en meðal annars ræða þeir hvernig COVID-19 hefur haft áhrif á kvikmyndahús á Íslandi, hversu spenntir menn eru fyrir Playstation 5, hversu pirrandi kraftlausar ofurhetjur eru, hversu hægur tölvuleikurinn Red Dead Redemption 2 er og hversu oft...
#21 Bíólist/Tónlist með Teiti 02.10.2020 1:48:34
Tónlistarmaðurinn Teitur Björgvinsson kom til Hafsteins og þeir ákváðu að ræða vel valdar bíómyndir þar sem tónlist spilar stórt hlutverk. Þeir völdu myndirnar Almost Famous, Engla Alheimsins, Sing Street og Hustle & Flow. Strákarnir ræða meðal annars hversu sjarmerandi Penny Lane er, hversu flott frumsömdu lögin í Sing Street eru, hversu mikilvægt það er að elta draumana sína og hversu flottur Jo...
#20 Bíóspjall með Ernulandi 30.09.2020 1:44:39
Ernuland kom í heimsókn til Hafsteins og þau áttu gott og fjölbreytt bíóspjall saman. Þau spjölluðu um bíómyndir, þætti og margt, margt fleira. Þau ræddu meðal annars hversu æðislegur Leonardo DiCaprio er sem leikari, hvernig trú hefur breyst með árunum, hversu mikið Erna elskar Mamma Mia, hversu auðveldlega fólk deyr í Grey's Anatomy og hvort það væri gaman að spjalla við einhvern sem skrifar reg...
#19 A Quiet Place með Bjögga 25.09.2020 44:08
Bjöggi og Hafsteinn hittast aftur og í þetta skipti ræða þeir einungis eina bíómynd en það er bíómyndin, A Quiet Place. Sú mynd fékk hrikalega flotta dóma á sínum tíma en strákarnir eru ekki alveg sammála þeim dómum. Þeir ræða meðal annars hversu heimsk myndin er, hvernig sumir hafa ekki mikinn áhuga á að passa börnin sín, hvort það hefði ekki verið betra fyrir fjölskylduna að búa í hljóðeinangruð...
#18 Topp 10 með Kilo 23.09.2020 2:09:17
Rapparinn Kilo mætti til Hafsteins og þeir fóru saman yfir 10 myndir sem Kilo elskar. Strákarnir ræða þær í þættinum og margt, margt fleira. Þeir ræða meðal annars hversu góð mynd Leon er, hversu glatað það er þegar leikstjórar hrista myndavélina í hasaratriðum, hvort maður eigi að hætta að horfa á Kevin Spacey myndir, hversu gaman það er að skjóta úr byssum og hvernig franska myndin, Martyrs, hef...
#17 KIWI áskorun með Inga og Arnari 18.09.2020 1:58:54
Hafsteinn fékk KIWI strákana, Inga og Arnar, til að kíkja til sín og taka þátt í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi sex spurningar, Ingi tvær og Arnar tvær. Strákarnir skiptast á að svara þeim og ræða meðal annars í þættinum hversu fyndin mynd Borat er, hversu góð mynd As Good as it Gets er, hvort Lara Croft sé harðari en Sarah Connor og hversu margar anime myndir Ingi hefur séð.
#16 Marvel með Sunnevu Einars 16.09.2020 1:52:28
Sunneva Einars kom til Hafsteins og þau ræddu Marvel ofurhetjumyndir. Hafsteinn bjó til 10 Marvel spurningar handa Sunnevu og hún svarar þeim í þættinum. Þau fara saman yfir svörin og ræða meðal annars hversu fyndin Thor: Ragnarok er, hvernig Sunneva heldur oft með vondu köllunum, nördalegasta hlut sem Sunneva hefur keypt, hvaða ofurkraft væri best að vera með og hvort það hefði verið gaman að ber...
#15 Scarface/Carlito's Way með Hödda 11.09.2020 1:59:25
Hafsteinn fær Hödda aftur í heimsókn og í þetta skipti ræða þeir Scarface og Carlito's Way. Strákarnir ræða meðal annars hversu vel Scarface eldist, hversu góður karakter Tony Montana er, hvort fólk sé töff sem notar sólgleraugu á kvöldin, hversu vanmetin Carlito's Way er og hversu sturlaður Sean Penn er sem leikari.
#14 Kvikmyndaáskorun með Sölva Tryggva 09.09.2020 1:55:50
Sölvi Tryggva kom til Hafsteins og þeir fóru saman í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi 10 fjölbreyttar spurningar og þeir skiptust á að svara þeim. Strákarnir ræða ýmislegt eins og t.d. hversu góður leikstjóri Stanley Kubrick var, hvort Sölvi gæti lært eitthvað af Vito Corleone, hversu klikkaður rétttrúnaðurinn er orðinn og hversu vel Brad Pitt eldist.
#13 The Invisible Man/Hollow Man með Bjögga 04.09.2020 1:19:12
Bjöggi og Hafsteinn ræða muninn á The Invisible Man og Hollow Man. Þeir ræða meðal annars hversu flókið það væri að vera ósýnilegur, gallana við plottið í The Invisible Man, hversu kjarkaður Kevin Bacon er sem leikari og hversu erfitt það væri fyrir ósýnilegan mann að sofa.
#12 Bíó Freestyle með Binna Löve 02.09.2020 1:42:31
Binni Löve kom í heimsókn til Hafsteins og þeir ákváðu að ræða bara allt og ekkert. Þeir ræða meðal annars hversu töff The Fast and the Furious myndirnar eru, hversu góð Free Solo er, hvort The Rock sé betri en Con Air og hvort Binni gæti leikið lögfræðing eða leikstjórnanda.
#11 Tenet með Nönnu 28.08.2020 45:48
Hafsteinn og Nanna fóru á Tenet í bíó og ákváðu að gagnrýna hana saman. Þau ræða meðal annars hversu flókin myndin er, hversu þroskaður Robert Pattinson er orðinn, hvort það sé gott að fá stundum nei og hversu töff John David Washington er.
#10 Dunkirk/The Prestige með Nönnu 26.08.2020 1:32:50
Tenet er frumsýnd í dag og því var ákveðið að hafa einn Christopher Nolan upphitunarþátt. Nanna kemur í heimsókn til Hafsteins og þau ræða helst myndirnar Dunkirk og The Prestige. Þau fara meðal annars yfir hversu ósammála þau eru um Dunkirk, persónusköpun, hversu góður leikari Hugh Jackman er og hvernig Nolan hefur vaxið sem leikstjóri síðan hann gerði Memento.
#9 Kvikmyndaáskorun með Birtu Líf 19.08.2020 1:46:02
Hafsteinn fær Birtu Líf í heimsókn og þau fara saman í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi 10 fjölbreyttar spurningar sem þau skiptast á að svara. Þau ræða meðal annars væmnar myndir, bíóreglur, hefndarmyndir, svöl kærustupör í bíómyndum og hvernig myndir Birta Líf fékk að horfa á þegar hún var þriggja ára gömul.
#8 Rock Ocean Movie Challenge með Sigga og Snorra 12.08.2020 2:04:56
Siggi og Snorri taka þátt í kvikmyndaáskorun sem Hafsteinn bjó til. Hann samdi 10 spurningar sem félagarnir skiptast á að svara. Þeir ræða meðal annars hversu góð hasarmynd Mad Max: Fury Road er, hvaða myndir fengu strákana til að tárast, hvort Elektra sé vanmetin mynd og hversu kjarkaðir Suður-Kóreubúar eru þegar kemur að kvikmyndagerð.
#7 Predator Quadrilogy með Hödda 05.08.2020 2:11:13
Höddi og Hafsteinn spjalla um Predator myndirnar. Þeir ræða meðal annars hversu karlmannleg fyrsta myndin er, hversu illa Predator 2 eldist, menn sem ganga með gemsana sína í byssubelti undir öxl og hvort börn eigi að vera í Predator myndum.
#6 80's grínmyndir með Sigga 29.07.2020 1:40:46
Siggi valdi Police Academy, The Burbs og Trading Places. Hafsteinn valdi Airplane!, Fletch og Uncle Buck. Þeir fara vel yfir þessar myndir og ræða einnig af hverju 80's grínmyndir eru skemmtilegar, hvort Dan Aykroyd sé fyndinn leikari og hversu strangur Hafsteinn er þegar hann býður fólki heim í videokvöld.
#5 Scream Quadrilogy með Nönnu 22.07.2020 2:22:05
Hafsteinn fær Nönnu í heimsókn og þau spjalla saman um Scream myndirnar. Þau ræða meðal annars hvort að Stu hafi verið skotinn í Billy, listrænt tjáningarfrelsi, hvað Courteney Cox var eiginlega að hugsa með Scream 3 hárgreiðslunni sinni og hvort það þurfi ekki bara að leggja Sidney Prescott inn á geðdeild.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.